Dagur - 26.05.1989, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Pösíudágur 26. máí 1989
lesendahornið
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 900 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 80 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 595 KR.
RITSTJÓRI:
BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
ANDRÉS PÉTURSSON (íþróttir),
BJÖRN JÓHANN BJÖRNSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960),
EGILL H. BRAGASON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON
(Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík),
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASIMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
800 milljóna króna
víti til að varast
Flugstöð Leifs Eiríkssonar er eflaust dýrasta bygg-
ing íslandssögunnar til þessa, miðað við fermetra-
fjölda. Engin bygging á vegum hins opinbera hefur
sprengt svo rosalega utan af sér allar kostnaðar-
áætlanir sem flugstöðin og það þótt framkvæmdum
við hana sé ekki enn að fullu lokið. Byggingarsaga
flugstöðvar Leifs Eiríkssonar er saga margra mis-
taka og stórra, sem vonandi eiga aldrei eftir að
endurtaka sig. Umfram allt er þó flugstöðvar-
hneykslið gleggsta dæmið hingað til um það hvern-
ig hægt er að gera stórfelld mistök í starfi hjá hinu
opinbera, án þess að þurfa að bera minnstu ábyrgð
á þeim. Allir, sem fyrir það fengu greitt að hanna og
hafa eftirlit með byggingu flugstöðvarinnar, ypptu
öxlum yfir 800 milljóna króna umframkostnaði og
þar með var það mál úr sögunni af þeirra hálfu.
Skattgreiðendur þessa lands hafa þurft að borga
brúsann, en ekki svo mikið sem einn maður missti
vinnuna eða þurfti að svara til saka vegna hneyksl-
isins. Þetta er lýsandi dæmi um það pólitíska sið-
leysi sem hér ríkir.
Verkfræðingar héldu ráðstefnu á miðvikudaginn
þar sem rætt var um hvaða lærdóm mætti draga af
byggingarsögu flugstöðvarinnar. Þar var rifjað upp
að í lok framkvæmdanna við Leifsstöð kom í ljós að
framkvæmdir höfðu farið um 800 milljónum króna
fram úr áætlun. Þessi umframkostnaður er hreint
ótrúlega mikill. Fyrir 3/4 hluta þessarar upphæðar
væri t.d. hægt að borga jarðgangagerðina í Ólafs-
fjarðarmúla út í hönd. 800 milljónir er hærri fjárhæð
en veitt er til allra skólabygginga í landinu á þessu
ári og ámóta upphæð og öll bygging Þjóðarbókhlöð-
unnar hefur kostað til þessa. Á ráðstefnu verk-
fræðinganna kom fram hörð gagnrýni á verkskipu-
lag og fjárhagslegt eftirlit byggingaraðila og
ábyrgðarmanna vegna framkvæmda við Flugstöð-
ina. Þar kom einnig fram að byggingarframkvæmdir
voru settar á fulla ferð á sínum tíma, þótt mestallri
hönnunarvinnu vegna byggingarinnar væri ólokið.
Þá sérkennilegu ákvörðun tók þáverandi utanríkis-
ráðherra Sjálfstæðisflokksins, Geir Hallgrímsson,
enda var sjálfstæðismönnum mikið í mun að vígja
flugstöðina fyrir kosningar vorið 1987. Það gekk
upp með ærnum tilkostnaði, enda gerðu sjálf-
stæðismenn Flugstöðina að kosningamáli vorið
1987. Það var áður en bakreikningurinn risavaxni
kom fram, enda hefði Flugstöðin ekki reynst sjálf-
stæðismönnum skrautfjöður í hattinn að öðrum
kosti. Þessi 800 milljóna króna reikningur er eflaust
hæsti kosningavíxill íslandssögunnar til þessa.
Vonandi reynist flugstöðvarævintýrið mönnum
víti til varnaðar í framtíðinni. Þjóðin hefur ekki efni
á fleiri bakreikningum af þessari stærðargráðu. Hún
hefur reyndar ekki efni á pólitísku siðleysi yfirleitt,
ef út í það er farið. BB.
Léleg myndgæði
Stöðvar 2 á Grenivík
Jóhannes Gíslason á Grenivík
hringdi.
Eg leyfi mér aö kvarta undan
lélegum myndgæðum hér á
Grenivík á útsendingu Stöðvar 2.
Fólk er búið að borga hér fyrir
myndlykla og mánaðargjald og
sér svo ekki myndina nema með
höppum og glöppum. Þá dettur
myndin út í tíma og ótíma. Ég er
ekki með myndlykil sjálfur en hef
íhugað að fá mér einn slíkan, þó
því aðeins að þessu verði kippt í
lag.
Mér er kunnugt um að undan
þessu hefur verið kvartað oftar en
einu sinni hjá Eyfirska sjónvarps-
félaginu en fólk fær alltaf það
svar hjá starfsmönnum þar að
það kannist ekki við að undan
þessu hafi verið kvartað. Það er
látið gott heita og ekkert gert til
að reyna að koma lagi á útsend-
inguna.
Það er oft talað um ökur Ríkis-
útvarpsins vegna hárra afnota-
gjalda. En ég veit ekki hvað á þá
að kalla það annað en okur hjá
Stöð 2 að láta fólk borga fyrir
handónýta útsendingu. Sem
dæmi um þætti sem ekki hefur
verið hægt að horfa á að undan-
förnu er Santa Barbara þriðju-
daginn 16. og Fegurðarsam-
keppni íslands á annan í hvíta-
sunnu. Fegurðardísirnar voru all-
ar í röndum. Lítil fegurð í því!
Ef ekkert verður að gert er
!jóst að Stöð 2 fær ekki fleiri
áskrifendur hér á Grenivík og
fólk segir í stórum stíl upp
áskriftum að Stöð 2.
Bjarni Hafþór Helgason hjá
Eyfirska sjónvarpsfélaginu
svarar:
Um síðustu áramót voru gerð-
ar úrbætur á sendibúnaði okkar í
Hrísey sem bætti útsendingarstyrk
til Dalvíkur. Reynslan virðist
sýna að þessar úrbætur hafi kom-
ið niður á myndgæðum á Greni-
vík. Við erum nú búnir að festa
kaup á sjónvarpssendi sem við
munum setja upp á Grenivík.
Þessi sendir mun magna upp
merki frá Hrísey og vonandi
tryggja fyrsta flokks myndgæði á
Grenivík. Sendirinn er á leiðinni
og verður settur upp um leið og
hann kemur til landsins. Ég vil
ekki lofa upp á dag hvenær hann
kemur hingað en það ætti að
verða einhvern næstu daga.
Betlað af gömlum
manní á Akureyri
Lcsandi hringdi:
„Ég get ekki orða bundist
vegna atviks sem ég varð nýlega
vitni að. Á Akureyri hefur maður
nokkur verið viðloðandi miðbæ-
inn o.fl. staði, en þessi uinræddi
maður hefur sannanlega stundað
að betla peninga af gömlu fólki
undanfarin ár. Hefur þetta færst í
vöxt, eftir því sem ég heyri.
Um daginn var maður hátt á
níræðisaldri að rölta sér til hress-
ingar nálægt versluninni Garðs-
horni hér í bæ. Gamli maðurinn
vissi ekki hvaðan á sig stóð veðr-
ið fyrr en umræddur „betlari“
Bíleigandi á Akureyri:
Óánægður með
Ingvar Helgason hf.
vék sér að honum og bað hann að
ganga með sér afsíðis út í
almenningsgarðinn sem þarna er.
Hann kynnti sig og kvað aðstæð-
ur sínar erfiðar, kona og börn
væru matarlaus og allslaus heima
og allt hið ömurlegasta. Frásögn-
in var helber uppspuni, eins og
títt er hjá drykkjusjúku fólki sem
er að snapa sér peninga hér og
þar. „Betlarinn" hætti ekki mála-
leitan sinni um peninga fyrr en
gamli maðurinn lét hann Itafa
þúsund krónur. Hvarf þá sá fyrr-
nefndi á braut eftir að hafa lofað
að koma peningunum til skila eft-
ir hádegi sama dag, en fékk áður
heimilisfang gamla mannsins.
Akureyringur hringdi:
„Ég keypti mér nýjan Subaru
skutbíl í fyrra hjá Bifreiðaverk-
stæði Sigurðar Valdimarssonar,
söluumboði Ingvars Helgasonar
á Akureyri. Ég greiddi fullt verð
fyrir þann bíl, eins og eölilegt er.
í vor ætlaöi ég að selja þennan bíl
og kaupa mér eins bíl af nýrri
árgerð. Þá brá svo við að ég gat
ekki selt gamla bílinn og á bíla-
sölum var ntér sagt að menn vildu
ekki kaupa eins árs gamla Subaru
skutbíla því að Ingvar Helgason
hf hefði íeyft innflutning og sölu
á ónotuðum Subaru bílum frá því
í fyrra. Ég fór að kanna málið og
þetta reyndist rétt. Ég vil korna
óánægju minni á framfæri með að
Ingvar Helgason hf. skuli bregð-
ast viðskiptavinum sínum á þcnn-
an hátt og ég mun aldrei framar
versla við það fyrirtæki eða um-
boðsaðila þess.“
Sigurður Valdimarsson svarar:
„Mér þykir mjög miður að
heyra þessa frásögn. Það eina
sem ég vil segja á þessu stigi
málsins er að ég er að vinna að
því að atvik sem þessi muni ekki
endurtaka sig.“
Dýravmur hringdi:
Vegna aðgerða gegn villikött-
Garnli maðurinn hefur áður
látið þvinga sig til að afhenda fé
til þessa sama manns. Ég vil vara
eldra fólk og reyndar alla við að
gefa sig á tal við þennan mann og
aðra ámóta. Réttast væri af yfir-
völdum að grípa inn í þennan
Ijóta leik, því sumt gamalt fólk
þorir ekki annað en að láta und-
an betlinu.
um á Akureyri á vegum umhverf-
isdeildar Akureyrarbæjar dagana
19.-31. maí vil ég koma eftirfar-
Aðgerðir gegn villiköttum:
Vandamál með
tímasetningu
Kennaraverkfallið:
andi á framfæri:
Hver er framtíð
námsfólks?
Móðir tilvonandi stúdents
hringdi.
Mig langar að leggja nokkur
orð í belg í lesendahornið. Það er
mikil ábyrgð að vera kennari. Þið
eruð með framtíð barnanna okk-
ar í höndunum. En hvernig eruð
þið búnir að fara með margra ára
vinnu þeirra og okkur foreldr-
ana?
Ég er ekki á nióti því að kenn-
arar hafi gott kaup því þetta er
krefjandi og mikið starf. En
verkfall í sex vikur eyðileggur og
kemur niður á þeim sem síst
skyldi. Svo á að fara að skella á
þau prófum, svona einn, tveir og
þrír. Þið getið ekki notað krakk-
ana svona í ykkar þágu. Hvernig
er framtíðin fyrir námsfólk? Þau
verða aldrei örugg, né foreldr-
arnir. Ég ætla að biðja ykkur að
hugsa ykkur vel um, næst þegar
þið farið í verkfall!
Ég tek fram að mér finnst sjálf-
sagt að útrýma villiköttum í bæn-
um en mig langar að koma með
þá athugasemd við þessa aðgerð
að mér finnst vera heldur leiðin-
lega að þessu farið. Þetta er lang-
ur tími og heimiliskettir eru nú
einu sinni þannig að þeir vilja
vera úti hluta úr hverjunt degi.
Ég skil ekki af hverju ekki er
hægt að standa í þessari herferð
um helgar. Þá daga er fólk heima
og getur litið eftir sínum heimilis-
köttum, þegar þeir eru úti. Þá
hefði mér fundist vel koma til
greina að starfsmenn bæjarins
stæðu í þessu á fyrirfram ákveðn-
um tíma virka daga, þegar mest-
ar líkur eru á að fólk sé heima.