Dagur - 11.04.1989, Qupperneq 11
hér & þor
i
Af storma-
sömu einka-
Kfi Roseanne
Litla villta Jcssica.
Lcikkonan Roseanne Barr
sem slegið hefur í gegn í sam-
nefndum sjónvarpsþáttum,
bæði hér heima og vestanhafs
Iifir sjálf heldur stormasamara
lífi en sjónvarpshetjan. Hún
hefur nú þurft að koma dóttur
sinni fyrir á geðsjúkrahúsi,
vegna þess að hún var orðin
eins villt og Roseanne sjálf var
á hennar aldri, að eigin sögn.
Roseanne sagði það hafa verið
erfiða ákvörðun að senda dóttur
sína, sem heitir Jessica og er 13
ára gömul, í meðferð því hún
hafi sjálf þurft að ganga í gegnum
þaðsem unglingur að vera send á
stofnun fyrir vandræðaunglinga.
„Eg veit hvernig þetta er, en ég
held að mér hafi veriö skylt að
gera þetta,“ sagði Roseanne.
Hún segist aldrei hafa fyrirgefið
foreldrum sínum fyrir að hafa
sent sig burtu og að hún viti að
litla stúlkan hennar eigi eftir að
ganga í gegnum erfitt tímabil inn-
an um vandræðaunglinga, suma
háða fíkniefnum.
Vandræðin hófust þegar Jess-
ica fór að skrópa í skólanum og
taka glæsibifreið foreldra sinna
ófrjálsri hendi. Vandræði Rose-
anne sjálfrar voru með svipuð-
um hætti; hún tók bifreið for-
eldra sinna í óleyfi og klessti
hann á einu af fylleríunum
sínum.
Það er því dálítið kaldhæðnis-
legt að i sjónvarpinu skuli Rose-
anne vera ímynd húsmóðurinnar
sem leysir öll sín mál á rólegan og
yfirvegaðan hátt, á meðan einka-
lífið er í rúst.
Eiginmaður hennar í raun-
veruleikanunt heitir Bill og það
var hann sem hjálpaði henni upp
á stjörnuhimininn með því að
semja fyrir hana brandara sem
hún síðar flutti á veitingastöðum
og í vinsælum sjónvarpsþætti.
Síðan hún byrjaði sína eigin þætti
þénar hún um 3 milljónir punda á
ári. En hjónaband hennar stend-
ur á brauðfótum. Hún er mikið
að heiman, eiginmaðurinn er
Hamingjusömu sjónvarpshjónin Roseanne og John.
Eiginmanninum Bill er kennt um
allt.
afbrýðisamur vegna þess auk
þess sem barnauppeldi og heimil-
ishald er á hans herðum. Og
Roseanne segir vandræði Jessicu
litlu, föður hennar að kenna.
Hún segir að hann fái útrás fyrir
reiði sína gagnvart henni á börn-
unum, sérstaklega Jessicu. Hún
vill fá skilnað, hvað sem það
kostar. „Þetta hefur verið of dýr-
keypt og bitnað á sálarlífi mínu
og hamingju barnanna." Hún
hefur nýlega skrifað undir samn-
ing um að leika á móti Meryl
Streep í kvikmynd um Kven-
djöfulinn og sagði af því tilefni:
„Mig hefur alltaf dreymt um vel-
gengni, en hún hefur kostað sitt.
Ég bið þess bara að litlu stúlk-
unni minni batni svo martröðin
geti tekið enda.“
V axtarræktin
í íþróttahöllinni
Boðið er upp á byrjenda-
námskeið fyrir karlmenn
Námskeiðið er þrisvar í viku:
Þriðjudaga ki. 20.30
Föstudaga kl. 20.30
Laugardaga kl. 12.30
Ekki er nauðsynlegt að skrá
sig, einungis þarf að mæta
í kjallarann í íþróttahöllinni.
Boðið verður upp á
persónulega ráðgjöf
í mataræði sé þess óskað,
ásamt því að hver og einn fær
æfingaáætlun sem honum
hentar.
Leiðbeinandi er Einar Guðmann
Alm. tímar alla virka daga
frá kl. 16.30.
Kvennatímar mánudaga,
miðvikudaga, fimmtudaga
og laugardaga,
dag og kvöldtímar.
Upplýsingar í síma 21061 frá kl. 10-12.
Hvort sem menn vilja byggja sig upp fyrir aðrar
íþróttir, fara í megrun eða einungis halda sér við og
koma sér í form, þá er kjörið tækifæri að nýta sér það
sem líkamsrækt hefur upp á að bjóða.
Vaxtarræktin
íþróttahöll
Þríðjudagur T1. apn'l 1989 -DAGUR:- 1t:
f —-------------------------------------->
Söngskenimtun
Söngsveit Hlíðarbæjar heldur tónleika
í Hlíðarbæ, miðvikud. 12. og
fimmtud. 13. apríl kl. 21.00
Söngstjóri: Hjörtur Steinbergsson.
Undirleikari: Sigrún Jónsdóttir.
Fjölbreytt efnisskrá.
Söngsveitin.
Aðalfundir
Glæsibæjar-, Skriðu- og Öxndæladeilda Kaup-
félags Eyfirðinga verða haldnir að Melum,
Hörgárdal, fimmtudaginn 13. apríl nk. kl. 13.00.
Deildarstjórar.
Útsala
hefst í dag
Ullarefni kr. 200,- pr. m.
Prjónaefni kr. 250,- pr. m.
Önnur efni kr. 250,- pr. m. (Joggingefni, bóm-
ullarefni o.fl.)
Verslunin Enoss
Hafnarstræti 88, sími 25914.
Nauðungaruppboð á eftirtöldum fasteignum fer fram í dómsal embættisins, Hafnarstræti 107,3. hæð, Akureyri, á neðangreindum tíma: Uppboðsbeiðendur eru: Sigurður G. Guðjónsson hdl., Ólafur Birgir Árnason hdl. og Jón Ingólfs- son hdl.
Hrafnabjörg 5, Akureyri, þingl. eig- andi Flosi Jónsson, föstud. 14. apríl '89, kl. 13.30. Uppboðsbeiðendur eru: Iðnaðarbanki Islands hf., Bruna- bótafélag íslands, Ólafur Birgir Árnason hdl, Benedikt Ólafsson hdl., innheimtumaður ríkissjóðs, Veðdeild Landsbanka Islands og Gunnar Sólnes hrl.
Heiðrún EA-28, þingl. eigandi Gylfi Baldvinsson, föstud. 14. apríl ’89, kl. 15.30. Uppboðsbeiðandi er: Tryggingastofnun ríkisins. Hlíðarendi, Akureyri, þingl. eigandi Baldur Halldórsson, föstud. 14. apr- íl ’89, kl. 14.45. Uppboðsbeiðandi er: Bæjarsjóður Akureyrar. Kringlumýri 17, Akureyri, þingl. eig- andi Rafn Magnússon, föstud. 14. apríl kl. 14.00. Uppboðsbeiðandi er: Iðnaðarbanki Islands hf.
Ránargötu 6, Akureyri, þingl. eig- andi Stefán Sigtryggsson, föstud. 14. apríl kl. 14.15. Uppboðsbeiðendur eru: Gunnar Sólnes hrl., innheimtumað- ur ríkissjóðs og Ólafur Gústafsson hrl. Reynivöllum 4, miðhæð, Akureyri, þingl. eigandi Arnór Þorgeirsson, föstud. 14. apríl ’89, kl. 14.15. Uppoðsbeiðendur eru: Ólafur Birgir Árnason hdl., Iðnaðar- banki Islands hf., Gunnar Sólnes hrl. og Veðdeild Landsbanka íslands.
Móasíðu 4a, Akureyri, þingl. eig- andi Einar Ingi Einarsson, föstud. 14. apríl ’89, kl. 15.30. Uppboðsbeðandi er: Benedikt Ólafsson hdl.
Ránarbraut 9, Dalvík, þingl. eigandi Rán hf., föstud. 14. apríl ’89, kl. 14.30. Uppboðsbeiðandi er: Ásgeir Thoroddsen hdl. Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík, Sýslumaöurinn í Eyjafjarðarsýslu. Steinahlíð 5e, Akureyri, þingl. eig- andi Sæmundur Pálsson ofl., föstud. 14. apríl ’89, kl. 15.00. Uppboðsbeiðendur eru: Gunnar Sólnes hrl., Jón Ingólfsson hdl., Ásgeir Thoroddsen hdl. og Veðdeild Landsbanka Islands.
Svarfaðarbraut 32, Dalvík, þingl. eigandi Vignir Þór Hallgrímsson, föstud. 14. apríl ’89, kl. 16.00. Uppboðsbeiðendur eru: Ólafur Birgir Árnason hdl., Gunnar Sólnes hrl„ Benedikt Ólafsson hdl. og Veðdeild Landsbanka (slands.
Nauðungaruppboð annað og síðara, á eftirtöldum fasteignum fer fram í dómsal embættisins, Hafnarstræti 107, 3. hæð, Akureyri, á neðangreindum tíma:
Þrastarlundi v/Skógarlund, Akur- eyri, þingl. eigandi Pétur Valdimars- son, föstud. 14. apríl '89, kl. 15.00. Uppoðsbeiðandi er: Bæjarsjóður Akureyrar. Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
Hamarstíg 30, Akureyri, þingl. eig- andi Friðný Friðriksdóttir, föstud. 14. apríl '89, kl. 13.30.