Dagur - 12.05.1989, Blaðsíða 14

Dagur - 12.05.1989, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - Föstudagur 12. maí 1989 In memoriam c|ra Kristrún Baldursdóttir ljosmoðir Fædd 8. nóvember 1938 - Dáin 5. maí 1989 r ttílASALINN Möldursf. BÍIASAIA við Hvannavelli. Símar 24119 og 24170. MMC Lancer 1500 GLX sjálfskiptur, hvítur. Árg. ’88, ek. 17 þús. km. Verð 670.000,- MMC Pajero, langur turbo dísel, 5 gíra, lágþekja. Arg. ’87, ek. 97 þús. km. Verð 1.350.000. Subaru station 1800 GL 4x4 5 gíra, hvítur. Árg. '86, ek. 52 þús. km. Verð 700.000. MMC Tredia GLS 4x4 5 gíra, hvítur. Árg. ’86, ek. 60 þús. km. Verð 600.000. MMC Tredia GLS 4x4 5 gíra, rauð- ur, ný vél. Árg. ’86, ek. 67 þús. km. Verð 600.000. pS® K :;ví Subaru Hatcbak 1800 GLF 4x4 sjálf- skiptur, hvítur. Árg. ’84, ek. 54 þús. km. Verð 450.000. MP ^ AÁ; . IMfc ~*amm aiJ ~yJ|S MMC Colt 1500 GLX álfelgur spoil- er, hvítur. Árg. ’86, ek. 50 þús. km. Verð 460.000. ★ Greiðslukjör við alira hæfi MöUursf. BflASAIA við Hvannavelli. Símar 24119 og 24170. í dag fer fram í Glerárkirkju á Akureyri, útför Kristrúnar Bald- ursdóttur ljósmóður. Lillý, eins og hún var oftast kölluð, var búin að berjast hetjulega víð sjúkdóm þann sem svo marga leggur að velli og var hún aðeins á fimm- tugasta og fyrsta aldursári þegar hún lést. Lillý var fædd að Garði í Þistil- firði. Hún lauk prófi frá Ljós- mæðraskóla íslands 30.09.1962. í tvö ár frá 1963 til 1965 starfaði hún sem umdæmisljósmóðir á Þórshöfn og nágrenni, síðan við ljósmóðurstörf í Vestmannaeyj- um eitt sumar, en fluttist svo til Akureyrar þar sem hún hefur búið síðan ásamt eiginmanni sín- um og börnum. Eiginmaður Lillýar er Birgir Eyvík Antonsson rafvirkjameist- ari. Þau eignuðust fjögur börn, en urðu fyrir mikilli sorg, þegar elsti sonurinn Baldur Óli lést af slysförum árið 1972, aðeins 7 ára að aldri. Þá voru hinir synirnir, Börkur og Hlynur sex og fjögurra ára. Árið eftir, 1973, fæddist svo Kristjana Ösp. Árið 1977 byrjaði Lillý að starfa við mæðraeftirlitið á Ákur- eyri og var þar til ársins 1986. Eftir það starfaði hún við hjúkr- un á dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri og einnig áður á Krist- nesi, eftir því sem hún komst yfir með ljósmóðurstarfinu í mæðra- eftirlitinu. Það var ekki ætlun mín að rekja æviferil Lillýar í smáatriðum og er því aðeins gripið niður á þau störf sem hún vann utan heimilis- ins, en ekki má gleyma þeim þætti - heimilinu og fjölskyld- unni. Þar eru ætíð unnin ótelj- andi störf, sem sjaldan er haft hátt um, en þau eru svo óendan- lega mikilvæg. Ljósmæður á Norðurlandi stofnuðu deild innan Ljósmæðra- félags íslands fyrir rúmum 20 árum. Lillý var með okkur í þeim félagsskap frá árinu 1972. Þessi fátæklegu orð mín eru fyrst og fremst ætluð til að þakka henni fyrir það ljúfa samstarf. Þakkirnar koma frá okkur öllum ljósmæðrunum, sem voru með henni og störfuðum með henni í Norðurlandsdeildinni að málefn- um ljósmæðra. Við viljum einnig votta þér Birgir, innilega samúð okkar og þakklæti fyrir hve frábærlega þú studdir hana í veikindum hennar. Börnum ykkar og öllum öðrum ættingjum og aðstandendum Laugardaginn 13. maí efnir Tón- listarskólinn á Akureyri til tveggja vortónleika í Gagnfræða- skólanum á Akureyri. Þeir fyrri verða kl. 14, en á þeim leika nemendur í neðri stig- um á fiðlur, píanó, gítar, selló, blokkflautu, klarinett, básúnu og trompet. Alls koma 20 nemendur fram á tónleikunum og verður efnisskráin hin fjölbreyttasta. Seinni tónleikarnir verða á sama stað kl. 17, en þar koma sendum við hlýjar samúðarkveðj- ur. Guð blessi ykkur öll. Ása Marinósdóttir. í dag verður lögð til hvíldar Kristrún Baldursdóttir ljósmóðir. Sáru sjúkdómsstríði er lokið og þrátt fyrir alltof skamma ævi, er hvíldin þreyttum líkama kær. Þegar hugurinn reikar til baka, í gegnum öll þau ár sem við þekktumst verður ein mynd öðr- .um sterkari í minningunni. Það er myndin af heilsteyptri konu, sem með vingjarnleika, tilgerðar- lausri gestrisni og skyldurækni, sinnti hverjum þeim sem á vegi hennar varð. Lillý fór hljóðlega og án asa, en það var oft undra- vert hve mikið lá eftir hana að kvöldi eins dags. Lillý lék sér að því að hafa gesti í gistingu, rækja störf sín við mæðraskoðun eða frammi á Krist- neshæli, hugsa um heimili og börn, rækja samband við ætt- menni og aldraða móður - allt á þennan tilgerðarlausa og elsku- lega hátt sem var hennar aðals- merki í framkomu. En hún ætl- aðist ekki til hlúta af öðrum né heldur skapaði hún sér þarflausar yfirborðs- eða kurteisisskyldur. Annað leitar einnig sterkt á hugann þegar Lillýar er minnst, en það er æðruleysið og mannvirð- ingin sem voru henni í blóð borin. Aldrei, í gegnum hartnær tveggja áratuga kynni, heyrði ég hana býsnast, hneykslast eða gera kröfur til þess að aðrir breyttu sér að hennar geðþótta. Sérhverri mannveru mætti hún af virðingu fyrir einstaklingnum og hans sérstaka þroska; þeim sem á vegi hennar urðu tók hún af reisn og tilgerðarlausri vinsemd. Hrein og bein tók hún mönnum og málefnum, verkefnum og vin- áttu. Oft dáðist ég að samskiptum hennar við börnin sín. Lillý talaði aldrei til þeirra öðruvísi en að úr orðum hennar lýsti skilningur á því að hver er með sínum hætti gerður, leiðbeindi þeim af hlýju en einurð og var þeim fordæmi í því hvernig heimili getur verið hlýtt og fallegt; hverjum manni griðastaður. Og sannarlega var Lillý tals- verður listamaður þegar að heim- ilinu kom. Hún hafði svo dæma- laust skemmtilegt lag á að breyta örlitlu hér og pínulitlu þar. Allt í einu var komin lítil falleg karfa, hengijurt eða sérkennilegt skraut nemendur í efri stigum fram og flytja verk eftir Bach, Hasse, Grétry, Turina, Kabalevsky, Breuer, Strauss, Arne, Britten, Williams, Godard, Ginastera, Lalo og Paderevsky. Þar koma fram 15 nemendur og leika á píanó, þverflautur, víbrafón, fiðlur, lágfiðlu, gítara og horn, og einnig flytja ein- söngsnemendur nokkur lög. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill svo lengi sem húsrúm leyfir. í glugga - alls staðar mátti sjá merki skapandi handa hennar. Á heimili Lillýar og Birgis ríkti andi gagnkvæmrar virðingar og ástúðar. Þeim auðnaðist það sem flesta dreymir um; að vera frjáls en þó bundin. Aðfinnslur um hvort annað voru þeim óþekktar, ágreiningsmál leyst af hlýju og vináttu. Lillý og Birgi varð fjögurra barna auðið. Baldur Óli sem lést ungur af slysförum breiðir nú út faðminn á móti móður sinni á öðru tilvistarstigi og leiðir hana þar fyrstu skrefin, en eftir lifa Börkur, Hlynur og Kristjana Ösp, hvert öðru ljúfari og mannvænlegri. í hörðu helstríði Lillýar sást best hvílfkan mann hún hafði að geyma og hvern arf hún skildi börnum sínum eftir. Þau um- vöfðu hana af þeirri ást og hlýju, sem hún hafði ræktað með þeim í gegnum alla þeirra samveru. Lýsti ég hér að framan samvist- um hennar og Birgis? Víst var það, en erfitt er að koma orðum að því á hve einstakan hátt hann annaðist konu sína í veikindum hennar. Það gerði hann með slíkri hlýju, einlægni og fölskva- lausri umhyggju að orð fá því ekki lýst. Seint og snemma dvaldi hann við sjúkrabeðinn og sat við hlið hennar þegar kveðjustundin rann upp. Ekki er hægt að minnast Lillý- ar á þessum tímamótum, að Kristjana Ösp komi ekki dögun- um oftar upp í hugann. Slíka dóttur eiga fáar konur. Enga unglingsstelpu veit ég hafa haldið mannkostamerki móður sinnar jafn hátt á lofti og þessi litla stúlka þar sem hún stóð óhaggan- leg við hlið föður síns á þessum sáru tímum. Þrek hennar, kær- leikur og umhyggja fyrir foreldr- um sínum, vekur djúpa virðingu og aðdáun. Það er sælt að mega sofna frá vitneskjunni um að hafa skilað dóttur sinni ungri til slíks þroska. Birgi og börnum þeirra Lillýar, aldraðri móður hennar og ætt- Annan hvítasunnudag verður sérstök athöfn í Akureyrar- kirkju, þar sem eldri fermingar- börn eru hvött til þátttöku. Um árabil hefur þessi háttur verið hafður á og er tilgangur þess að minnast fermingarinnar og gefa eldri fermingarbörnum tækifæri til að hittast og endurnýja vináttu og kynni. Á undanförnum árum hafa margir lagt leið sína í Akureyrar- kirkju í þessum tilgangi og átt síðan saman ánægjulega sam- verustundir. Það er skemmst að minnast þess stóra hóps sem fermdist í Akureyrarkirkju 1948 og hittist á síðastliðnu ári, en margir komu þá langt að. Að þessu sinni er sérstaklega kallað til þeirra sem eiga 10, 20, 30 og 40 ára fermingarafmæli, en flest þeirra eru fædd 1965, 1955, 1945 og 1935. Önnur fermingar- börn og aðrir eldri sem yngri eru að sjálfsögðu velkomnir. Guðs- þjónustan hefst kl. 11.00, en að mennum bið ég styrks frá kær- leiksríku almættinu. Megi hún hvíla í friði. Helga Ágústsdóttir. Þú guð sem þjáðra þrautir skilur og þerrar sorgartár, oss gef að þinnar ástar ylur vor allra lækni sár. Og lát þú vora veiku hljóma oss varða leið að dýrðarþinnarljóma svo gegnum sérhvert skuggaský oss skíni sól þín, björt og hlý. Jón í Garði Á þessu kalda vori hefur dauð- inn kvatt dyra hjá konu í blóma lífsins. Öll eigum við erfitt með að skilja þau rök tilverunnar sem liggja þar að baki. Það eina sem við vitum er sá kaldi veruleiki sem við blasir. Það eina sem við eigum eftir eru minningarnar, ljúfar og hlýjar, og svo vonina um æðri heim þar sem ástvinir mætast í fyllingu tímans. Á þessum dapurlegu tímamót- um streyma minningarnar fram í hugann, minningar um liðnar samverustundir með Lillý, frænku og vinkonu. Til hennar var gott að koma - vináttan var falslaus og traust og látin í té af örlæti og hlýju. Öll framkoma hennar einkenndist af látleysi og éinstakri hógværð hjartans. Kímnin yar aldrei langt undan - kímni sem var full velvildar og skilnings þeirrar manneskju sem hafði kynnst lífinu sjálfu, gleði þess og sorgum. Nú þegar leiðir skiljast sendum við Birgi og börnunum svo og öðrum aðstandendum innilegar samúðarkveðjur og biðjum þeim guðsblessunar. Lilla og Óttar henni lokinni verður safnaðar- heimilið nýja opið til sýnis fyrir þá sem það vilja. Skákfélag Akureyrar: Hraðskákmót og uppskeruhátíö Skákfélag Akureyrar stendur fyr- ir hraðskákmóti í kvöld, föstu- daginn 12. maí í Skákheimilinu á Akureyri. Keppt verður um Amaro-bfkarinn. Öllum er heimil þátttaka í þessu móti, en það hefst kl. 20.30 í Skákheimilinu. Auk hraðskákmótsins, stendur Skákfélag Akureyrar fyrir upp- skeruhátíð á morgun, laugardag, fyrir börn og unglinga. Þar fer m.a. fram verðlaunaafhending fyrir mót sem farið hafa fram frá áramótum, auk þess sem annað verður sér til gamans gert. Tónlistarskólinn á Akureyri: Tvennir tónleikar í Gagnfræðaskólanum - á morgun laugardag Fermingarafinæli í Akureyrarkirkju

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.