Dagur - 26.07.1989, Blaðsíða 7

Dagur - 26.07.1989, Blaðsíða 7
»'\ '4. Miðvikudagur 26. júlí 1989 - DAGUR - 7 Þessi garður við Áshlíð á Akureyri er hannaður af Iialldóri. Umhverfi Akurcyrarkirkju hefur tekið miklum breytinguin. Þar er allt hellulagt og notkun misinunandi lita gefur skeinmtilegan svip. talið það eftir mér að skreppa til þeirra aðila sem ég hef verið að vinna fyrir ef einhver vandamál koma upp. Það er ekkert erfiðara að þjóna öllu landinu frá Akur- eyri heldur en Reykjavík því að samgöngur eru góðar.“ „Ég reyni að sinna einkaaðil- um líka en það er mjög misjafnt hversu mikið menn vilja leggja í hönnunina. Ég tel að fólk ætti að láta hanna fyrir sig. Það eru mikl- ar fjárfestingar sem fólk fer út í og einnig fer mikill tími í að gera umhverfi húsanna aðlaðandi. Það er mjög algengt að fólk sem hefur unnið garðinn sinn sjálft sé að koma hundóánægt með árang- urinn. Ekki voru til peningar í upphafi og þess vegna hafi þetta verið gert svona en núna vilji það láta gera hlutina almennilega. Þetta fólk er búið að tapa þónokkuð mörgum árum sem hefðu getað farið í uppbyggingu lóðarinnar." Halldór sagði þetta ótrúlega algengt og sjaldgæft væri að hann fengi að kljást við hús áður en allt væri frágengið. Æski- legt væri að haft væri samband um leið og farið væri að ræða hönnun hússins. Landslagsarki- tektar og byggingararkitektar ættu því að vinna saman að hönn- un húss og lóðar. „Þetta er spurn- ing um nákvæma staðsetningu á húsi, gluggum, hurðum, bílskúr, aðkomu að húsi og fleiri atriðum sem skipta máli ef á að fá almennilega nýtingu á húsið. Þegar síðan kemur að vinnu er nákvæmlega vitað hvar þarf að skipta um jarðveg, allar hæðir eru á hreinu og magn efnis er nákvæmlega vitað. Það er eins og mörgum finnist þetta hálfgerð svikavinna að fá bara pappír í hendurnar frá hönnuðinum.“ KR Unnið hefur verið eftir teikningum Hulldórs við Dvalarheimilið Hlíð á Akureyri í sumar. til að skilja. Menn hafa verið að hringja og benda á staði þar sem sniðugt gæti verið að setja upp skilti og um daginn kom einn, með hugmynd um að taka há- lendið fyrir.“ Talað hefur verið um að gefa upplýsingarnar einnig út í plakata- formi. Þau yrði síðan hægt að setja upp í sjoppum og þeim stöðum sem upplýsingar eru veittar ferðamönnum t.d. á hótelum. Bæði yrði hægt að hengja slíkt upp á vegg en einnig gæti fólk tekið með sér blöð í bílinn. „Svona er þetta fariö að virka vel,“ sagði Halldór. „Þetta er virkilega spennandi verkefni sem virðist ætla að heppnast vel, svo ég segi sjálfur frá.“ KR Frá framkvæmdum við tjaldstæðið í Mývatnssveit. Hlut- irnir vilja oft fara úr skorðum þegar framkvæmdir standa yfir. Þessi kona sem var gestur á tjaldstæðinu dó ekki ráðalaus. ■ ................................ amst öll verðbréfaviðskipti og vei s konar ráðgjöf á sviði fjármála ........ «838» Vextir umfram Tegund bréfs verðtryggingu Einingabréf 1,2 og 3 ............. 8,3-12,5% Bréf stærri fyrirtækja ........... 9,0-11,5% Bréf banka og sparisjóða ...... 7,0-8,0% Spariskírteini ríkissjóðs ...... 5,5-6,0% Skammtímabréf .................. 8,0-8,5% Hlutabréf ............................ ? Gengi Einingabréfa 26. júlí 1989. Einingabréí 1 4.055.- Einingabréf 2 .... 2.246,- Einingabréf 3 .... 2.652.- Lífeyrisbréf ..... 2.039.- Skammtímabréf .. 1,394 NORÐURLANDS HF Ráðhústorgi 1 • Akureyri • Sími 96-24700 Verbbréf er eign sem ber arð

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.