Dagur - 19.05.1989, Blaðsíða 6

Dagur - 19.05.1989, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Föstudagur 19. maí 1989 Tónlistarskólinn á Akureyri: D-blásarasveitin leikur við skólaslit á morgun - heimsfrægur stjórnandi í heimsókn kennslu blásara- og lúðrasveita. Hann hefur verið fremstur í flokki við uppbyggingu norskra lúðrasveita og í forsvari alþjóða- samtaka og félaga á því sviði. Sem útsetjari og tónskáld hefur hann öðlast mikinn frama og hafa 35 af verkum hans verið gefin út. Það er því mikill fengur fyrir Tónlistarskólann að fá hann til starfa og ekki síst fyrir D-blásara- sveitina sem er að búa sig undir þátttöku í heimskeppni hljóm- sveita í Kerkrade í Hollandi í sumar. Blásarasveitir skólans halda sína árlegu vortónleika í íþrótta- skemmunni mánudagskvöldið 22. maí kl. 20.30. Þar leika 4 blásarasveitir skólans undir stjórn Christopher Thornton, Robert C. Thomas og Roar Skólaslit Tónlistarskólans á Akureyri fara fram í Akureyr- arkirkju laugardaginn 20. maí kl. 17. Þar verða nemendum afhentar einkunnir og verð- laun veitt. Einnig verða veittir námsstyrkir úr Minningarsjóði Þorgerðar S. Eiríksdóttur. Við þetta tækifæri verður leik- ið á orgel, blokkflautur og fleiri hljóðfæri, auk þess sem D-blás- arasveit skólans mun leika undir stjórn Trevor J. Ford. Hann kemur hingað til lands frá Noregi til að leiðbeina og stjórna D- sveitinni á námskeiði sem fram fer í Tónlistarskólanum um helg- ina. Trevor J. Ford er heimsþekkt- ur maður á sviði stjórnunar og Trevor J. Ford. Rekstrarafkoma Eimskips neikvæð á 1. ársíjórðungi 1989 Á fyrsta ársfjórðungi voru heild- arflutningar Eimskips 293 þús- und tonn, en voru á sama tíma í fyrra 266 þúsund tonn. Flutning- ar jukust því um 10% í tonnum talið og má einkum rekja þessa auknu flutninga til meiri stór- flutninga og aukins útflutnings. Þrátt fyrir aukið flutningsmagn hefur rekstrarafkoma Eimskips verið slæm undanfarna mánuði. Afkoma félagsins var neikvæð urn nálægt 100 milljónir á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Þessi rekstrarhalli stafaði af lækkun flutningsgjalda og hækkun veiga- mikilla kostnaðarliða í skipa- rekstri. Mikil lækkun meðalflutnings- gjalda á undanförnum árum kemur skýrast fram í því að flutn- ingsmagn félagsins á milli áranna 1984 og 1988 hefur aukist um 33% á sama tíma og heildartekj- ur Eimskips á föstu verðlagi hafa einungis aukist um 2% á sama tímabili. Þessi lækkun hefur ver- ið möguleg vegna hagræðingar- aðgerða félagsins og ýmissa hag- stæðra rekstrarskilyrða í skipa- rekstri á undanförnum árum. Á undanförnum mánuðum hafa ýmsir kostnaðarliðir í skipa- rekstri hækkað verulega og má nefna að leiguverð á skipum og gámum hefur hækkað um allt að 75% á heimsmarkaði á einu ári. Þá hefur olíuverð hækkað mjög á árinu 1989 og vextir af erlendum lánum hafa hækkað um 30-40% á liðnu ári. Til að bregðast við þessum breyttu skilyrðum hefur félagið gripið til aðhaldsaðgerða, sem draga úr rekstrarkostnaði. Sett hefur verið ráðningabann og stefnt er að fækkun fastra starfsmanna og helmingsfækkun verður í suntarafleysingum mið- að við það, sem var á liðnu ári. Kvam, en heiðursstjórnandi á tónleikunum verður Trevor J. Ford. Heimsfrægur stjórnandi Trevor J. Ford fæddist í Tasman- íu árið 1931 en fluttist með for- eldrum sínum til Englands 1934. Sem drengur hlaut hann þjálfun f Lúðrasveit Konunglega sjóhers- ins og starfaði frá árinu 1948 á vegum hennar í Malaya og Aust- urlöndum nær og fjær. Árið 1959 var honum veitt stjórnandastarf við Lúðrasveit breska flotans, en árið 1964 flutti hann til Noregs og tók við starfi aðalstjórnanda Sambands norskra lúðrasveita. Starfssvið hans nær til kennslu, hljómsveitarstjórnar og sérstakra verkefna í hljóð- færakennslu. Árið 1973 hlaut Ford 2. verð- laun í alþjóðlegri keppni í útsetn- ingum fyrir lúðrasveitir. Hann hefur samið fjölmörg tónverk fyrir blásara og hafa 35 þeirra verið gefin út í Evrópu og Banda- ríkjunum. Auk þess hefur hann fengið boð um að semja sérstak- lega fyrir hollenska útvarpið, norræna tónlistarbandalagið og Uster tónlistarhátíðina í Sviss. Trevor J. Ford hefur samið ýmsar tónfræðibækur og er eftir- sóttur kennari og fyrirlesari víða um Bandaríkin óg Evrópu. Hann hefur setið í dómnefndum al- þjóðlegra tónlistarmóta, t.d. í danskri og norskri þjóðarkeppni, og einnig á heimsmótum í Ker- krade og víða um heim. Hann er stofnandi lúðrasveitar æskunnar í Noregi, hann endur- reisti bandalag norskra lúðra- sveitarstjórnenda og hann hefur verið fyrsti forseti alheimssam- bands blásarasveita. SS Hestaíþróttir: Tölvupappír Tölvupappír Tölvupappír Tölvupoppír Tölvupappír Tölvupappír Tölvupappír Tölvupappír Tölvupappír Tölvupappír Tölvupappír Dagsprent hf. Strandgötu 31 • E? 24222 Akureyri Baldvin Ari, Arnar og Elvar stigahæstu knaparnir - á páskamóti íþróttadeildar Léttis Páskamót ÍDL var haldið í síð- asta mánuði við Verkmennta- skólann á Akureyri. Mótinu var búið að fresta margoft vegna snjóa og veðurs en það var loks haldið á planinu við VMA helgina 16.-17. apríl. Mótið tókst í alla staði mjög vel og var mikil þátttaka eða um 130 skráningar. Mótið stóð í tvo daga og hófst keppni á laugardaginn með fjórgangi fullorðinna og lauk á sunnu- daginn með gæðingaskeiði. Þrír dómarar komu frá Dalvík þeir Stefán Friðgeirsson, Einar Hjörleifsson og Steinar Stein- grímsson og dæmdu þeir ásamt heimadómurum sem skiptust á að dæma hinar ýmsu greinar með þeim og eiga þeir þakkir skildar fyrir vel unnin störf. Einnig ber að þakka Baldvini Bjarnasyni skólameistara VMA fyrir að gera þetta mót mögulegt. Helstu úrslit á mótinu urðu þessi: Tölt fullorðinna: Stig 1. Baldvin Ari Guðiaugsson á Trygg 73,60 2. Eiður Mattíasson á Hrímni 68,80 3. Birgir Árnason á Stíganda 68,00 4. Jóhann G. Jóhannesson á Vin 66,13 5. Reynir Hjartarson á Dropa 62,93 Fjórgangur fullorðinna: Stig 1. Baldvin Ari Guðlaugsson á Trygg 47,60 2. Eiður Mattíasson á Klúbb 45,05 3. Birgir Árnason á Stjarna 41,48 4. Mattías Eiðsson á Jarli 40,63 5. Jóhann G. Jóhannesson á Vin 42,16 Fimmgangur fullorðinna: Stig 1. Örn Grant á Krumma 49,20 2. Þorvar Þorsteinsson á Nökkva 44,60 3. Ragnar Ingólfsson á Orra 47,40 4. Reynir Hjartarson á Blæju 45,60 5. Mattías Eiðsson á Kóng 44,60 Gæðingaskeið fullorðinna: Stig 1. Sigurður Á. Snorrason á Nubb 68,00 2. Örn Grant á Krumma 67,00 3. Baldvin Ari Guðlaugsson á Garpi 54,50 Stigahæsti knapi fullorðinna: Stig Baldvin Ari Guðlaugsson 218,70 Isl. tvíkeppni fullorðinna: Stig Baldvin Ari Guðlaugsson 121,20 Skeið tvíkeppni fullorðinna: Stig Örn Grant 116,20 Tölt unglinga 13-15 ára: Stig 1. Arnar Grant á Stjörnufák 65,06 2. Stefán Þórsson á Víði 61,60 3. Hildur R. Ragnarsdóttir á Tvisti 58,40 4. Sigfús Jónsson á Rispu 53,86 5. Gestur Júlíusson á Barón 55,46 Fjórgangur unglinga 13-15 ára: Stig 1. Sigrún Brynjarsdóttir á Kötlu 38;93 2. Arnar Grant á Stjörnufák 37,40 3. Þór Jónsteinsson á Gjafari 37,40 4. Sigfús Jónsson á Rispu 37,74 5. Sævar Helgason á Rommel 36,04 Fimmgangur unglinga 13-15 ára: Stig 1. Arnar Grant á Grettir 41,60 2. Sigrún Brynjarsdóttir á Vífil 39,40 3. Þór Jónsteinsson á Vind 39,00 4. Gestur Júlíusson á Barón 35,00 5. Börkur Hólmgeirsson á Dverg 29,20 Stigahæsti knapi unglinga: Stig Arnar Grant 144,06 ísl. tvíkeppni: Stig Arnar Grant 102,40 Tölt barna: Stig 1. Elvar Jónsteinsson á Tind 42,13 2. Sveinn I. Kjartansson á Blesa 40,53 Fjórgangur barna: Stig 1. Elvar Jónsteinsson á Tind 38,33 Stigahæsti knapi barna: Stig Elvar Jónsteinsson 80,46 ísl. tvíkcppni barna: Stig Elvar Jónsteinsson 80,46

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.