Dagur - 26.05.1989, Blaðsíða 6
■6 - OAfiíUB - f$studagw;26,rfTœí,ft«8?
Fóstur-
foreldrar
Félagsmálastofnun Hafnarfjarðar leitar að góðu
heimili fyrir 10 ára gamlan dreng til lengri dvalar.
Þyrfti helst að vera í Eyjafirði eða nágrenni.
Frekari upplýsingar veita félagsmálastjóri og aöstoð-
arfélagmálastjóri í síma 91-53444 virka daga frá kl.
11.00-12.00.
Félagsmálastjórinn í Hafnarfirði.
Hvoð er oð gerost
Krumpugallarnir komnir aftur
Stærðir S-XL. Verð aðeins kr. 4.490,-
Barnajogginggallar
Stærðir 98-128. Verð kr. 1.850,-
Barnabolir
Mikið úrval. Verð frá kr. 57,-
Vinnuskór með stáltá
Verð frá kr. 4.450,-
Vinnuskór án stáltáar
Verð frá kr. 3.560,-
IIIEYFJÖRÐ
* Hjalteyrargötu 4 ■ Sími 22275
Geysiskvartettiiin í
Akureyrarkirkju 28. maí
Liðin eru rúm 20 ár frá því að
Geysiskvarttettinn hóf söngferil
sinn. Víða hefir söngur hans
hljómað innanlands og utan
áheyrendum til ánægju. Pegar
þeir félagar voru með söng-
skemmtun í Borgarbíói komust
færri að en vildu, og oft heyrast
leikin lögin af plötunni, sem
kvartettinn gaf út.
Lítið hefir heyrst í Geysis-
kvartettinum síðustu ár. Margir
hafa óskað þess að ráðin yrði á
því bót, og nú hefir kvartettinn
æft nýja söngskrá, sem flutt verð-
ur í Akureyrarkirkju sunnudag-
inn 28. maí kl. 21.00.
Kvartettinn skipa sömu menn
og í upphafi, Aðalsteinn Jónsson
|
ÍlllMÍSlll
■
Sýning
á einbýlishúsi
Sýnum n.k. laugardag og
sunnudag frá kl. 13.00-18.00
glæsilegt einbýlishús aö
Bakkasíöu 10.
Húsið verður sýnt með öllum innréttingum
Húsgögn frá Örkinni hans Nóa
Veriö velkomin.
AÐALGEIR FINNSSON HF
BYGGINGAVERKTAKI & TRÉSMIÐJA
FURUVÖLLUM 5 ■ P.O. BOX 209 • 602 AKUREYRI ■ ICELAND
SlMAR: 21332 & 21552 ■ NAFNNÚMER: 0029-0718
1. tenór, Guðmundur Þorsteins-
son 2. tenór, Birgir Snæbjörns-
son 1. bassi og Sigurður Svan-
bergsson 2. bassi. Jakob
Tryggvason organisti, sem alla
tíð hefir æft þá félaga, útsett
mörg lögin og leikið undir, er enn
á sínum stað.
Aðgöngumiðar verða seldir við
innganginn.
Kvennakórinn Lizzie:
Þrennir
tónleikar
- Á Húsavík, Akureyri
og í Mývatnssveit
Kvennakórinn Lizzie heldur
tónleika í Húsavíkurkirkju
Hmmtudaginn 1. júní kl. 21.00,
í Glerárkirkju laugardaginn 3.
júní kl. 17.00 og í Reykjahlíð-
arkirkju mánudaginn 5. júní
kl. 21.00. Á tónleikunum syng-
ur Hólmfríður S. Benedikts-
dóttir, sópran, einsöng og
Björn Steinar Sólbergsson
leikur einleik á orgel, auk þess
að koma fram með kórnum.
Kvennakórinn Lizzie starfar á
vegum Kvenfélagasambands
Suður-Þingeyinga og í kórnum
syngja konur frá Mývatnssveit,
Húsavík, Grenivík og öllum
byggðum þar á milli.
Á efnisskrá tónleikanna eru
veraldleg lög og kirkjuleg verk,
m.a. íslensk þjóðlög og sönglög
og lög eftir Mozart og Handel.
Stjórnandi kórsins er Margrét
Bóasdóttir. IM
íþróttaskemman á Akureyri:
Bach-tónleikar
á suimudag
Passíukórinn á Akureyri, félagar
úr Kammersveit Akureyrar
ásamt hljóðfæraleikurum frá
Reykjavík og einsöngvararnir
Þorgeir Andrésson (tenór), Ingi-
björg Marteinsdóttir (sópran) og
Michael Jón Clarke (bassi) flytja
Upprisuóratoríu C. Ph. Eman-
uels Bachs í íþróttaskemmunni á
Akureyri kl. 17. sunnudaginn 28.
maí. Michael Jón hefur áður
sungið einsöng með Passíukórn-
um en þau Ingibjörg og Þorgeir
syngja nú í fyrsta skipti með
kórnum.
Upprisuóratorian er önnur
tveggja óratoría C. Ph. Eman-
uels Bachs, en hann var einn af
sonum Johanns Sebastians
Bachs. Hann samdi mikinn fjölda
píanóverka og er af mörgum tal-
inn faðir nútíma píanóleiks.
Þetta verk hefur ekki verið
áður flutt á íslandi og því er full
ástæða til hvetja tónlistaráhuga-
fólk að láta þennan tónlistarvið-
burð ekki fram hjá sér fara.
Arsenal-stemmning í
Bleika fQnum í dag
Norðlenskir Arscnal-aðdáend-
ur ætla að koma saman á
skemmtistaðnum Bleika fíln-
um á Akureyri kl. 18.00 í dag,
föstudag. Tilefnið er bein
útsending Sjónvarpsins frá úr-
slitaleik ensku deildarkeppn-
innar milli Arsenal og Liver-
pool, sem hefst kl. 19.00 á
heimavelli þeirra síðarnefndu.
Arsenal verður að sigra með
tveggja marka mun í dag og ætla
áhangendur liðsins að fylgja því
til sigurs, að sögn Kjartans
Björnssonar á Selfossi, formanns
Arsenal-klúbbsins á íslandi.
Kjartan sagði að Norðurland
eystra væri fjölmennsta deildin
innan klúbbsins, en þar búa um
25% félaga þessa merkilega
aðdáendaklúbbs, og því mætti
búast við góðri mætingu í dag.
„Við ætlum að vinna þennan
leik og erum alls ekki búnir að
tapa trúnni. Við höfum reyndar
staðið okkur illa í síðustu tveim-
ur leikjum og fært Liverpool for-
ystuna í deildinni upp í hendurn-
ar. En þeir eru ekki komnir nema
með aðra höndina á bikarinn og
hann verður slitinn af þeim í dag.
Það er tími til kominn að sýna
Liverpool hverjir eru bestir,“
sagði Kjartan Björnsson að
lokum.
Félagsstarf aldraðra:
Sýning og kaífisala
Félagsstarf aldraðra á Akureyri
verður fjölbreytt um helgina.
Laugardaginn 27. maí hefst sýn-
ing á ýmsunt munum sem unnir
hafa verið í tengslum við nám-
skeið í Húsi aldraðra.
I Gamla Lundi verða sýnd mál-
verk og stendur sú sýning frá 27.
maí til 4. júní. Opið verður kl.
14-20 laugardaga og sunnudaga,
en kl. 16-20 á virkum dögum.
í Húsi aldraðra verður handa-
vinna til sýnis kl. 14-18 laugar-
daginn 27. maí. Þann dag verður
einnig kaffisala til ágóða fyrir
starfsemina.