Dagur - 26.07.1989, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 26. júlí 1989
oy i / í - fí >o ■ ■ í'S * 3
Dýnur — Dýnur!
Rúmdýnur allar stærðir.
Heilsudýnur, tjalddýnur, dýnur í
hjólhýsi og tjaldvagna.
Svampur og bólstrun,
Austursíða 2, sími 25137.
Ath. Lokað frá 1.-21. ágúst.
(----------------------;------------------------\
Happdrætti
Flugklúbbs íslands
Vinningar komu á eftirtalin númer.
1. vinningur. Utanlandsferð með Flugleiðum. 7006.
2. -3. vinningur. Innanlandsferðir með Flugleiðum.
4094, 2506.
4. vinningur. Flugfar með FN. 6610.
5. vinningur. Gisting í 2 nætur á Hótel Esju. 4054.
6. vinningur. 10.000,- kr. úttekt í Eyfjörð. 416.
7. -9. vinningur. Útsýnisflug yfir Akureyri. 5246,
2562, 4120.
10.-13. vinningur. Útsýnisflug í svifflugi. 8792, 5884,
7664, 69.
14.-25. vinningur. Flugmódel. 8995, 7972, 8812,
4101, 780, 5160, 674, 5092, 5213, 5248, 3471,
7591.
V___________________________________________ J
Barnavörur
Silver Cross barnavagnar
★ Pussycat og mister baby ungbarnavörur
★ Kiddicraft leikföng og margt fleira.
Vaggan
Sunnuhlíð sími 27586.
Opið kl. 9-18, Munið lyfta er í húsinu.
laugardaga kl. 10-12. Verið velkomin!
★ GÓÐ BÍLASTÆÐI ★
Óskum að ráða
húsvörð sem fyrst
Upplýsingar veitir starfsmannastjóri, sími 21400.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Blaðamaður
Dagur óskar eftir að ráða blaðamann til
starfa á Sauðárkróki frá og með 20. sept-
ember nk.
Um er að ræða fullt starf og mun viðkomandi jafn-
framt verða umboðsmaður blaðsins á Sauðárkróki.
Góð íslensku- og vélritunarkunnátta áskilin.
Skriflegar umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf, sendist ritstjóra Dags, Strand-
götu 31, 600 Akureyri, fyrir 10. ágúst nk., merkt:
„Blm. Sk“.
fréftir
Miklir vatnavextir eru í Glerá um þessar mundir, en svo mikill snjór er ennþá í fjöllum að hann verður lengi að
bráðna. Vatnavextir og leysingar standa því langt fram eftir sumri. Fagurt er í Glerárgljúfri, en ástæða er til að fara
varlega því gljúfrið er víða þröngt og áin straumhörð. Mynd: kl
Hugmyndasamkeppni DNG:
Nær níutíu hugmyndir bárust
Talsvert margir hafa lagt
höfuðið í bleyti í þeim tilgangi
að taka þátt í hugmyndasam-
keppni DNG. Nær 90 tillögur
bárust og að sögn Kristjáns E.
Jóhannessonar framkvæmda-
stjóra DNG er hér um gífur-
lega mikið lesefni að ræða og
ljóst að dómnefnd á ærið verk
fyrir höndum.
Markmið keppninnar er að fá
fram snjallar hugmyndir að fram-
leiðsluvörum fyrir DNG, til við-
bótar við handfæravinduna
heimsfrægu og öryggistækið
Vörð sem nýlega er hafin fram-
leiðsla á. Auk DNG stendur Iðn-
tæknistofnin íslands fyrir sam-
keppni þessari og leggur hún
fram starfsmann keppninnar.
Dómnefnd kom í fyrsta skipti
saman fyrir helgina og segir
Kristján E. Jóhannesson, fram-
kvæmdastjóri DNG, að mikil
vinna sé framundan við að yfirfara
þær tæplega níutíu hugmyndir
sem bárust. Kristján segir að
hugmyndirnar séu fjölbreyttar og
frágangur þeirra misjafn.
Gert er ráð fyrir að dómnefnd-
armenn hafi lokið fyrstu yfirferð
um 20. ágúst en úrslita keppninn-
ar er ekki að vænta fyrr en með
haustinu. Dómnefnd er heimilt
að hafna öllum tillögum en gert
er ráð fyrir að veta tíu verðlaun.
Fyrstu verðlaun verða 500 þús-
und krónur. ET
Nýtt fyrirkomulag heimahjúkrunar:
Hjúkrunarfræðingar gerist verk-
takar óháð heilsugæslustöðvum
Samkvæmt samkomulagi sem
gert hefur verið milli Trygg-
ingastofnunar ríkisins og
félaga hjúkrunarfræðinga mun
heimahjúkrun í nýrri mynd
sennilega taka til starfa næsta
haust. Til að byrja með munu
tíu hjúkrunarfræðingar taka að
sér ákveðna vinnu sem verk-
takar í heimahjúkrun, en sam-
komulagið er byggt á laga-
ákvæði frá 1986 um þjónustu
umfram þá sem reglulegar
heilsugæslustöðvar veita.
Sigþrúður Ingimundardóttir,
formaður Hjúkrunarfélags
Hríseyjar/Grímseyjarferja í salti í bili:
Tel skynsamlegt að fara
yfír markaðinn í haust
- segir Steingrímur J. Sigfússon,
samgönguráðherra
„Ég tel skynsamlegt að fara
yfír markaðinn aftur í haust og
sjá hvort eitthvað nýtt kemur
út úr því,“ segir Steingrímur J.
Sigfússon, samgönguráðherra,
um hugsanleg ferjukaup fyrir
Hrísey og Grímsey, en eins og
Dagur skýrði frá sl. föstudag
hefur ekki enn tekist að fínna
ferju á viðráðanlegu verði fyrir
eyjaskeggja.
Gengisþróun hefur verið mjög
óhagstæð að undanförnu og það
hefur leitt til þess að 35 milljón
króna lánsfjárheimild dugar nú
skammt í kaupum á nýrri ferju.
Steingrímur segir að ef ekki muni
takast að fá nýja ferju á haust-
máriuðum muni hann beita sér
fyrir því að fá aukna fjárveitingu
til hennar á næstu lánsfjárlögum.
„Því er ekki að neita að það eru
mikil vonbrigði ef ekki tekst að
leysa þetta í síðasta lagi fyrir vet-
urinn því vissulega er mikil þörf
fyrir þessar samgöngubætur ekki
síst yfir vetrarmánuðina," segir
Steingrímur. óþh
íslands, sagðist ekki vilja tjá sig
opinberlega um viðhorf sitt til
samkomulagsins, fyrr en álits
félaga innan vébanda H.í. og
Félags háskólamenntaðra hjúkr-
unarfræðinga hefði verið leitað.
Niðurstaða lægi fyrir í næsta
mánuði eftir atkvæðagreiðslur í
félögunum.
Heimahjúkrun þessi mun hafa
höfuðstöðvar í Reykjavík. Að
sögn Kristjáns Guðjónssonar,
deildarstjóra sjúkratrygginga-
deildar Tryggingastofnunar ríkis-
ins, er ekkert því til fyrirstöðu að
þjónusta þessi starfi einnig á öðr-
um stöðum á landinu, t.d. á
Akureyri. „Þetta barst til tals á
fundi um daginn. Það er ekkert
sjálfgefið að þetta verði eingöngu
í Reykjavík, þótt miðstöðin verði
þar,“ sagði hann.
Rætt er um að tíu hjúkrunar-
fræðingar starfi á þessum vett-
vangi til að byrja með, en síðan
verður fjöldi þeirra aukinn, ef
reynslan vérður jákvæð. Gert er
ráð fyrir að hjúkrunarfræðingar
meti þörf sjúklinga fyrir þjón-
ustu, eftir ábendingu læknis.
Tryggingastofnun mun greiða
kostnaðinn mánaðarlega, sam-
kvæmt reikningum. Þrír gjald-
flokkar verða í gildi, og metur
trúnaðarlæknir Tryggingastofn-
unar hvernig flokka skuli þjón-
ustu til einstakra sjúklinga.
Hjúkrunarfræðingarnir starfa því
sem verktakar við ákveðna sjúkl-
inga, og verða ekki undir stjórn
heilsugæslustöðva á hverjum
stað.
Sú þjónusta, sem hér um
ræðir, miðast fyrst og framst við
fatlað fólk eða aldrað. EHB