Dagur


Dagur - 29.03.1989, Qupperneq 16

Dagur - 29.03.1989, Qupperneq 16
DACK7& Akureyri, miðvikudagur 29. mars 1989 ★ Tryggðu filmunni þinni besta °Pedí6myndir | Hafnarstræti 98, sími 23520 og Hofsbót 4, sími 23324. | ^JIIIIIIIIIIIIIIIIlllllllllilllHllllllHHHimMliyilllllHllllllllllllllllllllilllllllllllllillHHiWiWitiiiWIWWAIIllllHllllllllinHiBHWIIr Milljónamæringar helgarinnar: Tveir stórir getrauna- vinningar til Akureyrar Síðastliðinn laugardag voru sannarlega stórar fúlgur í pott- um Islenskra getrauna og Islenskrar getspár. Heildar- vinningsupphæð í getraunum var 9.3 milljónir en tæpar 20 milljónir í Lottó, þar af 12.8 milljónir í fyrsta vinning. Stóri pottur helgarinnar deild- ist á 10 einstakiinga. í íslenskum getraunum fengu 6 fyrsta vinning, 1.55 milljón kom í lilut hvers. Byggðastefnan var allsrað- andi í útdeilingu vinninga að þessu sinni. Af þessum 6 milljóna- mæringum voru 2 á Akureyri og þriðji milljónamæringurinn mun einnig hafa verið Akureyringur, en hann keypti vinningsseðilinn á höfuðborgarsvæðinu. Hinir þrír vinningseðlarnir voru keyptir í Kópavogi, Hafnarfirði og Vík í Mýrdal. Fyrsti vinningur í Lottóinu kom í hlut fjögurra einstaklinga, rúmar 3 milljónir komu í hlut hvers vinningshafa. Lukkuseðl- arnir voru seldir í Reykjavík, Grindavík, Keflavík og Bolung- arvík. óþh Kjarasamningar ASÍ og VSÍ: Búist við stífiim fiind- arsetum á næsturmi í gær var á ný sest að samninga- borði í kjaradeilu ASÍ og VSÍ eftir páskahlé og væntu for- ystumenn ASI þess að nú verði skoðað hvort hægt sé að gera ítarlega samninga til lengri tíma en áætlað var í upphafi. „Við væntum þess að málin verði skoðuð upp á nýtt. Fyrir páskana var stefnt að því að ljúka samningagerð fyrir hátíðarnar með einföldum hætti, einhverri kauphækkun og síðan frestun á frekari aðgerðum til haustsins en nú þykir mér trúlegt að menn skoði hvort ekki sé möguleiki á ítarlegri samningi ef menn telja sig hafa betri tíma nú en þá,“ sagði Snær Karlsson hjá Verka- lýðsfélagi Húsavíkur sem sæti á í samninganefnd ASÍ, en hann var veðurtepptur á Húsavík í gær um þann mund sem fundurinn var að hefjast. Snær sagði að svo virtist sem flest félög á landsbyggðinni væru hlynntari langtímasamningi en samningi til skamms tíma. Astæð- an fyrir því er helst efnahagsleg staða atvinnulífsins, ríkið þurfi að koma inn í samningagerðina og leggja fram eitthvað sem gerir Norðurland: fyrirtækjum kleift að vinna sig út úr núverandi vanda. Snær áætlaði að halda til Reykjavíkur með fyrstu ferð og sagðist hann búast við stífum fundarhöldum næstu daga. „Ég vænti þess að reynt verði að klára þetta verk- efni núna,“ sagði hann að lokum. VG Alger óþarfí að brjótast til Siglufjarðar á Landsmót þegar brekkurnar heima eru svona fínar...! Mynd: tlv Fannfergi í Skagafirði: á bát í grásleppu- hrognaturnium Björgunarsveitin Grettir á Hofsósi þurfti að aðstoða fólk nokkrum sinnum um páskana vegna ófærðar, en um engin neyðartilfelli var að ræða. Bæði þurfti að koma fólki á milli staða og fara með vistir á nokkra bæi. Þá þurfti að senda snjóbíl frá Björgunarsveitinni á Sauðárkróki eftir veikri konu í Hraunum í Fljótum og koma henni á Sjúkrahúsið á Sauðár- króki. Á Hofsósi og nágrenni er mikið fannfergi og af þeim sökum hefur bændum gengið erfiðlega að koma mjólk frá sér. Félagar í Björgunarsv.eitinni Gretti lentu í óvanalegum mjólkurflutningum um páskana, þar sem til staðar voru jarðýta og bátur. Jarðýtan dró bátinn á eftir sér í snjónum og þótti vel til takast. Mjólkinni var komið fyrir í grásleppu- hrognatunnum og þeim raðað í bátinn. „Þetta voru skrautlegar aðfarir, en gáfust vel. Þetta var mjólk frá bæjunum Hrauni og Arnarstöðum og jarðýtan dró bátinn niður á þjóðveg, þar sem mjólkurbíllinn beið. Menn verða að bjarga sér við þessar aðstæð- ur,“ sagði Karl Bergmann, for- maður Grettis, í samtali við Dag. -bjb Fannfergið braut niður hænsna- og minkahús: Við héldum að þetta væru traustabrestir í skálanum - segir Helga Gísladóttir, húsfreyja á bænum Saltvík Ofankoma aöfaranótt skírdags var gífurleg. Bílar sem hús hurfu í snjóskaflana og þök húsa svignuðu. Degi er kunn- ugt um umtalsverðar skemmd- ir á tveimur húsum af völdum fannfergisins, annars vegar á hænsnahúsi í Sveinbjarnar- gerði á Svalbarðsströnd og hins vegar á minkaskála á bæn- um Saltvík, skammt frá Húsa- vík. bresti". Það reyndist þó ekki vera, lieldur sunkaði hluti þaks skálans niður. Sem betur fer voru ekki komin dýr í skálann. Leitað var aðstoðar björgunarsveitar- manna frá Húsavík að morgni laugardags og brugðust þeir skjótt við. Helga sagði að um 30 menn hafi unnið stanslaust seinnipart laugardags við að moka af þaki nýja og gamla minkaskálans. Fengin var jarðýta og grafa til að moka frá hliðum skálans þannig að unnt væri að moka snjónum af skálaþökunum. Björgunarsveitarmenn héldu áfram mokstrinum þar sem frá var horfið á páskadagsmorgun og luku honum um hádegi þann dag. „Ég hefði ekki boðið í það ef við hefðum ekki fengið hjálp björg- unarsveitarmanna. Sennilega hefði skálinn þá lagst allur saman einsog spilaborg. Ég vil gjarnan koma á framfæri innilegu þakk- læti til björgunarsveitarmanna fyrir hjálpina. Þeir stóðu sig frá- bærlega og eiga sannarlega skilið hrós fyrir þá miklu vinnu sem þeir lögðu á sig,“ sagði Helga. Hún sagði að hægt hafi verið að gera við skálann til bráða- birgða en útilokað sé að huga að alvöru viðgerð á honum fyrr en hafi hlánað hressilega. óþh Tveir skipstjórar frá Ólafsflrdi kaupa Wut í frystiskipi - Skúmur GK frá Grindavík aflientur HaflDoða hf. á laugardag Asahláka framundan í dag gerir Yeðurstofa Islands ráð fyrir austanátt á Norður- landi, frá Húnavatnssýslum austur að Langanesi, með slyddu síðdegis. Hitinn verður á bilinu 1-3 stig og vindhæð 5-6 vindstig. A morgun verður suðaustanátt en úrkomulítið og hiti 3-5 stig. Þessi hlýindi ná síðan hámarki á föstudag með asahláku. Þá er gert ráð fyrir sunnanátt, 5-6 vindstigum, með rigningu víða á Norðurlandi og allt að 9 stiga hita. í fannferginu á Norðurlandi þýðir þetta að vatn mun flæða um götur í stríðum straumum og væntanlega valda margháttuðum erfiðleikum. SS í Sveinbjarnargerði brotnaði niður um þriðjungur þaks á 600 fermetra hænsnahúsi. Um er að ræða eitt af stærstu hænsnahús- unum í húsaþyrpingu Fjöreggs í Sveinbjarnargerði. „Við settum bráðabirgðastafn í húsið á skírdag og þéttum á hænunum. Þetta slapp þannig fyrir horn. Að vísu drápust einar 15-20 hænur,“ sagði Jónas Halldórsson, bóndi í Sveinbjarnargerði. Hann sagðist reikna með að huga að viðgerð á húsinu á næstu dögum. „Það verður að vísu erfitt að athafna sig því þetta er allt á bólakafi.“ Hluti nýs minkaskála á bænum Saltvík brotnaði einnig niður fyr- ir helgina. Að sögn Helgu Gísla- dóttur, húsfreyju, urðu þau vör bresta í húsinu á föstudaginn langa og töldu það vera „trausta- Hlutafélagiö Hafboði hf. festi nýlega kaup á Skúmi GK, 250 tonna frystiskipi frá Grinda- vík. Hafboði hf. er í eigu Ólafsfirðinganna Magnúsar Þorsteinssonar og Magnúsar Guðmundssonar, Hallgríms Sverrisonar á Akureyri og Eiríks Mikaelssonar í Garða- bæ. Skúmur GK er svo til nýtt skip, smíðaður árið 1987 í Ramsvik í Svíþjóð. Hann er næstum alveg eins og Bliki EA á Dalvík. Fiskanes hf. í Grindavík lét smíða skipið, sem er sérútbúið til lausfrystingar á rækju og með heilfrystilínu fyrir bol- og botnfisk, en það var sett á sölu- skrá fyrir nokkru. Allmargir aðil- ar sýndu áhuga fyrir að kaupa skipið en Hafboði hf. varð hlut- skarpastur, eins og áður sagði. Afhending skipsins fer fram á laugardag í Hafnarfirði og þaðan verður skipið gert út. Magnús Þorsteinsson starfar nú sem skipstjóri á Sigurbjörgu ÓF en hann mun láta af því starfi í sumar og flytja til Hafnarfjarð- ar. Magnús Guðmundsson er búsettur í Garðabæ. Hann var áður skipstjóri á Gunnjóni GK en mun ásamt nafna st'num stýra Skúmi í framtíðinni. Hallgrímur Sverrisson, vélstjóri á Akureyri, verður yfirvélstjóri. í sumar er ætlunin að fara á rækjuveiðar, m.a. við Dorn- banka. Einnig verður farið á grá- lúðu- og karfaveiðar. EHB

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.