Dagur - 12.05.1989, Blaðsíða 10

Dagur - 12.05.1989, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Föstudagur 12. maí 1989 myndasögur dags ÁRLAND Ég vissi ekki aö báðir foreldrar þínir hefðu verið giftir áður Daddi... JúlÞau gengubæðií gegnum skilnað áður en þau giftust hvoru öðru. ... foreldrar minir petta hljómar eins og skildu bara fyrir ári farsótt! síöan. T T T r 1 llpttM ki/ s ( $1 }“ Uf m ■M, nrf Þau hljóta að hafa verið bólusett. ANDRÉS ÖND Þaö, að horfa á sjónvarp er stærsta ástæðan\ „fyrir því að engu er komið í verk! J (^AIIt í lagi! Allt í lagi! Ég skal fara^ i_með það heim.~~' Woftd Righti Nw«rv«d UMtnbutad by K>ng FmIuih Syndicau > HERSIR 1 Æði! Þessi heiti-pottur er frábær! s KB Farðu úr súpunni minni!! H-lb BJARGVÆTTIRNIR # Nokkrar léttar sveiflur í dentíð var slegist á öllum „venjulegum“ íslenskum sveitaböllum. Tjúttarar og tröll úr nágrannabyggðar- lögum mættu galvaskir á dansleiki og sýndu kraft og þor og skoruðu heimamenn á hólm. Nú er öldin önnur. Böllin fara fram í friði og ró og einstaka furðufugli verð- ur á að gefa náunganum einn á ann. Þetta er vita- skuld ánægjuleg breyting en hitt má þó segja að gömlu nágrannaerjurnar krydduðu verulega upp á til- veruna á dansleikjum. Böll- in á Norðurlandi voru, og eru víða enn, um margt sér- stakar samkomur. Ólafsfirð- ingar heimsóttu Dalvíkinga og öfugt og „tóku nokkrar léttar sveiflur." Þá var ekki síður fjör á böllunum vestur á Siglufirði þegar Ólafsfirð- ingar hittu þá að máli á Hótel Höfn eða í Ketilási í Fljótum. Menn vörðu sinn heimabæ með kjafti og klóm og létu sig engu skipta þótt það yrði til þess að nokkrir blóðdropar féllu. Næsta dag féllust menn í faðma og höfðu með öllu gleymt erj- um næturinnar. # „Fáum ekki að berja á helv ...“ Á síðari árum hafa ná- grannaerjur tengst íþróttum að nokkru leyti. Allt er þetta í góðu og ekkert nema gott um það að segja þegar áhangendur t.d. knatt- spyrnuliða halda með sín- um mönnum af miklum eldmóð. Leikir Ólafsfirðinga og Siglfirðinga í gegnum árin hafa verið hreint stór- kostlegir og áhangendur ekki spillt fyrir stemmning- unni. Oft er það nú svo að leikirnir, hvort sem þeirfara fram á Ólafsfirði eða Siglu- firði, fara fram annaðhvort á föstu- eða laugardögum og er þá slegið upp balli að kvöldi í leikbænum. Áhang- endur liðanna streyma á þessi dansiböll og gera upp þau mál sem þeir töldu leik- menn ekki hafa séð um á leikvellinum fyrr um daginn. Skrifari S&S heyrði á tal tveggja dyggra stuðn- ingsmanna Leifturs á Ólafs- firði í fyrra þegar Ijóst var að liðið væri fallið í aðra deild. Annar sagði: „Þetta er nú meiri djöfullinn, okkar menn dottnir." „Já,“ sagði hinn, „en það sem verra er að við fáum ekki einu sinni að berja á helvítis Siglfirðing- unum á næsta ári!“ dagskrá fjölmiðla Sjónvarpið Föstudagur 12. maí 17.50 Gosi (20). 18.15 Kátir krakkar (12). 18.45 Táknmálsfréttir. 18.50 Austurbæingar. 19.20 Benny Hill. 19.54 Ævintýri Tinna. 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Já! Þáttur um listir og memyngu líðandi stundar. 21.20 Derrick. 22.25 í nafni laganna. (I lagens namn.) Sænsk bíómynd frá 1986 byggð á sögu eftir Leif G.W. Persson. Aðalhlutverk: Sven Wollter, Anita Wall, Stefan Sauk og Pia Green. Lögregluþjón grunar félaga sína um að vera of harðhenta við fanga. Hann reynir að fylgjast með þeim en þeir eru varir um sig. # 23.50 Útvarpsfréttir í dagskrárlok. Sjónvarp Akureyri Föstudagur 12. maí 16.45 Santa Barbara. 17.30 í utanríkisþjónustunni. (Protocol.) Goldie Hawn fer ekki út af sporinu í þess- ari mynd þar sem hún fyrir hreina tilviljun er ráðin til starfa hjá utanríkisráðuneyt- inu til þess að útkljá viðkvæmar samn- ingaviðræður í Mið-Austurlöndum. Aðalhlutverk: Goldie Hawn, Chris Sar- andon, Richard Romanus og Andre Gre- gory. 19.00 Myndrokk. 19.19 19.19. 20.00 Teiknimynd. 20.10 Ljáðu mér eyra... 20.40 Bernskubrek. (The Wonder Years.) Gamanmyndaflokkur fyrir alla fjölskyld- una. 21.10 Strokubörnin.# (Runners.) Reiðhjól fínnst liggjandi á götunni og Rakel, ellefu ára skólastúlka, er horfin. Faðir hennar getur ekki á heilum sér tekið og gefur allt upp á bátinn til að leita að dóttur sinni. Eiginkona hans lítur öðrum augum á málið og sættir síg við að dóttir þeirra sé að öllum líkindum látin. Hún fær heimilisföðurinn ekki á sitt band því hann er sannfærður um að Rakel sé einhvers staðar viðriðin unglingaglæpastarfsemi, trúarofstæki eða unglingavændi. Hann er staðráðinn í að endurheimta dóttur sína aftur. Aðalhlutverk: James Fox, Kate Hardie, Jane Asher og Eileen O’Brien. Ekki við hæfi barna. 22.45 Bjartasta vonin. (The New Statesman.) 23.10 Fösturdagur til frægðar.# (Thank God It’s Friday.) Það er föstudagskvöld og eftirvæntingin á einu stærsta skemmtistað í Hollywood er í hámarki. Þar fer í hönd danskeppni og hin óviðjafnanlega hljómsveit, Commo- dores, er væntanleg á hverri mínútu. Útvarpsmaðurinn og plötusnúðurinn, Bobby, eygir því gullið tækifæri til að koma sjálfum sér á framfæri í gegnum hljómsveitina og hin framagjarna stúlka, Nicole, reynir ítrekað að brjótast inn í útvarpssendingu Bobbys í þeirri trú að heyri fólk hana syngja einu sinni bíði hennar frægð og frami. Fleiri kynlegir kvistir eru á skemmtistaðnum þetta föstudagskvöld og ýmislegt óvænt og spennandi hendir þar. Aðalhlutverk: Donna Summer, The Commodores, Valerie Langburg, Terri Nunn og Chick Vennera. 00.40 Banvænn kostur. (Terminal Choice.) Læknisferill Franks hangir á bláþræði þegar annar sjúklingur hans í röð deyr. Skyndilega rennur upp fyrir honum að dauði sjúklinga hans er ekki með öllu eðli- legur og eitthvað annað, meira og flókn- ara, en afglöp hans búa þarna að baki. Aðalhlutverk: Joe Spano, Diane Venora og David McCallum. Alls ekki við hæfi barna. 02.15 Dagskrárlok. # Táknar frumsýningu á Stöð 2. Rás 1 Föstudagur 12. maí 6.45 Veðurfregnir • Bæn. 7.00 Fréttir. 7.03 í morgunsárið með Ingveldi Ólafsdóttur. Lesið úr forystugreinum dagblaðanna að loknu fréttayfirliti kl. 8.30. 9.00 Fréttir. 9.03 Litli barnatíminn. - „Krákubrúðkaupið" eftir Önnu Wahlen- borg. Bryndís Baldursdóttir les fyrri lestur. 9.20 Morgunleikfimi. 9.30 Kviksjá - „Söngvar Svantes". Fyrri þáttur. 10.00 Fréttir • Tilkynningar. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Maðurinn á bak við bæjarfulltrúann. Umsjón: Finnbogi Hermannsson. (Frá ís^firði.) 11.00 Fréttir. 11.03 Samhljómur. 11.53 Dagskrá. 12.00 Fréttayfirlit • Tilkynningar. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Veðurfregnir • Tilkynningar. 13.05 í dagsins önn - Nýjungar í skóla- starfi. 13.35 Miðdegissagan: „Brotið úr töfra- speglinum" eftir Sigrid Undset. Þórunn Magnea Magnúsdóttir les (13). 14.00 Fréttir • Tilkynningar. 14.05 Ljúflingslög. 15.00 Fréttir. 15.03 „Vísindin efla alla dáð." 16.00 Fréttir. 16.03 Dagbókin. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvarpið. - Símatími. 17.00 Fréttir. 17.03 Tónlist á síðdegi - Shapero, Poulenc, Villa-Lobos og Tubin. 18.00 Fréttir. 18.03 Þingmál. Tónlist • Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Tilkynningar. 19.33 Kviksjá. 20.00 Litli barnatíminn. 20.15 Blásaratónlist. 21.00 Norðlensk vaka. Umsjón: Haukur Ágústsson. (Frá Akur- eyri.) 22.00 Fréttir ■ Dagskrá morgundagsins • Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Danslög. 23.00 í kvöldkyrru. Þáttur í umsjá Jónasar Jónassonar. 24.00 Fréttir. 00.10 Tónlistarmaður vikunnar - Úlrik Ólason, kórstjóri. 01.00 Veðurfregnir. Rás 2 Föstudagur 12. maí 7.03 Morgunútvarpið. 9.03 Stúlkan sem bræðir íshjörtun, Eva Ásrún. 11.03 Stefnumót. Jóhanna Harðardóttir tekur fyrir það sem neytendur varðar. 12.00 Fréttayfirlit • Auglýsingar. 12.15 Heimsblöðin. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Umhverfis landið á áttatíu. Gestur Einar Jónasson leikur þraut- reynda gullaldartónlist og gefur gaum að smáblómum í mannlífsreitnum. 14.05 Milli mála, Óskar Páll á útkíkki. 16.03 Dagskrá. 18.03 Þjóðarsálin. 19.00 Kvöldfréttir. 19.33 Áfram ísland. Dægurlög með íslenskum flytjendum. 20.30 Vinsældalisti Rásar 2. Tíu vinsælustu lögin. 21.30 Kvöldtónar. 22.07 Snúningur. 02.05 Rokk og nýbylgja. 03.00 Vökulögin. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30. Fréttir eru sagðar kl. 2, 4, 7, 7.30,8,8.30, 9, 10, 11, 12, 12.20, 14, 15, 16, 17, 18, 19, 22 og 24. Ríkisútvarpið á Akureyri Föstudagur 12. maí 8.07-8.30 Svæðisútvarp Norðurlands. 18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands. Bylgjan Föstudagur 12. maí 07.00 Þorgeir Ástvaldsson og Páll Þor- steinsson með morgunþátt fullan af fróðleik, frétt- um og ýmsum gagnlegum upplýsingum fyrir hlustendur, í bland við góða morgun- tónlist. 10.00 Valdís Gunnarsdóttir. Valdís er með hlutina á hreinu og leikur góða blöndu af þægilegri og skemmtilegri tónlist eins og henni einni er lagið. 14.00 Bjarni Ólafur Guðmundsson. Óskalögin, kveðjurnar, nýjustu lögin, gömlu góðu lögin - allt á sínum stað. Bjarni Ólafur stendur alltaf fyrir sínu. 18.10 Reykjavík síðdegis - Hvað finnst þér? Hvað er efst á baugi? Þú getur tekið þátt í umræðunni og lagt þitt til málanna í síma 611111. Þáttur sem dregur ekkert undan og menn koma til dyranna eins og þeir eru klæddir þá stundina. Steingrímur Ólafsson stýrir umræðunum. Fréttir kl. 8, 10, 12, 14, 16 og 18. Fréttayfirlit kl. 9, 11, 13, 15 og 17. 19.00 Freymóður T. Sigurðsson. Meiri tónlist - minna mas. 20.00 Ólafur Már Björnsson. Kynt undir helgarstemmningunni í viku- lokin. 22.00 Haraldur Gíslason. Harðsnúni Halli kann „helgartökin" á tónlistinni. Óskalög og kveðjur í símum 681900 og 611111. 02.00 Næturdagskrá. Hljóðbylgjan Föstudagur 12. maí 17.00-19.00 Fjallað um það sem er að ger- ast í menningu og listum um helgina á Akureyri. Stjórnendur eru Pálmi Guðmundsson og Axel Axelsson. Fréttir kl. 18.00.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.