Dagur - 19.05.1989, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Föstudagur 19. maí 1989
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 900 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 80 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 595 KR.
RITSTJÓRI:
BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
ANDRÉS PÉTURSSON (íþróttir),
BJÖRN JÓHANN BJÖRNSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960),
EGILL H. BRAGASON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON
(Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík),
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
UÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RlKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRlMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Hugarfarsbreyting
í umhverfismálum
Umhverfismál hafa verið mjög í sviðsljósinu á
síðustu árum, ekki síst víða erlendis þar sem
öflug umhverfis- og náttúruverndarsamtök hafa
sprottið upp og stofnaðir hafa verið stjórnmála-
flokkar beinlínis í kringum þessi mál. Þessi þró-
un er að mörgu leyti af hinu góða en vissulega
hefur borið á öfgafullum málflutningi og aðgerð-
um hjá sumum umhverfisverndarsamtökum og
málstaður þeirra því æði mótsagnakenndur.
Hins vegar er sjálfsagt að slík samtök beiti sér
gegn mengun sjávar, útrýmingu á sjaldgæfum
dýrum, eyðingu regnskóga, tilraunum með
kjarnorku- og efnavopn, eyðingu ósonlagsins
o.s.frv. og að um þessi mál myndist breið sam-
staða þeirra sem jörðina byggja.
íslendingar hafa kynnst því mæta vel hve
náttúran er viðkvæm, gróðureyðing og upp-
blástur eru skýr dæmi um hverfulleika íslenskr-
ar náttúru. Skógar og ræktuð lönd hafa minnkað
eða horfið á stórum landssvæðum en tilraunir til
landgræðslu hafa borið árangur þótt ekki hafi
þær verið umfangsmiklar. Margt bendir nú til
þess að hugarfar landsmanna hafi verið að
breytast á síðustu árum og æ fleiri benda nú á
nauðsyn þess að græða landið og berjast gegn
náttúruspjöllum. Æ fleiri sýna líka þennan vilja í
verki. Sveitarfélög verja stærri hluta tekna sinna
til ræktunar og fegrunar og fyrirtæki gefa fé eða
plöntur til gróðursetningar. Hækkun framlags
bæjarstjórnar Ólafsfjarðar til fegrunarátaks og
stórgjöf Hitaveitu Dalvíkur til skógræktarátaks
eru nýleg dæmi um þessa þróun.
Margt smátt gerir eitt stórt en þó er nauðsyn-
legt að stjórnvöld á íslandi gangi á undan í því
að stuðla að varðveislu landsins og að sporna
gegn mengun og náttúruspjöllum. Það hlýtur að
vera orðið tímabært að koma á fót umhverfis-
ráðuneyti þar sem umhverfismálum er stjórnað
af einhug og festu til jafns við önnur mikilvæg
málefni.
En þótt yfirstjórn umhverfismála og ríflegar
fjárveitingar séu nauðsynlegar þá verður hug-
arfarsbreytingin að ná til íbúa landsins. Hver
maður verður að líta í eigin barm og hugleiða
hvað hann getur gert sjálfur til að fegra um-
hverfið. Samstaða fólksins um góða umgengni
er árangursríkasta og ódýrasta lausnin á
umhverfisvandamálum. Bætum umgengnis-
venjur okkar, sýnum náttúrunni virðingu og
hvetjum aðra til að gera slíkt hið sama. Fegrum
okkar nánasta umhverfi, húsið, lóðina, gang-
stéttina og innan skamms verður sveitarfélagið
allt skínandi hreint. SS
Kjarnalundur.
Framkvæmt á fullu í Kjarnalundi:
Stefiit að góðu samstarfi
við heilsuhælið í Hveragerði
í vetur hefur verið unnið af
fullum krafti í Kjarnalundi,
húsi NLFA og í haust er vonast
til að innréttingar á fyrstu
tveimur hæðum hússins verði
komnar langt á veg. Haukur
Berg formaður bygginganefnd-
ar segir að þrátt fyrir það hafi
ekki verið tekin ákvörðun um
hvenær starfsemi hefjist, „við
viljum helst taka allt húsið í
notkun í einu.“
Þessa dagana er verið að ljúka
vinnu við grunnmálun og ganga
frá loftum á efstu hæðinni. Pá er
verið að leggja miðstöðvarofna í
allt húsið. Því næst verður hafist
handa við smíði innréttinga og
vinnu við loftræstikerfi og
„fölsku loftin“ og sett upp skil-
rúm í kjallara og á fyrstu hæð.
„Þetta er mikið stökk hjá okk-
ur núna, en við munum fram-
kvæma í sumar fyrir nokkrar
milljónir," sagði Haukur. Það
sérstaka við byggingu húss
NLFA er að fram til þessa hefur
ekki verið tekin ein króna að láni
Öllu starfsfólki
Hornbrekku í Ólafsfirði
sagt upp:
Stefiit að ným
vaktskráfráog
með 1. ágúst
Öllu starfsfólki Hornbrekku,
dvalarheimilis aldraðra í Ólafs-
firði, var sagt upp frá síðustu
mánaðamótum. Miðað er við
að nýta þriggja mánaða upp-
sagnarfrest til að Ieita leiða til
að hagræða í rekstri og koma
til móts við tilmæli ráðuneyti
heilbrigðismála um 4% sparn-
að í launakostnaði í heilbrigð-
isgeiranum.
Að sögn Kristjáns Jónssonar,
framkvæmdastjóra Hornbrekku,
má búast við að frá og með 1.
ágúst verði tekin upp ný
vaktskrá. Hann sagði ekki ljóst
hvort til fækkunar starfsfólks
þyrfti að koma. „Við erum ekki
búin að fara í saumana á þessu en
ég býst við að þurfi að fækka
örlítið. Það verður að minnsta
kosti einhver breyting á stöðu-
gildum,“ sagði Kristján.
til byggingarinnar og er takmark-
ið að halda þeirri stefnu. Helsta
tekjulind félagsins var arfur sem
því áskotnaðist auk 2 milljón
króna gjafar frá ónafngreindum
manni. Þá hafa streymt inn gjafir
frá félagasamtökum og einstakl-
ingum, auk öflugrar fjáröflunar-
starfsemi félagsmanna.
Þegar húsið verður fullbúið,
verða þar rúm fyrir 53 vistgesti í
einu og er stefnt að því að reka
Á Hvammstanga er verið að
hrinda af stað átaksverkefni í
atvinnumálum. I tilefni af því
verður haldinn kynningarfund-
ur í kvöld, föstudagskvöld, í
Félagsheimilinu á Hvamms-
tanga. Fundurinn hefst kl.
20.30. Hugmynd um átaks-
verkefni á Hvammstanga hefur
verið á sveimi sl. ár, en það var
í vetur sem Verkalýðsfélagið
Hvöt á staðnum ýtti verkefn-
inu af stað með því að leggja
500 þúsund krónur í það. í
kjölfarið kom framlag Hvamms-
tangahrepps upp á sömu upp-
hæð og síðan hafa fleiri aðilar
lagt sitt af mörkum, þ.á m.
INVEST og Kaupfélag V-
Húnvetninga. Þá er héraðs-
nefnd V-Húnavatnssýslu að
athuga hvort sveitahrepparnir
geti verið með.
Áður en Hvöt setti verkefnið
af stað, höfðu farið fram árang-
urslausar tilraunir um að fá
Byggðastofnun til að styrkja
átaksverkefnið. Hins vegar hefur
Iðntæknistofnun tekið vel í það
að koma inn í verkefnið, þegar
það verður komið í gang. Á
fundinum í kvöld mun fulltrúi frá
Iðntæknistofnun halda framsögu-
erindi, auk fjögurra heima-
manna.
Að sögn Helga S. Ólafssonar,
formanns verkefnisstjórnar,
verður átakið kynnt í kvöld, auk
þess sem kosin verður undirbún-
ingsnefnd að svokallaðri leitar-
það með svipuðum hætti og
heilsuhælið í Hveragerði, en þar
eru venjulega fleiri hundruð
manns á biðlista eftir að komast
að. Haukur segir þá vera í ágætu
samstarfi við félagana í Hvera-
gerði og að vonast sé til að þeir
muni styrkja uppbygginguna á
Akureyri. „Það er stefnt að því
að um gott samstarf verði að
ræða við þá í Hveragerði og að
við rekum þetta saman.“ VG
ráðstefnu, sem verður á
Hvammstanga í lok júní nk. Á
ráðstefnunni verður leitað eftir
hugmyndum frá fyrirtækjum og
einstaklingum um nýbreytni í
atvinnulífinu, af einhverju tagi.
„Við erum í þann veginn að ráða
verkefnisstjóra, sem kemur til
með að vinna ráðgjafastörf og
hafa yfirsýn yfir átaksverkefnið.
Að lokinni leitarráðstefnunni
verða settir saman starfshópar í
kringum eitt ákveðið verkefni, og
verkefnisstjórinn mun aðstoða
þessa hópa og halda þeim heit-
um,“ sagði Helgi.
Fram kom hjá Hclga að fyrir-
hugað væri að halda verkefninu
úti í 2 ár. „Við verðum með allar
dyr opnar fyrir hugmyndum og
vonumst til að átakið verði vakn-
ing meðal heimamanna um
atvinnumál,“ sagði Helgi að
lokum. -bjb
Sleipnir:
Leiðrétting
Ranghermt var í Degi í gær að
verkfall hefði skollið á hjá félags-
mönnum í Sleipni, félagi áætlun-
ar- og hópferðabílstjóra. Samn-
ingar tókust með þeim og vinnu-
veitendum þeirra á miðnætti í
gær, en viðmælendur Dags töldu
ekki útlit fyrir að samningar næð-
ust þegar umrædd frétt var skrif-
uð.
Kynningarfundur á Hvammstanga í kvöld:
Um átaksverkefni
í atvinmimálum
- nokkrir aðilar hafa þegar lagt til prmagn