Dagur - 12.05.1989, Blaðsíða 15
íþróftir
Föstudagur 12. maí 1989 - DAGUR - 15
íþróttir helgarinnar:
Badminton og flmleikar
- golf og margir æfingaleikir í knattspyrnu
Það sem hæst ber á íþrótta-
sviðinu eru Akureyrarmót í
badminton og fimleikum.
Badmintonmótið hefst í kvöld
í íþróttahöllinni og fimleika-
mótið er einnig í kvöld í Gler-
árskóla. Þess má einnig geta
að Ijölmargir æfingleikir fara
fram í knattspyrnunni um helg-
ina.
Akureyrarmót í badminton
verður haldið í íþróttahöllinni á
föstudag og laugardag. Keppt
verður í fullorðinsflokkum á
föstudagskvöldið og í unglinga-
flokkum á laugardag.
Keppnin hefst í dag föstudag,
kl. 18.00 og verður keppt í A, B,
og Öðlingaflokki (40 ára og
eldri). Á laugardaginn hefja
unglingaflokkarnir keppni kl.
10.00.
Akureyrarmót í fimleikum
hefst í íþróttahúsi Glerárskóla í
kvöld föstudag kl. 18.30. Keppt
verður í 4. stigi og koma tveir
dómarar sérstaklega frá Reykja-
vík til þess að dæma á þessu
móti.
Golfmenn halda áfram að slá
kúluna á Melgerðismelum þessa
helgina og það verða haldin þrjú
opin golfmót þar nú yfir Hvíta-
sunnuna. Fyrsta mótið hefst á
laugardag kl. 10.00 og fer skrán-
ing fram í Golfskálanum að
Jaðri. Búið er að stækka völlinn
úr sex í níu holur og eru þessi
mót opin öllum kylfingum norð-
an heiða.
Fjölmargir æfingaleikir fara
fram í knattspyrnunni og er
íþróttasíðunni kunnugt um eftir-
talda leiki; Þórsarar leika tvo leiki
við ÍK á laugardag og hefst fyrri
leikurinn kl. 10.30 og sá síðari
kl. 12.00. Leikirnir fara að öllum
líkindum fram á Þórsvellinum,
en ef ekki þá fara þeir fram á
Sana-vellinum.
Á Sauðárkróki er mikið um að
vera. KS kemur og keppir við
heimamenn í kvöld, föstudag, kl.
19.30. KA fer síðan ,i Sauðár-
krók og keppir 2. flokkur félags-
ins fyrst við Tindastól á laugar-
dag og síðan á hvítasunnudag
mætast meistaraflokkar félag-
anna og hefst sá leikur kl. 15.00.
Malarvöllurinn á Króknum kom
vel undan vetri og er líklegast
einn sá besti á Norðurlandi um
þessar mundir.
Dalvík keppir við UMSE-b á
Sana-vellinum kl. 10.30 á laugar-
dag og Reynir keppir við TBA á
sama velli kl. 14.30. á laugardag.
Bræðurnir Ginar ug Karl Karlssynir keppa á Akureyrarmótinu í badminton.
Hér sést Einar munda spaðann á móti fyrir nokkru.
Knattspyrna:
Verður Ormarr sóttur?
Sigurði O. Sigurðssyni og Erni Arnarsyni er boðið í æfingabúðir í Englandi.
Golf:
Sigurði og Erni
boðið til Englands
- í æfmgabúðir
Tveimur ungum og efnilegum
kylfingum, Sigurði Oddi Sig-
urðssyni og Erni Arnarsyni, úr
Golfldúbbi Akureyrar hefur
verið boðið til Englands í
æfingabúðir. Þeir munu dvelja
á Sunridge Park rétt fyrir utan
London í 10 daga og fara út 21.
maí.
Boðið er á vegum Jóhanns Sig-
urðssonar og GSÍ og fara í allt 10
íslenskir golfunglingar í þessar
æfingabúðir.
1X21X21X21X21X21X21X21X21X2
Topparnir mœtast
Skúli Jónasson þurfti ekki lengi að hafa áhyggjur af því að vera
í getraunaleiknum fram á sumar því Jón Sigurðarson forstjóri
sá til þess að Skúli fær aö hvíla sig í sumarfríinu. Jón hefur nú
skorað á Aöalstein Helgason aðstoðarforstjóra Álafoss sem er
af landsfrægri íþróttaætt úr Þingeyjarsýslu. Jón segir að Aðal-
steinn hafi numið enska knattspyrnu í 35 ár og nú ætli hann að
kanna hve vel sá lærdómur hafi skilað sér.
Aðalstein setti hljóðan er hann heyrði hvað Jón hafði sagt,
hugsaði sig um í nokkurn tíma en sagði svo: „Spyrjum að leiks-
lokum," og nú sjáum við til á laugardaginn er mætast stálin
stinn hjá toppunum í fyrirtækinu.
Jón
Arsenal-Derby 1
Aston Villa-Coventry 2
Everton-West Ham 1
Luton-Norwich 2
Man.Utd.-Newcastle 1
Millwall-Southampton 1
Nott.For.-Charlton 1
QPR-Tottenham x
Sheff.Wed.-Middlebro 1
Wimbledon-Liverpool 2
Ipswich-Blackburn 1
Oxford-Watford 2
Aðalsteinn:
Arsenal-Derby 1
Aston Villa-Coventry x
Everton-West Ham 2
Luton-Norwich 2
Man.Utd.-Newcastle 1
Millwall-Southampton 1
Nott.For.-Charlton 1
QPR-Tottenham x
Sheff.Wed.-Middlebro 1
Wimbledon-Liverpool 2
Ipswich-Blackburn 1
Oxford-Watford x
1X21X21X21X21X2 1X2 1X21X21X2
- „inni í myndinni“ segir Stefán Gunnlaugsson formaður
Eins og flestum er kunnugt um
dvelur nú knattspyrnumaður-
inn góðkunni Ormarr Örlygs-
son við nám í V.-Þýskalandi og
er ekki væntanlegur til lands-
ins fyrr en um mánaðamótin
júní-júlí. Nú eru uppi hug-
myndir meðal KA-manna að
ná í drenginn í einhverja leiki
fyrir þann tíma.
Stefán Gunnlaugsson formað-
ur knattspyrnudeildar KA stað-
festi í samtali við Dag að þessi
hugmynd hefði komið upp á yfir-
borðið en ekkert væri ákveðið í
þeim efnum. „Við erum með
góðan hóp eins og sigurinn í
Tactic-mótinu sýndi. Ormarr er
öflugur leikmaður en þetta veltur
mikið á því, hvernig þeir leik-
menn sem við höfum koma út í
sambandi við meiðsli og leik-
bönn, hvort farið verður út í það
að ná í hann til Þýskalands,“
sagði formaðurinn.
Ekki náðist í Ormarr í Þýska-
landi þrátt fyrir miklar símhring-
ingar en Stefán sagði að þetta
hefði verið rætt við Ormarr og
væri hann ekki afhuga þessari
ráðagerð. „Reyndar æfir hann nú
eingöngu á grasi þannig að ekki
Esso-mót
hjáKA
- fyrir 5. flokk
Hið árlega Esso-knattspyrnu-
mót KA fyrir 5. flokk karla
verður haldið dagana 30.6.-
2.7. Keppt verður í flokki a og
b liða og má búast við þátttöku
rúmlega 20 liða.
Verðlaunapeningar verða
veittir fyrir 1., 2. og 3. sætið og
einnig verður haldið innanhúss-
mót í „bandí“ með útsláttarfyr-
irkomulagi.
Frítt verður í sund fyrir þátt-
takendur á mótinu alla dagana og
einnig verður aðstaða til ýmissa
leikja, t.a.m. hestaleiga, minigolf
o.fl.
Þátttökutilkynningar skulu
berast KA fyrir 1. júní og skal þá
greiða þáttökugjald, 5000 kr.,
fyrir lið og er það óendurkræft.
Hægt er að hafa samband við
Gunnar Kárason í síma 21866
eða 22052, Magnús Magnússon í
síma 22543 eða 26260 eða Svein
Brynjólfsson í síma 25606 eða
25885.
væri mikið vit í því að ná í hann í
malarleiki, en einhverja grasleiki
er alveg inni í myndinni,“ sagði
Stefán.
Erlingur Kristjánsson verður í
leikbanni í fyrsta leik KA gegn
FH á útivelli sunnudaginn 21.
maí. Ekki er ólíklegt að Jón
bróðir hans taki stöðuna í vörn-
inni, en Jón stóð sig mjög vel á
Tactic-mótinu fyrr í þessum mán-
uði.
Annars eru allir heilir í liðinu,
nema hvað Þorvaldur Örlygsson
hefur átt við minniháttar meiðsli
að stríða en ætti að vera orðinn
góður fyrir mótið.
Nú er einungis rúm vika þar til
fyrsta umferðin í 1. deildinni fer
fram. Þá mætast Þór og Víkingur
á Akureyri, FH og KA í Hafnar-
firði, ÍBK og Valur í Keflavík,
KR og ÍA í Reykjavík og Fram
og Fylkir í Laugardalnum.
Margir eru farnir að spá og
spekúlera unt úrslit íslandsmótsins
og virðast menn yfirleitt vera
sammála um það að baráttan um
íslandsmeistaratitilinn standi á
milli Framara og Valsmanna og
e.t.v. KR-inga. Síðan virðast
rnenn hafa trú á því að KA og ÍA
muni fylgja í humátt á eftir þess-
um liðunt.
Eins og ævinlega þá eru knatt-
sp'yrnuáhugamenn varkárari í
sambandi við fallið. Margir virð-
ast telja að Þórsarar muni ekki ná
að jafna sig eftir að hafa misst
þetta marga menn en þeir bölsýn-
ismenn eru nú flestir sunnan
heiða. Keflvíkingar eru óskrifað
blað en eiga trúlega í erfiðleikum
í ár. Nýju liðin FH og Fylkir munu
berjast hart fyrir sætum sínum og
ættu a.nt.k. FH-ingar að geta
spjarað sig því þeir eru með svip-
aðan mannskap og var í 1. deild-
inni fyrir tveimur árum síðan.
Laugardagur kl. 13:45
19. LEIKVIKA- 13. MA11989
Leikur 1 Arsenal
- Derby
Leikur 2 Aston Villa - Coventry
Leikur 3
Everton
- West Ham
Leikur 4
Luton
Norwich
Leikur 5 Man. Utd. - Newcastle
Leikur 6 Millwall
- Southampton
Leikur 7
Nott. For.
Charlton
Leikur 8 Q.P.R.
Tottenham
Leikur 9 She«. Wed. - Middlesbro
Leikur 10 Wimbledon - Liverpool
LeikurH Ipswich
Blackburn
Leikur 12 Oxford
Watford
Símsvari hjá getraunum á
laugardögum eftir kl. 16:15 er
91-84590 og -84464.