Dagur - 11.04.1989, Qupperneq 14
14 -£■ DAGUR - Þriðjudagur 11- aprrT1989
KENNARA-
HÁSKÓLI
ÍSLANDS
Við Kennaraháskóla íslands
er laus staða
námsráðgjafa
Æskilegt er að umsækjandi hafi sérmenntun í
námsráðgjöf. Laun samkvæmt launakerfi opin-
berra starfsmanna.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri
störf skulu sendar Kennaraháskóla íslands fyrir
8. maí 1989.
Yfirvélstjóri
Yfirvélstjóra vantar á rækjutogarann Nökkva HU
15 sem gerður er út frá Blönduósi.
Uppl. gefur Guðmundur Ingþórsson í símum 95-
4590 eða heima í síma 95-4243.
(ÍHSÞé)
Framkvæmdastjóri
Héraðssamband Suður-Þingeyinga óskar eftir að
ráða framkvæmdastjóra í fullt starf frá 15. maí nk.
Æskilegur ráðningartími er 2 ár.
Nánari upplýsingar veitir Jón Benónýsson í síma
43142.
Skriflegar umsóknir sendist í pósthólf 14, 650 Laug-
ar, fyrir 1. maí.
H.S.Þ.
Minning:
Bjja Jón Kr. Krístjánsson
Víðivöllum, Fnjóskadal
Fæddur 29. júlí 1903 - Dáinn 29. mars 1989
Jarðlífið er ekki óendanlegt, það
vitum við öll. Við eigum samt þá
ósk, að vinir okkar fái að dveljast
sem lengst í návist okkar, svo að
við getum náð til þeirra og rætt
við þá á góðri stund. Mikill
persónuleiki er horfinn sjónum
okkar. Jón Kr. Kristjánsson frá
Víðivöllum í Fnjóskadal andaðist
í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri að morgni 29. mars sl.
Jón var sonur hjónanna Krist-
jáns Jónssonar og Onnu Kristjáns-
dóttur, sem bjuggu á Víðivöllum.
Jón var mikill menningarfrömuð-
ur í sinni sveit, Kennaraskóla-
genginn enda barnakennari í
Flálshreppi til margra ára. Jafn-
framt því sá hann um bókasafn
hreppsins og útlán þaðan á
bókum. Jón var lengstaf í útgáfu-
stjórn Árbókar Þingeyinga og
hefir skrifað margar fræðandi og
skemmtilegar greinar í það rit og
margt fleira mun hann hafa ritað,
sem ekki verður talið upp hér.
Jón tók við búinu af föður sín-
um og hefur rekið það af mesta
myndarskap. Jón var kvæntur
Huldu Björgu Kristjánsdóttur frá
Nesi í sömu sveit og voru þau
mjög samhent hjón að mér
fannst. Þau eignuðust 5 börn en
þau eru: Karl, lögregluþjónn á
Akureyri, en kona hans er Marse-
lína Hermannsdóttir, Kristján
bóndi á Veturliðastöðum, en
kona hans cr Guðríður Arnþórs-
dóttir, Álfhildur húsfrú í Víðifelli
gift Árna Ólasyni, Völundur,
ókvæntur, háskólagenginn og
stundar kennslu o.fl. störf og
Aðalsteinn bóndi á Víðivöllum,
kvæntur Jónínu Guðmundsdótt-
ur.
Álfheiður og Árni byggðu
nýbýlið Víðifell í landi Víðivalla,
er þau tóku við búskap á hluta
jarðarinnar. Á efri hæðinni í því
húsi bjuggu Jón og Hulda í
ánægjulegu sambýli, en við Víði-
vallajörðinni tóku hins vegar
Aðalsteinn og kona hans.
Hulda var skólasystir mín frá
Laugum í Reykjadal og eftir að
þau hjón tóku við búi á Víðivöll-
um, vorum við systur oft hjá
þeim í vinnu og héldum vináttu
við þau áfram seinna, eftir því
sem möguleikar leyfðu, því gott
er að konta í Víðivelli enda oft
gestkvæmt þar á sumrin. - Eitt
atvik man ég löngu liðið, þegar
við bróðir minn vorum að læra að
lesa. Það hefur sjálfsagt ekki ver-
ið mikið um peninga til bóka-
kaupa, en þá barst okkur bóka-
sending frá hjónunum á Víðivöll-
um, foreldrum Jóns og var slíkt
mjög vinsamlega hugsað.
Mér sýnist, að hjónin, sem
þarna búa nú haldi uppi reisn
staðarins, því það er myndarlega
um gengið úti sem inni. í haust er
leið, þegar Jón gekk með okkur
um gróðurhúsin og garðana var
greinilegt, hve mikinn áhuga
hann hafði á blómunum og mat-
jurtunum, rétt eins og bókunum
sínum.
Á meðan Jón kenndi í Skógum
voru börnin þar í heimavist. Það
var því ekki aðeins kennslan,
sem hann sá um, heldur ölll
umsjón. Hann sá um að börnin
hefðu daglega útivist, fór gjarnan
sjálfur með þeim út á göngu og
gáði vandlega að því að þau væru
ekki blaut í fætur eða illa til
reika. Þess utan varð hann svo að
leysa alls kyns vanda, sem upp á
kom hjá börnunum.
Nú er þessi aldni vinur okkar
horfinn örugglega til enn æðri
starfa á nýju sviði. Þessar línur
eru aðeins þakklætisvottur frá
okkur systkinum fyrir þá upp-
fræðslu, sem við nutum og allar
glaðværar ánægjustundir, sem
við áttum með honum.
Guð veiti þér góðar viðtökur
og verndi eftirlifandi konu þína,
börn og alla afkomendur.
Iiulda Guðnadóttir.
AKUREYRARBÆR
ÖLDRUNARÞJÓNUSTA
Hjúkrunarfræðingar
Deildarstjóri óskast á öldrunardeild á Hjúkrun-
arheimilinu Hlíð frá 1. maí nk.
Einnig viljum við ráða nú þegar hjúkrunarfræð-
inga til fastra starfa og sumarafleysinga.
Sjúkraliðar
Sjúkraliðar óskast einnig til starfa nú þegar og til
sumarafleysinga.
Skriflegar umsóknir ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf sendist í pósthólf 340, 602
Akureyri.
Umsóknarfrestur er til 20. apríl nk.
Nánari upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma
27930 alla virka daga frá kl. 08.00-16.00.
Deildarstjóri öldrunarþjónustu.
Foraiannsskipti hja
Kvenréttindafélagi íslands
Aðalfundur KRFI var haldinn
miðvikudaginn 15. mars sl., að
Hallveigarstöðum.
Kosinn var nýr formaður,
Gerður Steinþórsdóttir, bók-
menntafræðingur.
Gerður er fyrrverandi borgar-
fulltrúi í Reykjavík. Hún hefur
látið jafnréttismál mikið til sín
taka, átti m.a. sæti í fram-
kvæmdanefnd um kvennafrídag
1975, hefur setið í jafnréttisráði
og Framkvæmdanefnd um launa-
mál kvenna. Hún sótti kvenna-
ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í
Nairobi 1985. Gerður tekur við
formennsku af Láru V. Júlíus-
dóttur, framkvæmdastjóra ASÍ,
sem gegnt hefur formennsku sl.
þrjú ár.
Þá gekk úr framkvæmdastjórn
Ragnheiður Harðardóttir, en í
hennar stað var kosin Ragnhildur
Hjaltadóttir, skrifstofustjóri í
samgönguráðuneytinu.
Aðrar í framkvæmdastjórn eru
Arndís Steinþórsdóttir, Jónína
Margrét Guðnadóttir og Ásthild-
ur Ketilsdóttir.
Auk þeirra eiga sæti í stjórn
félagsins 6 konur frá stjórnmála-
flokkunum, kosnar á landsfundi.
Formaður Menningar- og
minningarsjóðs kvenna er Hjör-
dís Þorsteinsdóttir, núverandi
form. Bandalags kvenna í Hafn-
arfirði.
Framkvæmdastjóri KRFÍ er
Herdís Hall.
Starfsemi félagsins á liðnu ári
einkenndist mikið af undirbún-
ingi fyrir kvennaþingið „Nordisk
Forum“ í Osló, en það sóttu um
800 konur frá íslandi.
Næsti fundur á vegum félagsins
verður um Kvennarannsóknir og
TOLURNAR ÞINAR? ÞAR KOM AÐ ÞVÍ!
Þetta eru tölurnar sem upp komu 8. apríl 1989.
Heildarvinningsupphæð var kr. 9.409.150,-
Tveir þáttakendur voru með 5 tölur réttar og fær hvor þeirra kr. 2.790.313.-
Bónusvinningurinn (fjórar tölur + bónustala) var kr. 567.760.-
Skiptist á 8 vinningshafa og fær hver þeirra kr. 70.970.-
Fjórar tölur réttar, kr. 979.264,- skiþtast á 208 vinningshafa, kr. 4.708.- á mann.
Þrjár tölur réttar kr. 2.281.500,- skiptast á 6500 vinningshafa, kr. 351.- á mann.
Sölustaðir eru opnir frá mánud. til laugard. og er lokað 15 mín. fyrir útdrátt.
Sími 685111. Upplýsingasímsvari 681511.
er þáttur í fundaröðinni „Áfram
Forum“. Hann verður að Hall-
veigarstöðum 30. mars nk., kl.
20.30.
Aprílfundur félagsins verður
síðan uni siðfræði í heilbrigðis-
málum, þar sem m.a. verður
fjallað um glasafrjóvgun.
Ársrit félagsins 19. júní er í
undirbúningi og er Sigrún Stef-
ánsdóttir fjölmiðlafræðingur rit-
stjóri þes.
Sigrún mun einnig annast
námskeið í fjölmiðlaframkomu
síðari hluta aprílmánaðar.
HEILRÆÐI
hk
Verkstjórar - verkamenn
NoLkun IgAlma við hvers konar störf hefur komiö I veg
fyrir hina alvarlegustu höfuðáverka. Því er notkun þeirra
qálfaögð.