Dagur - 07.06.1989, Blaðsíða 3

Dagur - 07.06.1989, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 7. júní 1989 - DAGUR - 3 Flugumýri í Skagafírði: Fimmtán nautgripir drápust - vegna gaseitrunar úr haughúsi Á Flugumýri í Skagafirði gerð- ist sá sjaldgæfi atburður í síð- ustu viku að fimmtán nautgrip- ir drápust úr gaseitrun, þegar verið var að dæla mykju úr haughúsi. Við það myndaðist eiturgas sem safnaðist fyrir í þeim hluta fjóssins sem naut- gripirnir voru. Af þeim fimmtán sem drápust, voru fjórtán kálf- ar og ein kvíga, sem átti að bera í ágúst, auk þess veiktust fimm kálfar til viðbótar. Þarna er um mikið tjón að ræða, því gripirnir voru ekki tryggðir fyr- ir óhappi af þessu tagi. Mesta mildi var að ekki fór verr, en í fjósinu öllu voru um 100 naut- gripir, og börn að leik fyrir utan. Jón Ingimarsson, bóndi á Flugu- mýri, sagði í samtali við Dag, og hafði það eftir Steini Steinssyni dýralækni, að óhapp sem þetta hefði aldrei gerst áður í Skaga- firði, svo vitað sé. Ekki tókst að fá það staðfest í gær hvort eitt- hvað svipað hefði gerst áður, hér á landi. Aður en óhappið gerðist var Jón búinn að dæla um 11 sinnum í 4000 lítra tank úr haughúsinu, og ekkert komið upp á. „Það er banvæn lofttegund sem kom þarna upp, sem drepur í hvelli. Þetta er trúlega fyrir hendi í öll- um haughúsum, og maður hefur vitað að hættan væri fyrir hendi. En það hafa verið einhverjar þær aðstæður sem þarna sköpuðust, að þær drápu gripina á nær svip- stundu,“ sagði Jón, og bætti við að aðkoman hefði verið Ijót, að öllum líkindum stutt liðið frá því kálfarnir féllu í valinn. Jón missti þarna nær allan kálfaárganginn, eftir eru 3 naut- 'kálfar og 1 kvígukálfur. -bjb Vélsmiðjan Oddi hf. á Akureyri: Kaupír fyrirtæki í Kópavogi Yélsmiöjan Oddi hf. á Akur- eyri yfirtók rekstur Kæli- og frystivéla hf. í Kópavogi þann 1. júní síðastliðinn. Fyrirtækið Kæli- og frystivélar hf. hefur undanfarin 30 ár haft aðsetur í Kópavogi og þjónað fyrirtækj- um með stór og smá kæli- og frystikerfi. Starfsvettvangur fyrirtækisins hefur aðallega verið suðvestur-, vestur- og norð vesturlandið. Kælideild Vélsmiðjunnar Odda hf. var stofnuð fyrir um 20 árum og hefur að mestu starfað á Vestfjörðum, Norðurlandi og Austfjörðum. Bæði fyrirtækin hafa sérstöðu hvað varðar reynslu í smíði stærri frystikerfa og mikla þekkingu á Freon og og Ammoniak kæli- og frystikerfum. Með samruna fyrirtækjanna næst meiri hagkvæmni í rekstri og betri þjónusta við viðskipta- vini þeirra. Eftir sameininguna mun fyrir- tækið sjá um þjónustu fyrir marga þekkta framleiðendur frystivéla, má þar nefna Sabroe, Bock og Henry Spby. Vélsmiðjan Oddi hf. mun leggja áherslu á að viðskiptavin- um Kæli- og frystivéla hf. verði áfram veitt góð og sambærileg. þjónusta og hingað til. Starfsemin verður áfram í Kópavogi undir nafni Kæli- og frystivéla og starfsmenn þeir sömu og áður. Með kaupunum á Kæli- og frystivélum hf. hyggst Vélsmiðj- an Oddi hf. víkka þjónustunet Innlend framleiðsla á kartöfl- um mun nú vera á þrotum og hefur Landbúnaðarráðuneytið heimilað innflutning. Ekki hafa verið fluttar inn kartöflur í nokkur ár en nú er helst um að kenna lélegri uppskeru að sögn Sveinbergs Laxdal for- manns Félags kartöfiubænda í Eyjafirði. Hann sagði kartöflubúgreinina vera mjög sveiflukennda og því yrði að reikna með að sú staða gæti komið upp að flytja þyrfti sitt einkum með tilliti til hinna fjölmörgu Sabroe, Bock og Sóby frystivéla sem eru víðs vegar um landið og um borð í skipum. Fyrirtækið mun kappkosta að tileinka sér jafnan nýjustu tækni, eiga góðan varahlutalager og hafa á að skipa sérhæfðum starfs- mönnum sem eru reiðubúnir að fara hvert á land sem er þegar þörf krefur. inn kartöflur. Sveinberg sagði menn vera farna að huga að görðunum sín- um en allt væri mun seinna en venjulega. Snjór lá lengi á görð- unum og þeir voru seinir að þorna. „Það veit enginn hvernig uppskeran verður í ár, hún gæti orðið léleg en hún gæti líka orðið viðunandi, það fer allt eftir tíðar- farinu. Það er þó alltaf hæpnara að treysta á að hún verði góð þegar það er liðið þetta langt af sumrinu." KR Kartöflur: Iimflutningur heimilaður Gekk til Koma Jóhannesar Páls II páfa var stór stund fyrir kaþólikka á Islandi og þá kannski sérstak- lega þau 60 börn sem gengu til altaris í fyrsta sinn. Assa van de Ven 8 ára frá Akureyri var ein þessara barna en undirbúningur hennar fyrir fyrstu altarisgönguna hefur stað- ið í Wi-2 ár. Undirbúningurinn felst í því að börnin sækja kirkju auk þess sem prestar sjá um kennslu. Fjölskylda Össu fór með henni til Reykjavíkur til að taka þátt í þessum merkisatburði. Athöfnin sjálf fór fram á sunnudagsmorg- unn og, eins og fermingu mót- mælenda, fylgdi síðan veisla og myndataka á eftir. Faðir Össu, Cees van de Ven sagði það mjög þýðingarmikið fyrir kaþólikka á Islandi að fá páfa til landsins og var ánægður með að Assa skyldi hafa verið á réttum aldri til að ganga til altaris einmitt núna. Þau feðginin voru sammála um að þetta væri mjög minnisstæður atburður og taldi Cees íslendinga hafa tekið mjög vel á móti páfa og væri hann mjög þakklátur fyrir það. KR altaris hjá páfa Aðalfundur Sjálfsbjargar á Akureyri og nágrenni veröur haldinn á Bjargi fimmtudaginn 8. júní kl. 20. Dagskrá: Venjuleg aöalfundarstörf. Önnur mál. Mætiö vel. Kaffiveitingar. Stjórnin. BÆNDASKOLINN HOLUM HÓLASKÓLI AUGLÝSIR BRAUTASKIPT STARFSNÁM 1989-1990. FISKELDI - BÚFRÆÐI Stúdentar sem ætlið í stytt fiskeldis- eöa búfræðinám, haf- iö samband við skólann sem fyrst. Innritun stendur yfir. Brautarvalsgreinar: M.a. hrossarækt - loðdýrarækt - fiskrækt - skógrækt. Góö heimavist. - Fjölbreytt nám. - Takmarkaður nem- endafjöldi. Umsóknarfrestur um tveggja ára nám er til 10. júní. Upp- lýsingar gefnar í símum 95-5961 og 95-5962. Hólaskóli ■ Hólum í Hjaitadal ■ 551 Sauðárkrókur. Lausar stöður Viö námsbraut í sjúkraþjálfun í læknadeild Háskóla íslands eru lausar til umsóknar tvær tímabundnar lektors- stöður (50%) í sjúkraþjálfun. Viö Háskólann á Akureyri er laus til umsóknar lektorsstaöa í hjúkrunarfræði. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir, ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf umsækj- enda, ritsmíðarog rannsóknirsvo og námsferil og störf, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykja- vík, fyrir 1. júlí nk. Menntamálaráðuneytið, 31. maí 1989. Menntamálaráðuneytið ® Lausar stöður Við Menntaskólann við Sund eru lausar til umsóknar kennarastöður í félagsgreinum og efnafræði. Þá vantar stundakennara í eftirtaldar greinar: Dönsku, latínu, sögu, jarðfræði, efnafræði, eðlisfræði, stjörnufræði, tölvufræði, stærðfræði, heimspeki, listasögu, hagfræði, fjölmiðlafræði, lögfræði og spænsku. Við Fjölbrautaskólann í Garðabæ eru lausar kennarastöð- ur í eftirtöldum greinum: Stærðfræði, ensku, samfélagsgrein- um, viðskiptagreinum, raungreinum, íslensku, íþróttum og tölvufræöi. Auk þess vantar stundakennara í ýmsar greinar. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykja- vík fyrir 9. júní nk. Umsóknir um stundakennslu sendist skólameistara. Við Kennaraháskóla íslands er laus til umsóknar lektors- staða í handmenntum. Staðan er veitt til tveggja ára. Megin- verkefni eru hönnun, hannyrðir og saumar ásamt kennslu og skyldra þátta á grunnskólastigi. Auk framhaldsmenntunar við háskóla eða sérskóla skulu umsækjendur hafa viðurkennd kennsluréttindi eða að öðru leyti nægilegan kennslufræðilegan undirbúning. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Gert er ráð fyrir að staðan verði veitt 1. ágúst 1989. Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni rækilegar upplýsingar um nám og fyrri störf, svo og um ritsmíðar og rannsóknir eða listiðnað sem þeir hafa unniö. Umsóknir skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfis- götu 6, 150 Reykjavík, fyrir 10. júní nk. Menntamálaráðuneytið.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.