Dagur - 19.05.1989, Blaðsíða 10

Dagur - 19.05.1989, Blaðsíða 10
10 - DÁGUR - Föstudagur 19. maí 1989 ÁRLAND f/ myndosögur dogs 1 ANDRÉS ÖND HERSIR Ekki giftast manni sem á bát. Flýttu þér að koma með þetta drasl! BJARGVÆTTIRNIR # Ekkert einsdæmi f gær var Smátt og stórt helgað Hlíðarbraut og göngubrú yfir Glerá. í því sambandi er vert að geta þess að Hlíðarbrautin er ekkert einsdæmi því gang- andi vegfarendur hafa ávallt verið látnir sitja á hakanum á Akureyri. Fyrir allmörgum árum voru götur reyndar ekki malbikaðar í nýjum hverfum fyrr en eftir dúk og disk en þar hefur breyting orðið á. Hús rísa, hverfi byggjast upp og götur eru malbikaðar en gangstéttir sjást ekki. Það hefur yfirleitt tekið Akureyrarbæ 10 ár að ganga frá gangstéttum, þ.e. eftir að fólk er flutt í nýja húsið þarf það að bíða í ára- tug eftir gangstétt. Sumir segja þetta kannski ekkert stórmál en menn verða að gera sér grein fyrir því að þegar möl eða mold er við götubrún þá berast óhrein- indi á malbikaðar göturnar, inn í hús og síðan þyrlast rykið upp í roki. Nær væri að hugsa um að loka svæð- um í nýjum hverfum, núver- andi ástand flokkast undir sóðaskap. Akureyri er sóða- legur bær. Ný hverfi eru umlukin ryki og drullu árum saman, m.a. vegna þess að ekki er gengið frá gangstétt- um. • Lítiðá Síðuhverfi Hollt væri fyrir forráðamenn bæjarins að aka eða skokka um Síðuhverfi. Leið þeirra liggur vissulega eftir mal- bikuðum götum en göturnar eru þaktar sandi og grjóti. Krakkarnir leika sér í grjót- kasti á götunum. Grjótin spýtast undan dekkjum bíla. Enginn sést á ferli á ófærum og ómalbikuðum gangstéttunum. Fólkið gengur á götunni. Gangandi fólk, bílar, börn að leik; allt í einni kös á götunni. Rigning. Allt vaðandi í druliu. Rok. Rykið lemur bíla og hús, smýgur inn á heimilin. Gönguferð til ömmu á Brekkunni. Lífs- hættuleg spor eftir Hliðar- braut. Bílarnir aka á 70-100 km hraða. Ókeypis sturta ef gatan er blaut. Maður sætir lagi við að komast yfir brúna, klesstur upp við handriðið. Gönguferðum til ömmu fækkar. Bíllinn er það eina sem dugir, blessuð sé blikkbelja vor. dagskrá fjölmiðla Sjónvarpið Föstudagur 19. maí 17.50 Gosi (21). 18.15 Litli sægarpurinn. (Jack Holbom.) Fyrsti þáttur. Nýsjálenskur myndaflokkur í tólf þáttum. Aðalhlutverk: Monte Markham, Terence Cooper, Matthias Habich og Patrick Bach. Jack Holborn er munaðarlaus piltur sem strýkur að heiman og felur sig í skipi er liggur við festar í höfninni. Þegar út á rúmsjó er komið kemst hann að raun um að þetta er sjóræningjaskip. 18.45 Táknmálsfréttir. 18.50 Magni mús. 19.05 Ærslabelgir. (Comedy Capers - Union Station.) A brautarstöð. Stutt mynd frá tímum þöglu myndanna. 19.20 Benny HiU. 19.50 Tommi og Jenni. 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Fiðringur. Hvað verður um okkur? Þáttur fyrir ungt fólk í umsjón Bryndísar Jónsdóttur. 21.05 Derrick. 22.10 Smáþjóðaleikarnir á Kýpur. 22.30 Fallvölt frægð. (The Harder They Come.) Jamaísk bíómynd frá 1973. Aðalhlutverk: Jimmy Cliff, Carl Bradshaw, Janet Bartley og Bobby Charlton. Reggaesöngvari heldur til stórborgarinn- ar í leit að frægð og frama. Hann á erfitt uppdráttar og frægðin lætur á sér standa. í myndinni eru flutt mörg vinsæl reggae- lög eftir Jimmy Cliff og fleiri. 00.10 Útvarpsfréttir í dagskrárlok. Sjónvarp Akureyri Föstudagur 19. maí 16.45 Santa Barbara. 17.30 Feðgar í klípu. (So Fine.) Gamanmynd um prófessor sem rænt er af glæpamanni sem vonast til að fá aðstoð hans við að bæta fyrirtæki sitt. Eiginkona glæpamannsins gleðst einnig yfir komu prófessorsins því hún telur að hann muni fylla skarð eiginmannsins. 19.00 Myndrokk. 19.19 19.19. 20.00 Teiknimynd. 20.10 Ljáðu mér eyra ... 20.40 Bernskubrek. (The Wonder Years.) 21.10 Syndin og sakleysið.# (Shattered Innocence.) Átakanleg mynd sem er lauslega byggð á ævisögu klámdrottningarinnar Shauna Grant. Aðalpersóna myndarinnar, Pauleen, er unglingsstúlka sem hefur hlaupist að heiman. Hana dreymir um frægð og frama en í einfeldni sinni ratar hún inn á brautir kláms og eiturlyfja. Áður en langt um líður er hún orðin þræll klámmyndaframleiðenda og hórumang- ara en staða hennar breytist þegar hún kynnist eiturlyfjasalanum, Mel, sem er staðráðinn í að hafa sig upp úr eymdinni. Hann tekur Pauleen með sér í viðskipta- ferð og allt virðist leika í lyndi þar til Mel er handtekinn og Pauleen stendur uppi slipp og snauð og hefur ekki í nein hús að venda. Aðalhlutverk: Melinda Dillon, Jonna Lee, John Plashette, Dennis Howard og Nadine van der Velde. Alls ekki við hæfi barna. 22.50 Bjartasta vonin. (The New Statesman.) 23.15 Einn á móti öllum.# (Only the Valiant.) Svart/hvítur vestri með glæsimenninu Gregory Peck í hlutverki Lance herfor- ingja, sem sætir harðvítugri gagnrýni frá hermönnum sínum þegar einn úr þeirra röðum er felldur í bardaga við apatsji- indíána. Lance er sakaður um að hafa vísvitandi sent hermanninn út í opinn dauðann en hann og hinn fallni hermaður höfðu báðir haft augastað á sömu stúlk- unni. Lance sem aðeins hlýddi skipunum yfirboðara sinna, á fullt í fangi með að hreinsa sig af þessum áburði og öðlast traust að nýju hjá hermönnunum og stúlkunni sem hann ann. Aðalhlutverk: Gregory Peck, Barbara Payton og Gig Young. Ekki við hæfi barna. 01.00 Furðusögur II. (Amazing Stories II.) Þrjár spennandi sögur með gamansömu ívafi úr furðusagnabanka meistara Spiel- bergs. Aðalhlutverk: Lukas Haas, Gregory Hines, Danny DeVito, o.fl. Alls ekki við hæfi barna. 02.10 Dagskrárlok. # Táknar frumsýningu á Stöð 2. Rás 1 Föstudagur 19. maí 6.45 Veðurfregnir - Bæn. 7.00 Fréttir. 7.03 í morgunsárið með Sólveigu Thorarensen. Lesið úr forystugreinum dagblaðanna að loknu fréttayfirliti kl. 8.30. 9.00 Fréttir. 9.03 Litli barnatíminn: „Á Skipalóni" eft- ir Jón Sveinsson. Fjalar Sigurðsson les (5). 9.20 Morgunleikfimi. 9.30 Kviksjá - „Söngvar Svantes". Síðari þáttur. 10.00 Fréttir • Tilkynningar. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Maðurinn á bak við bæjarfulltrúann. Umsjón: Erna Indriðadóttir. (Frá Akur- eyri.) 11.00 Fréttir. 11.03 Samhljómur. 11.53 Dagskrá. 12.00 Fréttayfirlit • Tilkynningar. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Veðurfregnir • Tilkynningar. 13.05 í dagsins önn - Biðraðir. 13.35 Miðdegissagan: „Brotið úr töfra- speglinum" eftir Sigrid Undset. Þórunn Magnea Magnúsdóttir les (17). 14.00 Fréttir • Tilkynningar. 14.05 Ljúflingslög. 15.00 Fréttir. 15.03 „Vísindin efla alla dáð." 16.00 Fréttir. 16.03 Dagbókin. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvarpið. 17.00 Fréttir. 17.03 Tónlist á síðdegi - Rossini, Lortzing og Halvorsen. 18.00 Fréttir. 18.03 Tónlist • Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Tilkynningar. 19.33 Kviksjá. 20.00 Litli barnatíminn. 20.15 Hljómplöturabb. 21.00 Norðlensk vaka. Umsjón: Haukur Ágústsson. (Frá Akur- eyri.) 22.00 Fréttir ■ Dagskrá morgundagsins • Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Danslög. 23.00 í kvöldkyrru. Þáttur í umsjá Jónasar Jónassonar. 24.00 Fréttir. 00.10 Samhljómur. 01.00 Veðurfregnir. Rás 2 Föstudagur 19. maí 7.03 Morgunútvarpið. 9.03 Stúlkan sem bræðir íshjörtun, Eva Ásrún. 11.03 Stefnumót. Jóhanna Harðardóttir tekur fyrir það sem neytendur varðar. 12.00 Fréttayfirlit • Auglýsingar. 12.15 Heimsblöðin. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Umhverfis landið á áttatíu. Gestur Einar Jónasson leikur þraut- reynda gullaldartónlist og gefur gaum að smáblómum í mannlífsreitnum. 14.05 Milli mála, Óskar Páll á útkíkki. 16.03 Dagskrá. 18.03 Þjóðarsálin. 19.00 Kvöldfróttir. 19.33 Vinsældalisti Rásar 2. Tíu vinsælustu lögin. 20.30 Knattspyrnulýsing. Leik íslands og Englands lýst beint frá Laugardalsvelli. 22.07 Snúningur. 02.05 Rokk og nýbylgja. 03.00 Vökulögin. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30. Fréttir eru sagðar kl. 2, 4, 7, 7.30, 8, 8.30, 9, 10, 11, 12, 12.20, 14, 15, 16, 17, 18, 19, 22 og 24. Ríkisútvarpið á Akureyri Föstudagur 19. maí 8.07-8.30 Svæðisútvarp Norðurlands. 18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands. Bylgjan Föstudagur 19. maí 07.00 Þorgeir Ástvaldsson og Páll Þor- steinsson með morgunþátt fullan af fróðleik, frétt- um og ýmsum gagnlegum upplýsingum fyrir hlustendur, í bland við góða morgun- tónlist. 10.00 Valdís Gunnarsdóttir. Valdís er með hlutina á hreinu og leikur góða blöndu af þægilegri og skemmtilegri tónlist eins og henni einni er lagið. 14.00 Bjarni Ólafur Guðmundsson. Óskalögin, kveðjurnar, nýjustu lögin, gömlu góðu lögin - allt á sínum stað. Bjarni Ólafur stendur alltaf fyrir sínu. 18.10 Reykjavík síðdegis - Hvað finnst þér? Hvað er efst á baugi? Þú getur tekið þátt í umræðunni og lagt þitt til málanna í síma 611111. Þáttur sem dregur ekkert undan og menn koma til dyranna eins og þeir eru klæddir þá stundina. Steingrímur Ólafsson stýrir umræðunum. Fróttir kl. 8, 10, 12, 14, 16 og 18. Fréttayfirlit kl. 9, 11, 13, 15 og 17. 19.00 Freymóður T. Sigurðsson. Meiri tónlist - minna mas. 20.00 Ólafur Már Björnsson. Kynt undir helgarstemmningunni í viku- lokin. 22.00 Haraldur Gíslason. Harðsnúni Halli kann „helgartökin" á tónlistinni. Óskalög og kveðjur í símum 681900 og 611111. 02.00 Næturdagskrá. Hljóðbylgjan Föstudagur 19. maí 17.00-19.00 Fjallað um það sem er að ger- ast í menningu og listum um helgina á Akureyri. Stjómendur em Pálmi Guðmundsson og Axel Axelsson. Fréttir kl. 18.00.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.