Dagur - 27.05.1989, Page 2

Dagur - 27.05.1989, Page 2
2 - DAGUR - Laugardagur 27. maí 1989 „Sigrún“ réði úrslitum f æsi- spennandi keppni Þá er komið að átta manna úrslitum í einvíginu. Þessi spurningaleikur verður nú á dagskrá í hverju heigarblaði uns einn stendur uppi sem sig- urvegari. Dregið var um hvaða keppendur leiða saman hesta sína og varð niðurstaðan þessi: Erlingur Sigurðarson - Björn Snæbjörnsson, Júlíus Krist- jánsson - Kristín Jónsdóttir, Anna Helgadóttir - Bjarni Kr. Grímsson og Geirmundur Valtýsson - Elfa Ágústsdóttir. Það voru Erlingur Sigurðarson menntaskólakennari og Björn Snæbjörnsson varaformaður Einingar sem hófu leikinn og var keppni þeirra gríðarlega jöfn og spennandi. Fyrst var spurt um rithöfund. Erlingur þekkti bókartitilinn og þar með höfundinn og fæðingarár hans. Björn hugleiddi málið um stund en taldi að hér væri um Gunnar Gunnarsson að ræða, enda höfundurinn mikið í umræðunni þessa dagana, og hann vissi að Gunnar fæddist fyr- ir hundrað árunt. Teiknimyndahetjurnar vöfðust fyrir keppendum. beir horfa aldrei á Stöð 2 kl. 8 á mánudags- kvöldunt en samt skutu þeir báðir beint í mark eftir nokkrar vanga- veltur: Andrés og Mikki. Þá var komið að rnáli sem nýlega var í fréttunum. Björn og Erlingur svöruðu strax að konan hefði fengið 7.900 kr. í skaðabæt- ur en nafnið á henni mundu þeir ekki svo glöggt. Erlingur hafði skírnarnafnið rétt og fékk hálft stig fyrir það. Björn hafði hins vegar upphafsstafina rétta, SG, en nafnið kolvitlaust. „Hún er síðhærð,“ sagði hann en fékk litl- ar málsbætur fyrir það svar. Stað- an þá 5!/> stig gegn 5, Erlingi í vil. Sjaldgæf íslensk orð hafa vakið litla kátínu hjá keppendum. Björn tengdi trys við trissu. „Segjum bara að þetta sé blökk." Erlingur hugsaði sig um: „Hmm, trys, tros, trus, trúss. Segjum bara að þetta sé farangur eða klyfjar, önnur orðmynd yfir trúss." Hvorugur fékk því stig enda rétt svar: Verðlaus hlutur, glingur, drasl. íþróttir voru næstar á dagskrá. Skemmst er frá því að segja að hvorki Erlingur né Björn áttu í erfiðleikum með að nefna Reykjavíkurliðin fimm í 1. deild karla í fótboltanum. Blaðamann Morgunblaðsins og fyrrverandi blaðamann Dags þekktu þeir líka mæta vel. „Það er Magga Þórs, hún hefur oft talað við mig,“ sagði Björn. „Margrét Þóra Þórs- dóttir er þarna og hún hlýtur að teljast fullgildur blaðamaður Morgunblaðsins,“ sagði Erling- ur. „Blessaðir karlarnir“ En hvaða nafn gáfu Samherja- menn Álftafellinu sem þeir keyptu frá Stöðvarfirði? „Annað hvort var það Hjalteyrin eða Hrísey," sagði Björn og ákvað síöan að gefa hið rétta svar. Erl- ingur svaraði einnig rétt og stað- an í þessu spennandi einvígi því 12V2 stig gegn 12, Erlingi í vil og aðeins tvær spurningar eftir. „Hann heitir Ling eða Wong eða eitthvað svoleiðis. Segjuni að hann heiti Ling,“ sagði Björn um forsætisráðherra Kína. Rangt. „Ja, hver er forsætisráðherra, hver er forscti og hver er aðalrit- ari? Blessaðir karlarnir. Er það ekki Deng Xioapeng?" Rangt, og enn skilur hálft stig keppendur fyrir síðustu spurninguna. Hvenær eru sumarsólstöður? Nú var mikið í húfi og keppendur hugsuöu sig vel um. Þessi þanka- gangur bar þann ágæta árangur að þeir svöruöu báðir rétt. En hálfa stigið hans Erlings, sem hann fékk með nafninu „Sigrún", reyndist hafa úrslitaþýðingu í þessari keppni. Erlingur sigraði, fékk 13Vi stig af 16 mögulegum en Björn fékk 13. Sá síðarnefndi var að vonunt dálítið svekktur yfir því að þessi stórgóði árangur skyldi ekki nægja til sigurs og að sama skapi var þungu fargi létt af Erlingi þegar hinn naumi sigur var í höfn. Erlingur Sigurðarson er kom- inn í undanúrslit en Birni Snæ- björnssyni þökkum við drengi- lega keppni. SS 9 • T Erlingur Sigurðarson Björn Snæbjörnsson Rétt svör 1. Hver skrifaði skáldsöguna Sælir eru einfaldir og hvaða ár fæddist höfundurinn? (2) Gunnar Gunnarsson, 1889 Gunnar Gunnarsson, 1889 Gunnar Gunnarsson, 1889 2. Hvaða tvær teiknimyndahetjur eru í aðalhlutverki á dagskrá Stöðvar 2 kl. 8 á mánudagskvöldum? (2) Mikki mús og Andrés önd Andrés önd og Mikki mús Andrés önd og Mikki mús 3. Hvað heitir konan sem kærði Félag verslunar- og skrifstofufólks á Akureyri og hvaða upphæð fékk hún í skaðabætur? (2) Sigrún Magnúsdóttir Sóley Gestsdóttir Sigrún Grímsdóttir 7.900 kr. 7.900 kr. 7.900 kr. 4. Hvað er trys (no. hk.)? (1) Farangur Blökk Glingur, drasl 5. Hvaða fimm Reykjavíkurlið taka þátt í 1. deild karla á íslandsmótinu í knattspyrnu? (5) Fram, KR, Valur, Fylkir Valur, Fram, KR, Víkingur Fram, Fylkir, KR Vaíur ogVíkingur ogFylkir ogVíkingur 6. Hver er biaðamaður Morgunblaðsins á Akureyri? (1) Margrét Þóra Þórsdóttir Margrét Þórsdóttir Margrét Þóra Þórsdóttir 7. Hvaða nafn fékk togarinn sem Samherji hf. keypti á dögunum? (1) Hjalteyrin Hjalteyrin Hjalteyrin 8. Hvað heitir forsætisráðherra Kína? (1) Deng Xioapeng Ling Li Peng 9. Hvenær eru sumarsólstöður? (1) 21. júnf 21. júní 21. júní Samtals stig: 131/2 13 16 matarkrókur Fjölbreytni í fyrirrúmi Matarkrókurinn býður upp á þrjá ólíka rétti að þessu sinni. Tveir eiga það sammerkt að vera ódýrir og fljótlegir, bún- ir til úr kjöthakki og fiskboll- um, en að auki er hér upp- skrift að vandaðri eggja- köku. Hún krefst meiri fyrir- hafnar í matreiðslu. Risotto 2 dl hrísgrjón 200 g kjöthakk salt, pipar, papríkuduft, karrý 1 púrra 1 paprika 2 ananashringir sveppir, ef óskað er Hakkið er brúnað á pönnu ásamt grænmetinu og kryddað. Soðnum hrísgrjónum og ananas bætt út í. Gott að bera brauð með og/eða gróft salat. Þessi rétt- ur er ákaflega fljótlegur og er snjallt að nota í hann afganga. Einnig má breyta að vild því sem blandað er saman við hakkið og hver og einn getur því sniðið rétt- inn eftir eigin óskum. Fiskbollubakstur 1 dós fiskbollur smávegis af grœnmetisblöndu (frosinni eða úr dós) 3 egg graslaukur rifinn ostur Fiskbollur og grænmeti sett í eldfast mót, Eggin þeytt með ca 6 msk fiskbollusoði. Graslauk (eða venjulegum lauk) og rifnum osti bætt í og hellt yfir bollurnar. Bakað í ca 30 mínútur. Þessi auð- veldi og ódýri réttur er borinn fram með soðnum kartöflum og brauði. Sveppa-eggjakaka 6 egg 5 dl mjólk salt Nýir sveppir smjör rauðvín rjómi pipar, sojasósa Þessi eggjakaka er góð með nautakjöti, bökuðum kartöflum og grófu salati. Einnig ágæt með hökkuðu buffi ef minna stendur til. En þá er það matseldin: Mjólkin er yluð, eggin þeytt og mjólkinni blandað saman við þau. Lögurinn er settur í smurt form og kakan bökuð í um 20 mínútur. Hún er tekin strax út úr ofninum því annars fellur hún og verður að gutli, sem þykir ekki sniðugt. Sveppir eru steiktir í smjöri við mjög vægan hita. Rauðvíni hellt yfir og þetta látið malla í allt að eina klukkustund. Rauðvíni er bætt út í af og til svo sveppirnir þorni ekki. Á meðan er búinn til jafning- ur, þynntur út með sveppasoði, rjóma og rauðvíni og kryddaður, t.d. með pipar og sojasósu. Sveppirnir látnir út í og þessu hellt yfir eggjahræruna. Nauð- synlegt að bera réttinn fram strax. Verði ykkur að góðu. SS

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.