Dagur


Dagur - 26.05.1989, Qupperneq 1

Dagur - 26.05.1989, Qupperneq 1
Venjulegir og demantsskornir trúlofunarhringar Afgreiddir samdægurs GULLSMKNR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI Grímseyjarbátar eru flestir enn á netum en munu byrja á handfærum upp úr mánaðamótum. Markaðsátak Hitaveitu Akureyrar: Þarf Rafvcita Akureyrar að stórhækka gjaldskrá sína? Grímsey: Kvóti stærrí báta er að verða búinn Þad kenmr ýmissa grasa á vorsýningu Myndhstaskolans a Akureyn - lifnaði yfir veiðinni eftir páska Kvótar stærri Grímseyjarbáta er nú að verða búnir en flestar trillurnar eru enn á netum og er búist við að þær taki þau upp undir lok þessa mánaðar. Þá tekur skakið við. Dagur náði í gær tali af Har- aldi Jóhannessyni, skipstjóra á Tjaldi og sagði hann að vertíðin hefði verið nokkuð góð. Fyrstu vikurnar hafi verið afleitar en síðan hafi lifnað yfir þessu eftir páskana og verið þokkalegt síð- an. Haraldur sagði lítið framund- an hjá þeim sem hefðu nú þegar lokið við kvóta, „annað en að mæla göturnar, ef hægt er að tala um götur.“ Að sögn Sæmundar Ólasonar, hjá Fiskverkun KEA í Grímsey, er þar næg atvinna. Aflinn er all- ur saltaður og segir Sæmundur að svo virðist sem útlitið í saltfiskn- um sé bjartara en áður. Hann segir það jákvætt að betur gangi að losna við fiskinn en á undan- gengnum mánuðum. óþh Verðkönnun á kjöti og unnum kjötvörum: - ekki ósennilegt að heimilin verði að bera hækkun, segir rafveitustjóri - markaðs- átakið hefur engin áhrif á taxta rafveitunnar, segir formaður stjórnar veitustofnana Matvöramark- aðurinnmeð lægsta verðið Neytendafélag Akureyrar og nágrennis, framkvæmdi nýlega verðkönnun á kjöti og unnum kjötvörum í samvinnu við ASÍ, BSRB og NS. Verðkönnunin var gerð á Akureyri, Dalvík og Grenivík. Ekki er birt verð í öllum versl- unum sem farið var í, t.d. er verð á kjöti og unnum kjötvörum það sama í kaupfélagsverslunum á Akureyri, Dalvík og Grenivík, nema á hakki, gúllasi og kjöt- farsi. Gúllasið í Svarfdælabúð er í 2. flokki. í þessari könnun kemur í Ijós að Matvörumarkaðurinn er með lægsta verð á lang flestum kjöt- vörum, eða í 12 af 16 tilfellum. Samfara niðurstöðum könnun- arinnar hér á Eyjafjarðarsvæð- inu, er einnig sýndur mismunur á hæsta og lægsta verði sambæri- legrar könnunar á höfuðborgar- svæðinu. f>ar kemur í ljós að hæsta verðið á því svæði, er í öll- um tilfellum hærra en hæsta verð í könnuninni hér fyrir norðan. Einnig að lægsta verð á höfuð- borgarsvæðinu er í öllum tilfell- um nema einu, lægra en lægsta verð í könnuninni hér á Eyja- fjarðarsvæðinu og munar þar yfirleitt töluvert miklu. Sjá nánar niðurstöðu könnun- arinnar á bls. 5. -KK Sú fullyröing hefur veriö sett fram að lagning hitaveitu í Gerðahverfi II á Akureyri og markaðsátak Hitaveitu Akur- eyrar hafi það í för með sér að Rafveita Akureyrar verði að hækka taxta sína um 6-8% vegna tekjumissis. Menn eru ekki á eitt sáttir um sannleiks- gildi fullyrðingarinnar og telur formaður stjórnar veitustofn- ana að markaðsátak hitaveit- unnar hafi engin áhrif á taxta rafveitunnar. Rafveitustjóra Bæjarstjórn Egilsstaða er afar óhress með hvernig staðið er að skipulagi vegaframkvæmda á Austurlandi. Nokkuð lengi hefur verið bent á nauðsyn byggingar heilsársvegar norður til Akureyrar, en að sögn Sigurðar Símonarsonar bæjar- stjóra á Egilsstöðum, hefur málið verið þungt í vöfum. Fram til þessa hefur megin áhersla verið lögð á, af hálfu Vegagerðarinnar, að ljúka leið- inni suður um firði. Bæjarstjórn Egilsstaða bendir á, að megnið af umferð um Egilsstaði liggi suður um firði til Reykjavíkur í s.tað þess að ef umferðin til höfuð- borgarinnar væri um Norður- land, sem er jafn löng leið, færi hún um Akureyri. - . s: þykir hins vegar sennilegt að rafveitan verði að hækka taxta til að vega upp á móti tekju- tapi. „Þetta snýst ekki bara um Gerðahverfi. Eftir því sem við missum hitamarkaðinn í bænum þá verðum við að fá tekjur ann- ars staðar frá, eða frá öðrum töxtum. Við erum með töluvert mikla hitasölu, 20 gígawattstund- ir, en hún minnkar vegna mark- aðsátaks hitaveitunnar," sagði Svanbjörn Sigurðsson, rafveitustj. Sigurður segir að bæjarstjórn- irnar á Egilsstöðum og Akureyri ættu að taka höndum saman um að knýja á í þessum málum og tengja saman Norðurland og Austurland. „Það væri til hags- bóta fyrir báða landshluta að tengjast betra vegasambandi, t.d. viðskiptalega séð. Þá er ég sannfærður um að með tiltölu- lega litlum tilkostnaði er hægt að bæta samgöngur norður með því að lagfæra tiltölulega fáa kafla á veginum." Tveir stuttir kaflar á Möðrudalsöræfum teppast venju- lega fljótt og eru síðan ekki rudd- ir allan veturinn. Þá verður fljótt ófært við svokallaðan Heiðar- enda við Jökulsá á Brú en sá kafli mun vera kominn inn á vegaáætl- un 1992. Sigurður segir, að mikið Aðspurður sagði hann að talan 6-8% gæti verið rétt ef rafveitan missti alla sölu til húshitunar, en það stæði ekki til, þótt stefna stjórnar veitustofnana snerist vissulega um hitaveitu í stað raf- hitunar í húsum. Hins vegar væri á vissum stöðum í bænum ekki hagstætt að leggja hitaveitu. Þar mun rafhitun verða áfram, einnig í iðnaði að nokkru leyti, en raf- veitan verður þó að vinna nýja markaði og er markaðsátak í full- um gangi, að sögn rafveitustjóra. „Það hefur ekki verið tekin hafi verið rætt um tengingu vega til Vopnafjarðar, bæði jarðgöng og fleira og þá jafnvel að leysa þessi tvö mál í samhengi. Hægt væri að breyta veginum um Möðrudalsöræfi, færa hann aust- ar út Jökuldalsheiði og austur fyrir fjallgarðana og stytta veginn til Vopnafjarðar um ca. 30 km þó það kosti það að vegurinn til Akureyrar lengist um 8 km. Þarna væri komin mun betri leið sem lægi öðruvísi, en væri auð- veldara að halda opinni með minni tilkostnaði. Þessari hugmynd hefur verið hreyft á fundum hjá Sambandi sveitafélaga á Austurlandi og Vegagerð ríkisins en lítið gerist. VG ákvörðun um hvernig hækkun- inni verður hagað, en það er ekki ósennilegt að heimilin verði að bera hana. Heimilistaxtinn er nú einn sá lægsti á landinu hjá Raf- veitu Akureyrar," sagði Svan- björn. Sigurður J. Sigurðsson, for- maður stjórnar veitustofnana, sagði að stjórnin hefði ekkert rætt um taxtahækkanir hjá raf- veitunni og markaðsátak hita- veitunnar hefði engin áhrif á taxta rafveitunnar. „Gjaldskrá Landsvirkjunar tekur hins vegar breytingum árið 1991 og eins og hún er uppbyggð í dag þá leiðir þessi breyting það af sér að ef Rafveita Akureyrar ætlar að halda sömu tekjum af raforkusölu og hún hefur gert þá þarf að hækka alla rafhitunar- taxta. En það er alveg ótengt markaðsátaki hitaveitunnar. Hins vegar finnst okkur skynsam- legt að fara af stað með þetta núna til þess að menn geti komist inn á hitaveituna áður en til breytinga kemur hjá Landsvirkj- un,“ sagði Sigurður. Hann sagði að í kjölfar tekju- missis rafveitunnar yrði reynt að vinna henni nýja markaði og skapa henni viðbótartekjur með þeim hætti. Hafist verður handa við að leggja dreifikerfi hitaveitu í Gerðahverfi II í sumar og hljóðar kostnaðaráætlun upp á 20 millj- ónir króna. Verkið verður boðið út og gert er ráð fyrir að fyrsta árið komi helmingur húsanna inn sem notendur Hitaveitu Akur- eyrar. SS Heilsársvegur frá Egilsstöðum til Akureyrar: Til hagsbóta fyrir báða landshluta - segir Sigurður Símonarson bæjarstjóri á Egilsstöðum

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.