Dagur - 07.06.1989, Blaðsíða 5

Dagur - 07.06.1989, Blaðsíða 5
Mt'&tf rktKÍag u r*7.'jón í*1989 v-. OA'QU FV"*- 5 K f/ fréttir Sauðárkrókur: Hreinsunar- og gróðursetningarvika í gangi Á Sauðárkróki er í gangi hreinsunar- og gróðursetning- arvika, undir slagorðinu „Hreinar götur - rusl í fötur“. Vikan hófst si. mánudag og stendur fram á sunnudag, 11. júní. Það er Umhverfis- og gróðurverndarnefnd og heil- brigðisfulltrúi sem standa að vikunni, ásamt bæjaryfírvöld- um. Ýmis félagasamtök í bæn- um hafa lagt málinu lið, m.a. með peningagjöfum til plöntu- kaupa. í gær fengu bæjarbúar sent dreifíbréf, þar sem tilhög- un vikunnar er lýst. í hverri götu í bænum hafa verið skipaðir „ruslamálaráð- herrar“, alls 38 að tölu. Þeirra hlutverk er afhending ruslapoka og umsjón með því rusli sem safnast, og verður það sótt á föstudag og laugardag. Þeir sem standa að hreinsunarvikunni von- ast til að bæjarbúar taki virkan þátt í umhverfisátakinu og hreinsi vel til á lóðum og nánasta umhverfi. Föstudagskvöldið kl. 20 og laugardagsmorgun kl. 9 ætla nokkur félög og klúbbar í bænum að hreinsa opin svæði og gróður- setja tré og lúpínur. Hreinsunin fer fram á föstudagskvöldið og gróðursetningin á laugardag. Þau félagasamtök sem munu hjálpa til eru Lionsklúbbur Sauðár- króks, Rotaryklúbbur Sauðár- króks, Kvenfélag Sauðárkróks, Kiwanisklúbburinn Drangey, Lionessuklúbburinn Björk og Nýtt fiskverð: Hækkunum 4,2% frá síðustu mánaðamótum Almennt fískverð hækkaði um 4,2% þann 1. júní sl. og gUdir nýtt fískverð til 30. september n.k. Ákvörðun um þessa verð- breytingu var tekin á fundi yfírnefndar Verðlagsráðs sjáv- arútvegsins síðastliðinn föstu- dag en einnig var ákveðið nýtt fískverð fyrir tímabilið 1. októ- ber til 31. janúar n.k. Hækkunin frá og með 1. októ- ber n.k. verður 3,8%. Nýja verð- ið var samþykkt með atkvæðum fulltrúa fiskseljenda og odda- manns gegn atkvæðum fulltrúa fiskkaupenda. í yfirnefndinni áttu sæti þeir Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar, sem var oddamaður, Guðjón A. Krist- jánsson og Sveinn Hjörtur Hjart- arson af hálfu seljenda og Friðrik Pálsson og Árni Benediktsson af hálfu kaupenda. Fulltrúar fiskkaupenda gerðu grein fyrir atkvæðum sínum við afgreiðslu málsins hjá nefndinni og létu bóka að þar sem ekki sé tryggt að fiskvinnslan fái strax þann tekjuauka sem nauðsyn- legur sé til þess að standa undir þessari fiskverðshækkun og þeim halla sem fyrir sé hjá vinnslunni geti þeir ekki tekið þátt í af- greiðslu málsins. JÓH SPENNUM BELTIN sjálfra okkar vegna! Sinawik-konur. Þær síðasttöldu ætla að sjá um grillveislu á laug- ardag, þegar gróðursetningu lýkur, um kl. 15.00. Grillveislan verður annaðhvort við íþrótta- húsið, eða í Grænuklauf, eftir því hvernig veður verður. Varðandi bílhræ og brotajárn, eru eigendur þess beðnir að hafa samband við heilbrigðisfulltrúa eða bæjartæknifræðing. Númers- lausar bifreiðar mega ekki standa hvar sem er og er eigendum þeirra bent á að geyma þær á við- eigandi stöðum. Eigendur og forsvarsmenn fyrirtækja eru hvattir til að líta í kringum sig og athuga hvort ekki sé einhverju ábótavant, sömuleiðis hestamenn og búfjáreigendur. -bjb Sokkar io poy ,„0 Verð Vt. VlandkVa Vertta.99 i Koddar \ 50x70 og 6( \ Verðkr. 6 2 stk. kr 968mm '497mm 1I|1 llill ftfl| ÝXwX’X 11IH§ Mottut frákujL lillli W&M hhhi iiiiiil iidttpr Sta^ar V^rðfrákr 6 tcgun<Jir kr, 29-900 wmw®ftp Tvíbretð Ifákr> Veronica 140x2°° 900,- álaugardög^ Verslið ódýrt í / ftúmtepp1 Verðkr. 1*5^1 ss&sa. á aðeins kr. 6. SprtaSdýn**r ASurkr 6 90 ° - ToSo5%ir90' 85x190 og 90x200 Sendum1 póstkröfu Áuðbrekku ~ ^ Ósevn 4 200Kópav«gur V 603 Ákureyn 91-40460 ^ 96-26662

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.