Dagur - 19.05.1989, Blaðsíða 11
Föstudagur 19. maí 1989 - DAGUR - 11
Fyrsta starfsári Tonlistarskóla Eyja§arðar lokið:
Aðsókn að skólanum fór
fram úr björtustu vonum
Fyrir skömmu lauk fyrsta starfs-
ári Tónlistarskóla Eyjafjarðar.
Má með sanni segja, að aðsókn
að skólanum hafi farið langt fram
úr björtustu vonum aðstandenda
hans, þar sem 200 nemendur
voru skráðir í skólann. Voru
nemendur allir á grunnskólaaldri
og fór aðsóknin upp í að vera um
60% af nemendum í einum
grunnskólanum. Er það mál
manna, að aukið hafi verið við
nýrri vídd í sjóndeildarhring
barna á starfssvæði skólans.
í vetur var kennt á flest blást-
urshljóðfæri, píanó, orgel, gítar,
slagve'rk og auk þess störfuðu
forskóladeildir á öllum stöðum,
en kennt var í Þelamerkurskóla,
Hrafnagili, Sólgarði, Lauga-
landsskóla, Barnaskólanum Sval-
barðseyri og á Grenivík.
í flestum tilfellum fóru
nemendur út úr almennri bekkja-
kennslu í hljóðfæratímana. Gaf
það góða raun og var lítið um að
nemendur heltust úr lestinni á
miðri önn.
Starfsemi skólans lauk með
Norræn ráð-
stefiia um
málefiii
kvenna í fyrir-
tækjarekstri
Dagana 19.-21. maí nk. verður
haldin í Danmörku fyrsta nor-
ræna ráðstefnan um málefni
kvenna í fyrirtækjarekstri,
„Kvindelige Iværksættere í
Norden“.
„Markmiðið með samnorrænni
ráðstefnu er að safna þeirri þekk-
ingu sem til er um stöðu kvenna á
þessu sviði, líta til framtíðar og
velta fyrir okkur hvað við viljum,
hvernig við getum nýtt þetta nýja
afl í atvinnulífinu, til að byggja
upp betra samfélag fyrir okkur
öll,“ segir í fréttatilkynningu
vegna ráðstefnunnar.
Frumkvæðið að ráðstefnunni
og norrænu samstárfi á þessu
sviði er komið frá einstaklingum,
konum og körlum sem starfað
hafa að málefnum kvenna í
atvinnurekstri og konum sem
reka sjálfar fyrirtæki. Danskur
áhugahópur hefur haft veg og
vanda að þeirri vinnu, en í náinni
samvinnu við sérstaka fulltrúa
hinna Norðurlandanna. Haldnir
hafa verið nokkrir samnorrænir
undirbúningsfundir og hefur full-
trúi íslands í undirbúningsnefnd-
inni setið þá, þannig er nú þegar
orðið til norrænt net áhugafólks á
þessu sviði.
Vonast er til að ráðstefnan
megi verða til að hvetja yfirvöld
og almenning til að styðja við þá
jákvæðu þróun sem nú á sér stað
hjá konum sem í síauknum mæli
hasla sér völl á ýmsum sviðum
atvinnurekstrar.
Þátttakendur verða u.þ.b. 170
frá Norðurlöndunum fimm,
þ.á m. 14 frá íslandi: Konur sem
reka fyrirtæki; fólk sem unnið
hefur að stuðningi við konur sem
vilja stofna eða reka fyrirtæki; og
áhugasamir stjórnmálamenn og
embættismenn. Einnig er gert
ráð fyrir þátttöku fréttafólks frá
öllum Norðurlöndunum.
Ráðstefnan er styrkt af ríkis-
stjórnum allra fimm Norðurland-
anna, og norrænum sjóðum.
þrennum vortónleikum, þar sem
flestir nemendur skólans komu
fram, auk þess sem lúðrasveit
skólans lék á öllum tónleikunum.
Eftir þessa góðu byrjun hyggst
skólinn færa út kvíarnar, bæði
með því að fjölga námsgreinum,
svo og með því að bjóða full-
orðnum upp á kennslu. Er ætlun-
in að bæta við fiðlukennslu,
harmonikukennslu og söng-
kennslu.
Við skólann störfuðu í vetur
fimm kennarar, auk skólastjóra,
Atla Guðlaugssonar, en búast má
við að þeim fjölgi um þrjá til
fjóra næsta skólaár, miðað við
þann fjölda nemenda, sem þegar
hefur skráð sig í nám næsta
vetur.
Allur akstur
krefst
varkárni
BKi
J^\FFE
Kynningr
í Hrísalundi
föstudaginn 26. maí
kl. 14.00-19.00 og
laugardaginn 27. maí
kl. 11.00-16.00
I
Kynningarverð
Heildverslun
Gunnars Hjaltasonar
Reyðarfirði
• Sími 97-41224
STAÐGREIÐSLA 1989
NÁMSMANNA-
SKATTKORT
Breytt fyrirkomulag
HVERJIR EIGA RÉTT
Á NÁMSMANNA-
SKATTKORTI?
Rétt á námsmannaskattkorti áriö
1989 eiga þeir námsmenn, fæddir
1973 eða fyrr, sem stundað hafa
nám á vormisseri og nýtt hafa lítið
sem ekkert af persónuafslætti sín-
um á þeim tíma og ekki flutt hann
til maka.
BREYTT ÚTGÁFU-
FYRIRKOMULAG
Sú breyting hefur verið gerð að
í ár þarf ekki að sækja sérstak-
lega um námsmannaskattkort
nema í undantekningartilvik-
um. Ríkisskattstjóri mun á grund-
velli upplýsingafráskólum um það
hverjir teljast námsmenn og frá
launagreiðendum um nýtingu
persónuafsláttar þeirra gefa út
námsmannaskattkort og senda til
þeirra sem rétt eiga á þeim í byrjun
júní nk.
Námsmenn við erlenda
skóla þurfa hins vegar að sækja
sérstaklega um námsmanna-
skattkorttil ríkisskattstjóra.
Útgáfu námsmannaskatt-
korta annast staðgreiðsludeild
ríkisskattstjóra, Skúlagötu 57,150
Reykjavík. Sími 91 -623300.
BREYTTUR GILDISTÍMI
Gildistíma námsmannaskatt-
kortsins hefur verið breytt. Nú er
heimilt að nota námsmannaskatt-
kortið frá útgáfudegi til og með 31.
desember 1989 í stað júní, júlí og
ágúst eins og áður.
Athugið að námsmanna-
skattkort gefin út á árinu 1988
eru ekki iengur í gildi.
BREYTT MEÐFERÐ
PERSÓNUAFSLÁTTAR
Á námsmannaskattkorti 1989
kemur fram heildarfjárhæð per-
sónuafsláttar sem kortið veitir rétt
til en ekki mánaðarleg fjárhæð
eins og áður. Við ákvörðun stað-
greiðslu korthafa ber launagreið-
anda að draga þennan afslátt frá
eftir þörfum þar til hann er upp-
urinn, samhliða persónuafslætti
námsmanns samkvæmt aðal-
skattkorti og skattkorti maka hans
ef þau eru afhent honum.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI