Dagur - 05.11.1988, Blaðsíða 6

Dagur - 05.11.1988, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - 5. nóvember 1988 Það var ekki minni maður en Winston Churshill sem sagði eitt sinn: „Ef þú vilt gera barninu þínu gott, gefðu því hest.“ Margir eru honum sammála og einn þeirra er Jón Olafur Sigfússon formaður hestamannafélagsins Léttis, en félagið er 60 ára í dag. Félagsmenn í Létti eru nú tæplega 300 talsins, en margt hefur borið á góma frá stofnun og mikið verk verið unnið. Eitt af því, er bygging nýs félagsheimilis sem vígt verður í dag. Dagur kom við í nýja fé- lagsheimilinu og fékk Jón Ólaf til þess að rekja sögu félagsins í stuttu máli. Þessi mynd er nokkuð komin til ára sinna, en hér er kominn Steingrímur Matthíasson héraðslæknir, sonur þjóðskálds íslendinga. Léttir 60 ára í dag: „Bœdi skemmtiledr og letöinlegir atburðir ofarlega í hugaa - afmælisspjall við Jón Olaf Sigfússon formann í tilefni dagsins „Félagið var stofnað 5. nóvember 1928 af nokkrum áhugasömum hestamönnum á Akureyri. Fyrsti formaður þess var Pálmi Hannesson en með honum í stjórn voru Sigurður Hlíðar dýralæknir og Þorsteinn Þorsteinsson ferðamáiahöfðingi og faðir Tryggva Þorsteinssonar skátaforingja. Árið 1932 má segja að deyfð hafi fallið yfir félagið í tíu ár, þó allan tímann hafi það verið virkt. Árið 1942 var haldinn nokkurs konar annar stofnfundir og ný stjórn kjörin. Formaður hennar var Jón Geirs- son, ritari Hjörtur Gíslason og gjaldkeri Ragnar Ólafsson. Eftir það hefur félagið starfað sam- fleytt. Tamningastöð á Eyrarlandsholti Fyrstu mál félagsins, bæði frá upphafi og endurvakningu voru fyrst og fremst kappreiðar, haga- mál og hin venjulegu hagsmuna- mál félagsins eins og þau eru í dag. Fyrstu stóru tíðindin gerast 1944, en þá er keypt fyrsta húsið sem félagið eignast. Húsið var keypt undir tamningastöð á Eyr- arlandsholti þar sem Verk- menntaskólinn á Akureyri stend- ur núna, en þar var rekin tamn- ingastöð samfleytt til 1962. Auk þess að þjóna sem tamningastöð, var húsið félagsmiðstöð þess tíma.“ Félagið réðst í það stórvirki 1962 að kaupa jörðina Kaup- vangsbakka fram með Eyjafjarð- ará og þá jörð á félagið enn í dag. Hún er notuð til sumarbeitar fyr- ir hesta félagsmanna, en hver veit nema sú jörð eigi eftir að verða verðmæt þegar áin fer að verða dýrmæt laxveiðiá. „Við fengum í fyrsta skipti í sumar greiddan arð af ánni, svo hún er farin að skila okkur örlitlusagði Jón Ólafur. Landssamband hestamannafé- laga var stofnað 1949 og árið eftir gekk Léttir í það samband. „Við erum þriðja elsta hestamannafé- lagið á landinu á eftir Fák í Reykjavík og Glað í Dalasýslu, en það félag var stofnað nokkr- um mánuðum á undan okkur. Það má segja að það hafi verið tímaskekkja þess tíma, en strax Hið nýja og glæsilcga félagsheimili Léttis verður vígt í dag. Mynd: TLV - *f WWEYm 'Á afmæli Akureyrarbæjar á síðasta ári, fóru félagsmenn Léttis skrautreið um bæinn og hér situr Birgir Árnason hestinn Aron t.v. og Hólmgeir Valde- marsson er á Jörva. um 1950 var farið að ræða um orlofsbúðir fyrir hestamenn og talað um að við reyndum að komast inn á Fnjóskadal. Var þetta mál í deiglunni allt til 1981 en þá var gerður samningur við hreppsnefnd Hálshrepps um afnot af eyðijörðinni Sörlastöð- um, sem við höfum í dag. Jörðina erum við búnir að byggja veru- lega upp og hyggjumst halda því áfram. Menn fara þarna austur á sumrin með sína hesta og fjöl- skyldur og halda þarna til um lengri eða skemmri tíma. Mér er nær að halda að Léttir sé fyrsta hestamannafélagið á landinu sem kemst yfir svona aðstöðu. Öflug kvennadeild í kringum 1970 förum við að huga að framtíðar mótssvæði fyr- ir Léttismenn og þá erum við búnir að vera með skeiðvöll í dálítinn tíma á Stekkjarhólma fram með Eyjafjarðará. Sá völlur var alltaf dálítill vandræðagripur, því hann átti til að fara á kaf í vatni alltaf þegar átti að nota hann svo það þurfti að hugsa fyrir betri stað. Það var farið að líta í kringum sig og staðnæmst inn við Melgerðisntela. Árið 1975 náð- um við tangarhaldi á þeim stað með leigusantningi við Saurbæj- arhrepp og erum búnir að byggja

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.