Dagur - 14.02.1989, Page 9
14. febrúar 1989 - DAGUR - 9
sins á
nd: TLV
[
lagnús-
md: JÓH
Ljónin skotin í síðarí hálfleik
- Arsenal og Norwich sigra enn - Chelsea og Man. City auka forskot sitt í 2. deild
Vegna undanúrslitaleiks West
Ham og Luton í Deildabikarn-
um á sunnudag var leikjum
Liverpool og Luton annars
vegar og West Ham og
Middlesbrough í 1. deild
frestað. En að öðru leyti var
laugardagurinn ósköp venju-
legur og hefðbundinn, Chelsea
og Wolves unnu enn einu
sinni, Steve Bull, Keith
Edwards og Gordon Durie
röðuðu inn mörkum og Wim-
bledon missti mann út af. Það
var þó ekki alvarlegt í þetta
sinn, John Fashanu var vikið
út af til að taka af sér hálsfesti
og fékk að koma inná að því
loknu. En þá eru það leikirnir.
Leik Arsenal og Millwall f
Ijónagryfjunni „The Den“ var
sjónvarpað hér heima. Arsenal
hefur sigrað í 8 af 12 útileikjum
sínum og skorað 29 mörk í þeim.
En lengi leit út fyrir að Millwall
setti strik í þann reikning. Vendi-
punktur leiksins kom um miðjan
síðari hálfleik, Teddy Shering-
ham skaut þá framhjá marki
Arsenal eftir að hafa komist einn
í gegn. í stað þess að Millwall
kæmist tveim mörkum yfir tók
John Lukic markvörður Arsenal
markspyrnu, Alan Smith skallaði
áfram til Brian Marwood sem
jafnaði fyrir Arsenal með glæsi-
legu skoti. Leikmenn Millwall
misstu móðinn og 9 mín. fyrir
leikslok skoraði Alan Smith
sigurmark Arsenal eftir varn-
armistök Millwall. Millwall lék
mun betur framan af Ieiknum og
náði forystu á 14. mín. er Jimmy
Carter skallaði inn sendingu
Staðan
1 . deild
Arsenal 23 15- 5- 3 50:24 50
Norwich 24 13- 8- 3 36:25 47
Man.Utd. 24 10- 9- 5 34:19 39
Nott.Forest. 24 9-11- 4 34:26 38
Covcntry 24 10- 7- 7 33:25 37
Liverpool 23 9- 9- 5 30:20 36
Milhvall 23 10- 6- 7 35:30 36
Derby 23 10- 5- 8 26:18 35
Everton 23 8- 8- 7 28:25 32
Wimbledon 23 9- 5- 9 27:30 32
Middlesbro 23 8- 6- 9 30:35 30
Aston Villa 23 7- 9- 7 33:37 29
'lottenham 24 6- 9- 9 34:36 27
Southampton 24 6-10- 9 36:46 27
Luton 23 6- 8- 9 26:29 26
QPR 24 6- 7-11 24:24 25
Charlton 24 5- 9-10 26:35 24
Sheff.Wed. 23 5- 8-10 18:33 23
Newcastle 24 5- 6-13 21:43 21
West Hain 23 4- 5-14 20:41 17
2 deild
Chelsea 27 15- 9- 4 59:29 54
Man.City 28 15- 8- 5 43:24 53
Watford 28 14- 6- 8 42:29 48
Blackbum 28 14- 6- 8 46:40 48
W.B.A. 28 12-10- 6 46:27 46
Bourncmouth 2813- 4-1131:3243
C.Palace 27 11- 9- 7 43:35 42
Barnsley 28 11- 9- 8 39:37 42
Leeds Utd. 28 10-11- 7 34:26 41
Stoke 2811- 8- 9 34:44 41
Ipswich 28 12- 4-12 42:39 40
Sunderland 28 10-10- 8 36:32 40
Portsmouth 28 10- 8-10 37:35 38
Hull 28 10- 8-10 39:39 38
Swindon 27 9-10- 8 38:35 37
Plymouth 28 10- 7-11 36:40 37
Leicester 28 9-10- 9 34:38 37
Oxford 28 9- 6-13 42:43 33
Bradford 28 7-11-10 28:34 32
Brighton 28 8- 6-14 39:46 30
Oldham 28 6-10-12 42:46 28
Shrewsbury 28 4-11-13 22:43 23
Birmiugham 28 4- 7-17 19:51 19
Walsall 28 3- 8-17 24:51 17
Hendrie og félagar hans hjá Newcastle unnu óvæntan sigur á Coventry.
Tony Cascarino. Cascarubi fékk
tvö ágæt færi í leiknum, en mis-
tókst og síðan var mark dæmt af
Arsenal eftir mikinn atgang á
marklínu þar sem dæmt var á
sóknarmenn Arsenal. Sigur
Arsenal heldur liðinu áfram á
toppi deildarinnar.
Norwich fylgir Arsenal eins og
skugginn, sigraði í heimaleik sín-
um gegn Derby 1:0. Robert
Fleck skoraði eina mark leiksins í
upphafi síðari hálfleiks, mikið
heppnismark því sending Malcolm
Allen vírtist ætla að fara aftan við
Fleck, en einhvern veginn tókst
honum að reka hælinn í boltann
sem fór fram hjá Peter Shilton í
netið. Andy Townsend og Andy
Linighan léku mjög vel hjá
Norwich sem átti sigurinn
skilinn, en Derby fékk þó færi.
Paul Goddard átti tvo hættulega
skalla að marki Norwich og Ted
McMinn fékk einnig gott tæki-
færi, en mistókst að skora.
Óvæntust urðu úrslitin í leik
Coventry og Newcastle.. Prátt
fyrir nokkra yfirburði Coventry
mestan hluta leiksins kom slapp-
leiki sóknarmanna og of hægur
leikur tengiliðanna í veg fyrir að
liðið ógnaði marki Newcastle að
einhverju ráði. Newcastle tók
síðan forystu á 5. mín. síðari
hálfleiks er Steve Sedgley reyndi
langa sendingu aftur til mark-
varðar síns sem John Hendrie
útherji Newcastle komst inní og
skoraði í autt markið. Rétt á eftir
jafnaði Coventry, Frank Pingel
undir pressu frá Sedgley og
Trevor Peake sendi þá boltann í
eigið mark. Um miðjan hálfleik-
inn fékk Newcastle annað mark á
silfurfati, Brian Kilcline mið-
vörður Coventry stökk þá upp til
að skalla frá marki, en á
óskiljanlegan hátt sló hann þess í
stað boltann frá með hendi og
vítaspyrna dæmd. Brasilíumað-
urinn Mirandhinha skoraði úr
spyrnunni með þrumuskoti og
tryggði liði sínu óvæntan og
óverðskuldaðan sigur.
Ekki er lát á velgengni Man.
Utd. um þessar mundir og liðið
bætti sjötta sigri sínum í röð við á
útivelli gegn Sheffield Wed. Pet-
er Eustace sagði fyrir leikinn að
ekkert væri athugavert við leik
Sheffield Wed. þrátt fyrir slakt
gengi að undanförnu, það eina
sem vantaði væri sigur til að
koma liðinu í gang. Ekki varð
framkvæmdastjóranum að ósk
sinni að þessu sinni, þrátt fyrir
góða byrjun liðsins í leiknum
virtust leikmenn þess falla saman
er Manchester liðið tók forystuna
rétt fyrir hlé. Leikmenn virtust
sætta sig við tap, áhorfendur
snerust gegn sínum mönnum og
Eustace var eins og boltastrákur
á hliðarlínunni, sækjandi knött-
inn fyrir leikmenn sína. En lið
Utd. var einfaldlega miklu betra,
leikur góða knattspyrnu um þess-
ar mundir, hefur skorað 16 mörk í
síðustu leikjum gegn aðeins einu.
Fyrra markið kom á 37. mín.,
eftir undirbúning Clayton Black-
more og Ralph Milne skoraði
Brian McClair. Áður átti Bryan
Robson að fá vítaspyrnu, en
dómarinn færði brotið út fyrir
teig. Utd. bætti síðara markinu
við eftir hlé, mistök Nigel Pear-
son urðu til þess að Mark Hughes
slapp í gegn, en skot hans var
varið, boltinn barst til McClair
sem skoraði sitt annað mark og
Utd. er nú komið í 3. sæti deild-
arinnar.
Nottingham For. varð að sætta
sig við markalaust jafntefli á
heimavelli gegn Q.P.R. Slæm
úrslit fyrir liðið eftir mjög góða
leiki að undanförnu. Fram-
kvæmdastjóri Forest, Brian
Clough var tekin á beinið hjá
aganefnd í vikunni og dæmdur til
að fara af varamannabekk
liðsins. Hann fékk þó að sitja þar
á laugardag og var mjög vel fagn-
að af áhorfendum er hann gekk
til sætis.
John Fashanu skoraði eina
mark leiks Wimbledon gegn
Aston Villa í fyrri hálfleik og auk
sigursins tókst Wimbledon að
ljúka leiknum með 11 leikmenn.
Paul Stewart jafnaði fyrir Tott-
enham 13 mín. fyrir leikslok gegn
Charlton, en Paul Williams hafði
komið Charlton yfir í fyrri hálf-
leik. Tottenham þarf að vara sig
á fallinu og hefur ekki efni á að
tapa stigum á heimavelli í leik
sem þessum.
Kevin Morre kom Southampton
yfir á heimavelli gegn Everton í
fyrri hálfleik, en í þeim síðari
tókst Kevin Sheedy að jafna fyrir
Everton og hvorugu liðinu hefur
tekist að sigra í deildaleik á þessu
ári.
2. deild
• Man City virðist á leið upp í
1. deild, sigraði Ipswich sannfær-
andi á heimavelli sínum 4:0.
Tvær hornspyrnur Nigel Gleg-
horn í fyrri hálfleik gáfu Brian
Gayle og Wayne Biggins mörk. I
þeim síðari bætti Biggins öðru
marki sínu við og Trevor Morley
fjórða marki liðsins.
• Tennisstjarnan Steffan
Edberg mætti á leik Watford og
Leeds Utd., en hann hefur verið
aðdáandi Leeds Utd. í 15 ár, en
ekki séð liðið leika fyrr. Mikil
barátta í upphafi leiks, en Paul
Wilkinson náði forystu fyrir Wat-
ford í fyrri hálfleik. í þeim síðari
lék Leeds Utd. mjög vel og náði
undirtökunum. John Pearson
nýkominn inná sem varamaður
skoraði og jafnaði fyrir liðið með
sinni fyrstu snertingu við boltann
eftir sendingu Vince Hilaire.
Bæði liðin fengu tækifæri til að
gera út um leikinn eftir það, en
jafnteflið sanngjarnt.
Deildabikarinn:
Luton með annan fótinn á Wembley
- sigraði West Ham 3:0
Á sunnudag léku Deildabik-
armeistarar Luton og West
Ham fyrri leik sinn í undan-
úrslitum Deildabikarsins og
fór leikurinn fram á Upton
Park heimavelli West Ham.
Luton sigraði örugglega í
leiknum 3:0 og því allt sem
bendir til þess að liðið leiki til
úrslita í keppninni á Wembley
annað árið í röð.
West Ham náði ekki að sýna
þá baráttugleði sem hefur fleytt
liðinu svo langt í bikarkeppnun-
um og var yfirspilað af Luton í
ileiknum. Mick Harford og Roy
Wegerle voru vörn West Ham til
mikilla vandræða í leiknum, en
Steve Foster miðvörðurinn sterki
stöðvaði hins vegar sóknarmenn
West Ham án mikilla vandræða.
Luton skoraði fyrsta mark sitt
rétt fyrir hlé, Alan McKnight
markvörður West Ham lét send-
ingu Danny Wilson fara fyrir
mark sitt og Harford skallaði í
netið.
West Ham hóf síðari hálfleik-
inn með nokkurri sókn, en á 55
mín. bætti Wegerle öðru marki
Luton við eftir einleik og skot úr
þröngri stöðu sem McKnight
hefði átt að ráða við. 15 mín. fyr-
ir leikslok braut síðan Julian
Dicks á Wegerle innan vítateigs
og Wilson skoraði úr vítaspyrn-
unni. Luton ætti örugglega að
komast í úrslit, West Ham getur
tæplega unnið þennan mun upp á
plastvelli Luton. Mótherjar liðs-
ins þar verða annað hvort Nott-
ingham For. eða Bristol City.
West Ham hins vegar missti hér
sennilega af besta tækifæri sínu
til verðlauna í vetur, liðið er að
vísu enn með í FA-bikarnum, en
staða þess í 1. deild er slæm þar
sem liðið situr á botni deildarinn-
ar. Þ.L.A.
• Chelsea er efst í 2. deild, sigr-
aði Swindon 3:2 þar sem öll
mörkin voru skoruð í fyrri hálf-
leik. Gordon Durie skoraði fyrst
fyrir Chelsea, Jon Gittens og
Ross McLaren leikmenn Swindon
gerðu báðir sjálfsmörk. Paul
Bodin skoraði í rétt mark fyrir
Swindon, en Joe McLaughlin
gerði sjálfsmark hjá Chelsea.
• W.B.A. gerði aðeins jafntefli
á heimavélli gegn Barnsley, Don
Goodman skoraði mark W.B.A.,
en Steve Lowndes skoraði fyrir
Barnsley.
• Mark Newson skoraði sigur-
mark Bournemouth gegn Birm-
ingham.
• Keith Edwards skoraði tvö af
mörkum Hull City gegn Shrews-
bury.
• Les Phillips gerði mark
Oxford gegn Portsmouth.
• Óvæntust úrslit í 2. deild urðu
í leik Sunderland á heimavelli
gegn Walsall. Sunderland hafði
ekki tapað heima í vetur, en ekk-
ert gengið hjá Walsall sem sigraði
í leiknum 3:0 og gerði Stuart
Rimmer öll mörkin.
• Wolves er efst í 3. deild með
61 stig, Port Vale hefur 48 ásamt
Bury.
• í 4. deild er Crewe efst með
51 stig, en Scunthorpe hefur 48
stig. Á botni 4. deildar er Colch-
ester með 17 stig. Þ.L.A.
✓
Urslit 1. deild
Coventry-Newcastle 1:2
Liverpool-Luton frestaft
Millwall-Arsenal 1:2
Norwich-Derby 1:0
Nottingham For.-Q.P.R. 0:0
Sheffield Wed.-Manchcstcr Utd. 0:2
Southampton-Everton 1:1
Tottenham-Charlton 1:1
West Ham-Middlesbrough frestað
Wimbledon-Aston Villa 1:0
2. deild
Bimtingham-Boumemouth 0:1
Bradford-Plymouth 1:1
Brighton-Leicester 1:1
Chelsea-Swindon 3:2
Crystal Palace-Blackbum 2:2
Hull City-Shrewsbury 3:0
Manchester City-Ipswich 4:0
Oxford-Portsinouth 1:0
Stoke Cilv-Oldham 0:0
Sunderland-Walsall 0:3
Watford-Leeds Utd. 1:1
W.B.A.-Barnsley 1:1
3. deild
Bolton-Swansea 1:0
Brentford-Chcster 0:1
Brisiol City-Gillingham 1:0
Cardiff City-Sheffield Utd. 0:0
Chesterfield-Notts County 3:0
Huddersficld-Port Vale 0:0
Mansfield-Southend 4:0
Northampton-Blackpool 4:2
Prcston-Bristol Rovers 1:1
Reading-Bury 1:1
Wigan-Aldershot 2:1
Wolves-Fulham 5:2
4. deild
Cambridge-Hartlcpool 6:0
Colchester-Bumley 2:2
Darlington-Leyton Oricnt 1:3
Hereford-LÍncoln 3:2
Rochdale-Grimsby 0:2
Rotherham-Carlisle 2:1
Scunthorpe-Exeter 2:0
Stockport-Crewc 0:1
Torquay-Scarborough 0:1
Tranmere-Halifax 2:0
Wrexham-Doncaster 1:1
York City-Peterborough 5:1