Dagur


Dagur - 12.05.1989, Qupperneq 7

Dagur - 12.05.1989, Qupperneq 7
Föstudagur 12. maí 1989 - DAGUR - 7 55 Skagafjörður átti sterkari ítök í mér en ég hugði“ - segir sr. Hjálmar Jónsson „Við erum sátt við ákvörðun- ina og ég held að við eigum ekki eftir að sjá eftir henni. En enginn verður þó eins glaður eins og Reynir, sonur minn. Hann þverneitaði að fara allan tímann. „Hér er skólinn minn og vinirnir mínir. Ég hef ekk- ert að gera suður,“ segir hann,“ sagði sr. Hjálmar Jónsson, sóknarprestur og prófastur á Sauðárkróki, í samtali við Dag, eftir að hafa tilkynnt að hann hafi dregið umsókn sína til baka um stöðu Dómkirkjuprests í Reykjavík. Um ákvörðun sína hafði sr. Hjálmar þetta að segja: „Menn mega ekki horfa framhjá því, að landsbyggðin hefur marga góða kosti. Aberandi er að fram- kvæmdastjórar, fulltrúar og ýmsir, sem veljast til ábyrgðar- starfa, hafa einatt stutta viðdvöl á leiðinni til starfa í Reykjavík. Það þykir leið til meiri frama og vissulega er gott að vita til þess. Hitt er aftur annað mál, að prestsstarf á Sauðárkróki og prófastur í Skagafirði er ekki stökkpallur til eins eða neins. Prestur tengist samfélaginu sterk- um böndum, kynnist högum og kjörum, á samskipti við fólk við margbreyttar aðstæður." Sr. Hjálmar hélt áfram: „Ég hafði sömu áætlanir og margur annar. Fór í prestsskap með það fyrir augum að byrja á lands- byggðinni en fara suður ef færi gæfist eftir 10-15 ár. Brautin mín hefur verið bein til þessa. Ég hef ekki beinlínis sóst eftir embætt- um, þetta hefur komið af sjálfu sér. Éf til vill gat ég haldið áfram ferðinni, ég veit það ekki, en hitt get ég fullyrt að Skagafjörður átti Flugleiðir munu í sumar fljúga 42 ferðir í viku á milli Akur- eyrar og Reykjavíkur. Þá verða vikulega farnar 10 ferðir milli Sauðárkróks og Reykjavíkur og 11 ferðir milli Húsavíkur og Reykjavíkur. Sumaráætlun sterkari ítök í mér en ég hugði. Ég lít ekki á það sem neina upphefð, að fara til prestsstarfa í Reykjavík. Það er annar starfs- vettvangur, en sama eðlis. Höfuðborgar- og landsbyggðar- fólk þarf að taka höndum saman og eyða tortryggni og hætta sífelldum metingi sín á milli. Margir telja að það hljóti að vera keppikefli allra presta að komast til Reykjavíkur. Prests- starfið er jafn mikilvægt á lands- byggðinni, það hefur bæði félagsins tekur gildi 15. maí n.k. en sú meginbreyting verð- ur þá á fluginu að tekin verður upp ný fargjaldaskipan sem að sögn Einars Sigurðssonar, blaðafulltrúa félagsins, miðar að því að veita þeim farþegum sem borga fullt fargjald ákveð- inn forgang á álagstímum en á móti veita meiri afslátt á far- gjaldi á öðrum tímum. Á flugleiðinni frá Akureyri til Reykjavíkur verður boðið upp á möguleika á 40% afslætti í 15 jákvæðar og neikvæðar hliðar, eins og í Reykjavík. Þjóðarsálin þarf að átta sig á því, að það er ekkert sjálfsagt, að allar leiðir liggi til Reykjavíkur. Mér finnst höfuðborgin ágæt, og þar get ég vel hugsað mér að starfa. Þar vinnur gott fóik að safnaðarmál- um, eins og hér. En hvað sem því líður er ég ekki tilbúinn til að skipta um starfsvettvang. Ég met mikils þann stuðning og viður- kenningu sem felst í áskorunum um að fara ekki héðan. Hitt ræð- ferðum af 42 vikulegum ferðum í sumar en 20% afslátt í 12 ferðum af42. Svipaðir afsláttarmöguleik- ar eru á öðrum flugleiðum auk þess sem hoppfargjald verður mögulegt í öllum ferðum og áfram verður boðið upp á fjölskyldu- afslátt. Blaðafulltrúi Flugleiða segir að með þessum breytingum sé ætlunin að jafna álag og um leið að nýta vélakostinn betur. Innanlandsflug er mikið notað- ur ferðamáti ef marka má tölur um farþega Flugleiða á síðasta Sr. Hjálmar Jónsson. ur þó úrslitum að ég er ekki til- búinn að fara," sagði Hjálmar að lokum í samtali við Dag. -bjb ári þar sem 260.000 manns ferð- uöust með félaginu. Vikulegar ferðir í sumar verða 122 frá Reykjavík og sætaframboðið í sumar verður 160.000. Einar seg- ir að frá því í febrúar hafi verið reynt það kerfi að auka tíðni í ferðum til og frá Húsavík, Sauð- árkróki og Patreksfirði með því móti að fljúga á fleiri en einn stað í sömu ferð. Þetta var gert sam- kvæmt niðurstöðum úr skoðana- könnun á þessum stöðum og verður gert áfram í sumaráætlun- inni. JÓH Áfengisvarnaráð: Áfengissala hefiu* aukist - Misskilningur leiðréttur Sumaráætlun Flugleiða: Farþegar á Mu í'argjaldi í forgangi og auknir afsláttarmöguleikar utan álagstíma „Vegna villandi fyrirsagna í ýms- um fjölmiðlum og yfirborðslegrar umfjöllunar vill Áfengisvarnaráð benda á: 1) Alkóhól í bjór er nákvæm- lega sama efnið og alkóhól í víni og sterkum drykkjum. Því er það jafnan talið með þegar gerð er grein fyrir áfengisneyslu. Svo er t.a.m. í alþjóðlegum skýrslum. 2) Úr áfengisneyslu dró á árinu 1988. Áfengissala jókst hins vegar verulega á fyrsta fjórð- ungi þessa árs af þeim sökum að bjórinn bættist við í mars. 3) Samkvæmt upplýsingum ÁTVR voru seldir 229.413 lítrar af hreinu áfengi á þessum þremur mánuðum en 182.958 lítrar sömu mánuði í fyrra. Aukningin er 25.4%. 4) Hitt er svo annað mál, að hin eiginlegu áhrif á neysluna koma fyrst fram eftir árið og'allar afleiðingarnar löngu seinna.“ Áfengisvarnaráð Hitaveita Akureyrar: Gerdahverfi II tengist væntanlega í sumar Stjórn veitustofnana á Akur- eyri hefur samþykkt að dreifi- kerfí hitaveitu verði lagt í Gerðahverfi II í sumar. Sigurður J. Sigurðsson segir það skoðun sína að eðlilegast sé Sameiginlegur fundur ÖBÍ og Þroskahjálpar: Skorað á stjóravöld að gera úr- bætur í húsnæðismáhun fatlaðra Fulltrúar Landssamtakanna Þroskahjálpar og Öryrkja- bandalags Islands héldu fund á Selfossi 6. maí sl. og voru sam- þykktar ályktanir um ýmis hagsmunamál fatlaðra á fund- inum, m.a. er skorað á ríkis- stjórnina að gera hið fyrsta ráðstafanir varðandi húsnæðis- mál fatlaðra. í ályktuninni um húsnæðismál- in segir á þessa leið: „Samtök fatlaðra hafa aflað upplýsinga frá öllum svæðisstjórnum málefna fatlaðra sem staðfesta, svo að ekki verður dregið í efa, að a.m.k. 100 mikið fatlaðir ein- staklingar eru nú í brýnni þörf fyrir þjónustuíbúðir. Fjöldi þeirra býr við alls ófullnægjandi aðstæður og þrátt fyrir þau sam- býli sem reist hafa verið á undan- förnum árum hrannast upp bið- listar hjá svæðisstjórnum, sveit- arfélögum og Hússjóði Öryrkja- bandalags íslands. Sums staðar ráða fjölskyldur ekki við að veita fjölfötluðum einstaklingum nauðsynlega aðhlynningu og því hefur skapast neyðarástand á mörgum heimilum. Fundurinn bendir á að fatlaðir einstaklingar eigi rétt á mannsæmandi húsnæði sem mið- ast við nútímakröfur og telur sinnuleysi stjórnvalda í þessum efnum ámælisvert. Fundurinn beinir því til stjórn- valda að þau beiti sér nú þegar fyrir gerð neyðaráætlunar í sam- ráði við samtök fatlaðra með það markmið í huga að útrýma þeim neyðarlistum sem nú eru fyrir hendi hjá svæðisstjórnum. Full- nægjandi húsnæði er meðal frum- þarfa hvers einstaklings og ein- ungis með því að leysa þessar brýnustu frumþarfir verður hægt að vinna markvisst að heildar- áætlun um framkvæmdir í þágu fatlaðra. Fundurinn skorar einnig á stjórnvöld að vinda að því bráð- an bug að stórefla heimaþjónustu við fatlaða og gera þeim þannig kleift að lifa sjálfstæðu lífi á eigin heimili. Fundurinn telur mjög brýnt að lagalegur réttur fatlaðra til heimaþjónustu sé tryggður og að nauðsynlegu fjármagni sé veitt til þjónustunnar um allt Iand.“ EHB að verkið verði boðið út sem einn framkvæmdaáfangi. Nákvæm tímasetning hefur ekki verið ákveðin ennþá en miðað er við verklok næsta haust. „Um þetta mál hafa verið skiptar skoðanir gegnum tíðina. Þó hefur enginn viljað kveða upp úr með að þarna kæmi aldrei hitaveita heldur var ákveðið þegar markaðsátakið var gert að fresta ákvörðun um Gerðahverfið en reyna að beina kröftunum að öðrum bæjarhverf- um. Árangurinn af markaðs- átakinu annars staðar er mjög góður og sú reynsla fullvissar okkur um að stærstur hluti íbúa í Gerðahverfi mun tengja hús sín hitaveitu á næstu árum. Það er engin sérstök kvöð á mönnum að tengjast hitaveitunni þrátt fyrir þetta umfram það sem áður hafði verið ákveðið almennt. Breyting verður á sölu- fyrirkomulagi raforku frá Lands- virkjun árið 1991 sem leiðir að óbreyttu til þess að ætli Rafveita Akureyrar að hafa sömu tekjur af raforkusölu verða rafhitunar- taxtar að hækka. Þá verður ekki eins hagstætt fyrir R.A. að selja orku til húshitunar eins og verið hefur. Við vitum ekki hvaða taxta við getum boðið til húshit- unar með raforku eftir 1991 en þó er eitt víst, raforka verður ekki niðurgreidd til þeirra nota á Akureyri. Það sem við horfum fyrst og fremst á er að til lengri tíma litið eigi þessi breyting að koma öllum bæjarbúum til góða. Ekki var rökrétt að draga íbúa hverfisins öllu lengur á því hvað gera ætti í þessum málum, rétt væri að hrinda málinu í framkvæmd svo fólk gæti aðlagað sig að breyting- unum. Einnig er vitað um all- marga íbúa í hverfinu sem nú nota rafmagnsþilofna og sem sýna því áhuga að tengjast hita- veitu," sagði Sigurður. EHB Garðyrkjustöðin á Grísará Sími 96-31129. Blómstrandi Dahlíur, flauelsblóm, bláhnoða og fleiri pottablóm - Garðrósir og bóndarósir Einnig mold í sekkjum og 3ja lítra pokum. Áburður í fjölbreyttu úrvali. Opið frá kl. 1-6 alla daga. ★ Lokað hvítasunnudag.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.