Dagur - 05.11.1988, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 5. nóvember 1988
Adalsteinn Svanur og myndin Land og synir.
Myndir: EHB
IUMFERÐAR
• ráð
(t : uy »•,"»
-v . ,
VDef
^KRYLLAKK
^^innrétiiPg*
húsgöjji0^
“USTMALNING
Athyglisverð málverkasýning
- Aðalsteins Svans Sigfússonar um síðustu helgi í Dynheimum
Aðalsteinn Svanur Sigfússon,
listmálari, hélt athyglisverða
málverkasýningu í Dynheim-
um um síðustu helgi. Aðal-
steinn hefur tekið þátt í all-
mörgum samsýningum en
þetta var fjórða einkasýning
Nu færðu
málninguna
í Hrísalundi
Höfum opnaö
málningadeild
í Kjallaranum
Hrísalundi
Þar fæst allt er þarf til
málningavinnu.
Spartl, penslar, límbönd,
bakkar, rúllur svo
eitthvað sé nefnt.
hans á Akureyri.
Fjórtán verk voru á sýning-
unni, sem var alira góðra gjalda
verð að dómi undirritaðs. Mynd-
irnar hafa yfir sér mjög persónu-
legan blæ en erfitt er að kenna
þær við ákveðna stefnu í
myndlist, nenia einna helst
blöndu af framúrstefnu og
impressiónisma. Mörg verkin eru
einkennilega grípandi og koma á
óvart, t.d. myndin Flugmaður.
Stærsta verkið á sýningunni var
myndin „Land og synir," og sést
hún hér að ofan.
Aðalsteinn Svanur sagði að-
spurður að það hefði vissulega
verið slæmt fyrir myndlistarmenn
á Akureyri og nágrenni að Gall-
erí Glugginn skyldi leggja upp
laupana. Þar hefði verið góð
aðstaða til sýninga. Þó er það
skoðun hans að rekstur gallería
og slíkt eigi ekki að vera hlutverk
listamannanna sjálfra heldur
Syndafallið.
bissnesmanna, eins og hann
komst að orði.
Sýning Aðalsteins, sem var
sölusýning, var vel sótt. Aðal-
steinn sagði að sér virtist áhugi
fyrir myndlist vera stöðugur og
hvorki meiri né minni en hefur
verið í áranna rás á Akureyri.
EHB
af erlendum vettvangi
i
Austrænir kakkalakkar
gera innrás í Florída
SÍMI
(96)21400
Kjallari, Hrísalundi 5
Óboðnir gestir hafa hreiðrað um
sig hjá Bandaríkjamönnum. í
nóvember 1985 eitruðu mein-
dýraeyðar í Flórída þrívegis fyrir
kakkalakka hjá einum af föstum
viðskiptamönnum sínum. Yfir-
ferðin var þrítekin sem venja
mun vera, ef tryggt skal, að
meindýrum þessum sé útrýmt í
húsurn inni. En þegar meindýra-
eyðarnir komu aftur á staðinn í
febrúarmánuði 1986 urðu þeir
meira en lítið undrandi, er þeir
sáu að ennþá voru þarna kakka-
lakkar - og ekki fáein kvikindi,
heldur voru þeir þúsundum sam-
an á flötinni fyrir framan húsið.
Það kom í Ijós, að kakkalakkar
voru um allt í nágrenninu. Þeir
trufluðu fólk við að horfa á sjón-
varpið, því að þeir lentu á björt-
um skerminum, og morgun hvern
varð hver fjölskylda að fjarlægja
svo sem 200-300 kakkalakka und-
an dyramottunni.
Það stóð í sérfræðingunum að
skilja þetta undarlega háttalag
kakkalakkanna, þar til það rann
upp fyrir þeim, að um var að
ræða kakkalakka-tegund, sem
heima á í Suðaustur-Asíu, Ind-
landi og Suður-Kína, og hefur
aidrei fyrr fundist utan Austur-
landa fjær.
Nú er komið í ljós, að kakka-
lakkar þessir hafa dreift sér um
ca. 1500 ferkílómetra svæði í
Flórída milli Saint Petersburg og
Lakeland. Sérfræðingarnir telja,
að skepnurnar hafi borist til
landsins um hafnarborgina
Tarnpa, og þar sem um er að
ræða tegund, sem lifir utan dyra,
er ekkert sem getur stöðvað
útbreiðslu þeirra nema vetrar-
kuldar.
Talið er, að á austurströnd
Bandaríkjarína geti kakkalakk-
arnir þrifist allt norður að Mary-
land, og í vestri geti þeir farið
norður að ríkinu Washington.
Þar sem kvikindunum tekst að
finna sér bústaði í gróðurhúsum
eða öðrum hlýjum stöðum, má
auðvitað gera ráð fyrir, að á
sumrin sæki þeir út á graslendi og
önnur ræktarlönd.
(III. Videnskab. - Þ.J.)
Svona líta þau út greyin, sem fluttu
frá Austurlöndum tjær til Florída og
una þar hiö besta.