Dagur - 06.01.1989, Síða 8

Dagur - 06.01.1989, Síða 8
8 - DAGUR - 6. janúar 1989 - Ottó Gottfreðsson, 75 ára gamall maður á Akureyri, hefiir ekki átt „Margt er mannanna bölið,“ kann einhver að hugsa þegar hann les það sem hér fer á eftir. Ottó Gottfreðsson, 75 ára gam- all maður á Akureyri, og kona hans, Aðalheiður Halldórsdóttir, hafa um árabil mátt þola ótrúlegar hrellingar og erfíðleika sem rekja má til ofsókna af hálfu fólks sem misnot- ar áfengi. Ottó hefur nú kosið að segja sögu sína frammi fyrir alþjóð og koma fram undir fullu nafni í þeim tilgangi að sýna hversu varnarlaust fólk í hans aðstöðu er gagnvart kringumstæðun- um. Opinberar stofnanir og yfírvöld hafa gert sitt til að hjálpa þeim hjónunum en af ýmsum ástæðum, sem hér verða raktar, virðist ekki vera hægt að fínna varanlega lausn á þeim mannlega harmleik sem hér um ræðir, a.m.k. hefur ekki verið fundin nein viðunandi lausn ennþá. Ottó er hress miðað við aldur. Hann vann um langt árabil hjá Rafveitu Akureyrar og er því mörgum Akureyringum kunnur. Hann hætti störfum hjá rafveit- unni fyrir tveimur árum og hugð- ist eiga náðuga daga í ellinni, eins og flestir sem lokið hafa löngu ævistarfi. Hann hefur mörg áhugamál og hefur t.d. málað myndir og skilti. Þetta var þó aðeins draumur því annar raun- veruleiki blasti við heima. í tíu ár hefur Ottó og konu hans, sem nú er 77 ára gömul, rúmliggjandi og veik, verið ógnað, stundum á grófasta hátt, til þess að láta drykkjusjúku fólki í té peninga fyrir áfengi, auk þess sem hann hefur verið neyddur til að skjóta skjólshúsi yfir þetta fólk gegn vilja sínum. Greiðann hefur það iðulega þakkað með því að stela mat frá heimilinu. Allt þetta hef- ur Ottó mátt þola og oft hefur drykkjufólkið ógnað honum á ýmsan hátt og látið berlega skína í að illa geti farið fyrir þeim hjón- um ef hann hlýði ekki. Ottó er nú, að eigin sögn, að þrotum kominn vegna þess andlega álags sem á hann hefur verið lagt í mörg ár. Hann vill skýra frá reynslu sinni af mörgum ástæð- um, ekki síst til að sýna raun- verulegt dæmi um hroðalegar afleiðingar af misnotkun áfengra drykkja og þau áhrif sem heimili geta orðið fyrir af þeim sökum. „Mér hefur jafnvel verið gefíð í skyn að ég yrði gerður höfðinu styttri“ Gefum nú Ottó orðið: „Mér hef- ur verið hótað á margan hátt, jafnvel gefið í skyn að ég yrði höfðinu styttri ef ég ekki gerði eins og þetta fólk vill. Jólin á undanförnum árum, ef undan eru skilin síðustu jól, hafa oft verið hreinasta víti fyrir mig og konu mína. Hér er um að ræða fyrrver- Erfitt vandamál og ekkert eínsdæmi - segir Erlingur Pálmason yfírlögregluþjónn Lögreglan á Akureyri hefur oft verið kölluð til aðstoðar við Ottó og konu hans þegar um þverbak hefur keyrt vegna drykkju aðkomufólksins á heim- ilinu, slagsmála og þjófnaða. Erlingur Pálmason, yfirlögregluþjónn, var spurður álits á þessu máli. Erlingur sagði að enginn efaðist um að áfengisneysla væri orsökin fyrir þeim vanda sem hér um ræðir. Lögreglan getur ekki annað gert en að fjar- lægja einstaklinga sem kvartað er yfir vegna ölvunar í heimahúsum. Við- komandi eru sfðan settir í fangageymslu lögreglunnar og látið renna þar af þeim. Erlingur sagði að maðurinn, sem hér um ræðir (heimilismaðurinn), hefði oft verið sendur suður en það væri engin lausn á málinu nema um stundar- sakir. Önnur ráð væru ekki fyrir hendi þegar viðkomandi drykkjumenn vildu ekkert gera sjálfir til að hætta. Það væru auðvitað til stofnanir en þær væru ráðafáar eins og aðrir í þessum kringumstæðum. „Gömlu hjónin hafa mátt reyta af sér sinn síðasta eyri til að losna við þennan mann, þetta er mikið vandamál og jafn hörmulegt fyrir lögregluna að horfa upp á þetta eins og aðra. Þetta mál er ekkert einsdæmi hérna í bænum. Margir reyna að leysa þessi mál af sjálfsdáðum en hér er um að ræða gömul hjón sem ráða ekki við að koma þessu af sér.“ andi heimilismann hérna í húsinu og tvo aðra menn. Annar þessara manna hefur verið kærður fyrir betl hér á Akureyri og fylgir eig- inkona hans honum oftast eftir hingað inn í húsið. Þriðji maður- inn er þekktur fyrir langvarandi misnotkun áfengis, hann kemur hingað inn með heimilismannin- um fyrrverandi, sem ég minntist á. Auk þess hefur oft fylgt fleira fólk með, allt að átta til níu manns. Þetta fólk svífst einskis þegar það kemur hingað inn. Það tekur frá okkur allan mat úr ísskápnum og borðar í leyfisleysi. Eg vil segja frá einu dæmi um þetta. Á þeim tíma sem Ottó minntist á, þ.é. fyrir tveimur árum síðan, gerðist atburður á heimili hans sem lýsir e.t.v. best aðstæðunum. Ottó átti heimiliskött sem hann hélt mikið upp á. Fólk, sem var að drykkju í húsinu, tók köttinn og fór með hann inn í þvottahús- ið. Þar var saklaust dýrið hrygg- botið með kústskafti. Síðan var Ottó sýnt hræið og hann minntur á að svona myndi verða farið með hann sjálfan og konu hans ef þau hlýddu ekki og létu af hendi peninga og annað sem um var beðið. Frásögnin um köttinn er stað- fest af fleiri vitnum, m.a. eldri ,Eg lét hann fá þúsund krónur til að fá frið. Nýlega keypti ég fimm kíló af kjöti sem ég ætlaði að hafa í mat- inn um helgi og næstu daga. Þá kom náunginn sem hefur verið kærður fyrir betl og stal kjötinu úr frystinum. Ég fann það úti á stéttinni hér við húsið þegar ég fór að leita að því.“ - Hvað hefur þú gert til að kvarta vegna þessara mála? „Þegar kjötinu var stolið þá var allt það fólk sem ég minntist á áðan statt hérna í húsinu. Ég hringdi í lögregluna vegna þessa máls og sá sem stal kjötinu var yfirheyrður. En það var ekkert hægt að gera, hann kom bara aft- ur hingað. Það eru ótal dæmi um atvik eins og þetta hjá mér. Fyrir tveimur árum síðan keyrði um þverbak hér á heimil- inu. Ég hafði kvartað vikum sam- an við lögreglu og aðra aðila en ekkert var gert. Það var ekki fyrr en ég var búinn að fá fleira fólk í lið með mér að maður frá Félags- málastofnun kom og sá um að ákveðinn maður væri fjarlægður úr húsinu. Hroðalegur atburður Ég er ekki að segja að opinberir aðilar hafi staðið sig illa, lögregl- an hefur t.d. alltaf komið þegar ég hef hringt, fólk frá Félags- málastofnun Akureyrar hefur líka liðsinnt mér oftar en einu sinni. Ég er þessum aðilum öllum þakklátur en aðstoð þeirra nægir þó ekki til að halda þessu vandræðafólki frá heimili mínu.“ konu sem lenti í því að þrífa blóðið í þvottahúsinu sem hafði runnið úr dýrinu eftir þetta mannvonskuverk. Ottó var lengi niðurbrotinn eftir þetta atvik. „Það hefur margoft verið sagt við mig að léti ég ekki peninga af hendi fyrir áfengi færi illa fyrir mér. Ég hef oft neyðst til að láta peninga til þessa fólks í slíkum aðstæðum til að fá frið. Ég hef verið neyddur til að keyra fólkið í áfengisverslunina og einstaka sinnum verið píndur til af fara sjálfur að kaupa vfn fyrir það. Það þýðir oftast ekkert fyrir mig að neita, ég er svo hræddur við að vera beittur ofbeldi eða þá að þessi ósköp gangi frá konunni minni, sem er alvarlega veik og mædd af elli. Þetta verð ég að gera þrátt fyrir að ég hafi ekki aðra peninga en ellistyrkinn og eitthvað smávegis sem ég fæ úr lífeyrissjóði." Hringdi í lögreglu klukkan þrjú á jólanótt vegna slagsmála - En átt þú ekki einhverja sök á þessu sjálfur, Ottó, t.d. hverjum þú hleypir hérna inn? „Sannleikurinn er sá að heima- maðurinn fyrrverandi ræður því sem hann vill hérna. Iðulega hef- ur það komið fyrir að dyrabjöll- unni er hringt og ég sé engan annan en hann fyrir utan. Ég fer til dyra og opna en þá birtast fleiri og ég get ekkert gert eftir það, þeir fara bara inn. Heima- maðurinn fyrrverandi er búinn að flytja heimilisfang sitt til Hafnar- fjarðar fyrir nokkrum árum og segist kannski bara ætla að vera hjá mér í einn eða tvo daga. Þessi tími teygist þó oftast upp í að verða mánuður til fimm sex vikur. Meðan þetta stendur höfum við ekki nokkurn frið, hvorki á nóttu né degi. Konan mín er búin að vera ákaflega veik eins og ég sagði áðan. Hún þolir illa hurða- skelli og hávaða og hrekkur við í hvert. sinn sem hún heyrir hljóð, hún er orðin svo hrædd við þetta allt saman. Mér eru jólin 1986 minnisstæð því þá gátum við hjónin ekki haft fataskipti á aðfangadag eða jóla- dag. Við komumst ekki einu sinni í bað fyrir hátíðina því drykkjufólkið lét okkur ekki fá neinn frið. Um jólin og nýárið lá þetta fólk dauðadrukkið í herbergi hér í húsinu. Ég náði ekki að sofa neitt á nóttunni því sífellt var bankað á hurðina og ég beðinn um eitt og annað. Ég varð að sækja lögregluna klukkan þrjú á jólanóttina fyrir tveimur árum. Þá logaði allt í slagsmálum hérna inni. Ég hef alltaf viljað frið og hef margoft keypt mér frið. Þessi undanlátsemi hefur orðið mér dýrkeypt því ég er búinn að láta þetta fólk fá stórar upphæðir gegnum tíðina. Það skiptir ekki nokkru máli hvort er nótt eða dagur, þetta drykkjufólk kemur á öllum tímum sólarhringsins.“ „Ég læsti mig inni í stofunni en hurðin var brotin upp“ - Hefur þér verið ráðlagt að gera eitthvað af opinberum aðilum eða fólki sem þekkir aðstæður þínar? „Já, mér hefur verið uppálagt að hleypa fólki ekki inn og marg- ir eru búnir að ráðleggja mér heilt. En mótstöðuaflið er búið, ég fæ hjartslátt þegar ég heyri bankað á hurðina og mér er hót- að öllu illu ef ég opni ekki dyrnar. Ég óttast að gluggar verði brotnir hjá mér og að fólkið fari bara inn þá leiðina ef ég ekki hlýði. Ég geng um gólf heilu næt- urnar til að hafast við vegna ótta og oft hef ég orðið að sækja lækni. Heimilismaðurinn fyrrverandi er fluttur héðan en hann er upp- alinn hjá okkur. Hann hefur farið á Vog og Staðarfell til meðferðar en meðferð virðist ekki duga, hann dettur í það daginn eftir að hann kemur út. Ég hef reynt að útiloka manninn héðan en það gengur ekki. Drykkjukonan, sem ég minnt- ist á að hefði verið í slagtogi með mönnunum hérna, kom einu sinni hingað og fór rakleitt inn því hún var með lykil á sér að húsinu. Hvernig hún fékk lykil- inn veit ég ekki en inn fór hún og var með son sinn með sér, mann á tvítugsaldri. Pilturinn tók á mér hérna frammi á ganginum en þau voru bæði mikið drukkin. Ég

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.