Dagur - 15.03.1989, Síða 9

Dagur - 15.03.1989, Síða 9
Miðvikudagur 15. mars 1989 - DAGUR - 9 sýningarinnar, t.d. er lifandi tón- list í frumuppfærslunni og flautu- leikari leikur ákveðið hlutverk í sýningunni, músíkin gefur tóninn og setur sterkan og ákveðinn blæ. Það var frumsamin tónlist fyrir sýninguna af Hróðmari Sigur- björnssyni. Þetta þurftum við að taka út því hljófæraleikarinn komst ekki með, og við höfðum músíkina á bandi sem er allt ann- ar hlutur. Ég vil meina að sýning- in hafi hlotið þessi verðlaun út á frammistöðu leikaranna, þau léku af svo miklum krafti og gleði að Indverjarnir hrifust með og undirtektir voru geysilega góðar. Það voru í allt ellefu leikhópar sem tóku þátt í hátíðinni, átta erlendis frá og þrír indverskir. Við sýndum á tveimur stöðum, tvisvar í Chandigahr og einu sinni í Ludhiana, höfuðborg Punjab- ríkis.“ - Hvernig tilfinnig er það fyrir íslending að koma á svona fjar- lægar slóðir með verkið sitt? „Þetta er nú ekki verkið mitt eingöngu því leikendur eru fjórtán talsins og allir leggja þeir sitt af mörkum og þá átti búninga- hönnuðurinn Alda Sigurðardóttir ekki lítinn í þátt í að skapa yfir- bragð sýningarinnar. En í fyrsta lagi vorum við í góðri aðstöðu að vera með þetta verk því indversku áhorfendurnir sem komu á sýn- ingar okkar virtust ágætlega vel upplýst fólk og þeirra menntun er svo ensksniðin að flestir eru að einhverju leyti kunnugir Shake- speare, þannig að margir þekktu leikritið. Því vorum við í betri aðstöðu en ef við hefðum komið með íslenskt verk. En svo er verkið svo lifandi og skemmtilegt og svo grípandi; það er í sjálfu sér jafnvel meiri farsi en Ærsla- draugurinn, fullt af árekstrum og uppákoinum og endalausum mis- skilningi, enda er um tvenna tví- bura að ræða og allt í vitleysu all- an tímann. Það er auðvelt fyrir áhorfendur að fylgjast með þó þeir skilji ekki allt sem sagt er, atburðarásin leiðir sig sjálf áfram að miklu leyti. Engu að síður vorum við hissa hvað fólkið var geysilega vel með á nótunum. Þessi ferð heppnaðist í alla staði mjög vel og var mikið ævintýri.“ IM Ólason, Þorkcll Björnsson, Sigríður Harðardóttir og Aldís Friðriksdóttir. r í hlutverkum sínum. Þorkell Björnsson og Sigríður Harðardóttir. Þau Iéku af miklum krafti og gleði - Unnuð þið ekki til verðlauna á hátíðinni? „Við hlutum tvenn verðlaun, við fengum þriðju verðlaun fyrir sýninguna og Björk Jakobsdóttir hlaut verðlaun sem besta leikkonan á hátíðinni. Ég var mjög ánægður með að sýningin skyldi fá þessi verðlaun því hún var mjög breytt og einfölduð frá því sem hún er í rauninni. Hún var bæði stytt um vel góðan hálf- tíma og teknir voru út hlutir sem skipta miklu máli í yfirbragði Texti og myndir: IM Guðný Þorgeirsdóttir, Þorkell Björnsson og Sigríður Harðardóttir. Sigríður Harðardóttir og Þorkell Björnsson.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.