Dagur - 18.04.1989, Qupperneq 14
14 - DAGUR - Þriðjudagur 18. apríl 1989
Til sölu skrifstofuhúsgögn
frá Kristjáni Siggeirssyni
Tvö skrifborö, fundarborð, þrír skápar, stólar, peninga-
skápur og Ijósritunarvél.
Upplýsingar í síma 24700.
S.Á.Á.IM.
Stuðningsnámskeið fyrir aðstandendur alkó-
hólista hefjast þriðjudaginn 2. maí 1989.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
S.Á.Á.N. og í síma 27611 milli kl. 09 og 17.
v______________________________y
Nuddnámskeið
Danska nuddkonan Lone Svargo er komin aftur til
íslands eftir nám í Indlandi.
Hún mun halda helgarnámskeið á Akureyri 22.
og 23. apríl og mun meðal annars kenna nudd,
austræna heilun og hugleiðingu.
Námskeiösgjald er kr. 4.200,-
Upplýsingar í síma 91-18128.
Innritun í síma 96-24283 milli kl. 18.00 og 19.00.
Sumarbúðirnar
við Vestmannsvatn
Innritun er hafin.
Flokkaskipting sumarið 1989:
1. flokkur 1,- 8. júní 7-11 ára.
2. flokkur 10.-20. júní 8-11 ára.
3. flokkur 22.-29. júní 7-11 ára.
4. flokkur 3.-10. júlí 11-13ára.
5. flokkur 12.-19. júlí 7-11 ára.
6. flokkur 21.-27. júlí 7-11 ára STÚLKUR.
Einnig eru flokkar fyrir aldraða.
Nánari upplýsingar og skráning er í síma 96-
24873 frá kl. 17.00 til 19.00 virka daga.
Óskum að ráða smið
eða laghentan mann
til afgreiðslu- og framleiðslustarfa.
Framtíöarstarf.
Þyrfti aö geta byrjað sem fyrst.
Uppl. gefur verslunarstjóri, ekki í síma.
^JiJnorðurfell hf.
L / Glerárgötu 32 ■ 602 Akureyri ■ Simi 23565
kvikmyndorýni
Umsjón: Jón Hjaltason
Carrie Fisher stumrar yfir myrtum araba og má engu muna að það kosti hana lífið.
Og það varst þú!
Borgarbíó sýnir: Stefnumót við dauðann
(Appointment with Death), hyggða á
sögu eftir Agöthu Christie.
Leikstjóri: Michael VVinner.
Helstu leikcndur: Peter Ustinov og
Carrie Fisher.
Peter Ustinov leikur Hercule
Poirot. Ef ég man rétt þá er
Ustinov einstætt eintak af Homo
Sapiens, getinn í einhverju lýð-
velda Sovétríkjarina en fæddur í
London. En sem mesti glæpa-
mannahrellir allra alda hefur
hann útlitið heldur á móti sér. Að
vísu skal ég viðurkenna, áður en
lengra cr haldið, að fíkniefna-
neytandinn í Bakarastræti veitir
Poirot ákaflega harða samkeppni
um þennan meistaratitil glæpa-
fangara.
Að auki er ekki meira en svo
að Ustinov nái að sálgreina Belg-
ann sinn rctt. Pað er af og frá að
Poirot sé neitt annað en skap-
dcildarmaður. Honum er allt vel
gefið það sem er manni sjálfrátt,
það harkar aldrei um kurteisi
hans, og hið ósjálfráða í fari
Belgans getur aldrei orðið rang-
hverfan af vitunarvilja hans.
Þetta yfirsést Ustinov á köflum.
Hann á erfitt með að þola sam-
ferðamenn sína, sérstaklega einn
þeirra, móðgast, skreytir andlit
sitt með mæðusvip og er jafnvel
ókurteis. Petta er einfaldlega
ekki Poirot, heldur Peter Ustinov
í þykjustuleik. Poirot er heiðurs-
maður fram í fingurgóma og læt-
ur ekki bera á vanþóknun sinni,
sérstaklega ekki ef kvenfólk á í
hlut.
Víkjum nú um stund að sögu-
þræðinum í Stefnumóti við dauð-
ann. Ríkur fjölskyldufaðir deyr.
Með smáhjálp frá lögfræðingi
fjölskyldunnar erfir ekkjan allt
góssið eftir eiginmanninn sáluga
og börn hans (sem eru aðeins
stjúpbörn hennar) fá ekki neitt.
Parna er hún kornin rétt einu
sinni vonda stjúpa ævintýranna
sem af eintómum andhælisskap
níðist á varnarlausum börnum, í
þessu tilviki fégráðugum stálpuð-
um börnum. Hópurinn fer í sigl-
ingu og endar í þáverandi Palest-
ínu, núverandi ísrael. Stjúpan
drottnar yfir börnunum sem snú-
ast í kringum hana eins og dverg-
arnir forðum í kringum Mjall-
hvíti þegar eplið stóð fast í hálsi
hennar. Munurinn er aðeins sá
að ekkert hindrar eðlilegan
andardrátt stjúpunnar en ferða-
félagar hennar íhuga allir að reka
ofan í hana stórt rautt epli, eða
eitthvað þvíumlíkt, ef það mætti
verða til þess að stytta henni
aldur.
Að lokum deyr vonda stjúpan,
allir liggja undir grun og Hercule
Poirot, sem fyrir einskæra tilvilj-
un ferðast með sömu ferðaskrif-
stofu og sú látna, tekur að sér að
finna morðingjann og fær til þess
48 klukkustundir. Þrátt fyrir
naumt skammtaðan tíma tekst
honum að opinbera sökudólginn
en mikið skelfilega er málatilbún-
aður hans þunnur allur sarnan og
ekki frítt við að niðurstaðan sé
sniðin að löngunum bíófarans
sem situr úti í sal, étandi popp
eða eitthvað þaðan af óhollara.
Stefnumót við dauðann undir-
strikar betur en flestar aðrar
Agöthu Christie-bíómyndir sem
ég hef séð hvað allur aðdragandi
morða hennar er skelfilega gervi-
legur, fólkið óraunverulegt og
lausnirnar fráleitar. Það er alls
ekki hægt að segja um söguna að
hún skrifi sig sjálf, þvert á móti er
hún barin saman með harðri
hcndi, hortittir reknir í hana á
samskeytum og dugir þó ekki til.
VANNSTU NÚNA? TIL HAMINGJU!
Þetta eru tölurnar sem upp komu 15. apríl 1989.
Heildarvinníngsupphæö var kr. 5.031.401.-
1. vinningur var kr. 2.316.966.-
Einn þátttakandi var með 5 tölur réttar,-
Bónusvinningurinn (fjórar tölur + bónustala) var kr. 402.272,-
Skiptist á 4 vinningshafa og fær hver þeirra kr. 100.568.-
Fjórar tölur réttar, kr. 693.812,- skíptast á 142 vinningshafa, kr. 4.886.- á mann.
Þrjár tölur réttar kr. 1.618.351,- skiptast á 4919 vinningshafa, kr. 329.- á mann.
Sölustaðir eru opnir frá mánud. til laugard. og er lokað 15 mín. fyrir útdrátt.