Dagur - 17.02.1989, Page 1
72. árgangur
Akureyri, föstudagur 17. febrúar 1989
34. tölublað
Konudagurhm
er á sunnudagmn
Opið í Hafnarstræti
iaugardag frá kl. 09.00- 18.(K). sunnudag frá kl. 09.00-18.00,
Sunnuhlíð, laugardag frá kl. 10.00-18.00.
Blómabúöin Laufás
Hafnarstræti 96 ■ Sími 242S0
Sunnuhlíð ■ Sími 26250.
Fræðslustjóri Norðurlandsumdæmis eystra:
Páll, Trausti og
Þórður sækja
- tveir óska
Fimm hafa sótt um stöðu
fræðslustjóra Norðurlands-
umdæmis eystra, en umsókn-
arfrestur rann út sl. miðviku-
dag, 15. febrúar. Umsækjend-
ur eru Páll Bergsson, ytírkenn-
ari Glerárskóla á Akureyri,
Trausti Þorsteinsson, skóla-
stjóri Dalvíkurskóla og Þórður
Gunnar Valdimarsson, upp-
eldisfræðingur. Þá hafa tveir
umsækjendur óskað nafn-
leyndar.
Akureyri:
Kúnstugt
innbrot
Býsna kúnstugt innbrot var
framið á Akureyri í gærmorg-
un. Þar var um að ræða skip-
verja á aðkomubát sem vildi
komast í koju og fá sér lúr en
kom að læstum dyrum og greip
þá til þess ráðs að brjóta rúðu.
Með honum voru tveir gestir.
Vaktmaður tilkynnti lögregl-
unni að brotist hefði verið inn í
bátinn og stormaði hún að sjálf-
sögðu á staðinn og raskaði
svefnró mannsins. Þá kom í ljós
að hér var ekki um eiginlegt inn-
brot að ræða.
Skipverjarnir voru allir farnir
til síns heima nema þessi maður,
sem búsettur er á ísafirði. Hann
átti hvergi höfði sínu að halla og
braust því inn í bátinn af illri
nauðsyn. SS
Sjóvá-Almennar
tekur til starfa:
Þórarinn B.
umboðsmaður
- á Akureyri
Sjóvá-Almennar tryggingar hf.
fékk í fyrradag leyfi trygginga-
málaráðherra til vátrygginga-
starfsemi. Nýja félagið tók til
starfa í gær og tók þar með við
öllum viðskiptum og skuld-
bindingum Sjóvátryggingafélags
Islands hf. og Almennra trygg-
inga hf.
Með sameiningu þessara félaga
urðu miklar breytingar á
umboðsmannakerfi þessara
félaga úti á landi. Stærstu
umboðin eru í Hafnarfirði,
Keflavík, Sauðárkróki, Akureyri
og Akranesi. Á flestum þessara
staða hafa félögin haft umboðs-
menn og á sumum þessara staða
verða umboðsmennirnir tveir
fyrst um sinn.
Á Akureyri verður Þórarinn
B. Jónsson umboðsmaður nýja
tryggingafélagsins en hann var
áður umboðsmaður Sjóvá.
Umboðið verður staðsett þar sem
umboð Sjóvá var áður. Ólafur
Stefánsson sem verið hefur
umboðsmaður Almennra trygg-
inga lætur af störfum. JOH
nafnleyndar
Svavar Gestsson, menntamála-
ráðherra, mun veita stöðu
fræðslustjóra að fenginni umsögn
fræðsluráðs Norðurlandsum-
dæmis eystra. Staðan er veitt frá
og með 1. júní nk. og því mun
ráðherra ganga frá stöðuveiting-
unni fljótlega. Þráinn Þórisson,
formaður fræðsluráðs Norður-
landsumdæmis eystra, sagðist í
samtali við Dag fastlega gera ráð
fyrir að fræðsluráð myndi fjalla
um ráðningu nýs fræðslustjóra
strax og staðfesting um umsækj-
endur hafi borist frá ráðuneyti
menntamála.
Sigurður Hallmarsson hefur
gegnt embætti fræðslustjóra frá
I. september 1987. Áður sat
Ólafur Guðmundsson í stóli
fræðslustjóra, að ósk þáverandi
menntamálaráðherra, Sverris
Hermannssonar. Ólafur gegndi
embættinu um þriggja mánaða
skeið eftir að menntamálaráð-
herra vék Sturlu Kristjánssyni úr
embætti fræðslustjóra Norður-
landsumdæmis eystra. óþh
Hlíðarfjall skartaði sínu fegursta í sólinni í gær. Þrátt fyrir hörkufrost dreif fólk sig á skíði og naut útiveru. Þessir
kappar voru að gera sig klára fyrir brekkurnar þcgar Ijósmyndari Dags átti leið um Hlíðarfjall. Þess má að lokum
geta að fyrirhugað er að gangsetja „bannlyftuna“ seinnipartinn í dag eftir að öryggisráðstöfunum hefur verið
fullnægt. Mynd: TLV
Ágreiningur við uppfærslu Virginíu Wolf:
Þrír aðstandendur óska eftir því að
nöfíi þeírra birtíst ekki í leikskrá
leikstjórinn fór frá Akureyri fyrir þremur vikum
Ágreiningur hefur komiö upp
milli aðstandenda að upp-
færslu Leikfélags Akureyrar á
leikritinu Hver er hræddur við
Virginíu Wolf? með þeim
afleiðingum að leikstjóri,
höfundur tónlistar og hönnuð-
ur leikmyndar og búninga hafa
óskað eftir því að nöfn þeirra
verði ekki birt í sambandi við
þessa sýningu. Þetta mál á sér
nokkra forsögu sem vert er að
skoða.
Síðastliðinn þriðjudag barst
formanni leikhúsráðs Leikfélags
Akureyrar skeyti og vegna inni-
halds þess hefur ráðið sent frá sér
opinberlega tilkynningu. Arnór
Benónýsson leikhússtjóri orðar
þetta svo:
„Sá aðili sem skráður var fyrir
leikstjórninni, ásamt mér, hefur
óskað eftir því að nafn hans verði
ekki nefnt í opinberum kynning-
um á verkinu eða í leikskrá og
Bygging íþróttahúss í Ólafsfirði:
Bæjarstjóm vill stefna að
byggingu húss í fuliri lengd
- vafasamt að fyrsta skóflustungan verði tekin á árinu
Bæjarstjórn Ólafsfjarðar sam-
þykkti á fundi í þessari viku að
stefna að byggingu íþróttahúss
með löggiltan völl fyrir hand-
knattleik, þ.e. 40x20 metrar.
Lengi vel var rætt um að vall-
arstærð yrði 33x40 metrar en
að fengnu áliti bygginganefnd-
ar íþróttahússins ákvað bæjar-
stjórn að stíga skrefið til fulls
og byggja húsið í fullri lengd.
Þrátt fyrir að þessi samþykkt
liggi fyrir er ekki þar með sagt
að bygging hússins hefjist í
bráð. Bjarni Grímsson, bæjar-
stjóri, segir að sökum tóma-
hljóðs í bæjarkassanum sé eng-
an veginn gefið að fyrsta
skóflustungan verði tekin á
þessu ári
„Með þessari ákvörðun bæjar-
stjórnar hefur íþróttahúsmálinu
verið þokað áfram en í raun er
málið líka snarstopp. Bæjar-
stjórnarmenn eru sammála um
að byggja hús í fullri lengd en
jafnframt eru menn sammála um
að viðbótarfé til byggingar þess
þurfi að koma frá íþróttahreyf-
ingunni eða félagasamtökum,“
segir Bjarni. „Bæjarfélagið sem
slíkt rís ekki undir svo stórkost-
legu húsi. Hins vegar viljum við
halda uppi þróttmiklu íþrótta-
starfi í bænum og til þess þurfum
við góða aðstöðu og því teljum
við eðlilegt að leita til félagasam-
taka í bænum til að hjálpa okkur
að byggja það,“ bætir hann við.
Samkvæmt fjárlögum þessa árs
er 500 þúsundum varið til bygg-
ingar íþróttahúss í Ólafsfirði.
Bæjarfélagið mun að öllum lík-
indum veita sömu upphæð á
þessu ári til byggingarinnar og
þannig verði 1 milljón til ráð-
stöfunar. Ekki hefur verið gengið
frá fjárhagsáætlun Ólafsfjarðar-
bæjar og því kann framlag til
íþróttahússins að hækka eitt-
hvað. Bjarni Grímsson telur þó
að sú hækkun verði óveruleg
vegna þröngrar fjárhagsstöðu
bæjarsjóðs. Hann bendir á að
gerð íþróttavallar sé forgangs-
verkefni á þessu ári í íþróttamál-
um, en miðað við verðlagsbreyt-
ingar má ætla að hann kosti full-
búinn um 8 milljónir króna. óþh
hið sama á við um höfund tónlist-
ar og hönnuð leikmyndar og bún-
inga. Vill leikhúsið að sjálfsögðu
verða við þeirri ósk.“
Þeir aðilar sem hér um ræðir
eru Inga Bjarnason, Leifur Þór-
arinsson og Guðrún Svava
Svavarsdóttir. Arnór Benónýs-
son leikhússtjóri kom inn í æfing-
ar fyrir fimm vikum sem aðstoð-
armaður Ingu. Hún mun hafa
farið frá Akureyri fyrir þremur
vikum, fyrst tímabundið og síðan
alfarin og hefur Arnór stjórnað
æfingum síðan. Guðrún Svava
lauk við hönnun leikmyndar og
búninga en óskaði síðan eftir því
að fá að hverfa frá Akureyri sem
hún og gerði.
Aðspurður sagðist Arnór ekki
geta lagt mat á þann ágreining
sem kom upp hjá aðstandendum
sýningarinnar. „Ég vil bara segja
að það ástand hafi komið upp í
vinnunni að málin þróuðust
svona. Ég vissi ekki annað en að
þessi mál væru í bestu sátt milli
allra þar til skeytið kom á þriðju-
daginn,“ sagði Arnór.
Umrædd átök leiddu m.a. til
þess að frumsýningu á Virginíu
Wolf var frestað um viku, en nú
mun allt vera tilbúið fyrir frum-
sýningu í kvöld. Arnór lagði
áherslu á það að undangengnir
atburðir hefðu engin áhrif á sýn-
inguna. „Þetta verður heit
sýning, ég stend ótrauður við
það. Ég harma bara að svona
skuli hafa farið,“ sagði hann að
lokum. SS