Dagur - 06.01.1989, Síða 11

Dagur - 06.01.1989, Síða 11
dogskró fjölmiðla Sjónvarpið Föstudagur 6. janúar 18.00 Gosi (2). Teiknimyndaflokkur um ævintýri Gosa. 18.25 Líf í nýju ljósi (21). 18.50 Táknmálsfréttir. 18.55 Austurbæingar (11). 19.25 Búrabyggd (5). 19.50 Tommi og Jenni. 20.00 Fróttir og veður. 20.35 Annáll íslenskra tónlistarmynd- banda. Fyrsti hluti. Sýnd verða nokkur myndbönd frá árinu 1988 og mun dómnefnd velja besta íslenska myndbandið. 21.00 Þingsjá. 21.20 Dr. Alexander Jóhannesson. Heimildarmynd um Dr. Alexander Jóhannesson, fyrrverandi rektor Háskóla íslands. 22.20 Viðtal við Horst Tappert. Arthúr Björgvin Bollason ræðir við þýska leikarann Horst Tappert. 22.30 Derrick. 23.30 Fjórir félagar. (Four Friends.) Bandarísk bíómynd frá 1981. Myndin gerist í byrjun sjöunda áratugar- ins og fjallar um júgóslavneskan pilt sem flust hefur til Bandaríkjanna. 01.20 Útvarpsfréttir í dagskrárlok. Sjónvarp Akureyri Föstudagur 6. janúar 15.35 Smiley.# Fátækur, ástralskur drengur gengur í iið með nokkrum piltum, sem snapa sér hvers kyns vinnu, til að safna peningum fyrir reiðhljóli. 17.10 Dotta og jólasveinninn. (Dot and Santa.) í þessum þætti ferðast Dotta um víða ver- öld í fylgd með jólasveininum. 18.25 Pepsí popp. 19.19 19.19. 20.00 Gottkvöld. Helgi Pétursson og Valgerður Matthías- dóttir fjalla um allt milli himins og jarðar sem er á seyði um helgina. 20.30 í helgan stein. (Coming of Age.) Léttur gamanmyndaflokkur um fullorðin hjón sem setjast í helgan stein. 20.55 Maraþondansinn. Leikfélag Reykjavíkur frumsýndi þennan söngleik í veitingahúsinu Broadway þann 29. desember sl. 21.35 Sjóræningjarnir í Penzance.# (Pirates of Penzance.) Söngleikur sem gerist í kringum 1885. 23.20 Lög gera ráð fyrir .. .# (Penalty Phase.) Stórvel gerð mynd um virtan lögfræðing sem teflir frama sínum í tvísýnu með því að láta hættulegan morðingja lausan þar sem hugsanlegt er að gegnið hafi verið á rétt hans. 00.50 Velkomin til Los Angeles. (Welcome to L.A.) Ungur dægurlagasmiður kemur til Los Angeles til að ganga frá plötusamningi. Konur hrífast mjög af rómantískum söng hans og margar falla fyrir honum, grun- lausar um hvílíkan Casanóva söngvarinn hefur að geyma. Ekki við hæfi yngri barna. 02.30 Dagskrárlok. # Táknar frumsýningu á Stöð 2. Rásl Föstudagur 6. janúar 6.45 Veðurfregnir * Bæn. 7.00 Fréttir. 7.03 í morgunsárið. Lesið úr forystugreinum dagblaðanna að loknu fréttayfirliti kl. 8.30. 9.00 Fróttir. 9.03 Litli barnatíminn. 9.20 Morgunleikfimi. 9.30 Kviksjá - Heimsendir sálarinnar. 10.00 Fréttir • Tilkynningar. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Maðurinn á bak við bæjarfulltrúann. Umsjón: Jóhann Hauksson. 11.00 Fréttir • Tilkynningar. 11.05 Samhljómur. 11.55 Dagskrá. 12.00 Fróttayfirlit • Tilkynningar. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Veðurfregnir • Tilkynningar. 13.35 Miðdegissagan: „Æfingatími", eftir Edvard Hoem. (2) 14.00 Fréttir • Tilkynningar. 14.05 Ljúflingslög. 15.00 Fréttir. 15.03 Stefnumót í skammdegi. Inga Eydal ræðir við Ellen Einarsdóttur og Rafn Hjaltalín. (Frá Akureyri) 16.00 Fróttir. 16.03 Dagbókin. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvarpið. 17.00 Fréttir. 17.03 „Eldfuglinn“, balletttónlist eftir Igor Stravinsky. 18.00 Fréttir. 18.03 Þingmál. Tónlist • Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Tilkynningar. 19.33 Kviksjá. 20.00 Litli barnatíminn. 20.15 Frá aðventutónleikum í Langholts- kirkju 27. nóvember sl. 21.00 Kvöldvaka. 22.00 Fréttir • Dagskrá morgundagsins • Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.30 Góðvinafundur. 24.00 Fróttir. 00.10 Samhljómur. Rás 2 Föstudagur 6. janúar 7.03 Morgunútvarpið. 9.03 Viðbit. - Þröstur Emilsson. (Frá Akureyri.) 10.05 Morgunsyrpa Evu Ásrúnar Albertsdóttur og Óskars Páls Sveinssonar. 12.00 Fréttayfirlit • Auglýsingar. 12.20 Hádegisfróttir. 12.45 í Undralandi með Lísu Páls. 14.00 Á milli mála. - Eva Ásrún Albertsdóttir og Óskar Páll Sveinsson. 16.03 Dagskrá. 19.00 Kvöldfréttir. 19.33 Áfram ísland. íslensk dægurlög. 20.30 Vinsældalisti Rásar 2. Stefán Hilmarsson kynnir tíu vinsælustu lögin. 21.30 Fræðsluvarp - Lærum þýsku. 22.07 Snúningur. Stefán Hilmarsson ber kveðjur milli hlust- enda og leikur óskalög. 02.05 Vökulögin. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30. Fróttir eru sagðar kl. 2, 4, 7, 7.30, 8, 8.30, 9, 10, 11, 12, 12.20, 14, 15, 16, 17, 18, 19, 22 og 24. Ríkisútvarpið á Akureyri Föstudagur 6. janúar 8.07-8.30 Svæðisútvarp Norðurlands. 18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands. Stjarnan Föstudagur 6. janúar 7.00 Egg og beikon. Morgunþáttur Þorgeirs. Fréttir kl. 8. 09.00 Níu til fimm. Lögin við vinnuna. Gyða Dröfn og Bjami Haukur. Fréttir klukkan 10, 12, 14 og 16. 17.00 ís og eldur. Þorgeir Ástvaldsson og Gísli Kristjáns- son, tal og tónlist. Fréttir kl. 18. 18.00 Bæjarins besta kvöldtónlist. 21.00 í seinna lagi. Blanda inn í draumalandið. 22.00 Næturvaktin. Danslög, slagarar og ballöður til að þókn- ast hressu fólki. Óskalaga- og kveðjusími 681900. 03.00-10.00 Næturstjörnur. Tónlist fyrir nátthrafna. Olund Föstudagur 6. janúar 17.00 Um að vera um helgina. Hlynur Hallsson. í þættinum eru tíundað- ir helstu viðburðir helgarinnar í listum, menningu, skemmtunum og fleiru. Fólk kemur í tal. 19.00 Peysan. Snorri Halldórsson. Tónlist af öllum toga og fleira. 20.00 Gatið: Bob Marley. Rúnar Kristjánsson fjallar um þennan þekkta reggý-tónlistarmann. 21.00 Fregnir. 30 mínútna fréttaþáttur. Hvað ætlar fólk að gera um helgina. Viðtöl. 21.30 Samræður 1. þáttur. Rætt verður við sálfræðingana Valgerði Magnúsdóttur og Jóhann Thoroddsen um samræður og samskipti. 23.00 Grautarpotturinn. Ármann Kolbeinsson og Magnús Geir Guðmundsson blúsa og rokka. Móri kvöldsins skýtur upp kollinum. 01.00 Næturlög. Geiri og Gunni sjá um að halda fólki vak- andi með öðruvísi tónlist. 6. janúar 1989 - DAGUR - 11 hér & þar Veðurfar og skapferli Veðurfar hefur mikil áhrif á lunderni og allt atferli mann- fólksins. Þessi speki er okkur íslendingum vel kunn og við þurfum engan bandarískan sál- fræðing til að segja okkur þetta. Samt sem áður skulum við líta á hvað fræðingurinn hefur að segja um veðrið og áhrif þess á skap fólks. Kannski koma rannsóknir hans heim og saman við upplifun okkar. Mjög heitt. Slíkt veðurfar verkar lamandi á fólk, bæði and- lega og líkamlega. Pað verður latara og lélegra til allra verka. Svefninn raskast og skapið verð- ur stirt því fólkinu líður illa og þreytist meira en ella. Það hrein- lega megnar ekki að aðhafast nokkurn skapaðan hlut. Miklir hitar skapa meira vandamál í þeim löndum þar sem fólk er ekki vant slíku veðurfari, segir Dr. Appleton (assistant clinical professor of psychiatry at Harvard Medical School) - skemmtilegur titill. Þetta á örugg- lega við okkur íslendinga, enda ekki vanir mollu. Mjög kalt. Miklir kuldar auka depurð og þunglyndi og slíkt veðurfar ku líka örva alkóhól- isma. Það var og. Fólk verður ófélagslynt og uppstökkara en ella. Rigning. Hóflegar skúrir geta haft róandi áhrif á fólk. Yndisleg nii Ringo og Barbara hljóta að hafa lent í niiklum kuldum því þau þurftu að fara í meðferð vegna ofneyslu áfengis og eiturlyfja. angan náttúrunnar eftir góða skúr kemur fólki í gott skap. Hins vegar, þegar um er að ræða ausandi rigningu tímum eða dög- um saman, þá getur regnið orsak- að þunglyndi, örvinglan og rifr- ildi. Snjór. Rétt eins og með skúrirnar þá getur smávægileg snjódrífa verkað róandi á fólk en snjókoma sem byrgir sólina, fannfergi og frost; þetta gerir okkur uppstökk og ófélagslynd. Mikill raki. Lamar fólk og truflar svefn. Versta hugsanlega samsetning veðurs er þegar bæði er mjög heitt og mjög rakt loft. Skýjað. Þegar alskýjað er verður fólk óhamingjusamt og fyllist óöryggi. Ef þú ert þung- lyndur fyrir þá auka skýjabakkar enn frekar á það ástand. Hvassviðri. Ef ekki er um fár- viðri að ræða heldur storm eða rok þá verður fólk þægilega spennt. Að fylgjast með krafti Kára hefur þau áhrif að maður verður nátengdari náttúrunni og fyllist lífsþrótti. Strekkingur. Hefur góð áhrif í hófi, en ef dagarnir líða með sífelldum strekkingi eða stinnings- kalda þá fyllist fólk kvíða. Fullkomið veður. Þegar veðrið er fullkomið, hiti og raki í meðal- lagi, eða bara logn og blíða eins og við segjum, þá verður fólk fús- ara til samstarfs, hamingjusam- ara, vingjarnlegra, rólegra, skap- betra o.s.frv. Framleiðslugeta eykst og allt verður fagurt og frítt og fannhvítir jöklanna tindar. Kjörmarkaður KEA Hrísalundi 5 Viðskiptavinir! Úrvalið er hjá okkur - það er engin spurning Fyrir þrettándann Hangikjöt, saltkjöt, svínahryggir, svínakótilettur NYTT — NÝTT Nautabökur, kjúklingabökur, svínabökur og sjávarréttabökur. Þetta er það sem hefur slegið í gegn hjá okkur, fljótlegt og einfalt Matreiðslumaöurínn gefur faglegar ráöleggingar. Velkomin i Hrísalund

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.