Dagur - 26.07.1989, Page 11
f
Góður árangur
KA-strákanna
- í 6. flokki í sumar
KA-strákarnir í 6. flokki hafa
staðið sig mjög vel í sumar. Á
Tommamótinu voru þeir í
fremstu röð og nú á Pollamóti
KSÍ og Eimskips um helgina
lentu þeir í 3. sæti A-Iiða. Þar
að auki var markvörður
liðsins, Þórir Sigmundsson,
kosinn besti markvörður A-
liða.
Pollamótið fór fram á Fram-
vellinum í Reykjavík og lék KA í
riðli með Austra, Stjörnunni og
FH. Fyrsti leikurinn var gegn
Stjörnunni og unnu KA-dreng-
irnir hann nokkuð örugglega 2:0.
Mörk KA í þeim leik gerðu
Jóhann Traustason og Arnar
Gauti Finnsson. Þá var komið að
Austra og vannst sá leikur auð-
veldlega 5:0. Mörk KA settu
Arnar Gauti Finnsson 2, Heimir
Árnason 2 og Jóhann Traustason
1.
Þórir Sigmundsson KA var kosinn
besti markvörður A-liða á Polla-
móti KSÍ og Eimskips.
Þá var komið að úrslitaleikn-
um í riðlinum gegn FH. Þetta var
hörkuleikur en FH reyndist
sterkara og sigraði 3:1. Mark KA
setti Heimir Árnason.
í úrslitum um 3.-4. sætið var
leikið gegn KR-ingum og unnu
KA-strákarnir leikinn mjög sann-
færandi 3:0. Mörk KA í leiknum
settu Jóhann Traustason 2 og
Sverrir Jónsson 1.
Framara sigruðu í keppni A-
liða, en Þórsarar keppni B-liða
eins og sagt hefur verið frá. Fram
sigraði FH 2:0 í úrslitaleiknum og
voru þeir bláklæddu vel að sigrin-
um komnir.
Þess má geta að Þórir Sig-
mundsson markvörður úr KA,
besti markvörður mótsins, er
bróðir Eggerts Sigmundssonar
markvarðar 3. flokks KA og
unglingalandsliðsins þannig að
gaman verður að fylgjast með því
eftir nokkur ár, er báðir verða
komnir í meistaraflokkinn, hvort
þeir verða fyrstu bræðurnir sem
berjast um markmannssæti í liði
á íslandi.
Á myndinni hér til hliðar sjást
hinir frísku KA-piltar sem staðið
hafa sig svo vel í sumar. Aftari
röð f.v. Hrólfur Flosason, Sverrir
Már Jónsson, Anton Þórarinsson
og Jóhann Traustason. Fremri
röð f.v. Víðir Guðmundsson,
Heimir Árnason, Andri Magnús-
son, Arnar Gauti Finnsson og
Lárus Viðar Stefánsson. Á
myndina vantar Þóri Sigmunds-
son, Axel Árnason, Hlyn M.
Erlingsson, Hafþór Einarsson,
fyrirliðann Hákon Atlason og
Elmar Bergþórsson.
$ W % * W T ' *
i Wm
| ; * " '"
Hinir frísku strákar úr 6. flokki KA sem staðið hafa sig svo vel í sumar ásamt Jóhannesi Bjarnasyni þjálfara sínum.
, Mynd: AP
Meistaramót Islands í frjálsum íþróttum:
Glæsilegur árangur HSÞ
- hlutu 16 gullpeninga í yngri flokkunum
Frjálsíþróttafólk úr HSÞ náöi
mjög góðum árangri á Meist-
aramóti Islands í frjálsum
íþróttum í yngri aldursflokk-
um. Keppt var á Selfossi og í
Reykjavík og hlutu Þingeying-
arnir 16 Islandsmeistaratitla á
þessum tveimur mótum.
Greinilegt er aö Unnar Vil-
hjálmsson, frjálsíþróttaþjálfari
HSÞ, er að gera góða hluti í
Þingeyjarsýslu.
Meistaramót 15-18 ára var
haldið á Valbjarnarvelli í
Reykjavík. Þar kepptu 23 frjáls-
íþróttakrakkar frá HSÞ og fengu
12 gullpeninga. Ágústa Pálsdóttir
sigraði í 100, 200 og 400 m hlaupi
17-18 ára, Hákon Sigurðsson
Skarphéðinn Ingason hlaut tvo
íslandsmeistaratitía.
sigraði í 400, 1500, og 3000 m
hlaupi í sama aldursflokki, Ketill
Þór Sverrisson sigraði í 100 og
200 m hlaupi, Magnús Aðal-
steinsson sigraði í bæði kúluvarpi
og spjótkasti, Guðmundur Örn
Jópsson varð fyrstur í 100 m
hlaupi í flokki 15-16 ára og Sigur-
björn Arngrímsson varð fyrstur í
sama flokki.
Yngri krakkarnir kepptu á
Selfossi og hlutu fjóra gullpen-
inga. Katla Skarphéðinsdóttir
sigraði. í langstökki og 60 m
hlaupi í flokki 11-12 ára og
Skarphéðinn Freyr Ingason sigr-
aði í hástökki og langstökki í
sama aldursflokki.
Við munum fjalla nánar um
árangur á mótinu síðar í blaðinu
og segja frá því hvaða ár-
angri íþróttakrakkar að norðan
náðu á Meistaramótinu í yngri
aldursflokkunum.
Knattspyrna:
Tindastóll lék til úrslita í 3. flokki kvenna á íslandsmótinu í knattspyrnu sem haldið var í Kópavogi um síðustu helgi.
Lentu stúlkurnar í 4. sæti eftir að hafa tapað naumlega 2:1 fyrir bæði Val og Sindra. Breiðablik varð íslandsmeistari
í þessum flokki og tapaði Tindastóll 4:0 fyrir Blikastúlkunum. Sigríður Hjálmarsdóttir skoraði bæði mörk Sauð-
krækinga í keppninni. Hér sést þessi föngulcgi hópur stúlkna ásaint þjálfara sínum Eysteini Kristinssyni.
„Svitnuðum varla“
- segja Karl Hákonarson og
Orri Oskarsson í 6. flokki Þórs
Þeir voru að vonum kampa-
kátir félagarnir Karl Hákonar-
son og Orri Óskarsson úr B-
liði 6. flokks Þórs, sem sigraði
á Pollamóti KSÍ um helgina,
því Karl var kosinn besti varn-
armaður mótsins og Orri kos-
inn besti sóknarmaður
mótsins.
Þeir sögðu að leikurinu við'
Þrótt R. í undanúrslitum hefði
verið erfiðasti leikurinn í keppn-
inni en annars hefðu leikirnir ver-
ið frekar léttir. „Við svitnuðum
varla í leiknum gegn Þrótti N,“
sögðu þeir og brostu en sá leikur
vannst 16:0.
Sigur Þórs var mjög sannfær-
andi og markatala liðsins í mótinu
var 30:3. 1 úrslitaleiknum lagði
Þór lið Fylkis úr Árbænum 4:0 en
minnsti sigurinn var gegn Þrótti
R. 4:2 í undanúrslitum.
og Orri Óskars-
son kampakátir með verðlaun sín.
I