Dagur - 08.10.1988, Qupperneq 20
,,l( CHICOGO
Snvrtivörur í úrvali -
TBiodroqa
COSmetics Snyrtivörudeild
Okkar merki - Snyrtivörur í úrvali
Sjópróf á Dalvík:
Óvíst um orsakir
lekans á Sæljóninu
Um miönætti sl. fimmtudags-
kvöld lauk sjóprófum á Dalvík
sem haldin voru vegna þess aö
Sæljónið EA-55 sökk norður
af Siglunesi á miðvikudag.
Rannsóknarlögreglan á Akur-
eyri yfirheyrði áhöfn Sæljóns-
Veðrið:
Kalt um
helgina
„Það verður í fyrsta lagi kalt,“
sagði Guðmundur Hafsteins-
son veðurfræðingur á Veður-
stofunni þegar við spurðumst
fyrir um helgarveðrið á
Norðurlandi.
Norðaustanáttin á þó að ganga
niður og í dag spáir hann hægri
norðanátt með éljum á stöku
stað. Á sunnudag verður stillt
veður, en Guðmundur bjóst við
að eitthvað myndi rætast úr eftir
helgina, en þá er spáð suðvest-
lægri átt. Ekki þótti Guðmundi
helgin gæfuleg til kartöfluupp-
töku, en sem kunnugt er eiga ein-
hverjir kartöflubændur eftir að
taka talsvert upp. mþþ
ins og einnig áhöfnina á
Bjarma EA-13, sem kom skip-
verjum til bjargar, og lagði þau
gögn fyrir sjórétt.
Ekki fengust áþreifanlegar
niðurstöður úr sjóprófunum en
Rannsóknarnefnd sjóslysa vinnur
áfram að málinu. Menn leita
skýringa á því af hverju leki
komst að Sæljóninu og sagði
Gunnþór Sveinbjörnsson,
útgerðarstjóri hjá Rán hf. sem
gerði Sæljónið út, að ein tilgátan
væri sú að báturinn hefði lamist
við bryggju áður en hann fór út.
„Það var mikill sjógangur
hérna dagana áður en hann fór út
og það er jafnvel haldið að bátur-
inn hafi skemmst eitthvað þá og
síðan hafi það ekki komið í ljós
fyrr en veðrið fór að versna á
miðunum. Þetta kom alveg flatt
upp á skipverja,“ sagði Gunnþór.
Hann sagði að Sæljónið hefði
sokkið niður á 190 faðma dýpi og
hann reiknaði því ekki með að
reynt yrði að ná bátnum upp, né
að óyggjandi skýringar myndu
fást á þessum leka.
Sæljónið EA-55 var 60 tonna
trébátur, smíðaður í Danmörku
1955. Rán hf. gerir einnig út Sæ-
nesið, sem er ársgamall bátur,
smíðaður í Svíþjóð. SS
Akureyri:
Lánveiting til
stúdentaíbúða
- Félagsstofnun stúdenta
verður að veruleika um miðjan mánuðinn
Allt bendir til að Húsnæðis-
stofnun ríkisins gefi formlegt
vilyrði fyrir iánafyrirgreiðslu til
kaupa á íbúðum fyrir Félags-
stofnun stúdenta við Háskól-
ann á Akureyri innan skamms.
Undirbúningsnefnd starfar að
stofnun Félagsstofnunar stúd-
enta og verða íbúðirnar í eigu
og umsjón hennar.
Guðmundur Stefánsson, for-
maður Skjaldar - félags áhuga-
manna um Háskólann á Akur-
eyri, sagði að Skildi hefðu borist
fregnir af því að Húsnæðisstofn-
un hefði afgreitt jákvætt umsókn
um íbúðir fyrir stúdenta, en ekki
hefði borist formleg staðfesting
þess efnis ennþá. Slík staðfesting
væri fljótlega væntanleg.
Byggðastofnun gaf nýlega
hálfa milljón króna sem á að
renna til kaupa á íbúðum fyrir
stúdenta á Akureyri. Pá hefur
Akureyrarbær gefið vilyrði fyrir
stuðningi sínum á næsta ári. Sér-
stök fjáröflunarnefnd hefur
undanfarið rætt við sveitarfélög
og fyrirtæki um stuðning við
kaup á stúdentaíbúðum og víða
fengið ágætar undirtektir.
Ætlunin er að stofnfundur
Félagsstofnunar stúdenta verði
haldinn þriðjudaginn 18. Októ-
ber, og verða íbúðirnar sem
keyptar verða á hennar vegum,
eins og tíðkast almennt um slíkar
félagsstofnanir. Félagið Skjöldur
verður áfram starfandi að hags-
munamálum háskólans.
Að sögn Guðmundar Stefáns-
sonar er ekki ljóst hversu margar
íbúðir verða keyptar en stefnt er
að kaupum á þremur til fjórum
íbúðum í haust. Að ári liðnu er
stefnt að því að búið verði að
ganga frá kaupum á mun fleiri
íbúðum fyrir háskólann. EHB
Guðmundur Bjarnason heilbrigðisráðherra, heimsótti nemendur unglingadeilda Glerárskóla á Akureyri í gær.
Tilefnið var að um þessar mundir er að hefjast sérstakt átak til að efla heilbrigt líferni og vellíðan meðal íslenskra
unglinga. Ráðherra afhenti nemendunum veggspjald, barmmerki og límmiða og ræddi við þá um þessi mál.
Mynd: TLV
Deyfð á vinnumarkaði á Akureyri:
Fjölmargir á skrá ráðningar-
stofa en hreyflngin lítil
- fleiri atvinnulausir nú en á sama tíma í fyrra
Mikil lægð er á vinnumarkað
inum á Akureyri. Talsvert
fleiri eru á atvinnuleysisskrá
nú miðað við sama tíma í fyrra,
eða alls 51 á móti 32 síðasta
haust. Fleiri konur en karlar
eru skráðar atvinnulausar eða
32 á móti 19 körlum. Fjöl-
margir eru á skrá hjá ráðninga-
skrifstofum í bænum og ber
viðmælendum blaðsins saman
um að ástandið hafi ekki verið
svo slæmt um langan tíma.
Gunnar Jónsson hjá Felli sagði
að um 100 manns væru á skrá hjá
fyrirtækinu og væri hann hættur
að skrá fólk niður vegna þess hve
erfiðlega gengi að útvega atvinnu
um þessar mundir. Einkum sagði
hann að fólkið væri að leita að
verslunar- og skrifstofustörfum,
en lítil sem engin hreyfing væri á
þeim markaði. Sagði hann að
mikið af þessu fólki sem á skrá er
væri á bilinu 20-30 ára gamalt
með stúdentspróf og jafnvel
hluta af háskólanámi. Sú vinna
sem það væri að leita að virtist
ekki vera fyrir hendi í bænum.
Gunnar auglýsti eftir starfs-
manni til afgreiðslustafa og sagði
hann að 20 manns hefðu sótt um
þetta eina starf og annað eins
hefði verið hringt.
Hjá Ábendi eru 220 manns á
skrá núna og sagði Stefanía
Arnórsdóttir að aldrei hefðu eins
margir verið á skrá hjá fvrirtæk-
inu. Konur eru ívið fleiri en
karlar, eða ríflega helmingur
þeirra sem á skrá eru. Hún sagði
að ágætlega hefði gengið að
útvega fólki vinnu f sumar, en
mikil lægð væri á markaðinum
núna.
Þorleifur Þór Jónsson atvinnu-
málafulltrúi Akureyrarbæjar
sagði að atvinnurekendur hefðu
markvisst haldið að sér höndum
varðandi mannaráðningar í haust
Ákvarðanir fyrrverandi menntamálaráðherra dregnar til baka:
Vil færa ákvaröanir út úr
menntamálaráðiineytinu
- segir Svavar Gestsson menntamálaráðherra
99
Birgir Isleifur Gunnarsson,
fráfarandi menntamálaráð-
herra, lét það verða eitt af sín-
um síðustu verkum í starfi að
skipa nefnd til þess að fjalla
um íþrótta- og æskulýðsmál og
stefnu í þessum málaflokkum
til aidamóta. Svavar Gestsson
hefur nú leyst þessa nefnd frá
störfum.
Ný nefnd verður skipuð með
svipuð verkefni. Að sögn Svavars
Gestssonar verður munurinn sá
að nú verður leitað eftir aðild
æskulýðs- og íþróttasamtaka
landsins að nefndinni auk þess
sem þar verða fulltrúar mennta-
málaráðuneytisins. Svavar Gests-
son átelur einnig forvera sinn fyr-
ir vinnubrögð við skipun for-
manna skólanefnda flestra fram-
haldsskóla landsins. Hann hefur
því afturkallað tilmæli fyrrver-
andi ráðherra um skipun annarra
fulltrúa í skólanefndir við þá
skóla sem ríkið rekur nú og legg-
ur jafnframt áherslu á að hann
sem menntamálaráðherra vilji
færa sem mest af ákvörðunum út
til fólksins.
„Ég vil færa ákvarðanir til
fólksins, út í fræðsluumdæmin, út
til fræslustjóranna, út úr mennta-
málaráðuneytinu. Sú tilhneiging
til miðstýringar sem mér hefur
fundist ríkjandi í menntamála-
ráðuneytinu, ekki aðeins í skóla-
málum heldur á öðrum sviðum,
tel ég að sé óæskileg og mun
reyna að leggja þar inn á aðrar
brautir," segir Svavar Gestsson,
menntamálaráðherra. JÓH
vegna þess óvissuástands sem
ríkti í þjóðfélaginu. í mörgum til-
fellum hefði ekki verið endurráð-
ið í þau störf sem hafi losnað og
nýframkvæmdir af ýmsu tagi séu
með minnsta móti. mþþ
Stofnfundur
gjaldheimtu:
Húsvíkingar
ekki með
Stofnun gjaldheimtu í Norður-
landskjördæmi eystra verður
tekin fyrir á fundi sem Fjórð-
ungssamband Norðlendinga
boðar til á Húsavík nk. mánu-
dag. Bæjarstjórn Húsavíkur
samþykkti á fundi sínum sl.
þriðjudag að taka ekki þátt í
stofnun gjaldheimtunnar og
vera ekki með, að minnsta
kosti fyrst um sinn.
í greinargerð sem fylgdi tillög-
unni, sem tekin var fyrir og sam-
þykkt á fundinum, kom fram að
með stofnun gjaldheimtunnar
væri haldið áfram á þeirri óheilla-
braut að flytja opinbera þjónustu
frá sveitarfélögunum til eins stað-
ar í hverju kjördæmi að því leyti
sem hún væri ekki flutt til
Reykjavíkur.
I máli bæjarfulltrúa kom fram
að þeir óttuðust að þjónusta
gjaldheimtunnar yrði sveitar-
félögunum dýr og fækkun á störf-
um væri alvörumál fyrir Húsavík.
Tryggvi Finnsson sagði m.a. að
rétt væri að beita neitunarvaldi á
þessu stigi, ekki væri hægt að
keyra málið svona í gegn og það
hlyti að verða tekið upp aftur.
Hið eðlilega markmið væri að
bæjarfógetaskrifstofurnar sæju
um innheimtuna á kostnaðar-
verði. IM