Dagur - 27.05.1989, Qupperneq 7
Laugardagur 27c maí 4989 - DAGUR - 7*
poppsíðan
l
Umsjón: Valur Saemundsson.
Fyrst ABBA, síðan Europe og nú:
MiklarogskjótarvinsældirRoxette
- og finnst allt í lagi að borga 85% tekjuskatt
Þaö má með sanni segja að sænski
dúettinn Roxette hafi skotist með
undraverðum hraða upp á stjörnu-
himininn. Fyrir örfáum vikum vissi
enginn maður nokkur deili á þessu
fyrirbrigði, en nú hefur því tekist að
koma laginu The Look á topp
efstu lögum vinsældalistans, ekki
einu sinni Madonna komst nálægt
því þegar nýju lögin hennar fóru að
heyrast fyrir skömmu. Sýnir þetta
vel hversu miklar vinsældir Roxette
hefur öðlast, því ekki er hægt að
segja að Madonna sé óvinsæl
dama að neinu leyti. Annað dæmi
um þessar vinsældir hef ég úr einni
hljómplötuversluninni á Akureyri, en
þar kvaðst afgreiðslumaðurinn hafa
pantað eitt eintak af stuttplötunni
með laginu The Look, þegar það
byrjaði að klifra upp bandaríska
listann. Þetta var fyrir örfáum vikum,
og gekk þetta eina eintak seint út. í
dag er þessi stuttplata mest selda
stuttplatan í þeirri verslun um langa
hrið, og breiðskífan selst best af
breiðskífuflóru verslunarinnar, að
sögn afgreiðslumannsins.
Roxetter er dúett, eins og ég hef
margoft tekið fram hér að ofan.
Meðlimirnir heita Per Gessle og
Marie Fredriksson, og hafa lengi
notið afar mikilla vinsælda í heima-
landi sínu. Per hefur verið að semja
lög síðan hann var fjórtán ára polli,
einnig var hann höfuðpaur hljóm-
sveitar sem kallaöist Gyllene Tider.
Marie hefur hins vegar sent frá sér
þrjár sólóplötur, sem hafa hver um
sig selst I yfir 100.000 eintökum. En
vinsældir Roxette í Bandaríkjunum
eru að miklu leyti amerískum náms-
manni í Minneapolis að þakka.
Hann hafði heyrt lagið með Roxette
og beinlínis skipaði einni útvarps-
stöðinni í Minneapolis að leika lagið
The Look. Ekki var að sökum að
spyrja, stöðin drukknaði í símhring-
ingum frá hlustendum, sem ólmir
vildu vita allt um þetta lag og heyra
það aftur. Svo rammt kvað að
þessu að leggja varð stöðina niður
og forráðamenn hennar urðu að
laumast huldu höfði úr landi. Þetta
eru nú kannski ýkjur hjá mér, en
a.m.k. varð þetta lag svo vinsælt á
stöðinni að aðrar stöðvar fóru að
veita því athygli, ásamt því að leika
það. Og þar með var boltinn farinn
að rúlla og ekki er enn séð fyrir end-
ann á þeim veltingi.
Per hefur oft verið líkt við Prince, en
hann segir það af og frá að hann sé
að stæla þann ágæta mann. Hann
kveðst vera mest hrifinn af tónlist
sjötta áratugarins og vill miklu held-
ur hlusta á Monkees en áðurnefnd-
an Prince. Hins vegar hefur Marie
allt annan tónlistarsmekk, hún
hlustar helst á soul-tónlist og munu
tíð rifrildi vera milli þeirra tveggja.
En þau eru ekki alvarlegs eðlis, sem
betur fer fyrir þau.
Ekki verður því neitað, að þessar
miklu vinsældir hafa gert það að
verkum að fjármunir streyma örar
og örar í vasa skötuhjúanna. Það
liggur því beinast við að álykta að
þau hafi flúið skattaáþjánina í
Svíþjóð, eins og flestir frægir Svíar.
Björn Borg flutti t.d. til Monaco, og
liðsmenn Europe til Bahamaeyja.
En ekki er það nú rétt. Per segir
nefnilega að honum sé ekkert illa
við að borga 85% af tekjum sínum
til sænska ríkisins. Hann kveðst
hvort sem er ekki hafa hugmynd um
hvað hann ætti að gera við pening-
ana. Eini lúxusinn sem hann vill
veita sér, er að geta eytt nægum
tíma með kærustunni og fjölskyld-
unni, en það hefur hann ekki getað
veitt sér að undanförnu vegna anna
við að fylgja vinsældunum eftir.
Sannarlega óvænt sjónarmið og
sorglega óalgengt. Punktur.
Þrátt fyrir að þau rífist stundum um tónlist, þá virðast skötuhjúin í Roxette
kunna vel hvort við annað.
bandaríska vinsældalistans, ásamt
því að breiðskffan Look sharp! hef-
ur runnið út eins og lummurnar
margfrægu, sem allir þekkja. Hér á
landi uppgötvaði fólk þennan dúett
örlftið seinna en Bandaríkjamenn,
og er það óvenjulegt þar sem
Bandarfkjamenn þykja seinteknir
með afbrigðum, þegar popp er ann-
ars vegar. Hins vegar eru Bretar rétt
nýbúnir að uppgötva Roxette og
ef laust verða viðtökurnar viðlíka og
annars staðar.
Þess má geta til gamans, að um
þessar mundir er lagið Paint, með
Roxette í efsta sæti Vinsældalista
rásar tvö, og lagið The Look situr í
því þriðja. Það er afar fágætt að
sami flytjandi eigi tvö af þremur
Útvegsmenn á
Norðurlandi
Útvegsmannafélag Norðurlands boðar til fundar
mánudaginn 29. maí að Hótel KEA kl. 16.00.
Fundarefni:
Málefni útgerðar.
Sjávarútvegsráðherra Halldór Ásgrímsson og formaður
L.Í.Ú. Kristján Ragnarsson koma á fundinn.
Stjórnin.
Óskum eftír
íbúð!
Teiknistofan Stíll óskar eftir að taka á leigu 4ra til 5
herb. íbúð sem fyrst.
Leigutími eftir samkomulagi.
Vinsamlegast hafið samband í síma 25757 eða 25946
á kvöldin.
VERKMENNTASKÓLINN
Á AKUREYRI
Kennt verður á eftirtöldum
sviðum næsta skólaár:
1. Heilbrigðissvið
a) Nám til sjúkraliðaprófs.
b) Nám til stúdentsprófs.
c) Endurmenntun sjúkraliða samkvæmt eldri reglu-
gerð.
2. Hússtjórnarsvið
a) Grunndeild matartækna.
b) Framhaldsdeild matartækna.
c) Handíðabraut.
d) Nám til stúdentsprófs.
3. Taeknisvið
a) Samningsbundið iðnnám (1., 2. og 3. áfangi).
b) Grunndeildir háriðna (nemar í háriðn þurfa að hafa
ing), málmiðna, rafiðna og tréiðna.
c) Framhaldsdeildir málmiðna, rafeindavirkjunar og
tréiðna.
d) Vélstjórnarbraut 1., 2. og 3. stig og vélavarðarnám
(1 önn).
e) Tæknibraut:
a) Undirbúningsdeild sem aðfararnám að iðn-
rekstrarfræði.
b) Undirbúnings- og raungreinadeild sem aðfarar-
nám að tæknifræði.
f) Tækniteiknun - framhald.
g) Meistaraskóli.
4. Uppeidissvið
a) Nám á íþróttabraut til stúdentsprófs.
b) Nám á uppeldisbraut til stúdentsprófs.
5. Viðskiptasvið
a) Nám til almenns verslunarprófs.
b) Nám til stúdentsprófs.
6. Fornám
Nám í öldungadeild og námskeið verða auglýst
síðar.
Starfræksla allra námsbrauta er bundin fyrirvara
um þátttöku og húsrými.
Umsóknarfrestur er til 5. júní. Nemendur, sem
sækja síðar um, geta ekki vænst skólavistar.
Skólameistari.
Glæsilegar íbúðir í
einnar hæðar raðhúsum
við Múlasíðu 30-38
Raðhús á einni
hæð með bílskúr
Stærð íbúðar 108 fm
+ bílskúr 26,6 fm
Samtals 134,6 fm
íbúðirnar afhendast
fullfrágengnar
og fokheldar
Húsin eru í
fullbyggðum hverfum
Ath.
Lánafyrirgreiðslur
Teikningar og
aðrar upplýsingar
veittar á
skrifstofunni.
AÐALGEIR FINNSSON HF
BYGGINGAVERKTAKI & TRÉSMIÐJA
FURUVÖLLUM 5 P O. BOX 209 602 AKUREYRI ICELAND
SlMAR 21332 & 21552 NAFNNÚMER 0029-0718