Dagur - 07.06.1989, Blaðsíða 9

Dagur - 07.06.1989, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 7. júní 1989 - DACiUR - 9 Sjómaimadagurinn á Sauðárkróki Sjómannadagurinn á Sauðár- króki fór ágætlega vel fram, þrátt fyrir kulda og vosbúð. Þannig veðurskilyrði virðast vera fastur liður á Sjómanna- degi en fólk lét það ekki á sig fá og hélt upp á daginn með sjómönnum. Það var byrjað á skemmtisiglingu um morgun- inn og sjómannamessu í Sauð- árkrókskirkju. Úrslit í kappróðrinum hófust kl. 13, en daginn áður höfðu undanúrslit farið fram. Þátttaka var góð og það voru harðsnúnar sveitir sem öttu saman kappi í höfninni. Það var sveit „Löndun- arkarla" sem bar sigur úr býtum í karlaflokki og batt þar með enda á sigurgöngu björgunarsveitar- manna, sem hafa unnið kapp- róðurinn síðustu tvö ár. í kvennaflokki voru það „Fisk- iðjukerlingarnar“ sem unnu stall- systur sínar úr Skildi. Er kappróðri lauk í höfninni héldu hátíðahöldin áfram á íþróttavellinum. Þar var farið í leiki margs konar, s.s. belgja- og naglaboðhlaup, reiptog o.fl. Einnig var keppt í netabætingu og splæsingu og það voru áhafn- armeðlimir Hegraness SK-2 sem það unnu. Að lokum fór svo fram verðlaunaafhending. Eftir dag- skrána á íþróttavelli var Slysa- varnadeildin með kaffisölu í Bifröst, þar sem veisluborðið svignaði undan dýrindis „bakk- elsi“. -bjb Einingarfélagar Aðalfundur Verkalýðsfélagsins Einingar verður haldinn í Alþýðuhúsinu 4. hæð, sunnu- daginn 11. júní kl. 15.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Kaffiveitingar. Stjórn Einingar. Höfum tekið viðgerðarþjónustu á Polaris vélsleðum og fjórhjólum í okkar hendur. Ingvar Grétarsson, lager- og viögerðarmaður er í síma 96-22840. PGSLRRIS' umboðið Hjólbarðaþjónustan, Hvannavöllum 14 b, sími 96-22840. Laufás: Gamli bærinn og kirkjan opin aJmenningi til sýnis Gamli bærinn í Laufási verður opinn almenningi til sýnis í sumar. Gamli bærinn í Laufási hefur verið opnaður til sýningar og verður eins og endranær opinn frá 1. júní og til ágústloka. Bærinn er opinn almenningi alla daga vikunnar nema mánudaga, nema þess sé óskað sérstaklega. Opnunartími er frá kl. 10-18 og einnig eftir nánara samkomulagi. Gamli bærinn í Laufási er ekki byggðasafn, heldur sýnibær og gefur mjög góða mynd af því hvernig fólk bjó hér áður fyrr. Bærinn er búinn öllum þeim hús- munum sem notaðir voru „í gamla daga“ og reynt er að hafa hlutina eins og þeir voru þegar búið var í húsinu. Kirkjan í Laufási er einnig til sýnis en hún var byggð árið 1865 og í henni eru margir merkilegir munir miklu eldri. Karlakórinn Geysir hélt söngskemmtun ■ lok síðasta mánaðar, eins og reyndar kom fram í Degi í gær. Með greininni um söng kórsins átti að birtast mynd en þar sem það fórst fyrir, birtum við myndina af kórnum hér og biðjumst vel- virðingar á þessum mistökum. FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ Á AKUREYRI Lausar eru til umsóknar stöður LÆKNARIT- ARA á Lyflækningadeild frá 1. ágúst 1989. Nánari upplýsingar um starfið veitir María Ásgríms- dóttir, læknafulltrúi. Umsóknir sendist skrifstofustjóra, Vigni Sveinssyni, fyrir 17. júní nk. Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, sími 96-22100. Lagerstjóri Óskum eftir að ráða lagerstjóra á smávöru- lager. Starfið felst m.a. í innkaupum, skráningu og vörslu á smávöru til afhendingar í framleiðsluna. Skriflegar umsóknir sendist starfsmannastjóra fyrir 15. júní nk. og gefur hann nánari upplýsingar í síma 21900 (220). * Alafoss hf., Akureyri Maðurinn minn, JÓHANN LÁRUS JÓHANNESSON, lést að heimili sínu 31. maí s.l. Útförin fer fram frá Silfrastaðakirkju laugardaginn 10. júní kl. 2 e.h. Helga Kristjánsdóttir, Silfrastöðum.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.