Dagur - 21.10.1988, Page 7
Þegar vel er að verki staðið fá jafnvel litlar hendur ótrúlega miklu áorkað.
an tíma. Það er enginn saklaus í
þeim rekstrarglundroða, sem við
búum við. Hann er þjóðfélags-
vandamál.
Viðamíkill málaflokkur
En víkjum frekar að umhverfis-
málum. Umhverfismál er viða-
mikill málaflokkur og nokkuð
breytilegt eftir löndum hvað
nákvæmlega er til hans talið. Þar
má nefna skipulagsmál, náttúru-
og gróðurvernd, hreinsun gatna
og holræsa, sorphreinsun og
sorpeyðingu, mengunarmál, mat-
vælaeftirlit og heilbrigðiseftirlit
almennt, kirkjugarða, garðlönd,
unglingavinnu, skrúðgarða og
opin svæði í þéttbýli, fegrun
umhverfis af ýmsum toga og
svona mætti lengi telja.
Samkvæmt náttúruverndarlög-
um skal í hverju héraði, sýslu-
eða bæjarfélagi, starfa þriggja til
sjö manna náttúruverndarnefnd,
sem skal stuðla að náttúruvernd
hver á sínu svæði. í nokkrum
kaupstöðum hafa umhverfisráð
yfirtekið störf þessara nefnda. í
þeim 33 sveitarfélögum í landinu
sem hafa yfir 1000 íbúa starfa
umhverfisnefndir í 17 þeirra, en
jafnframt starfa fegrunarnefndir
og gróðurverndarnefndir. Aðeins
í einu þeirra er engin slík nefnd
starfandi.
Tilviljanakennd tengsl
Störf þessara nefnda eru með
ýmsu móti. Það þekkist til dæmis
að umhverfisnefndir starfi á ferða-
málasviði og einnig heilbrigðis-
og félagsmálasviði. Það er hins
vegar nokkrum tilviljunum háð
hversu náin tengsl eru á milli
nefnda, sem vinna að stefnumót-
un í umhverfjsmálum. Það má
almennt segja það sama um þess-
ar nefndir og nefndakerfi sveitar-
félaganna almennt, - að störf
þeirra gætu verið miklu meiri og
betri. Forsendan fyrir skilvirku
nefndakerfi sveitarfélaga, sem á
að móta vel samhæfða almenna
stefnu, er aðgengilegt upplýsinga-
kerfi, sem er að sjálfsögðu hluti
af þeirri „yfirbyggingu" sem aldrei
fær að rísa.
Þegar tannhjólin hafa
sjálfstæðan snúning
Sé gengið út frá góðum siðum, þá
er framkvæmdavald sveitarfélaga
falið framkvæmdastjóra einum,
sem fær fyrirmæli sín í formi
stjórnarstefnu og annarra sam-
þykkta sveitarstjórna á formleg-
um fundi. Pólitískar undirnefndir
hafa engin formleg yfirráð í fram-
kvæmdastjórn sveitarfélagsins
nema í gegnum sveitarstjórn og
sveitarstjórnir hafa engan form-
legan aðgang að starfsmönnnum
sveitarfélagsins framhjá fram-
kvæmdastjóra. Allt of algengt er,
að allt form sé álitið hjákátleg
tímaeyðsla, og því eru greiðfærar
og viðurkenndar boðleiðir ekki
til staðar þegar til þeirra þarf að
grípa. Þegar tannhjólin vilja hafa
sjálfstæðan snúning er hlutverki
vélarinnar lokið. Því miður virð-
ast þessar vélar oft vera hreint
klastur, bila oft ef ekki alveg
ógangfærar. Á hinn bóginn leysir
formið eitt aldrei allan vanda og
því þarf að meta hverju sinni
hversu stíft skal í taumana
haldið. Það er síðan umræðuefni
annarrar ráðstefnu hversu van-
nærð við erum í lýðræðislegu
uppeldi.
Tilviljanakenndar
hugdettur
Meginhlutverk pólitísks nefnda-
kerfis sveitarfélaga er að vinna að
stefnumótun í viðkomandi mála-
flokki með hliðsjón af öðrum
markmiðum, sem sveitarstjórnin
hefur sett sér. Þessum tillögum
skal skilað til sveitarstjórna eða
framkvæmdaráðs, sem vinnur að
stefnumótun og fjárhagsáætlun
til lengri tíma. I langtímaáætlun-
argerð er einstökum verkum rað-
að með ýmsum hætti í forgangs-
röð og þá er hægt að vinna að
nánari hönnunarvinnu og gerð
nákvæmari kostnaðaráætlana fyr-
ir næsta starfsár, þ.e. þau verk,
sem eru efst á forgangsraðarlist-
anum. Til að þetta sé mögulegt
þarf að vera náið samstarf milli
sveitarstjórnar og undirnefnda
hennar og starfsmanna sveitarfé-
lagsins í þeim tilgangi að pólitísk
markmið sveitarstjórnarmanna
og þekking og reynsla starfs-
mannanna geti myndað skyn-
sama heild. Því miður er það allt
of algengt að undirnefndir komi
fram sem hagsmunahópur gegn
sveitarstjórn, sem þær þurfa frek-
ar að verjast og varast en að vera
opnar fyrir. Undirnefndir eru
misvirkar og vinnubrögð þeirra
einkennast alloft á tilviljana-
kenndum hugdettum, eins og
þegar meðlimir þeirra koma á
vettvang til að stöðva eða hefja
framkvæmdir!!
Skammur fyrirvari
Það heyrir til undantekninga að
íslensk sveitarfélög vinni eftir
áætlunum til lengri tíma. Slíkt
þekkist þó m.a. hjá sumum hinna
smærri. Sama er að segja um
stefnumótun á sviði umhverfis-
mála. Þar eru framkvæmdir of oft
ákveðnar með stuttum fyrirvara
og litlum undirbúningi, þar sem
ásetningurinn að „drífa verkið
af“ yfirgnæfir allt annað. Á slík-
um stundum skiptir litlu máli
hvað verk kostar og hvort
skynsamlega sé að þeim staðið.
Vegna fjölbreytileika umhverf-
ismála og óljósra skila við marga
aðra málaflokka vill það brenna
við að ákvarðanataka sé óljós,
undirbúningur mála strandi á
milli manna og framkvæmdir
dagi uppi.
Mig grunar að fjárveiting
margra smærri sveitarfélaga
markist nokkuð af því að fjár-
hagsáætlun er unnin í mesta
skammdeginu, þegar úrkoman
bylur á gluggum fundarsala sveit-
arstjórnanna. Umhverfismál og
útivist eru þá ekki öllum ofarlega
í huga. Sama er að segja um
margvíslegan undirbúning svo
sem hönnunarvinnu og marghátt-
aða útivinnu, sem allt eins má
vinna að vetri. Þegar hinni árlegu
vorhreinsun er lokið fyrir 17. júní
þá er sest niður og spurt, - hvað
eigum við að gera í sumar?
Á miðju sumri kunna stjórn-
málamenn að vera teknir á beinið
fyrir aðgerðaleysi og ekki líður
dagurinn að húskarl eins og ég sé
ekki krafinn skýringa.
Úrræða- og aðgerðaleysi
Skipulagsleysi á sviði umhverfis-
mála getur svo sem gengið í lang-
an tfma, því að verkin eru oft
mörg og smá og tiltölulega ein-
föld. Á hinn bóginn er hætt við
að þetta komi verulega niður á
afköstum og gæðum verka. Fá
sveitarfélög hafa fasta starfsmenn
og starfsdeildir, sem vinna sér-
staklega að umhverfismálum allt
árið. Stór hluti af starfsfólki
sveitarfélaga á þessu sviði eru
börn og unglingar í sumarvinnu.
Það er því mikilvægt að skipu-
leggja störf þeirra sem best, því
að eftir að sumarvinnan er hafin
gefst lítill tími til hönnunarvinnu
og áætlunargerðar. Ómetanlegt
er að hafa notið aðstoðar fagfólks
við undirbúning verka og vita
nákvæmlega hvernig hvert verk
skal unnið, geta gengið að sam-
þykktri verkáætlun, sem viðeig-
andi aðilar hafa tekið þátt í að
móta, og geta framkvæmt verkin
hvert af öðru. Þegar vel er að
verki staðið fá jafnvel litlar hend-
ur ótrúlega miklu áorkað.
Aukin þátttaka íbúanna
Ýmis smávægileg atriði geta vaf-
ist fyrir leikmönnum svo árum
skiptir og orðið að hjákátlegum
deilum. Það er einmitt úrræða-
leysið sem oft á tíðum er helsta
orsök aðgerðaleysisins.
Hafi sveitarfélög aðgang að
góðri ráðgjöf, sem skilar sér í
bættri stefnumótun, skapast for-
sendur til aukinnar þátttöku íbú-
anna bæði á sviði stefnumótunar
og framkvæmda. Aukinn árangur
skilar sér í auknum áhuga, sem
skilar sér í auknum framlögum til
umhverfismála á fjárhagsáætlun-
um sveitarfélaga. En það er dýrt
að leita aðstoðar fagmanna og oft
kemur sorglega lítið út úr þeirri
vinnu. Þá er stundum farið inn á
vafasamar brautir og skipulagt af
fingrum fram meðan á fram-
kvæmdum stendur, siglt í strand,
- kallað á fagmann, - beðið og
síðan borgaður tvöfaldur kostn-
aður fyrir umdeilt verk.
Vaxandi kröfur
En það horfir margt til bóta á
þessu sviði. Kröfur almennings
um betra umhverfi hafa stórvaxið
á undanförnum árum og umhverf-
ismál eru hægt og sígandi að þok-
ast ofar á forgangsraðarlista
sveitarfélaga. Sum sveitarfélög
eru þokkalega á vegi stödd hvað
þetta varðar. Mismunur sveitar-
félaga er þó mikill í þessum efn-
um sem öðrum. Sums staðar eru
náttúrulegar kringumstæður hag-
stæðar, tekjur góðar en hjá öðr-
um eru erfiðar náttúrulegar
kringumstæður, gamall uppsafn-
aður sóðaskapur og vanhirða.
Brýna nauðsyn ber til að bæta
umhverfi hafna og fiskvinnslu-
fyrirtækja víða um land og er mér
ekki grunlaust að samhengi sé á
milli umhverfis hafna og
fiskvinnslufyrirtækja og álits
margra íslendinga á sjálfri lífs-
björginni? Áhugi sveitarfélaga og
fyrirtækja til úrbóta er mjög mis-
munandi en í mörgum tilfellum
ræðst hann af ólíkum aðstæðum
þeirra. í opinberri stjórnarstefnu
er ekki stefnt að mismun í heil-
brigðisþjónustu eftir byggðarlög-
um, - en hversu mikinn mismun
ætlum við að líða á sviði
umhverfismála?
Hallgrímur Guðmundsson.
(Höfundur er sveitarstjóri á Höfn í HornufírAi.)
Aðalfundur
Sálarrannsóknarfélags Akureyrar
veröur haldinn laugard. 5. nóv. kl. 14.00 í gamla
starfsmannasal KEA, Hafnarstræti 91-93, 4. hæö.
Almenn aðalfundarstörf.
Stjórnarkjðr.
Félagar hvattir til að mæta
Stjórnin.
^--------------------s
Karlmannaföt,
stakir jakkar,
buxur, skyrtur, peysur, frakkar og margt
fleira í glæsilegu úrvali.
Smókingföt Kjólföt
Klæðskeraþjónusta
Verslið hjá fagmanni
ATH. Verslunin er opin á laugardögum frá kl. 10-12.
I Hafnarstræti 92 (Bautahús suðurendi), sími 26708.
Pöstudags- og laugardagskv/öld
Skemmtikvöld með
Svavari Qests
Hljómsveit
Örvars Kristjánssonar
leikur fyrir dansi.
Laugardagskvöld
Free-style
hárgreiðslukeppni.
Sunnudagskvöld
Tónleikar
Bubbi Mortens
Qlæsilegur matseðili.
Kjallarínn opinn öll kv/öld