Dagur - 03.01.1989, Side 2
2 - DAGUR - 3. janúar 1989
Bifreiðaeftirlit ríkisins lagt niður um áramótin:
Hvernig tekst samspil þeirra þriggja
aðila sem taka yfir verksvið þess?
Nú um áraniótin var Bifreiða-
eftirlit ríkisins lagt niður og
hlutverki þess skipt niður á
milli Bifreiðaskoðunar Islands
hf. og Dómsmálaráðuneytis-
ins. Mikið virðist vera af lausum
endum varðandi framkvæmd
bifreiðaskoðunar í framtíðinni.
Dómsmálaráðuneytið hefur
ráðið menn til að annast fram-
kvæmd bílprófa og hafa fimm
menn verið ráðnir til þess starfs í
Reykjavík og eiga þeir einnig að
sinna Suðurnesjasvæðinu, Suður-
landi öllu og Vestmannaeyjum.
Einn prófdómari hefur verið ráð-
inn til að annast Vesturland og
Vestfirði, annar fyrir allt Norður-
land og gert er ráð fyrir að próf-
dómari í hlutastarfi sjái um próf-
töku á Austurlandi.
Með þessu má vera að próftök-
unni sé borgið en varðandi bif-
reiðaskoðunina eru landsbyggð-
armenn ekki ánægðir með að
eftirlitsstöðvar á landsbyggðinni
skuli lagðar niður og störf bif-
reiðaeftirlitsmanna færist alfarið
til Reykjavíkursvæðisins. Víða
úti á landi hafa verið byggðar
vandaðar skoðunarstöðvar sem
ekki munu nýtast eftir að væntan-
Halldór Guðbjarnason hjá Samkorti
telur það ekki hreina viðbót við „plastkortaílóruna":
Notkun greiðslukorta í mat-
vöruverslun var feilspor
- á annað þúsund hafa sótt um Samkort
Á annað þúsund manns hafa
sótt um aðild að Samkorti,
greiðslukortafyrirtæki Sam-
bands íslenskra samvinnu-
félaga, að sögn Halldórs Guð-
bjarnasonar. Hann segir að nú
jfe í j > f. ::É=T *=■===
3 3 3 3 -h±
Kennsla á hljómborð
og rafmagnsorgel
Byrjendanáinskeið og framhaldsnámskeið.
Innritun í síma 24769 eftir kl. 17.00.
Orgelskóli Gígju.
Nýárství-
menningur B.A.
Bridgefélag Akureyrar efnir til Nýárství-
mennings í kvöld, þriðjudaginn 3. janúar.
Spilafólk á Akureyri og nágrenni er hvatt til að fjöl-
menna. Spilamennskan hefst kl. 19.30 í Félagsborg.
Skráning fer fram á staönum.
Þriðjudaginn 10. janúar hefst síðan
Akureyrarmótið í tvímenningi.
Þátttökutilkynningar þurfa að berast stjórn Bridge-
félags Akureyrar fyrir kl. 16.00 sunnud.
8. janúar n.k.
Stjórn B.A.
ðtjórnarkjör
Stjórn Sjómannafélags Eyjafjarðar hefur ákveðið að
kjör stjórnar og trúnaðarmannaráðs fyrir næstu 2
starfsár fari fram að víðhafðri allsherjar atkvæða-
greiðslu í samræmi við lög félagsins og reglugerð
A.S.Í.
Framboðslistum skal skila til skrifstofu félagsins,
Skipagötu 14, Akureyri, eigi síðar en kl. 16.00 þriðju-
daginn 24. janúar 1989.
Hverjum lista skulu fylgja meðmæli 28 fullgildra
félagsmanna.
Akureyri, 29. desember 1988.
SJÓMANNAFÉLAG EYJAFJARÐAR.
þegar hafi á bilinu 6-700
umsóknir verið afgreiddar en
áætlanir miðist við að eftir 12
mánuði verði á bilinu 15-20
þúsund manns með Samkort
upp á vasann.
Halldór segir að til þessa hafi
allar áætlanir um uppbyggingu
Samkorts staðist. Hann segir þó
að afgreiðsla kortaumsókna hafi
tekið lengri tíma en menn ætluðu
í upphafi.
í upphafi ársins er ætlunin
að auka þjónustu við handhafa
Samkorts. Hafnar verða viðræð-
ur við ýmis fyrirtæki, bæði á
höfuðborgarsvæðinu og út um
land, um að þau veiti korthöfum
ákveðna fyrirgreiðslu, t.d.
afslátt. Þó verður ekki samið við
fyrirtæki sem keppa beint við
samvinnufyrirtæki. Þannig verð-
ur ekki rætt við forráðamenn
annarra matvöruverslana, en sem
tengjast samvinnuhreyfingunni.
Aðspurður um þá gagnrýni að
notkun greiðslukorta hér á landi
sé komin langt fram úr öllu vel-
sæmi segir Halldór að vissulega
geti hann tekið undir það. Eink-
um hafi menn „stigið hálfgert
feilspor" með því að nota þau við
matvörukaup. „Það er vitað að
álagning í matvöruverslun er í
það knappasta og greiðslukortin
hafa óneitanlega kostnað í för
með sér fyrir kaupmanninn.
Hann verður fyrir ákveðinni fjár-
bindingu, lengst er hún í 45
daga,“ segir Halldór. Hins vegar
segir hann að rétt sé að hafa í
huga að verslun hafi aukist
umtalsvert með tilkomu greiðslu-
kortanna.
Halldór vísar því á bug að til-
koma Samkorts sé hrein viðbót
við þá greiðslukortaflóru sem fyr-
ir er. „Það má líta svo á að með
Samkorti vilji samvinnuhreyfing-
in halda utan um sitt. Kortunum
er m.a. ætlað það hlutverk inni í
kaupfélögunum að draga úr
kostnaði og stuðla að aukinni
hagræðingu í rekstri þeirra,"
segir Halldór Guðbjarnason.
óþh
leg breyting á bifreiðaskoðuninni
hefur komið til framkvæmda.
Innistaða skráningarspjalda
mun færast yfir á lögregluna sem
í flestum tilvikum er og hefur
verið vanmönnuð til að sinna
þeim verkefnum sem hún hefur
haft til þessa þó ekki verði hlaðið
á hana auknum verkefnum.
Þá á framtíðin eftir að leiða í
ljós hvernig samvinnan verður á
milli Bifreiðaskoðunar íslands
sem á að annast bifreiðaskoðun-
ina og lögreglunnar sem varðveit-
ir skráningarspjöld í innistöðu. A
ekki eftir að myndast þar eitt af
götunum í kerfinu sem gæti orðið
til þess að bílar sem hefur verið
lagt og spjöldin af þeim sett í
innistöðu fari aftur út í umferð-
ina á skráningarspjöldum af öðr-
um bíl og án þess að þurfi að
greiða af þeim gjöld?
Hver skyldi líta eftir því að
sami maður geti ekki átt tvo bíla,
haft skráningarspjöldin af öðrum
þeirra í innistöðu og síðan fært
spjöldin af hinum bílnum á milli
bíla eftir þörfum og bara greitt
gjöld af einu ökutæki? fh
Seyðisfjarðarbær:
Byggir íyrir
aldraða
I febrúar verður boðin út bygg-
ing fjögurra ibúða fyrir aldraða
á Seyðisfirði. Jarðvegsskipti
standa yfir og verið er að
ganga frá teikningum.
Áætlað er að byggja þessar
fjórar íbúðir á þremur árum og
eru þær jafnframt þær fyrstu sem
byggðar eru sérstaklega fyrir
aldraða. Um er að ræða tvær ein-
staklingsíbúðir og tvær hjóna-
íbúðir og er staðsetning þeirra
sérstaklega hentug vegna nálægð-
ar við sjúkrahúsið og heilsu-
gæslustöðina. VG
Lindukonfekt líkar vel
- konfektSalan þriðjungur af heildarársveltu fyrirtækisins
Að borða konfekt er einn af
þeim þáttum sem ómissandi
þykja á jólum. Sigurður
Arnórsson framkvæmdastjóri
súkkulaðiverksmiðjunnar
Lindu á Akureyri segir kon-
fektsöluna hafa verið óvenju
góða nú og á síðustu tveimur
árum hafi orðið töluverð
magnaukning í sölu á konfekti
frá verksmiðjunni.
Sigurður segir konfektsöluna
vera orðna um þriðjung af heild-
ar ársvcltu fyrirtækisins og þakk-
ar það einkum góðu hráefni.
„Við gætum þess að vera einung-
is með gott hráefni,“ segir
Sigurður. Hann segir konfekt-
markaðinn heldur íhaldssaman,
fóik vilji vita að hverju það
gengur, og hann telur að Lindu-
konfekt hafi skapað sér nafn á
þessum markaði þannig að fólk
geti treyst á innihaldið.
Söluna segir hann að stórum
hluta hafa færst yfir til stórmark-
aða og þar sé stefnan sú að láta
viðskiptavini njóta þeirra afslátta
sem gefnir eru á konfektinu. Það
eigi sinn þátt í aukinni sölu.
Konfektsalan fer einkum fram
síðustu tíu dagana fyrír jólin, en
framleiðslan hefst þegar á haust-
dögum og stendur fram í des-
ember.
Gísli Jón Júiíusson fram-
kvæmdastjóri heildverslunar
Valgarðs Baldvinssonar sem m.a.
hefur umboð fyrir Nóakonfekt
segir söluna vera svipaða nú og á
undanförnum árum. mþþ
Mörgum þykir konfekt frá Lindu ómissandi um jólin.