Dagur - 06.01.1989, Page 16
Haldið veisluna eða fundinn
í elsta húsi bæjarins
Afmælisveislu ★ Giftingarveislu ★
★ Erfidrykkju ★ Kaffisamsæti ★
Fundi og hvers konar móttökur.
Allar nánari upplýsingar gefa Hallgrímur eða Stefán í síma 21818.
Öldruð hjón á Akureyri ofsótt
af dryklqusjúku vandræðafólki
Hjón á áttræðisaldri, búsett á
Akureyri, hafa um langt árabil
mátt þola miklar raunir sem
rekja má til ágangs drykkju-
sjúks fólks á heimili þeirra.
Drykkjufólkið vílar ekki fyrir
sér að þvinga 75 ára gamlan
eiginmanninn til að afhenda
peninga fyrir áfengi, með hót-
unum af ýmsu tagi.
Ottó Gottfreðsson á Akureyri
lýsir í viðtali í Degi í dag hvernig
drykkjusjúkt fólk hefur með
ofstopa og misnotkun áfengis lagt
líf hans og konu hans í rúst, hvað
eftir annað, allar götur síðan
1976. Gömlu hjónin hafa nft ekki
haft frið vegna áfloga og ónæðis
sem fylgir drykkjunni í fólki sem
treður sér inn í húsið án leyfis.
Yfirvöld jafnt sem aðrir virðast
standa ráðþrota gagnvart þessum
vanda, og hefur lögreglan á
Akureyri t.d. margsinnis þurft að
hlutast til um þetta mál.
Ottó hefur verið beittur líkam-
legu ofbeldi á sínu eigin heimili
auk þeirrar andlegu þvingunar
sem hjónin hafa mátt þola. Þau
hafa þurft að yfirgefa heimili sitt
nokkrum sinnum vegna drykkju-
fólksins, sem situr oft á tíðum
færis við húsið til að þvinga pen-
inga út úr Ottó. Hann er þrotinn
Tap bankans
er orðið mikið
- segir bankastjóri Samvinnubankans
vegna þrotabús KSP Svalbarðseyri
„Við reiknum ekki með að fá
neina peninga upp í aimennar
kröfur og tap bankans er orðið
mikið á þessu gjaldþroti,“
sagði Geir Magnússon, banka-
stjóri Samvinnubankans, þeg-
ar hann var spurður um gang
mála vegna gjaldþrots kaup-
félags Svalbarðseyrar.
Geir hefur áður lýst því yfir að
hann sé ósáttur við hvernig staðið
hafi verið að ýrnsu varðandi
málefni þrotabús kaupfélagsins
og að bústjóri þrotabúsins, Haf-
steinn Hafsteinsson, hefði ekki
gengið frá lausum endum í þrota-
búinu. „Það voru ýmsar athuga-
semdir gerðar á fyrstu skipta-
fundunum en ég hef ekki orðið
var við að neitt hafi verið unnið
síðan,“ sagði Geir.
Samvinnubankinn á allmiklar
eignir á Svalbarðseyri; frystihús,
sláturhús og lóðina Svalbarðs-
eyri. Geir sagði að þessar eignir
væru í þokkalegu ásigkomulagi
en óvíst væri um sölu þeirra með-
an atvinnuástand í landinu væri
eins óvíst og nú. Fram hefur
komið að tap Samvinnubankans
vegna gjaldþrots KSÞ nemur tug-
um milljóna króna, í versta falli,
þ.e.a.s. ef bankinn neyðist til að
sitja uppi með eignirnar í langan
tíma. Bankastjórinn er þó ekki
svartsýnn vegna þessa: „Eg sé
ýmsa möguleika á Svalbarðseyri,
staðurinn er stutt frá Akureyri,"
sagði Geir Magnússon. EHB
Fjögur kaupfélög sameinast um
innkaupafyrirtæki á Akureyri:
Takmarkið er að
lækka vöruverð
Sameiginleg vöruinnkaup kaup-
félaga sem eiga aöild að Sam-
landi sf., nýstofnuðu samvinnu-
fyrirtæki á Akureyri, mun
stuðla að lækkun vöruverðs,
að sögn Magnúsar Gauta
Gautasonar, aðstoðarkaupfé-
lagsstjóra KEA. Minni kostn-
aður vegna birgðahalds og
aukinn innflutningur beint til
Akureyrar eiga að leiða til
lækkunar vöruverðs.
Magnús Gauti sagði að stofnun
Samlands sf. væri afleiðing af við-
ræðum sem farið hefðu fram milli
fulltrúa Kaupfélags Eyfirðinga,
Kaupfélags Þingeyinga, Kaup-
félags Langnesinga og Kaupfélags
Norður-Þingeyinga á Kópaskeri
á síðasta ári. Síðastnefnda kaup-
félagið mun eiga aukaaðild að
Samlandi sf. þar til staða þess
skýrist síðar á árinu. Samland sf.
verður til húsa í núverandi
birgðastöð KEA að Hafnarstræti
99 á Akureyri.
„Við munum reyna að kaupa
minna af vörum gegnunt heild-
sölurnar. Þetta er gert í samvinnu
við birgðastöð Sambandsins í
Reykjavík, við munum áfram
kaupa vörur þar sem henta en
flytja jafnframt inn sjálfir og
auka innflutning eins og hag-
kvæmt þykir. Þetta eru ákveðin
tímamót í vöruinnkaupum kaup-
félaganna og árangur af viðræð-
um sem hafa staðið yfir frá því á
síðasta vori um samvinnu þessara
félaga með hagræðingu í huga,“
sagði Magnús Gauti. EHB
að kröftum vegna þess álags sem
á honum hvílir sífellt og hefur nú
tekið það ráð að lýsa högum
þeirra hjóna opinberlega. Til-
gangurinn er sá að sýna fram á
hvernig vandamál sem þetta get-
ur þróast á heimilum og, síðast
en ekki síst, að hann sjálfur jafnt
sem opinberir aðilar virðast
standa ráðþrota. Frásögnin sem
I hér birtist nefnist „Ég hef oft ver-
ið rændur allri lífshamingju," og
er, því miður, ekki einsdæmi um
atburði í heimahúsum á Akur-
eyri. Sjá nánar bls. 8-9. EHB
Á morgun verða þeir aðeins askan ein, því þeir eru eldiviður í brennu Þórsara í kvöld.
Mynd: TLV
„01íugasið“ í Öxarfirði kallar á frekari rannsóknir:
Engir peningar á fjárlögum
til „olíuleitar“ á þessu ári
Ekki er Ijóst hvort Orkustofn-
un mun á þessu ári rannsaka
frekar fyrirliggjandi gögn um
„olíusetlögin“ í Oxarfjrði.
Eins og kunnugt er hefur Olaf-
ur Flóvenz hjá Orkustofnun
greint frá því að gasmyndun í
borholum í Öxarfirði sé af
svipuðum toga og á olíusvæð-
um. Þessar niðurstöður hafa
velt upp mörgum spurningum
sem menn vilja fá svar við.
Stærsta spurningin er auövitaö
sú hvort einhvern tímann í
fjarlægri framtíð geti hafist
olíuvinnsla í Öxarfirði. Innst
inni vilja hvorki leikmenn né
vísindamenn trúa því en hins
vegar hefur það komið fram í
samtölum, sem Dagur hefur
átt við heimamenn í Öxarfirði
og vísindamenn á Orkustofun,
að ástæða sé til að skoða þetta
dæmi í kjölinn.
Ólafur G. Flóvenz áætlar að
þurfi um 3 milljónir króna til þess
að ljúka athugunum sem skorið
geta úr um hvort ástæða sé til að
leggja út í fjárfrekar bergmáls-
mælingar í Öxarfirði. Slíkar
mælingar segja til unt hvar hugs-
anleg olía liggur í setlögunum.
Samkvæmt fjárlagafrumvarp-
inu, sem að öllum líkindum verð-
ur afgreitt sem lög frá Alþingi
síðar í dag, verður ekki veitt
nauðsynlegum fjármunum til
þessara rannsókna á þessu ári.
Hins vegar hefur Dagur fyrir því
heimildir að iðnaðarráðherra hafi
sýnt þcssu máli mikinn áhuga og
muni leggja á það áherslu að taka
3 milljónir króna til rannsókn-
anna af öðrum skildum liðum á
fjárlögum. í því sambandi er litið
vonaraugum til fjárlagaliðar sem
ber heitið „ýmis orkumál“. Til
þess liðar er varið tæpum fimm
milljónum króna.
í tillögum fjárveitinganefndar
til þriðju umræðu fjárlaga, sem
hófst síðdegis í gær, er nýr liður
sem er uppgjör við Orkustofnun
vegna rannsókna í Öxarfirði.
Þessi liður er upp á 1,15 milljónir
króna. óþh
Dýpka Fiskihöfnina sjálfir
- framlög til nýframkvæmda við höfnina voru skert
Nú er orðið ljóst að starfsmenn
Akureyrarhafnar munu sjálfir
sjá um að dýpka nýju Fiski-
höfnina og verður moksturs-
krani hafnarinnar notaður til
verksins.
Guðmundur Sigurbjörnsson,
hafnarstjóri, sagði að eftir við-
ræður við Dýpkunarfélagið hf.
hefði verið ákveðið að höfnin
framkvæmdi verkið sjálf með sín-
um eigin tækjum og mannskap.
Ástæðan er fyrst og fremst sparn-
aður en framlag ríkisins til Fiski-
hafnarinnar á þessu ári var skorið
niður úr 26 milljónum króna í
14,4 milljónir.
Reiknað er með að vinna við
að dýpka höfnina standi fram á
næsta haust. í vor verður steypt-
ur kantur ofan á stálþilið. Því
næst verða lagðar lagnir fyrir raf-
magn og vatn og raflýsingu kom-
ið upp. Vinnu við lagnir og annað
þeim tengt mun ljúka síðari hluta
sumars ef allt gengur eftir áætlun.
Ljóst er að Sanavöllurinn fær
að halda sér enn um hríð því
uppfyllingin úr höfninni verður
líkast til flutt burt jafnóðum að
verulegu leyti, í stað þess að safn-
ast upp. Þetta er mögulegt vegna
þess að framkvæmdahraðinn er
minni þegar krani er notaður til
verksins. Höfnin verður 7 metra
djúp á stórstraumsfjöru eftir
dýpkunina. EHB