Dagur - 19.05.1989, Qupperneq 8
8 - DAGUR - Föstudagur 19. maí 1989
spurning vikunnar
Emilía Örlygsdóttir:
Nei, og ég hef ekki sótt um
vinnu. í fyrrasumarvarég bara
aö leika mér og stundum að
passa bróður minn, kannski
passa ég hann aðeins í sumar.
Þórhallur Kristjánsson:
Já, eða ég vonast til að fá
trésmíðavinnu á Þórshöfn. Ég
hef ekki gert mikið af að stunda
þannig vinnu áður og í fyrra-
sumar var ég í sveit. Ég held að
það sé miklu erfiðara fyrir
krakka að fá vinnu núna en var
í fyrra.
Anna Lilja Karlsdóttir:
Já, bæjarvinnuna. Það er ekk-
ert erfitt, maður skifar sig bara
niður. í fyrrasumar var ég bara
heima og hjálpaði við að þrífa á
snyrtistofunni hjá mömmu.
Aðalgeir Sigurgeirsson:
Ég er ekki alveg ákveðinn, en
vinn sennilega á vöruafgreiðsl-
unni hjá Alla Geira og hjálpa til
við að keyra út gosi og vörum.
Ég vann við þetta í fyrrasumar
og hef oft hjálpað til á veturna.
Það er ekkert erfiðara fyrir mig
að fá vinnu en verið hefur og ég
held að hinir krakkarnir fari
flestallir í bæjarvinnuna.
Guðmundur Hermannsson:
Nei. Ég hef bara sótt um vinnu
hjá bænum og reikna með að fá
hana. I fyrrasumar vann ég hjá
rafveitunni. Ég held það sé erfitt
fyrir krakka að fá vinnu núna.
Hefurðu fengið vinnu
í sumar?
Spurt á Húsavík.
Páll Steingrímsson og félagar vinna að kvikmynd um
sögu íslenskrar tónlistar:
Sungið að hætti m
Víðimýrarkirkju
Það er óhætt að fullyrða að íslenskir kvikmyndagerðarmenn eru stórhuga. Oft á tíðum fá þeir einhverja
hýru frá þeirri merkilegu stofnun Kvikmyndasjóði til fjármögnunar sinna hugverka. Oftar en ekki eru
framlög sjóðsins aðeins dropi í hafið og kvikmyndagerðarmennirnir sjálfir þurfa að punga út svo og svo
háum fjárupphæðum til að brúa bilið. Þessir stórhuga menn láta sig hafa það að veðsetja eignir, selja bíl-
inn og guð má vita hvað til að eiga peninga til að fjármagna sína drauma, kvikmyndirnar. Ekki er grein-
arhöfundi kunnugt um hvort þetta á við um Pál Steingrímsson, kvikmyndagerðarmann, sem nú vinnur að
gerð stórmerkilegrar heimildarmyndar um sögu íslenskrar tónlistar. Hitt er víst að Páll hefur fengið um
6 milljónir úr Kvikmyndasjóði til verksins en heildarkostnaður við gerð myndarinnar er áætlaður um 13
milljónir króna.
Tökur myndar Páls hófust um
hvítasunnu á sl. ári og aðstand-
endur hennar gera sér vonir um
að þeim ljúki fyrir lok þessa árs.
Ekki er ráðið hvort hún verður
sýnd á breiðtjaldi eða í sjónvarpi.
Um það verður tekin ákvörðun
síðar.
„Kvikmyndastjörnur“
frá Akureyri
Því er þessarar kvikmyndar Páls
Steingrímssonar getið hér að
dagana 3. og 4. maí var hann og
hans fólk við tökur tveggja atriða
í henni í Hólakirkju og Víðimýr-
arkirkju í Skagafirði. Fyrri dag-
inn var tekinn upp sálmurinn
„Gef þinni kristni góðan frið“ í
Hólakirkju. Kristinn Sigmunds-
son söng og naut aðstoðar söng-
fólks úr Skagafirði. Á uppstign-
ingardag, fimmtudag 4. maí, lá
leið kvikmyndagerðarfólks í
Víðimýrarkirkju til upptöku á
tvísöngslagi frá 16. öld. Um
flutning lagsins sá hópur 11 söngv-
ara frá Akureyri, sem árla
morguns brá sér vestur yfir
Öxnadalsheiði til að gerast kvik-
myndaleikarar. Michael Jón
Clarke, tónlistarkennari, tók að
sér að stjórna söngmönnunum,
sem m.a. komu úr Passíukórn-
um, Karlakórnum Geysi og
Kirkjukór Akureyrar.
Sönghópurinn kom til móts við
kvikmyndagerðarmenn í Hótel
Varmahlíð um hádegisbil og lét
verða sitt fyrsta verk að aðstoða
þá við að ganga á risavaxin
kinda- og svínakjötsfjöll lands-
manna. Jarðarber og ís fylgdu í
kjölfarið. Söngmönnum fór ekki
að lftast á blikuna, því yfirleitt
fer það ekki saman að syngja og
borða á sig gat. Hvað um það.
Eftir einn kaffibolla tók kvik-
myndagerðarfólk að ókyrrast og
hélt af stað upp í Víðimýrar-
kirkju, sem er skammt frá
Varmahlíð.
Látum sönginn hljóma
Auk Páls skipuðu eftirtaldir lið
kvikmyndagerðarmanna: Lárus
Ýmir Óskarsson, leikstjóri og
sviðsetningarmaður, Hjörtur
Howser, hljóðmaður, Karl
Steingrímsson, Ijósameistari,
Rúrí, sérlegur aðstoðarmaður og
Njáll Sigurðsson, deildarstjóri í
Menntamálaráðuneytinu, sem
m.a. hefur unnið við textagerð
myndarinnar.
Kvikmyndagerð er flókið fyrir-
brigði og langdregið og það fengu
söngvararnir akureyrsku að
reyna. Menn byrjuðu á að hita
sig upp og festu síðan sönginn á
band án myndatöku. Fyrsta upp-
taka var svona la, la, önnur
slarkfær, þriðja grábölvuð,
fjórða betri, fimmta verri og sú
sjötta alveg þrumugóð. Hún var
látin gilda. Þá var komið að því
að festa söngvarana á filmu.
Segulbandið var sett í gang,
menn hófu upp raust sína og
sungu af innlifun í linsuna. Lýs-
ingin gerði mönnum erfitt fyrir.
Loftbitar yfir altarinu í þessu
gamla guðshúsi skyggðu á andlit
einstaka söngvara og skemmdu
heildarsvipinn. Því þurfti að
endurtaka „skotin“ aftur og
aftur, þar til allir voru ánægðir.
Stiklað á stóru
í hita og þunga dagsins tókst
blaðamanni að króa Njál Sig-
urðsson, einn aðstandenda
myndarinnar, af og spyrja hann
um aðdraganda að gerð hennar. í
máli hans kom fram að Páll
Steingrímsson ætti hugmyndina
að gerð myndarinnar og hann
hefði rætt hana við Jón Ásgeirsson
og sig. Njáll segist hafa lengi haft
mikinn áhuga á sögu íslenskrar
tónlistar og því tekið vel í þá hug-
mynd Páls að fjalla um hana í
heimildarkvikmynd. Það varð að
samkomulagi að sótt var um
styrk úr Kvikmyndasjóði til að
gera myndina og í ár og á liðnu ári
hafa fengist alls um 6 milljónir
króna.
Njáll segir að í myndinni sé
ætlunin að fjalla um það sem
kalla megi sérstætt í tónlistar- og
tónmenntahefð þjóðarinnar og
leitast jafnframt við að tengja
þau efnisatriði við tónmennta-
hefðir annarra þjóða, t.d.
Norðurlandaþjóða og Breta.
Stiklað verður á stóru í sögu tón-
listar á íslandi frá landnámi til
vorra daga. Efni myndarinnar má
skipta í níu hluta.
Frá Víðimýri til Orkneyja
1. Farið verður í saumana á
skyldleika tónmenntahefðar
landnámsmanna og fjallað um
flutning Eddukvæða. Þá verð-
ur sett á svið galdrabrenna og
trúlega kvæðaflutningur
hirðmanna við hirðir jarla og
konunga til forna.
2. Fjallað verður um timabil kaþ-
ólska kirkjusöngsins, frá
kristnitöku til siðaskipta. Flutt
verður sekvensía Magnúsar
eyjajarls og verður hún vænt-
anlega tekin upp í Orkneyj-
um. Annað tóndæmi er upp-
haf trúarjátningarinnar sem
akureyrsku söngvararnir
sungu í Víðimýrarkirkju á
uppstigningardag. Ekki er vit-
að til þess að þessi tvíraddaði
söngur hafi varðveist annars
staðar en í íslensku handriti,
sem er skrifað að Munkaþverá
Lárus Ýmir Óskarsson, sviðshönnuður og leikstjóri.
Föstudagur 19. maí 1989 - DAGUR - 9
Söngvarar og kvikmyndagerðarmenn að afloknum vel heppnuðum tökum í Víðimýrarkirkju. Frá vinstri: Karl Stein-
grímsson, Hjörtur Howser, Erlingur Sigurðarson, Christopher Thornton, Þorkell Pálsson, Lárus Ymir Óskarsson (í
hjólastól), Jón Már Héðinsson, ónafngreindur bílstjóri, Jóhann Baldvinsson, Michael Jón Clarke, Björn Steinar Sól-
bergsson, Páll Steingrímsson, Helgi Þ. Svavarsson, Örnólfur Kristjánsson og Njáll Sigurðsson. Myndir: óþh
Tveir af aðstandendum myndarinnar bera saman bækur sínar. Njáll Sigurðs-
son (t.v.) og Páll Steingrímsson.
Broshýrir söngmenn bíða þess að öll tól og tæki verði gerð klár fyrir næstu
töku. Frá vinstri; Jóhann Baldvinson, Örnólfur Kristjánsson, Þorlákur Páls-
son og Erlingur Sigurðarson.
í Eyjafirði árið 1473 af Jóni
Þorlákssyni. Talið er líklegt
að munkar á Munkaþverá hafi
tíðum sungið þetta trúarjátn-
ingarupphaf.
3. Til að gera grein fyrir kirkju-
söng eftir siðaskipti verður
saga eins sálmalags rakin frá
miðöldum til 19. aldar. Byrjað
verður á latneska laginu en út
frá því orti Lúther sálm, sem
hugmyndin er að kvikmynda í
þýskri kirkju. Flutningur latn-
eska lagsins verður væntan-
lega festur á filmu í kaþólskri
kirkju í Þýskalandi eða ann-
ars staðar í Evrópu. Þriðja
atriðið í þessum hluta mynd-
arinnar er flutningur sálmsins
„Gef þinni kristni góðan frið.“
Þessi sálmur var tekinn upp í
Hólakirkju, eins og áður
segir. í síðasta atriði þessa
hluta myndarinnar verður
fjallað um þetta sálmalag eftir
að það hefur tekið miklum
breytingum í munni alþýð-
unnar og orðið að íslensku
tvísöngslagi á 19. öld.
Rímur, dans og þjóðlög
4. Rímnakveðskap verður m.a.
gerð skil með kvöldvöku þar
sem kveðið er úr Númarímum
Sigurðar Breiðfjörð. Þetta
atriði hefur þegar verið fest á
filmu.
5. Þá verður gerð grein fyrir
húslestri á föstunni, einkum
hinum sérstaka passíusálma-
söng. Þetta atriði er einnig
búið að kvikmynda.
6. í sjötta hluta heimildarmynd-
arinnar er íslenska dansinum
gerð skil. Slegið var upp heil-
miklu dansiballi á Snæfellsnesi
um hvítasunnu í fyrra og stigu
félagar í Þjóðdansafélagi
dansinn. Leitast er við að
tengja hina gömlu danshefð
við færeysku danshefðina. í
því skyni var Ólafsvaka í Fær-
eyjum fest á filmu.
7. íslensku alþýðuhljóðfærin
tvö, langspilið og tveggja
strengja fiðlan, fá kynningu í
myndinni og var Sigurður
Rúnar Jónsson fenginn til að
leika á þau. Þetta atriði var
tekið að Skógum undir Eyja-
fjöllum.
8. Áttundi hluti myndarinnar
verður helgaður tónlistar-
brautryðjendum á 19. öld. í
þá daga komu fyrstu erlendu
tónlistarmennirnir og kynntu
landsmönnum tónlist sem þá
var samin og flutt í Evrópu.
Með komu Péturs Guðjónsen,
fyrsta menntaða tónlistar-
mannsins, til landsins árið
1840 urðu mikil þáttaskil. Pét-
ur gerðist organisti við Dóm-
kirkjuna og kenndi tónlist í
Lærða skóianum og Presta-
skólanum. Ætlunin er að
hljóðrita lag út í Danmörku,
sem verður spilað á samskon-
ar orgel og Pétur spilaði á í
Dómkirkjunni á 19. öld. Þá er
hugmyndin að sviðsetja tón-
leika sem hann stjórnaði í
Menntaskólanum í Reykjavík
um 1850.
9. Að lokum verður fjallað um
íslensku þjóðlögin frá því þau
voru fyrst skráð. Hlutur
Bjarna Thorsteinssonar í
varðveislu þjóðlaganna fær
sitt pláss og sömuleiðis verk
Jóns Leifs. Endapunktur
myndarinnar verður hugsan-
lega þáttur fjölmiðla, einkum
sjónvarps, í varðveislu og
miðlun íslenskrar tónlistar.
Ovíst hvenær
myndin verður sýnd
Njáll segir að stefnt sé að því að
ljúka tökum myndarinnar á þessu
ári en ekki sé víst að það takist.
Kvikmyndahópurinn verði að
fara a.m.k. einu sinni út fyrir
landsteinana, til Orkneyja, Þýska-
lands og Danmerkur, til að festa
nokkur atriði myndarinnar á
filmu. „Það er ekki ákveðið
hversu löng þessi mynd verður.
Hún er tekin sem kvikmynd en
að öllum líkindum verður hún
notuð sem myndband síðar meir.
Það eru jafnvel uppi hugmyndir
um að nýta tökurnar með tvenn-
um hætti, annars vegar að gera
venjulega kvikmynd og hins veg-
ar að vinna upp úr þeim þátta-
röð. Það liggur ekki fyrir hvar
myndin verður sýnd eða hvenær.
Það kæmi mér ekki á óvart að
myndin nýttist vel til kennslu í
framtíðinni því í henni kemur
vissulega fram margt fróðlegt um
sögu tónlistar hér á landi, sem
ekki hefur verið mikið fjallað um
til þessa.“ óþh
Lögtaksúrskurður
Eftir kröfu innheimtumanns ríkissjóðs á Akureyri, Dalvík
og í Eyjafjarðarsýslu úrskurðast hér með að lögtök geti far-
ið fram fyrir eftirtöldum gjöldum, gjaldföllnum, en ógreidd-
um.
Söluskattur fyrir janúar, febrúar og mars 1989 svo og við-
bótar- og aukaálagning söluskatts vegna fyrri tímabila.
Ennfremur fyrir þinggjaldahækkunum vegna fyrri ára og
skipulagsgjaldi af nýbyggingum.
Lögtök til tryggingar framangreindum gjöldum ásamt drátt-
arvöxtum og kostnaði geta farið fram að liðnum 8 dögum
frá birtingu úrskurðar þessa.
Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík,
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu, 18. maí 1989.
Dansleikur
Laugardagskvöldið 20. maí
Hin frábæra
hljómsveit
INGIMARS EYDAL
leikur fyrir dansi.
Verið velkomin.
' Boröapantanir í síma 22200
Tíska
með
persónulegaa
Nvkomnar? $íæsiku>ar þýskar^tJragtir og
lgolar. Hágæðavara.
Herrar takið eftir!
„Vönduð feigt ervel þegin.“
Ath. 2Q% afsláttur verður í nokkra daga
á fatnaði í stærðunum 48 til 52.
l
VISA
E
"Jlókuverdun ZSíelnunnat
Hafnarstræti 98
Akureyri • Simi (96) 22214