Dagur - 19.05.1989, Page 5
Föstudagur 19. maí 1989 - DAGUR - 5
Framhaldsskólar á Norðurlandi:
Fundað um framhald skólahalds
- nemendur Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki útskrifaðir á morgun
Enn er ekki fullljóst í öllum
framhaldsskólum hvernig hag-
að verður til með skólalok í
vor eftir sex vikna verkfall
félaga í HÍK. Eitt af síðustu
verkum samninganefnda ríkis-
ins og BHMR var að semja um
tilhögun skólaloka, án samráðs
við skólameistara við litla
hrifningu þeirra. „Piltar hér
eru fullfærir um að taka sínar
ákvarðanir sjálfir og þurfa ekki
einhverja Reykvíkinga til
þess,“ sagði Jóhann Sigurjóns-
son skólameistari MA í gær.
Jóhann segist þrátt fyrir þetta
sjá fram á að fyrri áætlanir ættu
að geta staðist. Gert var sérstakt
samkomulag vegna MA í lok
samningalotunnar vegna sér-
stöðu skólans. „Við erum eini
skólinn á landinu sem getur
brautskráð stúdenta með pompi
og prakt.“
Það var þungt hljóð í Baldvini
Bjarnasyni skólameistara VMA í
gærdag: „Við munum fyrst ræða
við kennara um hvernig staðið
skuli að skólalokum, en ákvörð-
unin sem tekin var í Reykjavík
um þetta mál er mjög loðin. Það
sem gerir málið hjá okkur enn
verra, er yfirlýsing útskriftar-
nemenda og ég get ekki betur séð
en að þeirra hugmyndir og okkar
séu með öllu ósamræmanlegar.“
Skóladagurinn í Verkmennta-
skólanum í dag hefst kl. 8.15 með
fundi skólameistara og útskrift-
arnemenda en nemendur í öld-
ungadeild áttu að mæta í skólann
í gærkvöld. í Menntaskólanum
eiga allir nemendur að mæta á
Sal kl. 10 í dag.
Ákveðið hefur verið að út-
skrifa nemendur frá Fjölbrauta-
skólanum á Sauðárkróki, á
morgun, laugardag. Um er að
ræða 22 stúdentsefni, 10 stúdenta
sem kláruðu um síðustu áramót,
10 vélaverði og 2 sem ljúka
almennu verslunarprófi. Braut-
skráðir stúdentar gætu hins vegar
orðið fleiri, þar sem skólinn býð-
ur upp á próf í dag og á morgun,
og einnig í næstu viku. Tvö stúd-
entsefni áttu aðeins eftir tvö próf.
Önnur stúdentsefni fá staðfest-
ingarskjal á morgun, um að þau
hafi unnið sér til réttinda um að
ljúka stúdentsprófi. Síðan á að
bjóða upp á kennslu og próf í
haust. áður en haustönn hefst í
byrjun september. Skólaslit Fjöl-
brautaskólans fara fram í íþrótta-
húsinu kl. 17 á morgun og að
þeim loknum verður kvöldverður
og dansleikur í Bifröst.
„Þetta er líka hugsað sem
kveðjuhóf, fyrir þá nemendur
sem hafa verið saman í skólanum
í 4-5 ár, en útskrifast ekki á
morgun. Væntanlega inunu þeir
geta náð prófunum í haust, áður
Félag verslunar- og skrifstofu-
fólks á Akureyri var dæmt í
Bæjarþingi Akureyrar í gær til
aö greiða Sigrúnu Grímsdóttur
7.900 kr. í skaðabætur, auk
dráttarvaxta, svo og máls-
kostnað að upphæð kr. 70
þúsund. Sigrún kærði félagið
vegna framgöngu verkfalls-
en Háskólinn byrjar," sagði Jón
Hjartarson, skólameistari í sam-
tali við Dag.
„Við ákveðum ekkert fyrr en á
fundi sem boðað er til með kenn-
urum á morgun, þetta verður
sameiginleg ákvörðun en ekki
mín ákvörðun," sagði Guðmund-
ur Birkir Þorkelsson, skólameist-
ari Framhaldsskólans á Húsavík í
gær, aðspurður urn hvernig stað-
ið yrði að útskrift nemenda í vor.
Birkir sagði að grunnskólanem-
endur sem stunduðu nám við
skólann hefðu verið boðaðir í
dag til að taka við einkunnum í
þeim greinum sem prófað hefði
verið í, og hann ætti ekki von á
að þau yðru kölluð inn til frekara
náms í vor. Hvað framhalds-
deildir við skólann varðaði sagði
hann að gerðar yrðu söntu kröfur
og áður og því reikna nteð að
lokið yrði kennslu og prófað, þó
það ætti eftir að ákveðast.
VG/bjb/lM/SS
varða þess á Akureyrarflug-
velli 1. maí 1988.
Á þessum tíma var Félag versl-
unar- og skrifstofufólks í verkfalli
og komu verkfallsverðir félagsins
í veg fyrir afgreiðslu á Akureyr-
arflugvelli. Sigrún var stöðvuð af
verkfallsvörðum og ítrekaðar til-
raunir til að komast um borð í
flugvél Flugleiða báru ekki
árangur, en Sigrún var með full-
gildan farmiða og án farangurs og
taldi sig því ekki þurfa á þjónustu
félagsins að halda.
Myndir af atviki þessu birtust í
blöðum og sjónvarpi og sést á
þeim að verkfallsverðir komu í
veg fyrir að Sigrún kæmist um
borð í vélina. Hún ákvað að
höfða mál gegn félaginu og
krafðist 100 þús. kr. skaðabóta
vegna kostnaðar við aukadvöl á
Akureyri, vinnutaps og ærumeið-
inga.
Freyr Ófeigsson héraðsdómari
kvað upp dóminn, cn líklegt þyk-
ir að Félag verslunar- og skrif-
stofufólks vísi málinu til Hæsta-
réttar, en það er á margan hátt
einstakt og gæti haft fordæmis-
gildi. SS
Eining samþykkir
kjarasamningana
Verkalýðsfélagið Eining hefur'
samþykkt kjarasamning ASI
og VSÍ sem undirritaður var
með fyrirvara um samþykki
félaga um síðustu mánaðamót.
Um 65 félagar mættu á fund-
inn þar sem samningurinn var
kynntur, rætt var um hann og
að lokum gengið til atkvæða-
greiðslu. Þá voru atkvæði talin
með atkvæðum félaga í öðrum
deildum félagsins og var samn-
ingurinn samþykktur með
84,7% atkvæða.
Sævar Frímannsson formaður
Einingar segir að á fundinum hafi
komið fram nokkur andstaða við
samninginn m.a. vegna þess sem
verið hefur að gerast í þjóðfélag-
inu síðustu daga. „Gengið hefur
verið fellt og síðan hafa menn
áhyggjur af því að BHMR-fólkið
fái meira en aðrir, þó erfitt sé að
átta sig á því á þessari stundu.
Þetta hleypur illu blóði í okkar
fólk, en fyrirhyggjan var í fyrir-
rúmi og menn sáu að skásti kost-
urinn í stöðunni eins og hún er nú
var að samþykkja samninginn.“
VG
Félag verslunar- og skrifstofufólks:
Dæmt til að greiða
farþega skaðabætur
U.M.F. Skriðuhrepps
Aðalindur U.M.F. Skr.
verður haldinn að Melum Hörgárdal föstudaginn 19.
maí kl. 20.30 stundvíslega.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Mætum öll og tryggjum þannig áframhaldandi
grósku í félagsstarfinu.
Stjórnin.
Þetta verða ALLIR að lesa!
Frumsýning á
byltingarkenndri
PFAFF saumavél
hjá Norðurfelli
í dag og á morgun verður athyglisverð sýning hjá
versluninni Norðurfelli, Glerárgötu 32. Verslunin
mun sýna mikið úrval af ýmsum vörutegundum frá
Pfaff h.f. í Reykjavík, þ.e. Candy heimilistæki, Braun
heimilistæki og hársnyrtitæki, Pfaff saumavélar og
Over-lock vélar.
Frumsýningin
Sérstaka athygli mun vekja frumsýning á nýrri, bylt-
ingarkenndri saumavél frá Pfaff. Með vélinni fylgir
„hönnuður“ sem gerir þér kleift að teikna þín eigin
mynstur og setja þau í mynsturheila vélarinnar. Það-
an getur þú kallað fram mynstrið og endurtekið það
eins oft og þú vilt. Vélin hefur 178 innbyggða sauma,
plús bókstafi og tölustafi í mismunandi gerðum.
Fallegur og greinargóður bæklingur á íslensku liggur
frammi á sýningunni.
Viltu hitta fagmenn?
Sérþjálfað starfsfólk frá Pfaff verður til staðar báða
sýningardagana. Sérstök áhersla verður lögð á
kynningu og meðferð Pfaff saumavéla og Over-lock
véla. Að auki verða viðgerðarmenn Pfaff saumavéla
á staðnum, en þeir eru reiðubúnir að líta á og gera
við Pfaff saumavélina þína. Sérfræðingur í Candy
tækjum verður einnig til staðar báða dagana.
Verið velkomin - opið í dag, föstudag frá kl. 9-18
og á morgun, laugardag frá kl. 10-16.
norðurfell hf.
Glerárgötu 32 • 602 Akureyri Sími 23565 •
Aflabrögð á Norðurlandi:
Mikill samdráttur
milli ára
Mun minni afli hefur boríst á
land á Norðurlandi frá ársbyrj-
un til aprílloka miðað við
fyrstu fjóra mánuði ársins
1988. Þetta kemur fram í
bráðabirgðatölum Fiskifélags
íslands og sker Norðurland sig
dálítið úr heildarmyndinni, en
heildarafli landsmanna er ná-
lega hinn sami milli ára.
Fyrstu fjóra mánuði þessa árs
bárust 122.741 tonn að landi á
Norðurlandi en 163.655 tonn á
sama tíma í fyrra. Samdrátturinn
er 33% milli ára. Gildir þetta um
flestar tegundir en minni loðnu-
og þorskafli vegur þyngst á met-
unum.
Loðnuaflinn fyrstu fjóra mán-
uði þessa árs var 79.823 tonn á
móti 112.608 tonnum sama tíma-
bil í fyrra og er samdrátturinn
41%. Norðlendingar lönduðu
31.654 tonnum af þorski á þessu
tímabili nú, en 38.600 tonnum í
fyrra og er hér um 22% samdrátt
að ræða. Þegar litið er til rækju-
veiðanna er niðurstaðan ekki síð-
ur uggvænleg, 1.608 tonn á móti
'3.098, sem er 93% samdráttur.
Austfirðir eru á sama báti og
Norðurland. Þar var aflinn
286.604 tonn fyrstu fjóra mánuði
ársins á móti 311.197 á sama
tímabili í fyrra. Á Vestfjörðum
var smávægilegur samdráttur en
á Vesturlandi, Suðurlandi og
Reykjanesi var um verulega afla-
aukningu að ræða. SS
Opið hús!
s
A morgun, laugardag,
höfum við opið frá kl. 10-16
Þar munum við veita allar upplýsingar
um Einingarbréf Kaupþings
svo og önnur verðbréfaviðskipti
Veríð velkomin
áél KAUPÞING
„ „ '
NORÐURLANDS HF Ráðhústorgi 1 • Akureyri • Sími 96-24700