Dagur - 12.11.1988, Blaðsíða 10

Dagur - 12.11.1988, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - 12. nóvember 1988 „Ég fór snemma að hugleiða stjórnmál. Ein fyrsta endur- minningin hvað þau varðar er rifrildi við félaga minn, sem bjó í sama húsi og ég á Eyr- inni. Við deildum um hvorir væru betri, Italir eða Abyss- iníumenn. Þetta var víst árið 1936. En frómt frá sagt þá mun ég hafa verið fremur óráðinn í pólitík nokkuð fram eftir aldri. Það var ekki fyrr en ég stund- aði nám við Samvinnuskólann - og hafði kynnst Jónasi Jóns- syni frá Hriflu - að stefnan var ákveðin.“ - Sigurður Jóhann- esson, bæjarfulltrúi, hallar sér aftur í hægindastólinn í hlý- legri stofu heima í Hjarðar- lundi 1. - „Og þarna kynntist ég samvinnuhreyfingunni og varð afar hrifinn af þeim hug- sjónum sem bjuggu að baki.“ Sigurður Jóhannesson er rót- gróinn Akureyringur - og mikill framsóknarmaður. Hann sleit barnsskónum á Eyrinni á þeim árum er útlenskur her hafði reist braggabyggð, kamp, á Eiðsvelli og Akureyri var smám saman að taka á sig þá mynd er við þekkj- um í dag. Fjölmargir bæjarbúar þekkja Sigurð fyrst og fremst sem aðalfulltrúa hjá Kaupfélagi Ey- firðinga eða bæjarfulltrúa Fram- sóknarflokksins. Færri þekkja Sigurð sem mikinn áhugamann um tónlist eða scm fyrrum klari- nettuleikara með Lúðrasveit Ak- ureyrar - svo ekki sé talaö um þá sem muna Sigurð sem útibús- stjóra í kjörbúð KEA í Glerár- hverfi, en þá var verslunin í Stór- holti 1. Sú verslun á líka sérstak- an og Ijúfan stað í minningunni. Par hitti Sigurður fyrst Laufeyju Garðarsdóttur sem síðar varð eiginkona hans. Þau hjón eiga fjögur börn. Og barnabörnin hafa litið dagsins Ijós. Þegar undirritaður kom á heimili þeirra hjóna hjalaði átta mánaða gömul telpa í barnastól milli þess sem lnin nagaði leikfang. Bróðir hennar, tíu ára var skammt und- an og reyndi með miklum tilþrif- um að læra utanbókar kvæði eftir Jónas Hallgrímsson. - „Viö erum barnapíur um helgina," sagði Laufey þegar hún vísaði blaða- manni inn í stofu. „Þjóðmál voru mikiö rædd á heimili mínu. Þangað kom líka margt fólk úr Norður-Þingeyj- arsýslu, heimabyggð forekira minna. Hjá þessu fólki var ég líka í sveit í nokkur sumur á unglingsárum. Sú dvöl hafði mik- il og góð áhrif á mig. Satt best að segja tel ég slæmt að bæjarfólk hefur ekki lengur sömu mögu- leika á að senda börn sín í sveit. Fátt er unglingum hollara en að fá tækifæri til að kynnast því sem þar gerist. Nú, það var einnig mikill gestagangur fólks úr bæn- um á heimili foreldra minna. Fólk hafði meiri tima og ef til vill áhuga á að ræða um það sem var efst á baugi hverju sinni. Og að sjálfsögðu tókum við börnin þátt í þeim umræðum eftir því sem föng voru á,“ sagði Sigurður. Undir verndarvæng Sigmundar - Þú munt snemma hafa komið nálægt verslunarstörfum. „Já, faðir minn starfaði hjá „Verslun Eyjafjörður“ um langt skeið eða fram að árinu 1945. Þar átti ég margar góðar stundir með- an ég fylgdist með störfum fólks- ins og þeim viðskiptum sem þar fóru fram. Einnig var ég sendill á sumrin. Ég lauk gagnfræðaprófi vorið 1947 og um haustið fór ég að vinna í Vöruhúsinu. Þú mátt ekki misskilja mig svo að þetta hafi verið Vöruhús KEA því það kom ekki til sögunnar fyrr en löngu seinna. Þessi verslun var þar sem Blómabúðin Laufás er nú til húsa og eigandi hennar var Páll Sigurgeirsson, sem einnig átti Braunsverslun. Páll var umsvifamikil! kaupmaður á þess- um árum, ágætismaður og góður vinnyveitandi. A þessum árum var ég, eins og ungt fólk er gjarnan, ungur og óráðinn og um haustið 1950 hleypti ég heim- draganum og fór til Svíþjóðar. Þar settist ég í skóla og markmið- ið var m.a. að læra sænsku. Að loknu námi þarna um veturinn vann ég um skeið í sænskri skipa- smíðastöð og kom heim sumarið 1951 og fór að vinna hjá KEA. Á þessum tíma var erfitt að fá vinnu á Akureyri. Finnbogi heitinn Jónasson, aðalbókari KEA og félagi í Lúðrasveitinni, gat komið mér til KEA.“ - Hvaða starf var það sem Finnbogi fann handa þér? „Eins og svo margir þá fór ég undir verndarvæng Sigmundar í Kjötbúðinni. Raunar var sú dvöl ekki löng því fimm mánuðum seinna var ég dubbaður upp í úti- bússtjóra í Glerárhverfi. Á þess- um tíma var kjörbúðin þar sem Svæðisstjórn fatlaðra hefur að- setur í dag.“ ...strákurinn setti bara skilyrði - Hvernig leið þér rétt rúmlega tvítugum manni að takast á hend- ur starf útibússtjóra? „Ekki sem verst. Þetta starf þótti á þessum tíma mikil upp- hefð og gjarnan var álitið að slíku starfi ættu menn að gegna til lífs- tíðar. Jakob Frímannsson hafði líka gaman af að segja frá því síð- ar að þegar hann bauð mér um- rætt starf að „...strákurinn setti bara skilyrði." Hann ætlaði ekki að vera þarna nema í tæpt ár því hann ætlaði að fara í Samvinnu- skólann." - Á þessum árum munu pen- ingaráð fólks hafa verið fremur lítil. Gerði sú staðreynd ekki starfið stundum erfiðara en ella? „Það má segja það en þó verð- um við að gera okkur grein fyrir því að á þessum tíma var fjárhag- ur fólks yfirieitt mjög þröngur. Ég tel að á þessum tíma hafi menn líka reynt, mun meir en í dag, að sníða sér stakk eftir vexti. Fólk gerði ekki meiri kröf- ur en fjárhagurinn leyfði. En í nágrenni verslunarinnar eins og annars staðar bjó fólk sem barð- ist af hörku við að framfleyta sér og sínum. Oft dáðist ég að nýtni og dugnaði þeirra sem ég kynnt- ist í þessu starfi.“ - Og þarna hittir þú hana Laufeyju fyrst - er ekki svo? „Jú, hún kom til starfa í útibú- inu nokkru eftir að ég byrjaði þar. En það var ekki fyrr en eftir að ég kom úr Samvinnuskólanum að við fórum að draga okkur saman.“ - Má ekki segja að örlög þín hafi ráðist þarna í búðinni? Annars vegar hefst langur starfs- ferill innan samvinnuhreyfingar- innar og hins vegar hittir þú þar lífsförunautinn. Tónlistin kom snemma til sögunnar „Það má orða það svo. Haustið 1953 fór ég í skólann og naut þar m.a. kennslu Jónasar frá Hriflu eins og ég gat um áðan. Eftir skólann starfaði ég um hríð á Keflavíkurflugvelli við bókhalds- störf eða þar til Jakob Frímanns- son kallaði í mig til starfa í Vöru- innkaupadeild KEA. Þar var ég í fimmtán ár eða allt fram til þess tíma að ég gerðist framkvæmda- stjóri Bifreiðaverkstæðisins Þórs- hamars. Árið 1979 er ég á nýjan leik kominn í höfuðstöðvar KÉA við Hafnarstræti og nú sem aðal- fulltrúi kaupfélagsstjóra. í því starfi er ég enn.“ - Mig langar ögn til að fræðast um feril þinn sem tónlistar- manns. „Tónlistin kom snemma til sögunnar. Sverrir bróðir minn byrjaði snemma að spila á þver- flautu í Lúðrasveitinni og ekki var það til að slæva áhugann að Jakob Tryggvason, orgelleikari og stjórnandi Lúðrasveitar Akur- eyiar, bjó í sama húsi og ég við Norðurgötuna. Ekki veit ég nákvæmlega af hverju klarinettið varð fyrir valinu en á það lærði ég í gegnum þá kennslu sem Lúðra- sveitin gat veitt. Tónlistarskólinn var ekki kominn til í því formi sem síðar varð. Kennarinn sem leiddi mig fyrstu sporin var ekki af lakara taginu. Það var hann Egill Jónsson rakari sem síðar spilaði á klarinett með Sinfóníu- hljómsveit Islands. Því miðurfyr- ir mig þá flutti hann úr bænum og ég þurfti að þreifa mig áfram sjálfur. Það var ekki fyrr en eftir að Svíþjóðardvölinni lauk að ég komst í nám á nýjan Ieik en þá var ég búinn að spila í fimm ár með Lúðrasveitinni og hljóm- sveitum. Kennari minn var Jose Riba, ágætis kennari, og ég hafði gott af verunni hjá honurn." - Hvenær byrjaðir þú að spila á böllum? „Ætli það hafi ekki verið 1948 í Gúttó, eða í Samkomuhúsinu eins og það heitir í dag. í fyrstu var þetta eingöngu „lausabisn- ess“ eins og það var þá kallað. Ekki var spilað fast á neinum ákveðnum skemmtistað. Síðar Laufey Garðarsdóttir og Sigurður Jóhannesson. 12. nóvember 1988 - DAGUR - 11 Þessi unnu í Vöruinnkaupum laust fyrir 1960. Neðri röð f.v. Sigurður Jóhann- esson, Bryndís Brynjólfsdóttir og Arthur Guðmundsson. Standandi f.v. Gunnar Hjartarson og Edwin Kaabcr. var ég einnig í hljómsveitum á Hótel Norðurlandi og Hótel KEA. Veturinn 1949-1950 kom oft ungur piltur og spilaði með okkur á Hótel Norðurlandi. Þetta var hann Ingimar Eydal sem var að hefja sinn tónlistarfer- il.“ - Var strákurinn efnilegur? „Já, hann var bráðefnilegur en miklu grennri en nú.“ Lúðrasveitin menningarstofnun - Nú hættir þú á þessari braut um miðjan sjötta áratuginn en hefur tónlistaráhuginn ekki alltaf loðað við þig? „Ég hef alltaf haft afar gaman af henni. Það má raunar segja að ég sé alæta á tónlist. Hlusta á allt og ekki síst á fallegan klarinettu- leik. Lúðrasveitin var t.d. mikil og góð uppeldisstöð hvað tónlist varðar á þessum árum. Þetta var menningarstofnun. Félagar í Lúðrasveitinnni gerðu á þessum tíma tilraunir til að flytja sígild, stærri verk. Þessi verk vöktu áhuga okkar strákanna og gerðu okkur móttækilegri fyrir hinum ýmsu tegundum tónlistar." - Sagðir þú alfarið skilið við tónlistina þegar klarinettið hafn- aði upp á hillu? „Ég lauk minni veru í Lúðra- sveit Akureyrar með því að vera stjórnandi hennar um eins árs skeið, 1965-1966. Síðan hefur þátttaka mín á tónlistarsviðinu verið á öðrum sviðum. Ég var t.d. stjórnarformaður Tónlistar- skóla Akureyrar á árunum 1973 til 1985. Nú, málefni þess skóla hafa oft komið til kasta bæjar- stjórnar og ég vona að mér hafi tekist að leggja þeim lið. Ef við horfum á þá uppbyggingu sem hefur átt sér stað í Tónlistar- skólanum þá er hún mikil og jákvæð. Tónlistarnám er bæði þroskandi og skemmtilegt og ég hef haft mikla ánægju af því að starfa ásamt öðrum að uppbygg- ingu Tónlistarskólans á Akur- eyri.“ - Ef við nú vendum okkar kvæði í kross og höldum út í pólitíkina þá langar mig til að spyrja hvenær hefjast afskipti þín af henni? „Það var nú meira af tilviljun en ásetningi að ég fór að skipta mér af pólitík í nokkurri alvöru. Þetta þróaðist svona vegna starfa minna að félagsmálum verslun- arfólks hér á Akureyri og í Landssambandi íslenskra versl- unarmanna. Og ég byrjaði nú fremur í landsmálapólitíkinni en í bæjarmálum. Þegar kosið var til þings 1962 varð ég einn af vara- þingmönnum Framsóknarflokks- ins hér í kjördæminu, og varð meðal annars fyrir þeirri lífs- reynslu að sitja á þingi vorið 1965. Þetta var í þinglok og verið var að taka lokaákvarðanir varð- andi álverið í Straumsvík og um fyrstu stórvirkjunina. Vissulega var þetta skemmtilegur og fróð- legur tími þó að ekki væri þing- setan löng.“ - Þig hefur ekki langað til að starfa meira á þessum vettvangi? „Áhugi minn beindist alltaf meira að málefnum bæjarins og einnig kom fleira til. Ljóst var að ég hefði þurft að gera þetta að mínu aðalstarfi og einnig voru reglurnar um niðurröðun á lista flokksins í kjördæminu á þessum árum þannig að þær hentuðu afar illa Akureyringi sein vildi leggja í slaginn.“ Framsókn var ekki kennt um slæmt veðurfar! - Hvenær komu bæjarmálin til sögunnar? „Árið 1966 fór ég að starfa fyr- ir Framsóknarflokkinn í fram- talsnefnd og síðar í stjórn sjúkra- hússins. Kjörtímabilið sem hófst sama ár var ég varabæjarfulltrúi og bæjarfulltrúi á árunum 1970 til 1974. Framsóknarmenn höfðu fjóra fulltrúa á þessum árum en töpuðu einum þeirra í kosning- unum 1974. Þar með varð ég varabæjarfulltrúi á nýjan leik næstu fjögur ár. Við guldum þess í kosningunum 1974 að landsmál- in voru framsóknarmönnum erfið. - Flaug þér í hug að hætta afskiptum af bæjarpólitíkinni eft- ir að flokkurinn tapaði fjórða manninum? „Nei, enda var ekki verið að dæma frammistöðu framsókn- armanna í bæjarstjórn í kosning- unum 1974 - ekki frekar en í kosningunum 1986 þegar þriðji maðurinn tapaðist. Framsóknar- tlokkurinn var við stjórnvölinn í ríkisstjórn í báðum tilvikum og slæmt gengi okkar í bæjarstjórn- arkosningunum má að miklu leyti tengja við landsmálapólitíkina. Um það leyti sem kosið var síðast voru stjórnvöld, með Framsókn- arflokkinn í forsvari, að skera verðbólguna niður úr 3ja stafa tölu. Á árunum 1980 til 1984 voru lífskjör fólksins í landinu skert um 15% vegna ýmissa ytri aðstæðna svo sem minnkandi fiskafla og aðgerða í efnahags- málum. Fólk fann svo sannarlega fyrir þessu og andstæðingum okkar í bæjarpólitíkinni tókst að matreiða málið þannig að lífs- kjaraskerðingin væri gamla bæj- arstjórnarmeirihlutanum að kenna. Vandamál bæjarfélagsins, sem að stórum hluta til voru vegna utanaðkomandi áhrifa, voru skrifuð á okkur framsóknar- menn. Ekki man ég þó eftir því að okkur væri t.d. kennt um slæmt veðurfar en það var líka nánast það eina sem við sluppum við að heyra að væri okkar sök. Þetta hefur breyst. Nú heyrast ekki sambærilegar raddir enda er ósanngjarn málflutningur hreint ekki að mínu skapi. Vel má vera að hægt sé að flokka það undir klaufaskap að okkur tókst ekki nægjanlega vel að benda á stað- reyndir málsins í síðustu bæjar- stjórnarkosningum.“ - Hvaða breytingar hafa eink- um átt sér stað í bæjarstjórn frá Lúðrasveit Akureyrar um 1958. Stjórnandinn Jakob Tryggvason situr fyrir miðju. Á myndinni má þekkja ýmsa ágæta Akureyringa sem því miður hafa lagt frá sér hljóðfærin. hagsstaðan verður þegar því lýkur. Hitt er svo aftur annað mál að framkvæmdir í bænum á þessu kjörtímabili hafa síður en svo verið meiri en oft áður. í skýrslu fráfarandi hagsýslustjóra, Úlfars Haukssonar, frá því í vor kemur skýrt og greinilega fram hvert stefnir. Það er oft sárt að þurfa að viðurkenna sannleikann og sumir reyna að sniðganga hann svo lengi sem þeir geta. Það reyndi meirihluti bæjarstjórnar í þessu máli því eftir að Úlfar skil- aði skýrslunni liðu margir mán- uðir þar til ég fékk því framgengt að hún var rædd í bæjarráði." - Skuldabréfalán bæjarsjóðs hefur líka vakið töluverðar umræöur. „Já, og ekki að ófyrirsynju. Það skal þó tekið fram að við framsóknarmenn stóðum að því að heimila lántöku, enda var það í samræmi við þá fjárhagsáætlun sem við höfðum samþykkt. En lánið var tekið á röngum tíma. Tími lántökunnar er fram- kvæmdaatriði og tímasetning hennar er að sjálfsögðu ákvörðun meirihluta bæjarstjórnar. Þegar lánið var tekið var þenslan hvað mest og vextirnir hæstir. Þeir lækkuðu nokkrum vikum eftir aö lánið var boðið út. Nú situr bæjarsjóður eftir með sárt ennið og greiöir háa, fasta vcxti næstu fimm árin. Lánið var svo sannar- lega óhagstætt bæjarsjóði sem sést e.t.v. bcst á því að skulda- bréfin runnu út eins og heitar lummur." - Nú styttist óðum í næstu bæjarstjórnarkosningar. Ég geri ráð fyrir að framsóknarmenn muni leggja á það áherslu að fá 3ja bæjarfulltrúann. „Já, það mun verða barist og allt mun veröa gert sem í okkar valdi stendur til að rétta hlut okk- ar framsóknarmanna. Ég veit líka að margir þeir sem hafa kos- ið Framsóknarflokkinn, en studdu síðast aöra flokka munu koma til baka. Þeir og aðrir hafa séð, að allt talið um kraftaverka- mennina sem töldu sig geta öllu bjargað, í atvinnulífi sem ööru - aðeins ef þcir yrðu kosnir í bæjarstjórn Akureyrar - var blaðra sem sprakk. Þetta sést best á síðustu fréttum um at- vinnuhorfurnar í bænum. Það þarf hvorki kraftaverkamenn eöa sjónhverfingamenn til að stjórna þcssum bæ, heldur þarf fólk sem af heiðarleika og einurð getur leitt bæinn fram til heilla um alla framtíð. Ég hef alltaf verið þeirr- ar skoðunar að það séu fram- sóknarmenn sem þar geta mark- að dýpstu og farsælustu sporin." Siguröur Jóhannesson, þakka þér fyrir spjallið. -áþ þeim tima er þú ferð að taka virk- an þátt í starfi hennar? „Mér fannst fyrst fara að bera á því á síðasta kjörtímabili að menn höguðu oft inálflutningi með tilliti til fjölmiðla. Menn fóru að vera með uppákomur í þeirri von að komast á síður blaðanna eða í útvarp. Slíkt hvarflaði ekki að mönnum á þeim árum er ég kom fyrst í bæjarstjórn. Auðvitað rifust menn og voru ekki sammála en mun minna var gert úr því og menn leituðust við að komast að málefnalegri, sameiginlegri nið- urstöðu. Því má líka bæta við að litríkir persónuleikar eins og Jakob Frímannsson, Sigurður Óli Brynjólfsson og Jón G. Sólnes settu sinn svip á bæjarstjórnina þegar ég fyrst fór að fylgjast með þeim málum á árunum milli 1960 og 1970. Vinátta og samstarf þeirra Jóns og Jakobs hlaut líka að hafa áhrif inn í bæjarstjórn- ina. Aldamótakynslóðin og hennar sjónarmið og vinnubrögð voru við líði fyrst eftir að ég er kosinn í bæjarstjórn. Satt best að segja sé ég eftir þeim vinnu- brögðum sem hún hafði tileinkað sér. Nú gætir þess mun meira að þeir flokkar, sem eru í meiri- hluta, telji enga þörf á að ná breiðri samstöðu um mál.“ Kröfur hafa aukist - en ekki tekjur - Var auðveldara á þessum árum að stjórna bænum, að reka bæjarfélagið eins og stundum er sagt? „Á því leikur enginn vafi. Segja má að þar komi tvennt til. í fyrsta lagi hafa kröfur bæjarbúa á hendur bæjarfélaginu stöðugt aukist og í öðru lagi hafa tekju- möguleikar þess ekki vaxið í sama hlutfalli. Kröfurnar eru flestar afar eðlilegar og eiga full- an rétt á sér en ríkisvaldið hefur svo sannarlega ýtt ýmsu til bæjar- félaganna án þess að gera þeim kleift að fá tekjustofna á móti. Og nú er ríkisvaldið e.t.v. að gera enn eina aðförina að sveitar- félögunum. Auðvitað vona sveit- arstjórnarmenn að með breyttum lögum komi eðlilegri verkaskipt- ing og að sveitarfélögunum verði útvegaðir þeir tekjustofnar sem nauðsynlegir eru til að sinna þeirri þjónustu. En ég er jafnviss um það að ríkið er með þessari skipulagsbreytingu að létta viss- um þunga af ríkissjóði. Þessi þróun er öll afar sérkennileg þeg- ar það er haft í huga að á Alþingi situr fólk sem flest hefur mikla reynslu í sveitarstjórnarmálum. Og þó að meirihluti þingmanna komi ekki af Reykjavíkursvæð- inu þá finnst manni að sjónarmið landsbyggðarinnar fái of oft lít- inn hljómgrunn meðal alþingis- manna. Þessi staðreynd ásamt því fjár- málaumhverfi sem við höfum bú- ið í undanfarin misseri hefur óneitanlega sett sinn svip á fjár- hag bæjarins. Þetta er þeim sem skulda afar erfiður tími. Nú má segja að t.d. Akureyrarbær skuldi ekki mikið miðað við eignir en óhætt er að fullyrða að bærinn skuldar mikið miðað við þá tekjumöguleika sem hann hef- ur.“ - Hefur svipað ástand áður hrjáð bæjarsjóð? „Nei, ég man ekki eftir því. Þetta er ástand sem við höfum aldrei staðið frammi fyrir áður. Skuldaþunginn hefur aldrei verið jafn mikill. Vissulega hafa komið erfiðleikatímabii í rekstri bæjar- ins. Nefna má t.d. þann tíma þegar staða Ú.A. var hvað erfið- ust og bærinn lagði fram verulega fjármuni til styrktar félaginu. Þá var t.d. lítið malbikað í mörg ár. Fjármunir seni annars hefðu far- ið í gatnagerð voru látnir renna til Ú. A. Nú er það liins vegar svo að svo gott sem allar tekjur bæjarins fara í rekstur og fyrir- sjáanlegt er að með þeirri þróun sem verið hefur á fjármálum bæjarins undanfarin ár verða inn- an nokkurra ára ekki til peningar til framkvæmda. Þetta er stað- reynd sem menn ættu að hafa í huga.“ Meirihlutinn hefur ekki borið gæfu til... - Heldur þú því fram að núver- andi meirihluti hafi farið, eða fari, óskynsamlega með fjármuni bæjarbúa? - „Miðað við fjármagnsstöð- una og ef við höfum í huga hve fjármagn er dýrt í dag þá er Ijóst að meirihlutinn hefði átt að gæta meira aðhalds í rekstri bæjarins og meðferð fjármuna. En þetta er viðkvæmt mál og sjálfsagt vill ekki nokkur bæjarfulltrúi benda á þjónustu við bæjarbúa sem ætti að skera niður. Einnig er vert að hafa í huga að aukin gjaldtaka á bæjarbúa er ætíð viökvæm. Þegar takast á við vanda af þessu tagi verður að ríkja um það algjör eining meðal bæjarfulltrúa. Auð- vitað á meirihluti bæjarstjórnar að taka frumkvæðið og leita lciöa en því miður hefur hann ekki borið gæfu til að takast á við vandann. Meirihlutinn vill sýna sem mestar framkvæmdir á kjör- tímabilinu og svo virðist vcra sem það skipti hann engu hver fjár- Þessi mynd er svo sannarlega komin til ára sinna. Börnin sein brosa svo blitt erti í dag að nálgast sextugsaldurinn. Sigurður var í þcssum bekk, en liér er á ferð forskóli Kristfinns Guðjónssonar og var myndin tekin 1937 eða 1938.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.