Dagur - 12.11.1988, Blaðsíða 9

Dagur - 12.11.1988, Blaðsíða 9
?2?tá$«i,fsSÍ - SkSðH - S Aitasta roo tra vinstri: tsrian Laws, taary Fleming, Gary Parker, Steve Chettle, Darren Wassall. Brian Rice, Steve Hodge. Miöröö: Liam O'Kane (þjálfari), Tommy Gaynor, Terry Wilson, Steve Sutton, Hans Segers (nu hjá Wimbledon), Colin Foster, Neil Webb, Brian Clough (framkv.stjóri). Fremsta röð: Nigel Clough, Lee Glover, Des Walker, Stuart Pearce, Frans Carr, Gary Crosby. Var með 12 rétta Siguröur Davíðsson kennari bar sigurorð af Sveinbirni Sigurðs- syni fulltrúa í fyrstu leikvikunni. Sigurður hafði sex rétta en Sveinbjörn fjóra. Sigurður hefur nú skoraö á Magnús Aðal- björnsson skólastjóra og varð hann að sjálfsögðu við áskorun- inni. Magnús spilaði seinast í getraunum fyrir fjórum árum og var þá með tólf rétta. „Ég hætti á toppnum,“ segir hann, en nýja kerfið freistar og því munu þessir tveir starfsmenn Gagnfræða- skólans etja kappi í þessari viku. Siguröur: Magnús: Charlton-Everton 2 Coventry-Luton x Derby-Man.Utd. 2 Liverpool-Millwall 1 Middlesb.-Q.P.R. x Newcastle-Arsenal 2 Norwich-Sheffield W. 1 Southampton-Aston Villa x Tottenham-Wimbledon 2 West Ham-Nott. Forr. 2 Leeds-W.B.A. 2 Man City.-Watford x Charlton-Everton x Coventry-Luton 1 Derby-Man.Utd. 1 Liverpool-Millwall 1 Middlesb.-Q.P.R. 1 Newcastle-Arsenal 2 Norwich-Sheffield W. 1 Southampton-Aston Villa 1 Tottenham-Wimbledon 1 West Ham-Notth.For. 1 Leeds-W.B.A. x Man City-Watford 1 Kaup og sala Það var ekki mikið um verslun á leikmönnum hjá Forest í sumar. Aðeins einn leikmaður seidur, miðherjinn Paul Wilkin- son til Watford fyrir £ 300.000, en hann lék um tíma með Everton og hafði aðeins verið í 16 mánuði hjá Forest. Brian Laws bakvörður var keyptur frá Middlesbrough fyrir £120.000 og síðan var mið- vallarleikmaðurinn Steve Hodge keyptur aftur heim fyrir um £ 575.000. Hann var seld- ur frá Forest 1985 til Aston Villa fyrir £400.000, en 15 mánuðum síðar keypti Totten- ham, Hodge fyrir £ 650.000. Hann var aldrei ánægður hjá Tottenham þrátt fyrir að hann ynni sæti í enska landsliðinu, en með því lék hann í heims- Kynning ó ensku liöunum Margir spá Nottingham For. góðu gengi í vetur og liðið er jafnvel talið eiga möguleika á Englandsmeistaratitli. Á síð- asta leiktímabili kom liðið mjög á óvart, að mestu skipað ung- um og efnilegum leikmönnum hafnaði það í þriðja sæti í 1. deild. Lengi virtist liðið ætla að ná öðru sætinu, en í síðustu leikjunum gekk illa að skora mörk og Manchester Utd. skaust upp fyrir liðið á loka- sprettinum. Þá komst Forest í undanúrslit FA-bikarsins, en tapaði naumlega fyrir Liver- pool. Einu verðlaun liðsins voru fyrir sigur í afmælismótinu á Wembley sl. vor. Nigel Clough varð markahæstur leikmanna liðsins í fyrra með 19 mörk í deildaleikjum og hann kom næstur á eftir Paul Gascoigne í kjöri um efnilegasta leikmann í ensku deildakeppninni. Neil Webb lék með landsliði Eng- lands í Evrópukeppninni í Þýskalandi í sumar, en bak- vörðurinn Stuart Pearce komst ekki í keppnina vegna meiðsla. Það er til marks um hve efnilegir hinir ungu leik- menn Forest eru að síðasta vetur léku sex leikmenn með Framkvœmdasljórinn Brian Clough er nú að hefja sitt 14. leiktímabil sem framkvæmda- stjóri Nottingham For. Áður var hann við stjórnvölinn hjá Hartle- pool, Derby, Brighton og Leeds Utd. þaðan sem hann var rekinn eftir aðeins 44 daga. Bestum árangri náði hann með Derby sem hann gerði aö Englandsmeistur- um árið 1972. Hann lék sjálfur með Middlesbrough og Sunder- land, mikill markaskorari sem lék 2 landsleiki fyrir England, en varð að hætta ungur vegna meiðsla. Honum var boðin þjálfarastaða hjá landsliði Wales í fyrravetur, en fékk ekki að fara frá Forest þar sem hann var samningsbundinn. Hann hefur oft verið orðaður við enska landsliðið, en þessi litríki framkvæmdastjóri hefur þó aldrei fengið þá stöðu. Hann hefur róttækar skoðanir á flestum hlutum þ.m.t. stjórnmál og lætur allt flakka sem ekki þykir hæfa framkvæmdastjóra enska landsliðs- ins. Undir stjórn Clough hefur Nottingham For. náð frábærum árangri á undanförnum árum og að flestra dómi er hann nú besti framkvæmdastjórinn í ensku deildinni. Hann hefur unnið til flestra verðlauna sem framkvæmdastjóri getur unnið með lið sín, en þó hefur honum aldrei tekist að leiða lið sín til sigurs í FA- bikarnum. Aðstoðarmaður hans hjá Forest er Ronnie Fenton sem áður var kunnur leikmaður og þjálfararnir Liam O’Kane og Archie Gemmill voru lykilmenn hjá Forest sem leikmenn undir stjórn Clough fyrir nokkrum árum. Allt bendir til að Clough verði áfram hjá Forest, hann gerði nýjan samning við félagið í maí ásamt syni sínum Nigel sem um tíma virtist á leið til ítalska félagsins Pisa er sýndi honum mikinn áhuga. Engin furða þótt Forest geri allt til að halda Clough áfram hjá félaginu sem hann tók við í 2. deild, kom því upp í 1. deild 1977 og lyfti því síðan til æðstu metorða í Englandi og Evrópu. Þ.L.A. léku síðan fjórir leikmanna Forest með landsliði Englands á Wembley í sigurleik gegn Dönum, þeir Neil Webb, Steve Hodge, Des Walker og Stuart Pearce. Mögum þótti sem Nig- el Clough hefði einnig átt að leika, en hans tími mun örugg- lega koma fljótlega. Þrátt fyrir bjartsýni hóf liðið keppnistímabilið ekki vel, tap í fyrsta leik gegn Norwich og síðan fylgdu nokkur jafntefli í kjölfarið, en að undanförnu hefur gengið betur og liðið er ofarlega í 1. deild þótt enn sé langt í toppinn. Þá er liðið komið í 4. umferð deildabik- arsins og líklegra er að liðinu takist að sigra í bikarkeppni en deildakeppninni í vetur. Nott- ingham For. hefur einu sinni orðið Englandsmeistari, árið 1978. Þá sigraði liðið í 2. deild 1907 og 1922, í 3. deild 1951. FA-bikarinn vannst 1898 og 1959, deildabikarinn 1978 og 1979. Evrópumeistari varð lið- ið 1979 og 1980. Sigraði í Super Cup 1980 og Charity Shield einnig 1980. Það er því pressa á hinum ungu leik- mönnum að gera vel. Mikil barátta er um sæti í lið- inu, í marki stendur jafnan Steve Sutton mjög snjall leikmaður. Steve Chettle og Brian Laws berjast um stöðu hægri bakvarðar, en Stuart Pearce er vinstri bakvörður. Miðverðirnir Des Walker og Colin Foster eru eitt öruggasta miðvarðaparið í 1. deild. Tengiliðirnir eru einnig góðir, þeirra fremstur Neil Webb, en Terry Wilson, Garry Parker og Steve Hodge berjast einnig um sæti. Hodge lék um tíma frammi ásamt Nigel Clough þar sem liðið vantaði sóknar- mann þar til nú að Lee Chapman er kominn í sóknina. Á vængjunum hafa þeir Gary Crosby og Brian Rice oftast leikið, en hinn snjalli leikmaður Franz Carr hefur þurft að verma varamannabekkinn. Framtíð Nottingham Forest virðist því í góðum höndum og má búast við góðum árangri félagsins á komandi árum. Þ.L.A. landsliðum 21 árs og yngri. Nigel Clough, Des Walker, Franz Carr, Garry Parker og I Steve Chettle með Englandi og Terry Wilson lék fyrir | Skotland. Fyrir nokkrum vikum Steve Hodge kostaöi £575.000 en hann var keyptur frá Nottingham og er liðinu mikill styrkur. meistarakeppninni í Mexíkó. Brian Clough verslaði hins vegar töluvert á síðari hluta leiktímabilsins í fyrra. Tommy Gaynor kostaði £ 25.000 frá Doncaster og komst strax í aðalliðið þar til Gary Crosby 24 ára útherji sló hann út, en Crosby var keyptur frá Lincoln fyrir aðeins £ 15.000 sl. desember. í mars tók Clough aftur fram budduna og keypti tvo efnilega leik- menn fyrir samtals £ 400.000, þá Garry Parker frá Hull City og framherjann Nigel Jemson 19 ára frá Preston. Clough hefur margoft keypt unga leikmenn úr neðri deild- unum og gert úr þeim snjalla leikmenn. Á síðasta ári seldi hann t.d. miðvörðinn Chris Fairclough til Tottenham fyrir nærri £ 400.000, en keypti í hans stað Colin Foster fyrir £ 50.000 frá Leyton Orient og vörn liðsins varð sterkari eftir þau viðskipti. Nú nýlega seldi hann vara- markvörð sinn Hans Segers til Wimbledon fyrir £ 125.000 og keypti Lee Chapman miðherja frá franska liðinu Niort fyrir £ 390.000. en Chapman hafði verið í Frakklandi í stuttan tíma, áður lék hann hjá Shef- field Wed. og á nú að leika við hlið Nigel Clough í sókninni hjá Forest. Þ.L.A.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.