Dagur - 05.11.1988, Blaðsíða 9

Dagur - 05.11.1988, Blaðsíða 9
5. nóvember 1988 - DAGUR - 9 Kynning ci ensku li&ununn Aftasta röð frá vinstri: Paul Rideout, Andy Townsend (nú hjá Norwich), Matt- hew Le Tissier, Colin Clarke, Alan Shearer. Miðröð: Rodney Wallace, Gordon Hobson (nú hjá Lincoln), Graham Baker, Tim Flowers, Glenn Cock- erill, John Burridge, Andy Cook, Gerry Forrest, Derek Statham. Fremsta röð: Don Taylor (sjúkranuddari), Russell Osman, Kevin Moore, Chris Nicholl, framkvæmdastjóri, Jimmy Case, Danny Wallace, Dennis Rofe (þjálfari). SOUTHAMPTON Southampton kom mjög á óvart í upphafi leiktímabilsins og sigr- aði í sínum fyrstu þrem leikjum og var því um tíma í efsta sæti deildarinnar. Þeir voru nærri að sigra í fjórða leiknum, en Arsenal jafnaði er sjö mín. voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. í þeim leik missti liðið tengiliðinn Clenn Cockerill kjálkabrotinn út af, en þessi byrjun liðsins er sú besta síðan liðið varð í öðru sæti 1984 á eft- ir Liverpool. Undanfarin ár hefur liðið verið um miðbik 1. deildar þar til í fyrra að liðið lenti í basli og þegar Southampton tapaði heima gegn Charlton í mars var útlitið Ijótt, en 13 stig úr síðustu 8 leikjum liðsins björguðu því frá falli í 2. deild. í þessum síð- ustu leikjum lék 17 ára nýliði, Alan Shearer stórt hlutverk og varð yngsti leikmaðurinn til að skora þrjú mörk í 1. deildarleik. Hann er einn margra unglinga sem eru að koma upp hjá Sout- hampton um þessar mundir. Tvíburabræðurnir Rodney og Raymond Wallace eru taldir mjög efnilegir, en eldri bróðir þeirra Danny er einnig alinn upp hjáfélaginu og hefur hann leikið landsleik fyrir England. Matt- hew Le Tissier hávaxinn sókn- armaður er einnig mjög efnileg- ur og skorar mikið af mörkum. En í liðinu eru einnig eldri og reyndari leikmenn, markvörður- inn John Burridge 36 ára með nærri 600 deildaleiki að baki og vörnin, Gerry Forrest, Kevin Moore, Russell Osman og Derek Statham hafa samtals yfir 1.600 deildaleiki að baki. Statham var keyptur frá W.B.A. fyrir £100.000 í ágúst á síðasta ári og var hann kjörinn leikmaður ársins hjá félaginu í fyrra. Hann hefur leikið 3 landsleiki fyrir England og um tíma leit út fyrir að hann færi til Liverpool, en við læknisskoðun kom í Ijós hjarta- galli og Liverpool hætti við kaupin. Jimmy Case 34 ára hefur 13 ára reynslu í 1. deild. Miðvallar- Framkvœmdasflórinn Chris Nicholl er nú að hefja sitt fjórða ár með liðið og hefur nýlega gert samning til næstu tveggja ára. Hann tók við af hinum gamal- kunna Lawrie McMenemy og þrátt fyrir hrakspár hefur honum tekist að ná góðum árangri með liðið. Aðstoðarmaður hans, Tony Barton var hins vegar rekinn í sumar. Nicholl erfyrrum miðvörður hjá Southampton og lék 51 landsleik fyrir N.-írland á sínum tíma. Hann var leikmaður og aðstoðarframkvæmdastjóri hjá Grimsby í tvö ár áður en hann tók við stjórninni hjá Southampton í júlí 1985. Undir hans stjórn hefur Southampton tvívegis komist í undan- úrslit í bikarkeppni, en var slegið út af Liverpool í bæði skiptin. Þ.L.A. Kaup og sölur leikmaður sem lék lengi með Liverpool, en varseldurtil Sout- hampton að því talið er vegna þess hve honum þótti bjórinn góður. Norður-írski landsliðsmið- herjinn Colin Clarke var keyptur frá Bournemouth fyrir rúmum tveim árum og hefur verið aðal markaskorari liðsins síðan. Southampton hefur aldrei sigrað í 1. deild, en liðið varð sigurvegari í 3. deild 1922 og 1960. Þeirra stærsti sigur kom þó árið 1976 er liðið sigraði Manchester Utd. í úrslitaleik FA-bikarsins, en þá var Sout- hampton í 2. deild. Haustið eftir kom liðið til íslands og lék þá m.a. á Akureyri. Möguleikar Southampton til að lenda ofarlega í 1. deild í ár geta oltið á því hversu vel leik- mönnum tekst að forðast meiðsli, en vegna þess hve breiddin er lítil hjá félaginu gætu meiðsli haft mikil áhrif á gang mála hjá liðinu. Þ.L.A. Paul Rideout var keyptur í sumar frá ítalska liöinu Bari og hefur staðið sig vel í haust. 1X21X21X21X21X21X21X21X21X2 Sveinbjöm og Sigurður heija leikinn Þá tökum við upp þráðinn frá síðasta vetri í getraunaleiknum. Sigurvegararnir frá því í fyrra þeir Sigurður Davíösson og Svein- björn Sigurösson etja kappi saman nú í byrjun og verður spenn- andi að sjá hvernig til tekst. Eftir að hafa selt tvær af sínum skærustu stjörnum í upphafi síðasta keppnistímabils, þá Peter Shilton og Mark Wright til Derby, fækkaði Southamp- ton enn í leikmannahópi sín- um og seldi þrjá leikmenn sem ekki áttu fast sæti í aðalliðinu. Phil Parkinson til Bury, Keith Granger til Darlington og Steve Baker til Leyton Orient fyrir samtals £75.000 sl. vor. Enn voru leikmenn seldir í sumar, Andy Townsend £300.000 til Norwich, Gordon Hobson £60.000 til Lincoln og fyrirliðinn Kevin Bond fór fyrir £60.000 til Bournemouth. Ungur miðherji, Craig Maskell fór til Huddersfield á £20.000 og Allen Tankard fékk frjálsa sölu til Wigan. Southampton hafði því næga peninga til að kaupa þá Russell Osman frá Leicester og Paul Rideout frá ítalska liðinu Bari. Osman sem er miðvörður lék lengi með Ipswich áður en hann fór til Leicester og lék auk þess nokkra landsleiki fyrir England. Hann kostaði Southampton £325.000. Rideout kostaði lið- ið £350.000, hann lék áður með Aston Villa og enska landsliðinu undir 21 árs, en stóð sig ekki sem skyldi á Ítalíu. Miðherji sem skoraði tvö mörk gegn West Ham í fyrsta leik Southampton í deildinni í haust. Tveir af bestu leik- mönnum liðsins hafa farið fram á sölu, markvörðurinn John Burridge og miðherjinn Colin Clarke, en félagið vill halda þeim báðum og reynir nú að telja þeim hughvarf. Þ.L.A. Sveinbjörn: Coventry-West Ham x Liverpool-Middlesb. 1 Man. Utd.-Aston Villa 1 Millwall-Luton 1 Q.P.R-Newcastle x Sheff.W.-Everton 2 Southampton-Charlton 1 Tottenham-Derby 1 Wimbledon-Norwich 2 Leicester-Man.City x Watford-Chelsea 1 W.B.A-Oxford 2 Sigurður: Coventry-West Ham 1 Liverpool-Middlesb. 1 Man. Utd.-Aston Villa 1 Millwall-Luton x Q.P.R-Newcastle 1 Sheff.W.-Everton 2 Southampton-Charlton 1 Tottenham-Derby 1 Wimbledon-Norwich x Leicester-Man.City 1 Watford-Chelsea x W.B.A-Oxford 1 1X21X21X21X21X21X21X21X21X2

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.