Dagur - 27.05.1989, Síða 16
Akureyri, laugardagur 27. maí 1989
Skógræktarfélag Eyfirðinga ★ Gróðrarstöðin í Kjama
Opið virka daga kl. 9-18. Laugardaga kl. 10-17.
n... , . „ • MÉSSM ld'iðupp'ísi"8a
Pkmtusala 1 niuum gangi
Barrtré ★ Lauftré ★ Skrautrunnar ★ Berjarunnar
Limgerðisplöntur ★ Klifurplöntur ★ Skógarplöntur ★ Rósir.
i snnuni
24047 og 24599.
★ Póstsendum
um allt land.
Útskrifað
MVMAídag
Útskrifað verður frá Verk-
menntaskólanum á Akureyri í
dag og hefst athöfnin í Akur-
eyrarkirkju kl. 10.00 fyrir
hádegi. Þar munu útskrifast
tæplega 60 stúdentar auk
nemenda frá öðrum sviðum
skólans.
Stúdentsefnin sem útskrifast í
dag tóku sum hver síðustu prófin
sín í gær,- svo segja má að um
heldur óvenjulegt ástand hafi
verið að ræða, enda lauk 6 vikna
verkfalli kennara fyrir rétt rúmri
viku síðan.
Auk stúdentanna útskrifast í
dag húsasmiðir, rafvirkjar, vél-
stjórar af 2. og 3. stigi, málmiðn-
aðarmenn, 1 matvælatæknir,
sjókokkar og sjúkraliðar. VG
Kaupleiguíbúðir á
Egilsstöðum:
Hannaðar eftir
óskumkaupenda
Fyrirhugað er að hefja bygg-
ingu kaupleiguíbúða á Egils-
stöðum í haust. Nýlega var
auglýst eftir væntanlegum
kaupendum, en sú óvenjulega
leið var farin að kanna fyrst
hverjar óskir kaupenda væru
svo sem um íbúðastærðir og
annað og efna síðan til sam-
keppni um bygginguna.
Sigurður Símonarson bæjar-
stjóri á Egilsstöðum segir að þeg-
ar að þessu komi, verði verktakar
látnir sjá um hönnun og fram-
kvæmdir. „Við höfum þegai
fengið leyfi fyrir byggingu fimm
íbúða og eigum inni umsóknir
um fimm í viðbót sem við von-
umst til að gangi fram núna. Við
gerum því ráð fyrir að byggðar
verði tíu íbúðir í fjölbýlishúsi,
raðhúsum eða parhúsum, allt eft-
ir óskum kaupenda.“
Nokkur áhugi er á kaupleigu-
íbúðunum en margir hafa leitað
sér upplýsinga um þær, en á
Egilsstöðum er húsnæðisskortur
og mikil eftirspurn eftir húsnæði.
VG
W
Góð gjöf tU VMA
Verkmenntaskólanum á Akureyri barst góð gjöf á dögunum. Landsvirkjun færði skólanum tvær skil-
vindur til kennslu á vélstjórabraut skólans. Skilvindurnar eru af gerðinni Alfa Laval. Baldvin Bjarna-
son, settur skólameistari, veitti gjöfinni móttöku og sagði m.a. við það tækifæri að skilvindurnar kæmu
sér einkar vel og væru i raun sending af himnum ofan því skólanum hefði ekki verið mögulegt að festa
kaup á svo dýru kennslutæki. Myndin var tekin við þetta tækifæri. Frá vinstri; Erlingur Ragnarsson,
Aðalgeir Pálsson, Árni Arnarson Baldvin Bjarnason, Knútur Otterstedt, Guðmundur Jónsson og
Alfreð JÚllUSSOn. Mynd: KL
Slökkviliðsstjórinn
á Akureyri
Enn hætta á
sinueldum
Slökkviliðið á Akureyri hefur
tvisvar verið kallað út vegna
sinubruna eftir að snjóa leysti
á þessu seinvirka vori. í öðru
tilvikinu var reyndar kveikt í
rusli og var hætta á að eldurinn
breiddist í sinu en í hinu tilvik-
inu kveiktu börn í sinu á trjá-
ræktarsvæði við Hörgárbraut,
en þar urðu einmitt töluverðar
skemmdir á gróðri í sinueldum
fyrir tveimur árum.
„Sinubrunar eru alltaf slæmir,
sérstaklega svona seint á vorin,
en sem betur fer hafa útköll
vegna þeirra aðeins orðið tvö og
vonandi verða þau ekki fleiri,“
sagði Tómas Búi Böðvarsson,
slökk viliðsstj óri.
Bannað er að kveikja í 'sinu í
bæjarlandinu nema með leyfi
slökkviliðsins og samkvæmt
landslögum er stranglega bannað
að kveikja í sinu eftir 1. maí.
„Pað er sina ennþá, sérstak-
lega í skógarreitum, og geta sinu-
eldar valdið þar miklum
skemmdum. Ég vil því hvetja
foreldra til að tala um þessa
hættu við börn sín og jafnframt
hvetja alla til að fara gætilega
með eld í kringum sinu,“ sagði
Tómas Búi. SS
Skýrslan um skipasmíða- og skipaviðgerðaiðnaðinn:
Tel þessa skýrslu vænlega
til árangurs fyrir iðnaðinn
- segir Sigurður Ringsted, forstjóri Slippstöðvarinnar hf. á Akureyri
Það vantar framtíðarsýn í
„í aöalatriöum er ég sáttur við
þessa skýrslu breska ráðgjafa-
fyrirtækisins og tel hana vel
unna. Það er margt markvert
þarna sagt og margar ágætar
tillögur settar fram. Maður er
kannski ekki alveg sammála
öllu en í heild er skýrslan góð
og ég tel hana vænlega til ár-
Af hverju mun lægra verð fyrir sunnan?
Bullandi tap á
kjötsölu syðra
í gær birtist verðkönnun í Degi
sem Neytendafélag Akureyrar
og nágrennis framkvæmdi
nýlega á kjöti og unnum kjöt-
vörum í samvinnu við ASÍ,
BSRB og NS. Það vekur at-
hygli í niðurstöðum könnunar-
innar að lægsta verð einstakra
vörutegunda á höfuðborgar-
svæðinu er mun lægra en upp-
gefið verð í Hagkaupum,
KEA-versIunum og Matvöru-
markaðnum á Akureyri.
Dagur leitaði í gær skýringa á
þessum mikla verðmun hjá fjöl-
mörgum kjötiðnaðarmönnum á
Akureyri og bar þeim öllum sam-
an um að lægsta verð á höfuð-
borgarsvæðinu væri langt undir
kostnaðarverði, m.ö.o. að hin
grimma samkeppni þar hefði leitt
til þess að sala á kjöti og unnum
kjötvörum væri rekin með bull-
andi tapi. Hrafn Hrafnsson, hjá
Matvörumarkaðnum, sagði kjöt-
iðnaðarmenn syðra almennt við-
urkenna þetta og þeir álitu að
slík verðlagning gæti ekki staðist
til lengdar. Spurður um verðlagn-
ingu á kjöti og unnum kjötvörum
á Akureyri og nágrenni sagði
Hrafn að auðvitað væri reynt að
ná fram sem mestri hagræðingu
þannig að neytendum biðist var-
an eins ódýrt og kostur er, en
ljóst væri að ekki væri unnt að
selja þessar vörur undir kostnað-
arverði, verslunin þyrfti að fá
eitthvað í aðra hönd af sölunni.
óþh
angurs og umræðu um þcnnan
iðnað okkar,“ segir Sigurður
Ringsted, forstjóri Slippstöðv-
arinnar h.f. á Akureyri, um
skýrslu breska ráðgjafafyrir-
tækisins A&P Appledore um
íslenskan skipasmíða- og
skipaviðgerðaiðnað.
Eins og frain hefur komið er
ein af meginniðurstöðum bret-
anna sú að marka þurfi stefnu
fyrir iðnaðinn hér á landi. Par
verði Félag dráttarbrauta og
skipasmiðjá að leggjast á árar
með ríkisstjórninni. Sigurður
segist fullkomlega sammála
skýrslunni um þetta atriði.
„Ég hef lengi haldið þessu
fram.
þennan iðnað, menn hafa ekki að
neinu að stefna en vita hins vegar
að sé litið til nokkurra ára í senn
þá er veruleg þörf fyrir þjónustu
þessa iðnaðar fyrir íslenska
útgerðarmenn, bæði á sviði við-
gerða, endurbóta og nýsmíði.
Núna er alltaf verið að fást við
þennan skammtímabarning,“
segir Sigurður.
Fleiri atriði er bent á í skýrsl-
unni. Sigurður segir að hvað
varði hugmyndir um sameiningu
fyrirtækja í þessum iðnaði þá
beini bretarnir helst spjótum sín-
um að Faxaflóasvæðinu enda sé
ljóst að hvað Slippstöðina varði
þá geti ekki orðið um neinar sam-
einingar að ræða. Sigurður segir
hins vegar möguleika á samvinnu
milli stöðva þar sem Slippstöðin
yrði þátttakandi. „En ætli heiðar-
leg samkeppni sé hins vegar ekki
besti kosturinn. Ég er sammála
því að auka þurfi framleiðni í
þessum iðnaði og þetta er hægt
en ekki nema að menn hafi næg
verkefni og geti séð fram í
tímann,“ bætir Sigurður við.
„Ég held að næsta skref verði
að menn frá iðnaðarráðherra
spjalli við okkar menn um skýrsl-
una og reyni að komast að sam-
eiginlegri niðurstöðu um ein-
hverjar færar leiðir. Það tel ég
mikilvægast núna,“ segir Sigurð-
ur Ringsted. JÓH
Laxveiðitímabilið að heflast:
Iifleg sala veiðileyfa
Laxveiðitímabilið hefst næst-
komandi fimmtudag. Veiði
hefst þó almennt ekki I norð-
lenskum ám fyrr en liðið verð-
ur á júnímánuð. Veiði í Laxá á
Ásum byrjar strax á fyrstu
dögum veiöitímabilsins en um
10. júní hefst veiði í nokkrum
ám, s.s. Laxá í Aðaldal, Mið-
fjarðará, Víðidalsá og Vatns-
dalsá. Veiði í Blöndu hefst
þegar vika verður liðin af júní-
mánuði.
Margir eru þeir sem byrja
veiðitímabilið á urriðasvæðunum
og mun veiði t.d. hefjast á urriða-
svæði Laxár í Aðaldal um mán-
aðamótin. Veiði í Húseyjarkvísl
hefst þann 17. júní en þeir veiði-
menn sem kjósa árnar á norð-
austurhorni landsins verða að
bíða framundir lok júnímánaðar
eftir því að þar hefjist veiðar.
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem blaðið hefur aflað sér hefur
sala á veiðileyfum verið mjög góð
í vetur og vor. Veiðleyfi á
Mývatnssvæðinu eru löngu upp-
seld og svo mun einnig vera um
leyfi í stærri laxveiðiárnar á
Norðurlandi.
Þeir sem vilja fara að blása
rykinu af útbúnaði sínum geta
byrjað tímabilið á flugukastnám-
skeiði sem haldið verður í
íþróttahöllinni á Akureyri næst-
komandi mánudags-, þriðjudags-
og miðvikudagskvöld. Fyrir þess-
um námskeiðum standa stang-
veiðifélögin á Akureyri og versl-
unin Eyfjörð og eru þau öllum
opin. JÓH