Dagur


Dagur - 22.02.1989, Qupperneq 11

Dagur - 22.02.1989, Qupperneq 11
22. febrúar 1989 - DAGUR - 11 íþróttir Daníel Hilmarsson sýndi það og sannaði að hann er enn í toppformi. Mynd: TLV Minningarmót í Ólafsfirði: Daníel og Kristiim unnu örugglega Minningarmót um Björn Brynjar Gíslason, sem lést í bílslysi í Noregi árið 1987, var haldið í Ólafsfirði á Iaugardag- inn. Keppt var í svigi 15-16 ára og svigi fullorðinna. Sigurveg- arar voru þeir Daníel Hilmars- son frá Dalvík og Kristinn Björnsson frá Ólafsfirði. Það var „gamla“ kempan Daníel Hilmarsson frá Dalvík sem sigr- aði í flokki fullorðinna og Krist- inn Björnsson frá Ólafsfirði sigr- aði með miklum yfirburðum í flokki 15-16 ára. Einungis 7 keppendur af 22 komust klakklaust í mark þrátt fyrir að færið væri mjög gott og veðrið eins og best verður á kosið. Keppendur voru frá Ólafsfirði, Dalvík og Akureyri og var mikill fjöldi manna að fylgjast með keppninni á laugardaginn. Að sögn heimamanna er talið að hátt á annað hundrað manns hafi ver- ið í fjallinu þegar mest var. Það var verslunin Alsport í Reykjavík sem gaf aukaverðlaun í mótið. En lítum þá á þrjú efstu sætin í hvorum flokki. Flokkur fullorðinna: 1. Daníel Hilmarsson Dalvík 71.32 2. Jón I. Árnason Akureyri 72.77 3. Ingólfur Gíslason Akureyri 75.96 Flokkur 15-16 ára: 1. Kristinn Björnss. Ólafsfirði 72.68 2. Eggert Óskarss. Ólafsfirði 89.46 3. Ágúst Jóhannsson Dalvík 96.69 Körfuknattleikur yngri flokka: Tindastóll kominn í úrslit í 9. flokki - Þór tapaði öllum sínum leikjum Fjölliðamót b-riðils 9. llokks Islandsmótsins í körfubolta fór fram á Sauðárkróki um síðustu helgi. Fimm lið mættu til leiks, Tindstóll, Þór, USAH, KR og ÍR. Það er skemmst frá því að segja að TindastóII vann alla sína leiki og er kominn í úrslit, um Ieið og Þórsarar töpuðu öllum sínum leikjum. Hún- vetningar lentu í 3. sæti, unnu tvo leiki af fjórum. Þar með hefur Tindastóll eign- ast tvo flokka í úrslitum yngri Pétur Vopni Sigurðsson skoraði 70 stig fyrir UMFT. flokka í körfubolta, 9. flokk og 6. flokk, og verður það að teljast mjög góður árangur. Stigahæstu menn hjá 9.flokki Tindastóls voru Pétur Vopni Sig- urðsson með 70 stig í 4 leikjum, Ingi Þór Rúnarson með 53 stig úr 4 leikjum, þar af tíu 3ja stiga körfur, Stefán Friðriksson 46 stig eftir 4 leiki, Lárus Pálsson 24 stig úr 2 leikjum, Kristinn Kristján- son 23 stig eftir 4 leiki og Arnar Sæmundsson skoraði 12 stig í 4 leikjum. Aðrir skoruðu minna. Úrslit leikja í mótinu: Þór-USAH 47:60 UMFT-Þór 63:35 USAH-UMFT 40:49 KR-ÍR 35:69 Þór-ÍR 34:65 UMFT-KR 62:53 USAH-ÍR 44:65 Þór-KR 57:61 UMFT-ÍR 56:50 USAH-KR 50:42 Úrslitakeppni 9. flokks fer fram dagana 11.-12. mars nk. í Njarðvík og með Tindastóli munu keppa UMFN, UMFG, ÍBK og Haukar. 6. flokkur Tindastóls keppir í úrslitum 4.-5. mars nk. í Reykjavík. -bjb Blak 1. flokkur: Óðinn og Völsungur efst - í Norðurlandsriðlunum Þó nokkrir leikir hafa farið fram í Norðurlandsriðli 1. flokks í blaki að undanförnu. Sund- félagið Oðinn á Akureyri hef- ur forystu í karlaflokki og hef- ur unnið alla 5 leiki sína. í kvennaflokki eru Völsungur og Óðinn jöfn að stigum eftir þrjá leiki. Á íslandsmóti 1. flokks er leik- ið í tveimur riðlum, Norður- lands- og Suðurlandsriðli. Tvö efstu liðin úr hvorum riðli komast í úrslitakeppnina, sem leikin verður þannig að efsta liðið úr Norðurlandsriðli leikur við lið númer tvö í Suðurlandsriðli og öfugt. Sigurliðin leika síðan til úrslita og taplið keppa um þriðja sætið. Úrslitakeppnin verður lík- lega haldin helgina 18.-19. mars, en ákvörðun um stað og stund verður tekin síðar. En lítum á þau úrslit sem okk- ur hefur tekist að grafa upp: Kvennaflokkur: Eik-Völsungur 0:3 Völsungur-Öðinn 3:1 Eik-Óðinn 2:3 Óðinn-Völsungur 3:2 Karlaflokkur: Völsungur-Óðinn 1:3 Skautar-Völsungur 2:3 Skautar-KA 1:3 Dalvík-Skautar 3:2 Óðinn-Dalvík 3:1 Skautar-Óðinn 0:3 Staðan í kvennaflokki: 1. Völsungur 4 stig 2. Óðinn 4 stig 3. Eik 0 stig Staðan í karlaflokki: 1. Óðinn 10 stig 2. KA 6 stig 3. Dalvík 4 stig 4. Völsungur 2 stig 5. Skautaf. Ak. 2 stig Karfa: Tindastóll tapaöi naumt gegn íslenska landsliðinu Landsliðs íslands í körfuknatt- leik átti í hinu mesta basli með lið Tindastóls í æfíngaleik sl. föstudagskvöld á Sauðárkróki. Eftir að hafa verið undir meiri- partinn af leiknum tókst lands- liðinu að tryggja sér sigur á lokamínútunum og lokatölur urðu 88:83, því í vil. í hálfleik var staðan 46:43 fyrir Tinda- stól, sem lék með tvo lánsmenn, þá Axel Nikulásson og Sigurð Ingimundarson úr ÍBK. Tæplega 600 áhorfendur fengu að sjá stórskemmtilegan leik og var gríðarleg stemmn- ing á pöllum og svölum „krók- ódílasíkisins“. Það þarf svo vart að taka það fram að nýtt aðsóknarmet var sett í íþrótta- húsi Sauðárkróks. Landsliðið byrjaði leikinn af krafti og eftir 6 mínútur var kom- inn 11 stiga munur, 18:7. En 4 mínútum síðar hafði Tindastóli tekist að minnka þann mun í 4 stig, 29:25. Þá fóru hjólin að snúast hjá heimamönnum, með góðum liðsstyrk frá lánsmönnun- um, sér í lagi frá Axel Nikulás- syni sem sýndi ódrepandi baráttu- vilja. Þegar þrjár mínútur voru til hálfleiks tókst svo Tindastoli að jafna, 39:39, og skömmu seinna var staðan allt í einu orðin 46:39 fyrir Tindastól. Landsliðið minnkaði muninn í 3 stig áður en blásið var til hálfleiks, 46:43. Tindastóll var ekkert á því að láta undan í seinni hálfleik og náði að halda forystunni lengst af. Mestur var munurinn 9 stig, 66:57, þegar seinni hálfleikur var hálfnaður. Upp frá því fór lands- liðið að draga á heimamenn og þegar 5 mínútur voru til leiksloka tókst því að jafna, 78:78. Þar með hafði landsliðið náð yfir- Handbolti í 3. deild: Stórt tap Völsunga Völsungar töpuöu stórt fyrir FHb 32:20 á sunnudaginn á Húsavík í 3. deildinni í hand- knattleik. Pálmi Pálmason þjálfari Húsvíkinganna var óhress með leikinn og sagði að alla baráttu og vilja hefði vantað í lið sitt. „Þetta var botninn,“ sagði hann og vildi greinilega sem minnst um leikinn tala. höndinni og knúði það fram sigur á lokamínútunum. Bestu menn Tindastóls voru Eyjólfur, Axel og Valur, auk þess sem Björn átti góða spretti, sérstaklega í vörninni. Þá voru Sverrir, Kári og Haraldur sterkir. Hjá landsliðinu bar mest á Birgi Mikaelssyni, Guðjóni Skúlasyni og Jóni Kr. Gíslasyni. Dómarar þessa leiks voru félagarnir Indriði Jósafatsson og Pálmi Sighvats- íslandsmótiö í lyftingum fór fram í Laugardalshöll um helg- ina. Akureyringar sendu sex keppendur á mótið og stóðu þeir sig mjög vel og komu heim með þrenn gullverðlaun og Snorri Arnaldsson setti tvö íslandsmet drengja. Haraldur Ólafsson lyftinga- kappi setti íslandsmet í jafnhend- ingu og lyfti 178 kg. Gamla metið átti hann sjálfur. Honum gekk hins vegar ekki eins vel í snörun og lyfti ekki „nema“ 125 kg, en það dugði samt í 1. sætið í hans flokki. Aðalsteinn Jóhannsson keppti í 56 kg flokki og lenti þar í 1.-2. sætinu en þar sem hann var örlít- ið þyngri en hinn keppandinn var hann settur í 2. sætið. Aðalsteinn lyfti 40 kg í snörun og 50 kg í jafnhendingu. Snorri Óttarsson tók þátt í sínu fyrsta móti og stóð sig ágætlega í son. Stig Tindastóls: Eyjólfur Sverrisson 21, Axel Nikulásson 20, Valur Ingimund- arson 14, Sigurður Ingimundarson 9, Björn Sigtryggsson 8, Haraldur Leifsson 6, Sverrir Sverrisson 4 og Kári Marísson I. Stig íslands: Birgir Mikaelsson 19, Jón Kr. Gíslason 17, Guðjón Skúlason 13, Matthías Matthíasson 12, Guðni Guðna- son 9, Tómas Holton 6, Pálmar Sigurös- son 4, Teitur Örlygsson 4, Falur Harðars- son 2 og Jón Páll Haraldsson 2. 60 kg flokki. Hann lyfti 40 kg í snörun og 50 kg í jafnhendingu. Snorri Arnaldsson stóð sig mjög vel á mótinu. Hann lyfti 65,5 kg í snörun og er það nýtt íslandsmet drengja. Hann lyfti síðan 76 kg í jafnhendingu og samanlagður árangur hans, 140,5 kg, er nýtt íslandsmet. Tryggvi Heimisson keppti í 65,5 kg flokki og sigraði í þeim flokki. Hann lyfti 80 kg í snörun og 97,5 kg í jafnhendingu. Þetta er persónlegt met hjá Tryggva og hefur hann bætt sig mikið að undanförnu. „Guðfaðirinn“ sjálfur, Harald- ur Ólafsson, sigraði í 82,5 kg flokki, eins og áður sagði og er er til alls líklegur á Norðurlanda- mótinu í apríl. Það voru 30 keppendur frá fimm félögum, Ármanni, ÍR, KR, UMSB og LFA, sem þátt tóku í mótinu að þessu sinni. Keppendur LFA á Islandsmótinu í lyftingum um siðustu helgi. -bjb íslandsmótið í lyftingum: Þijú gufl tfl LFA

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.