Dagur - 19.05.1989, Blaðsíða 7
Hvað er að gerast
Golf á Mel-
gerðismeliim
- flaggakeppni og
snærisleikur
um helgina
Félagar í Golfklúbbi Akureyrar
standa fyrir flaggakeppni og
snærisleik á golfvellinum á Mel-
gerðismelum um helgina. Keppn-
in hefst kl. 10.00 báða dagana og
fer skráning fram í Golfskálanum
að Jaðri eða menn geta mætt á
Melgerðismela og tekið þátt í
mótinu.
Sólgarður:
Hlutavelía, kaffihlaðborð,
kökubasar og hestaleiga
Kvenfélagið Hjálpin í Saurbæjar-
hreppi heldur hlutaveltu og
kökubasar í Sólgarði á laugar-
daginn kl. 14-17. Þar verður
einnig vísir að flóamarkaði og
glæsilegt kaffihlaðborð.
Börnin fá líka eitthvað við sitt
hæfi og má nefna að hestaleiga
verður á staðnum, sérstaklega
fyrir börnin.
Þess má geta að vegurinn frá
Akureyri inn í Sólgarð er mjög
góður, enda lagður bundnu slit-
lagi, og því tilvalið að skreppa
þangað í ökuferð á laugardaginn.
Allur ágóði af kaffihlaðborð-
inu rennur til rcksturs meistara-
flokks kvenna, en stúlkurnar
þurfa sjálfar að sjá um ferða-
kostnað vegna keppnisferða í
sumar. Þær standa því í ströngu
viö fjáraflanir samhliða erfiðum
æfingutn, vinnu og"keppnisferð-
um. Þeir sem leggja leið sína til
þeirra ú sunnudaginn fá því ekki
aðeins magafylli af ljút'fengu
kaffibrauði, heldur styrkja þeir
líka verðugt málefni.
Eldrídansaklúbburinn
Dansleikur í Lóni, Hrísalundi 1,
laugardaginn 20. maí kl. 22-03.
Hljómsveit Bigga Mar. sér um fjörið
Allir velkomnir.
Stjórnin.
OI)~ ,w O t >,. rVy S I ft A f * A
Föstudagur 19. maí 1989 - DAGUR - 7
Leikfélag Akureyrar á Norðurlandi vestra nk. sunnudag:
Sumarbridge
Vel heppnuðu starfsári Bridge-
félags Akureyrar lauk með aðal-
fundi 9. maí sl. Nýkjörin stjórn
er þannig skipuð: Ormarr Snæ-
björnsson, formaður; Sigfús
Hreiðarsson, varaformaður;
Ólafur Ágústsson, gjaldkeri;
Stefán Vilhjálmsson, ritari; Jón
Sverrisson, áhaldavörður.
Ákveðið hefur verið að hefja
vikulegt sumarbridge næstkom-
andi þriðjudag, 23. maí. Spilaður
verður tvímenningur í Dynheim-
um og hefst spilamennska kl.
19.30. Þátttökugjald er ekkert og
allt spilafólk er velkomið til leiks.
Enn viðrar ekki svo sumarlega að
ástæða sé til að pakka spilunum
niður þótt e.t.v. verði gert hlé um
hásumarið. Stjórn B.A.
Frá Styrktar-
félagi
vangeíinna
Styrktarfélag vangefinna á
Norðurlandi verður með klúta-
sölu dagana 20.-30. maí n.k. .
Klútar þessir eru saumaðir í Iðju- '
lundi, vinnustað þroskaheftra.
Allur ágóði af sölunni rennur til
uppbyggingar á sambýlum á
Akureyri og nágrenni. Félagið
væntir þess að fólk bregðist vel
við og taki vel á móti sölufólki
okkar. Félagið minnir á að klút-
arnir okkar eru bæði ódýrir og
góðir „týpiskir klútar" og koma
sér einkar vel núna í hreingern-
ingarvertíðinni. Stjórr.in.
Tilboðsverð
á Sjávarréttapizzum
frá Eyflrskum matvælum
föstudag og laugardag í
kjörbúðum bæjarins.
Eyfirsk matvæli
Leikfélag Akureyrar verður með
leiklestur úr verki Guðrúnar
Ásmundsdóttur, Kaj Munk, í
Siglufjarðarkirkju nk. sunnudag,
21. maí, kl. 17. Eftir sýninguna
liggur leið LA-fólks til Sauðár-
króks þar sem dagskráin verður
flutt í kirkjunni kl. 21 á sunnu-
dagskvöld. Þetta er samskonar
dagskrá og var flutt í Akureyrar-
kirkju á kirkjulistaviku nýverið,
Húsavíkurkirkju á annan hvíta-
Bflasýning
í Höllinni
Á morgun laugardag, verður
opnuð vegleg bílasýning í íþrótta-
höllinni á Akureyri. Það er
Knattspyrnufélag Akureyrar sem
stendur fyrir sýningunni, en þar
munu öll helstu bílaumboð lands-
ins sýna nýjustu bílana á mark-
aðnum.
Auk þess að geta skoðað bíla,
bæði innandyra og utan ætla
fyrirtæki á Akureyri að sýna ýmis
konar sumarvörur í efri sal
íþróttahallarinnar, en þar fer
um leið fram veitingasala. Þá
verður staðið fyrir hlutaveltu og
öðrum skemmtiatriðum.
Sýningin verður opin á laugar-
dag og sunnudag, en á sunnudeg-
inum er svo upplagt að leggja leið-
ina í kaffi til stúlknanna í meist-
araflokki KA þegar sýningin hef-
ur verið skoðuð.
sunnudag og í Ólafsfjarðarkirkju
sl. fimmtudagskvöld.
Leikverk Guðrúnar er byggt á
ævisögu Kaj Munks og ræðum
hans, sem Sigurbjörn Einarson,
biskup, hefur þýtt. Kaj Munk var
prestur í Vedersö á Jótlandi og
var hann kunnur ræðurmaður,
ljóðskáld og leikritahöfundur. Þá
var hann kunnur af andstöðu
sinni við yfirgang nasista í Dan-
mörku á árum seinni heimsstyrj-
aldar.
Með hlutverk Kaj Munks fer
Þráinn Karlsson en aðrir leikend-
ur eru Sunna Borg, Sigurveig
Jónsdóttir, Theodór Júlíusson og
Jón Kristinsson. Ragnheiður
Tryggvadóttir stjórnar leiklestr-
inum en Björn Steinar Sólbergs-
son, organisti í Akureyrarkirkju,
annast orgelleik.
KA-stelpur með
kafiHhlaðborð
Stúlkurnar í meistaraflokki KA í
knattspyrnu ætla að vera með
kaffihlaðborð í KA-heimilinu viö
Dalbraut á sunnudaginn frá
kl. 14.00-17.00. Þar verður yfir-
fullt borð af kökum og brauði
sem enginn ætti að vera svikinn
af.
Bifreiðaeigendur!
• Þurrkublöð
• Viftureimar
• Kveikjulok
• Vatnslásar
• Platínur
• Hjólkoppar, margar gerðir
• Hreinsi- og bónvörur
• Toppgrindur og burðarbogar og
margt fleira.
Véladeild
Lefldestur úr Kaj Munk á
Siglufirði og Sauðárkróki