Dagur - 06.01.1989, Blaðsíða 7
& janúar 1989 - DAGUR - 7
Af áramótabrennu
á Sauðárkróki
Áramótabrennan á
Sauðárkróki, sem safn-
að var í á síðustu
stundu, brann glatt á
gamlárskvöld að við-
stöddu fjölmenni. Þrátt
fyrir aðeins 3ja daga
söfnun var brennan
myndarleg á að líta og
logaði vel og lengi í
henni. Síðan horfði fólk
á flugeldasýningu
b j örgunarsveitarinnar
frá brennunni, enda
stutt á milli. Það voru
vaskir menn sem unnu
baki brotnu við að safna
í brennuna og sáu til
þess að Sauðárkróks-
búar fengju að ylja sér
við áramótabálköst. Á
meðfylgjandi myndum
sést árangurinn greini-
lega.
-bjb
Byrjað var að safna í brennuna 29. desember. Þegar þessi mynd var tekin
um miðjan dag, var söfnun búin að standa yfir frá því snemma um morgun-
inn . . .
. . . Um sólarhring síðar, 30. desember, var bálkösturinn orðinn myndarleg-
ur . . .
. . . og daginn eftir, gamlársdag, var allt tilbúið fyrir kvöldið . . . Myndir: -bjb
Landssambandið gegn áfengisbölinu:
Leggur áherslu á aukíð
fræðslustarf um vímuefní
Eftirfarandi tillögur voru sam-
þykktar á 18. þingi Landssam-
bandsins gegn áfengisböli 29.
nóv. sl.:
Þing Landssambandsins gegn
áfengisbölinu leggur áherslu á
aukið fræðslustarf um vímuefni.
Þingið telur að ríkissjóður verði
að leggja fram á næsta ári að
minnsta kosti 100 milljónir til
áfengisvarna og bindindis-
fræðslu.
18. þing Landssambandsins
gegn áfengisbölinu skorar á
Alþingi að afnema öll fríðindi í
sambandi við áfengiskaup.
18. þing Landssambandsins
gegn áfengisbölinu samþykkir að
beina því til stjórnvalda að láta
gera úttekt á þeim kostnaði sem
neysla áfengis veldur í þjóðfélag-
inu.
Fram komi:
1. Kostnaður ríkissjóðs.
2. Kostnaður sveitarfélaga.
3. Annar kostnaður.
18. þing Landssambandsins
gegn áfengisbölinu beinir þeim
eindregnu tilmælum til yfirvalda
að veita aðeins óáfenga drykki í
opinberum veislum.
18. þing Landssambandsins
gegn áfengisbölinu samþykkir að
beina því til stjórnvalda að áfengi
og tóbak verði tekið út úr vísitölu
framfærslukostnaðar. Með því
yrði unnt að beita virkari verð-
stýringu í þeim tilgangi að draga
úr tjóni af völdum neyslu þessara
efna.
HOTEL KEA
óskar öllum
Norðlendingum farsældar
á nýju ári
Fyrsti dansleikur
ársins á Hótel KEA verður
laugardaginn 7. janúar
Hljómsveit
Ingimars Eydal
leikur fyrir dansi
Glæsilegur matseðill
Borðapantanir í síma 22200
Auglýsing frá ríkisskattstjóra:
VÍSITALA
JÖFNUNAR-
HLUTABRÉFA
Samkvæmt ákvæðum 5. og 6. málsl. 1. mgr.
9. gr. laga nr. 75/1981 um tekju- og eignarskatt hefur
ríkisskattstjóri reiknað út vísitölu almennrar
verðhækkunar í sambandi við útgáfu jöfnunarhlutabréfa
á árinu 1989 og er þá miðað við að vísitala
Ljanúar 1979 SÖ100.
1.janúarl980vísitala 156
l.janúarl981 vísitala 247
l.janúar!982vísitala 351
l.janúarl983vísitala 557
l.janúarl984vísitala 953
l.janúar!985 vísitala 1.109
l.janúarl986vísitala 1.527
l.janúar!987 vísitala 1.761
l.janúarl988vísitala 2.192
l.janúarl989vís‘itala 2.629
Við útgáfu jöfnunarhlutabréfa skal annars vegar miða við
vísitölu f rá 1. janúar 1979 eða frá 1. janúar næsta árs eftir
stofnun hlutafélags eða innborgun hlutafjár eftir þann
tíma, en hins vegar við vísitölu 1. janúar þess árs sem
útgáfa jöfnunarhlutabréfa er ákveðin.
Reykjavík 2. janúar 1989
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
Gleymið ekki
að gefa smáfuglunum.