Dagur - 26.07.1989, Page 12
Borgaraflokkur í ríkisstjórnina?
Máleftiagrundvöll fyrst
ráðherraskiptingu síðar
- er álit formanns þingflokks Alþýðuflokks
Hríseyjarferjan Sævar að leggjast að bryggju á L-Árskógssandi á laugardag. Mynd: ap
Mikill straumur ferðafólks til Hríseyjar um helgina:
1250 manns á tveimur dögum
með Sævari milli lands og ejjar
„Það er auðvitað mjög æski-
legt og nauðsynlegt að styrkja
stöðu ríkisstjórnarinnar en það
á auðvitað ekki að gera það
fyrir hvað sem er,“ segir Eiður
Guðnason, formaður þing-
flokks Alþýðuflokksins, í
tilefni samþykktar þingflokks
Framsóknarflokksins í fyrri
viku um að veita Steingrími
Hermannssyni, formanni
flokksins, umboð til að vinna
að því að fá Borgaraflokkinn
til liðs við ríkisstjórnina. í
uniboði Framsóknar til Stein-
gríms er gert ráð fyrir að hver
þriggja stjórnarflokkanna gefi
eftir eitt ráðuneyti yfir til
Borgaraflokks.
„Að undanförnu hafa menn
veriö að tala um hugsanlega
Möðruvallasókn:
ri* / •
Fjonr
umsækjendur
Fjórir umsækjendur reyndust
um stöðu sóknarprests í
Möðruvallasókn í Eyjafirði.
Gert er ráð fyrir að kosið verði
á milli þeirra fljótlega eftir
helgi.
Umsækjendurnir eru: Magnús
Gamalíel Gunnarsson prestur á
ísafirði, Torfi Hjaltalín Stefáns-
son æskulýðs- og fræðslufulltrúi á
Biskupsstofu, Ólafur Jóhannsson
prestur við Neskirkju í Reykja-
vfk og Sigurður Ægisson prestur
á Djúpavogi.
Fráfarandi sóknarprestur Sr.
Pétur Pórarinsson tók við Glerár-
prestakalli fyrir skömmu. KR
Markvörður 2. flokks Völs-
ungs í knattspyrnu slasaðist
nokkuð er mark á Fífu-
hvammsvellinuin í Kópavogi
fauk um koll og hafnaði á
höfði hans, í leik gegn ÍK á
laugardaginn. Markvörður-
inn lá óvígur eftir og var síðan
fluttur í sjúkrabfl á
Borgarspítalann, þar sem í
Ijós kom að þrír hryggjaliðir
voru skaddaðir.
Að sögn Arnars Guðlaugs-
sonar þjálfara Völsungs, er um
að ræða mark með ál í stöngum
og slá og járni í bakstöngum.
Pað hefur því þurft góða vind-
hviðu til þess að koma markinu
af stað og höggið því verið tölu-
vert mikið.
Arnar sagði ennfremur að
skiptingu ráðherraembætta. Ég
held að þurfi miklu fremur að ná
samkomulagi um einhvern mál-
efnagrundvöll. Það ætti að mínu
mati að koma á undan, án þess
að ég sé að gagnrýna viðræður
við Borgaraflokkinn," segir Eið-
ur.
Hann segir að innan veggja
þingflokksherbergis Alþýðu-
flokksins hafi verið rætt fram og
aftur um hugsanleg ráðuneyti til
handa Borgaraflokki ef hann
kæmi til liðs við ríkisstjórnar-
flokkanna. „En það er enn allt í
lausu lofti,“ segir Eiður.
Steingrímur J. Sigfússon, sam-
gönguráðherra, segir að formað-
ur Alþýðubandalagsins hafi
umboð Alþýðubandalags til að
ræða við Borgarflokk. Hann tek-
ur fram að enn sem komið er hafi
engar formlegar viðræður farið
fram milli stjórnarflokkanna og
forystu Borgaraflokks um aðild
að ríkisstjórninni en áhugi for-
sætisráðherra á að styrkja stjórn-
ina sé vel skiljanlegur. „Ég hef
ekki gert neinar athugasemdir
við það og ekki sett nein skilyrði
fyrir áframhaldandi viðræðum,“
segir Steingrímur.
Samgönguráðuneytið hefur oft
verið nefnt til sögunnar sem eitt
þeirra ráðuneyta sem kæmi í hlut
Borgaraflokks ef hann gerðist
aðili að ríkisstjórninni. Núver-
andi samgönguráðherra var
spurður að því hvort liann væri
tilbúinn til að afhenda Borgara-
flokki það ráðuneyti. „Ég svara
þessu þannig að ég hef engin skil-
yrði sett fyrir þessum viðræðum
enda tel ég ekki rétt að vera opin-
berlega með skilyrði á meðan á
könnunarviðræðum stendur. Ég
hef hvorki samþykkt eða neitað
neinu í þessu sambandi." óþh
dvölin í Kópavogi hafi vcriö
hálfgerð raunasaga frá upphafi
til enda. Leiknum hefði til að
byrja með verið seinkað um 15
mín., síðan hefðu leikmenn
þurft að klæða sig í búninginn í
litlum kofa við Kópavogsvöll-
inn, nokkrir í einu en aðrir
þurft að bíða fyrir utan á
meðan. Þegar svo var komið út
á völl, var þar leikur fyrir f
kvennaflokki sem hafði tafist
vegna þess að dómarinn hafði
ekki mætt. Um 40 mín. voru
eftir af kvennaleiknum þegar
Völsungar mættu út á völl og til
viðbótar þurfti liðið að bíða í 20
mín. eftir dómara í þeirra leik.
„Nú svo hófst leikurinn og
þegar markiö fauk, vorum við í
sókn og allir að fylgjast með
„Það var allt kjaftfullt hér um
helgina. Þetta var alveg meiri-
háttar helgi, sú besta í sumar,“
sagði Páll Björgvinsson, eig-
andi veitingastaðarins Snekkj-
unnar í Hrísey, í samtali við
Dag. Gríöarlegur straumur
ferðamanna lá til eyjarinnar
um helgina og ber mönnum
saman um að sjaldan hafi jafn
margt aðkomufólk lagt leið
sína til Hríseyjar.
Hríseyjarferjan var nánast
stanslaust í ferðum milli lands og
eyjar frá föstudegi til sunnudags-
kvölds. Á laugardaginn flutti
henni. Pannig að ég sá ekki
nákvæmlega hvaö gerðist en
markiö fauk engu að síður og
lenti á hausnum á markverðin-
um, sem hefur staðið nákvæm-
lega þannig í teignum, aö hann
lendir undir slánni," sagði
Arnar.
„Mér leist ekkert á þetta í
fyrstu, því hann kvartaði undan
verk í hnakkanum og svo dofn-
aði hann alveg niður í tá. Við
hringdunt því á sjúkrabíl og síð-
an kom lögreglan á staðinn og
hún bannaði að markiö yrði
hreift, fyrr en búið væri að
rannsaka hvernig þetta bar að.
Þegar hér var komið við
sögu, buðu ÍK-menn okkur að
klára leikinn á Kópavogsvellin-
um en við þökkuöum bara fyrir
ferjan 500 manns og á sunnudag
hvorki fleiri né færri en 750 far-
þega. Að sögn Guðjóns Björns-
sonar, sveitarstjóra í Hrísey, er
þessi fjöldi farþega langt umfram
það sem venjulegt er um helgi.
Hann orðar það svo að um góða
ferðahelgi láti nærri að ferjan
flytji jafnmarga farþega bæði
laugardag og sunnudag og fluttir
voru sl. laugardag. „Pað hefur
verið mikill ferðamannastraumur
til eyjarinnar að undanförnu og
ég hygg að á degi hverjum hafi
ferjan ekki flutt færri én 300
manns,“ segir Guðjón.
Starfsfólk veitingastaðarins
Brekku í Hrísey láta heldur betur
og fórum af lcikvelli, við vorum
ekki í neinu skapi til þess að
halda áfram,“ sagði Arnar.
Hann sagði ennfremur mark-
vörðurinn væri á batavegi og
von var á honum lieim til Húsa-
víkur í sjúkrabörum í gær eða
dag. Stjórn KSÍ hefur verið til-
kynnt um slysið en óvíst er
hvert framhald þessa máls
verður. Mörk sem hér um
ræðir, eru alla jafna fest niður
meö hælum en að sögn Arnars
var umrætt mark ekki fest
niður.
Petta atvik hefur ekki slegið
Völsunga alveg út af laginu, því
á sunnudag lcku þeir gegn FH í
Hafnarfirði og unnu góðan sig-
ur 4:3, eftir að hafa verið undir
1:3 á tímabili. -KK
vel af liðinni helgi. Par hefur ver-
ið stanslaus straumur ferða-
manna frá því á föstudag og
hámarki náði örtröðin síðdegis á
laugardag. Á föstudag voru 148 í
mat, laugardagurinn skilaði 151
manns í mat og á sunnudag var
boðið upp á kaffihlaðborð og
mættu þar 120 manns og 110
manns í kvöldmat.
Dagbjartur kokkur í Brekku
segir að Galloway-nautasteikurn-
ar séu áberandi vinsælastar, fólk
geri sér ferð út í eyna til að erta
bragðlaukana með Galloway-
kjöti.
Júlímánuður hefur verið geysi-
lega góður í Brekku og bætir
liann ríflega upp dapran júní-
mánuð en þá var 30% samdráttur
miðað við fyrra ár.
Að sögn Guðjóns Björnssonar
virðist ferðafólk hafa mikla unun
af því að fá sér göngutúr um eyna
og skoða fuglalífið. Einnig njóta
sjósleðar, sem veitingastaðurinn
Snekkjan leigir út, vaxandi vin-
sælda. Páll Björgvinsson segir að
fólk leggi leið sína út í Hrísey
gagngert til að bregða sér á sjó-
sleða. óþh
Börn læra aö tala á sama aldri
án tillits til þess hvaða móö-
urmál þau eiga. Ekkert móð-
urmál er erfiðara en annað.
íslenska er okkar mál.
Markvörður Völsungs slasaðist í knattspyrnuleik í Kópavogi:
Markið fauk um koll og hafri-
aði á höfði markmannsins
- hann lá óvígur eftir með þrjá skaddaða hryggjaliði