Dagur - 29.03.1989, Page 2

Dagur - 29.03.1989, Page 2
2 - DtfGUR Mi'ðvikudagúr 29. rtiars 1989 Húsavík og Egilsstaðir: Óhappalaus páskahelgi Akureyri: Bnmi í Sigtryggshúsi Á laugardagskvöld var Slökkvilið Akureyrar kailað út að Aðalstræti 16, svo- nefndu Sigtryggshúsi, en það er timburhús í elsta hluta Akureyrar. Þar hafði eldur komið upp í eldhúsi á efri hæð. Slökkvistarf gekk greið- lega en nokkurt tjón varð á innanstokksmunum og inn- réttingum á hæðinni. Slökkviliðinu var gert viðvart klukkan 19.17 af íbúum á neðri hæðinni. Talið er að eldurinn hafi kraumað alllengi í eldhús- inu áður en hans varð vart og var mikill reykur við húsið þeg- ar slökkvistarfið hófst. Tveir slökkviliðsmenn settu þegar á sig reykköfunargrímur og héldu inn í brennandi húsið. Skömmu síðar bættust þrír reykkafarar við. A efri hæðinni voru vistarver- ur pilta sem stunda nám við Verkmenntaskólann á Akureyri en þeir voru fjarverandi í páskaleyfi þegar þetta gerðist. Innanstokksmunir sviðnuðu vegna hita og skemmdir urðu af völdum reyks. Pá urðu nokkrar vatnsskemmdir í suðurenda neðri hæðarinnar. EHB - „menn Lögreglan á Húsavík sagöi aö allt það besta væri að frétta eftir páskahelgina. Mikið fann- fergi er í bænum og þröng snjógöng eftir mörgum götum. Á gatnamótum er víða tak- markað útsýni og blind horn hafa myndast þar sem venju- lega er gott útsýni, ástæða er detta ekki einu sinni á því til að benda vegfarendum á að sýna varúð í umferðinni. Vitað er um þrjá smáárekstra sem urðu um helgina á Húsavík en engin meiðsli urðu á mönnum og ekki er vitað um önnur óhöpp. Talsvert hefur verið að gera hjá lögreglu við að aðstoða fólk vegna veðurs og færðar. skíðum“ Fjölmennur dansleikur var haldinn eftir miðnætti á páskadagskvöld, fór hann vel fram og það voru Greifarnir sem léku fyrir dansinum. Þó lögreglan á Húsavík hafi fylgst vel með ökumönnum hefur enginn þeirra verið tekinn grun- aður um ölvun við akstur í þess- um mánuði. Enginn var tekinn grunaður um ölvunarakstur á Egilsstöðum um páskahelgina og sagði lög- reglan þar að páskarnir hefðu verið góðir, engin óhöpp og menn dyttu ekki einu sinni á skíðum. Það mun vera vel hvítt í bænum og skaflar á milli húsa. Ekki mun hafa verið haldinn dansleikur á Egilsstöðum um páskana en frést hafði af dansleik á Neskaupsstað. Tveir snjóbílar og nokkrir blöðrudekkjajeppar frá Egilsstöðum héldu til fjalla um páskahelgina og munu þeir allir vera komnir til byggða á ný. IM Útflutningsverðlaun forseta íslands 1989 Á sumardaginn fyrsta, þann 20. apríl n.k., verða veitt í fyrsta skipti útflutningsverðlaun forseta íslands, sem eru sambærileg við hin velþekktu verðlaun í Dan- mörku sem heita Heiðursverð- laun Friðriks níunda og Útflutn- ingsverðlaun Bretadrottningar á Bretlandseyjum. Útflutningsráð Islands hefur í samvinnu við embætti forseta íslands ákveðið að útflutningsverðlaunin verði framvegis veitt einu sinni á ári til einstaklinga éða fyrirtækja, inn- lendra eða erlendra, sem unnið hafa sérstaklega gott starf til að auka sölu á íslenskum vörum og þjónustu á erlendum mörkuðum.- Við úthlutun verðlaunanna verður m.a. tekið tillit til útflutn- ingsaukningar, vægis útflutnings í heildarveltu og árangurs á sér- staklega crfiðum mörkuðum. Eins og fyrr segir, veita margar vestrænar þjóðir árlega slík verð- laun og eru þau bæði eftirsóknar- verð og eftirsótt. Fyrirkomulag verðlaunaveitingarinnar hérlend- is verður mjög svipað og það ger- ist í Danmörku. Forsetinn afhendir verðlaunin „Verðlaunahafinn fær í hendur verðlaunagrip og skjal, auk þess Kjaradeilda HÍK og ríkisins: sem hann fær leyfi til að nota sérstakt merki á kynningarefni sínu í fimm ár frá afhendingu útflutningsverðlaunanna,“ segir Ingjaldur Hannibalsson, fram- kvæmdastjóri Útflutningsráðs. „Hér er um mjög verðuga viður- kenningu að ræða fyrir alla þá aðila sem vinna að íslenskum útflutningi. Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, mun persónulega afhenda verðlaunin við sérstaka athöfn á sumardag- inn fyrsta, en sá dagur er dagur birtu og bjartsýni og á því vel við sem dagur útflutningsverðlaun- anna.“ Nefnd velur verðlaunahafa Sérstök úthlutunarnefnd hefur verið skipuð til að velja verð- launahafa og hefur hún þegar hafið störf. I nefndinni eiga sæti Þorvaldur Gylfason, deildarfor- seti viðskipta- og hagfræðideildar Háskóla íslands, formaður, Ólaf- ur B. Thors, frá Landsnefnd alþjóðaverslunarráðsins, Ragna Bergmann, varaforseti Alþýðu- sambands íslands, Kornelíus Sig- mundsson frá embætti forseta íslands og Ingjaldur Hannibals- son frá Útflutningsráði íslands. Verulegar grunnkaups- hækkanir og síarfsaldurs- hækkanirfyrr - megin áherslumar í samningaviðræðunum Fulltrúaráðsfundur Hins íslenska kennarafélags kemur saman til fundar á föstudaginn kemur en í gær hafði ekki ver- ið boðað til nýs samningafund- ar meðal deiluaðila í kjarabar- áttunni þrátt fyrir ítrekaðar óskir HÍK. Sem kunnugt er kemur til boð- aðs verkfalls félaga í HÍK annan fimmtudag ef ekki hefur verið samið fyrir þann tíma. Megin áherslur í kröfugerð kennara eru verulegar grunnkaupshækkanir, að menntun verði metin meira en nú er gert og að starfsaldurs- hækkunum verði flýtt. Nokkur óánægja hefur verið meðal kennara í HÍK með það að kjör kennara í KÍ eru nú hærri en þeirra og mun ætlunin vera að komandi samningar leiðrétti þann mismun. VG Bókamarkaður á Akureyri: Rífandí gangur og bóka- ormar brosa út að eyrum - bókamarkaðnum lýkur sunnudaginn 2. apiH kl. 19 Bókamarkaður Félags íslenskra bókaútgefenda að Glerárgötu 36 á Akureyri hef- ur gengið nokkuð vel til þessa, að sögn Björns Eiríkssonar, bókaútgefanda, sem hefur umsjón með markaðnum. Veður hefur þó að nokkru leyti sett strik í reikninginn og m.a. gert fólki úr nágranna- sveitarfélögum erfitt fyrir með að sækja markaðinn. Björn segist binda vonir við að veðurguðirnir haldi aftur af sér næstu daga þannig að allir bóka- ormar nái að komast á markað- inn áður en honum verður lokað, nk. sunnudag, 2. apríl kl. 19. Bókamarkaðurinn er óvenju veglegur að þessu sinni. Titlar eru á fjórða þúsund frá velflest- um bókaútgefendum í landinu. Þarna má sjá ævisögur, fræðirit, reyfara svo eitthvað sé nefnt. Auk velflestra titla sem voru á boð- stólum á bókamarkaði í Kringl- unni í Reykjavík fyrr í vetur er boðið upp á nokkra nýja titla á markaðnum á Akureyri. Björn segir að verð bóka hafi sjaldan eða aldrei verið hagstæð- ara á bókamarkaði Félags íslenskra bókaútgefenda. Hann segir ekki fjarri lagi að meðal- verð á bók sé um 200 krónur. „Fólk hefur vissulega látið í ljós ánægju með þennan bóka- markað og miðað við söluna verður ekki annað séð en að fólk kunni vel að meta það sem upp á er boðið. Mér hefur sýnst fólk kaupa mikið og til marks um það fer fjöldi manna út með allt að 20 bækur. Slíkur bókastafli þarf vart að kosta meira en 4-5 þúsund krónur,“ segir Björn. Eins og áður segir lýkur bóka- markaðnum nk. sunnudag kl. 19. I dag og fram á sunnudag verður hann opinn frá kl. 13-19. Rétt er að taka fram að mark- aðurinn verður ekki framlengd- ur. óþh Sjóvá/Almennar-sveitahraðkeppni B.A.: Sveit Gylfa Pals- sonar sigraði Sveit Gylfa Pálssonar bar sigur úr býtum í Sjóvá/Almennar-sveita- hraðkeppni Bridgefélags Akur- eyrar, sem lauk þriðjudaginn 21. mars sl. Sveit Gylfa var í 2.-4. sæti fyrir síðustu umferðina en náði efsta sætin með góðum endaspretti. Röð efstu sveita varð annars þessi: Stig 1. Sveit Gylfa Pálssonar: 1150 2. Sveit Gunnlaugs Guðmundss.: 1141 3. Sveit Arnar Einarssonar: 1120 4. Sveit Grettis Frímannssonar: 1110 5. Sveit Kristjáns Guðjónssonar: 1100 6. Sveit Hellusteypunnar: 1095 Ellefu sveitir tóku þátt í keppninni. Keppnisstjóri var Albert Sigurðsson. Sigursveitina skipa: Gylfi Pálsson, Helgi Steinsson, Alfreð Pálsson, Ármann Helgason, Gísli Pálsson og Árni Arnsteins- son.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.