Dagur


Dagur - 05.11.1988, Qupperneq 13

Dagur - 05.11.1988, Qupperneq 13
5. nóvember 1988 - DAGUR - 13 sögubrot Umgjörð íslenskra skáldsagna - saga formsins 1850-1970 Steinar Sigurjónsson er gott dæmi um rótleysi áranna Thor Vilhjálmsson átti hvað mestan þátt í því, ásamt 1950-1965. Sannarlega óvenjulegur höfundur. Guðhergi Bcrgssyni, að bylta skáldsagnaforminu. Sögubrotið er að þessu sinni dálítið óvenjulegt. Það er helg- að umgjörð íslenskra skáld- sagna, þeim breytinguni sem hafa orðið á formi þeirra frá upphafi skáldsagnagerðar á íslandi. Menn höfðu og hafa eflaust enn ákveðnar skoðanir á því hvernig skáldsaga á að vera uppbyggð og þeir höfund- ar sem viku frá hefðinni þóttu undarlegir og illskiljanlegir, til að byrja með. En skáldsaga þarf ekki endilega að vera órofin frásögn af tilteknum atburðum og verða hér nefnd dæmi um ýmis frávik. Upphaf íslenskrar skáldsagna- gerðar miðast gjarnan við árið 1850, en þá kom út sagan „Piltur og stúlka“ eftir Jón Thoroddsen. Um aldamótin 1900 var komin nokkur gróska í skáldsagnagerð- ina og má t.d. nefna Pingeying- ana Þorgils gjallanda (Jón Stef- ánsson) og Jón Trausta (Guð- mund Magnússon). Við köllum þetta allt hefðbundnar skáldsög- ur með tilliti til formsins. Frá- sögnin er epísk, gjarnan kafla- skipt, með afmarkaðri föflu og skipulegri fléttu, eða atburðarás, og nokkuð ljósri skiptingu í kynningu, flækju og lausn. Með öðrum orðum upphaf. miðju og endi. Hefðbundið form í heila öld Nú fóru okkar helstu rithöfundar að koma fram á sjónarsviðið. Gunnar Gunnarsson, Pórbergur Þórðarson og Halldór Laxness, og enn má segja að hefðbundið form sé ríkjandi. Þessir höfundar og þá sérstaklega Halldór Lax- ness hafa þó víkkað formið og betrumbætt. Skáldsagan fellur ekki í fjötra vanans, hún er ekki einhæf lesning því formið er mjög teygjanlegt og fjölbreytilegt þótt það sá innan þess ramma sem ég kalla hér hefðbundið. Auk þess var alltaf mikið um hræring- ar í bókmenntastefnum sem sveigðu formið í austur og vestur um leið og innihaldið. Með áðurnefndum höfundum og þegar lengra var liðið á þessa öld, fór að gæta meiri fjölbreytni í málfari, stíl, tíma og umhverfi í skáldsögum. Einnig voru meiri sviptingar í vali sjónarhorns hjá höfundum og jafnvel eru dæmi um mismunandi sjónarhorn inn- an sömu sögunnar. Það er, að sagan er stundum í 1. persónu, stundum í 3. persónu og jafnvel líka í 2. persónu. En í grófum dráttum má segja að rammi hins hefðundna forms skáldsögunnar stóðst flest áhlaup allt fram til ársins 1950. Þá jiefur skáldsagnagerð verið iðkuð a ís- landi í heila öld án mikilla breyt- inga á formi, en nú fór að draga til tíðinda. Rótleysi í formi Stríðið og síðan aðild að Nato og samþykki fyrir búsetu „verndar- englanna“; allt þetta hafði f för með sér mestu umbrot í íslensku þjóðlífi sem um getur á þessari öld. Bókmenntir og boðskapur þeirra á þessum árum eru náttúr- lcga kapítuli út af fyrir sig, sem ekki verður farið út í hér, en höldum okkur við formbreyting- arnar. Elías Mar sendi árið 1950 frá sér Reykjavíkursöguna „Vöggu- vísu“. í henni voru a.m.k. tvær nýjungar í formi, nánar tiltekið í máli og stíl. Bókin er öll skrifuð á slang-máli þeirra tíma unglinga og var það nýjung í íslenskri skáldsagnagerð þó svo að slangi hafi brugðið fyrir áður, t.a.m. í „Atómstöðinni“. Önnur nýjung var svokallað hugsanastreymi sem nær yfir þrjár og hálfa blað- síðu án nokkurra greinarmerkja. Hugsana- og vitundarstreymi, sem gjarnan er rakið til „Ulyss- es“ eftir James Joyce, læddist inn hjá íslenskum höfundum eftir þetta. Annars fékk „Vögguvísa“ ákúrur fyrir það að vera stæling á „Atómstöðinni“ og vissulega er líkingin töluverð. Árið 1955 komu út þrjár bækur sem að einhverju leyti ólguðu f sjó formbreytinga. Þetta eru „Strandið“ eftir Hannes Sigfús- son, „Hinn formdæmdi“ eftir Kristján Bender og einnig má nefna „79 af stöðinni“ eftir Indr- iða G. Þorsteinsson. Indriði not- ar breytilegt sjónarhorn, Kristján notar vísanir í ríkum mæli og texti Hannesar býður upp á myndhverfa túlkun og í „Strand- inu“ er einnig breytilegt sjónar- horn. Næst má nefna bókina „Orm- ar“ eftir Jökul Jakobsson, en hún kom út árið 1956. Jökull hafði að vísu áður skrifað „Tæmdur bikar“ 1951, þá aðeins 18 ára og var göllum þeirrar sögu tekið með föðurlegu umburðarlyndi sakir æsku höfundar. „Ormar“ er ekkert meistaraverk heldur, enda var Jökull fyrst og fremst leikrita- höfundur, en bókin er ágætt dæmi um það rótleysi í formi sem ríkti á þessum árurn, það er tæt- ingslegt og stefnulaust. Atómljóð og atómsögur Maður er nefndur Steinar Sigur- jónsson, stundum talinn fyrsti módernistinn í íslenskri skáld- sagnagerö. Flestir minnast þess hvernig módernisminn fæddi af sér atómskáldin og atómljóðin. Bönd hins hefðbundna Ijóðforms leystust endanlega og svipuð vakning varð í skáldsagnaform- inu. Fyrsta skáldsaga Steinars, „Ástarsaga", kom út árið 1958. Það er engin venjuleg saga. Fyrst rekur maður augun í afkáralega stafsetningu: „veiiistu ða ekki? é tek þá bar ann didda.“ (Ástar- saga bls. 109). Önnur formleg einkenni eru þau að hér skiptir söguþráður litlu máli. Þetta er órofin sam- suða af samtölum, eintali, geð- hrifum og andblæ. Kaflaskipti eru þá náttúrlega engin og form- leg uppbygging komin óralangt frá „Pilti og stúlku“. Þarna var alda formbyltingarinnar risin injög hátt. Ég vil endilega benda fólki á að kynna sér bækur frá þessunt tímum til að sjá breytingarnar með eigin augum. Auk þess eru íslenskar skáldsögur ætíð áhuga- verð lesning. Þetta umbrotaskeið nær yfir árin 1950-1965, en ég vil þó minna á það að ekki ber að taka þessi ártöl bókstaflega. Þau eru frekar til viðmiðunar og þær sög- ur sem ég bendi á standa sem fulltrúar fyrir margar aðrar sögur og höfunda. Guðbergur Bergsson kemur til sögunnar Formbyltingin var orðin að veru- leika. Við getum talað um endan- lega formbyltingu á árunum 1965-1970. Eftir það ber kannski meira á höfundareinkennunt en ákveðinni stefnu í skáldsagna- formi. Eftir nokkkurn undirbúning og aðlögunartíma sendi Guðbergur Bergsson frá sér skáldsöguna „Tómas Jónsson metsölubók" árið 1966. Lengra hefur vart ver- ið komist frá „Pilti og stúlku“ í formlegum frávikum. Ekki er „Tómas Jónsson“ auð- veld bók aflestrar. Tímaskynið er afskaplega óljóst og brenglað. Persónur og athafnir þeirra eru yfirleitt hugarórar fremur en jarðbundinn veruleiki. Flétta bókarinnar er furðulegur samtín- ingur. Auk þess getur Guðbergur brugðið sér í allra kvikinda líki hvað stílbrögð varðar, þannig að heildarsvipurinn er mjög óræður. Guðbergur samdi tvær næstu bækur sínar í svipuðum dúr og sarnan mynda þessar þrjár sögur nokkurs konar trílógíu, einstæða í íslenskri skáldsagnagerð. „Ástir samlyndra hjóna" (1967) er samansafn 12 tengdra atriða en þó hliðstæð „Tóntasi“ að upp- byggingu. „Anna“ kom síðan út 1969. Þaö má skjóta því hér inn að áhugi Guðbergs á starfsemi melt- ingarfæranna átti eftir að hafa áhrif á íslenskar bókmenntir. í því sambandi má minnast Einars Más Guðmundssonar, t.d. „Riddarar hringstigans", þar sem skopskyn hans einskorðast aö mestu við endaþarmsopið. Steinar Sigurjónsson var enn að skrifa „Ástarsögu" í ýmsum myndum á þessunt árum og ntá nefna „Blandaö í svartan dauð- ann" sem kom út árið 1967. Stafsetningin hafði að vísu tekið nokkrum breytingum en formið var sama upphafs- og endaleysan og áður. Röð af óstaðbundnum mannlífsmyndum Thor Vilhjáimsson markar djúp spor í þetta skeið, ekki síst eftir að „Fljótt, fljótt sagði fuglinn" kom út árið 1968. Sú skáldsaga, ásamt áðurnefndum „Tóntasi Jónssyni“, var mesta frávik frá hefðbundu skáldsagnaformi sem út hafði komiö á Islandi og þó voru Thor og Guðbergur afskap- lega ólíkir höfundar. „Fuglinn" er ekki nein venju- leg epísk frásögn, heldur röð af óstaðbundnum, þverskornum mannlífsmyndum. Thor leikur sér að tímaskyninu svo og öðrum formgerðum. Persónur eru ýmist andlitslausar eða þá að í andlit- urn þeirra speglast allar stéttir og þjóðir. Dæmi um hið íyrrnefnda: „Allir mennirnir voru sköllótt- ir. Höfuðið virtist vera eins á þeirn öllum, kannski voru þeir fjórburar. Búningur þeirra var þó mjög ólíkur. Var það til að mætti þekkja þá í sundur?“ (Fuglinn bls. 26-27). Enn eitt einkenni á formi „Fuglsins" eru tengsl við myndlist. Myndvísi Thors er við brugðið og hann er stílisti góður. En hann er ekki auðveldur viðfangs, hvorki fyrir almenning né fræðimenn, eins og ljóst má vera á orðum Peters Hallberg: „Því oftar sent ég les Fljótt, fljótt sagði fuglinn (Reykjavík 1968), því minna þykist ég geta sagt með vissu um þá bók." (Tímarit Máls og menningar 1972, bls. 119). Með þessum orðum lýkur Sögubroti um formbreytingar skáldsögunnar og vonandi hefur þetta grófa yfirlit kveikt áhuga hjá einhverjum því enn má finna ágætar skáldsögur ólesnar eða lítt lesnar í hillurn bókasafna og jafn- vel heimila. Því mætti breyta. SS Á bókamörkuðum niá oft finna ágætar en sjaldscöar íslenskar skáldsögur.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.