Dagur - 05.08.1989, Blaðsíða 1

Dagur - 05.08.1989, Blaðsíða 1
72. árgangur Akureyri, laugardagur 5. ágúst 1989 148. tölublað Mesta ferðahelgi ársins er byrjuð. Það var líf og fjör við Uniferönrmiöstöðina á Akureyri í gær og margir að leggja í'ann. Mynd: KL Dagur og Dagsprent h.f. fara fram á greiðslustöðvun: „Deilum sorg og sút með fjöl- mörgum fyrirtækjum í landinu“ - segir Sigurður Jóhannesson formaður stjórna fyrirtækjanna - Unnið að sölu eigna á greiðslustöðvunartímabilinu - Sameining Dagsprents og P.O.B. hugsanleg - Greiðslustöðvun hefur engin áhrif á rekstur fyrirtækjanna á greiðslustöðvunartímabilinu Fyrirtækin Dagsprent h.f. og Dagur hafa farið fram á greiðslustöðvun til þriggja mánaða. Beiðnin er nú til umfjöllunar hjá embætti bæjar- fógetans á Akureyri og verður úrskurður væntanlega felldur um eða eftir helgina. Rétt er að taka það fram að greiðslu- stöðvun, ef af verður, kemur ekki til með að hafa nein áhrif á daglegan rekstur fyrirtækj- anna. Ástæðan fyrir þessari beiðni er fyrst og fremst erfið lausafjár- staða vegna mikilla fjárhags- skuldbindinga, að sögn Sigurðar Jóhannessonar, formanns stjórna Dags og Dagsprents h.f. „Vand- inn er hrein og klár offjárfesting og að því leyti deilum við sorg og sút með fjöimörgum fyrirtækjum í landinu. Við réðumst í miklar framkvæmdir á uppsveifluárun- um 1986-1987. Þær áætlanir sem gerðar voru þá hafa ekki staðist, enda mikill samdráttur síðustu misserin á öllum sviðum efna- hagslífsins. Rekstur fyrirtækj- anna stendur ekki undir þeim gíf- urlega fjármagnskostnaði sem á þeim hvílir og við þurfum ráðrúm til að létta þessum kostnaði af rekstrinum. Greiðslustöðvun er tæki til að skapa slíkt ráðrúm," segir Sigurður. Dagsprent er hlutafélag en Dagur sjálfseignarfélag. Fyrir- tækin voru rekin samtals með rúmlega 19 milljóna króna tapi á síðasta ári. Þar vó þyngst að vext- ir og verðbætur námu um 25 millj- ónum króna. Dagsprent tapaði um 9 milljónum króna fyrstu sex rnánuði þessa árs, cn Dagur skil- aði rúmlega 4 milljónum í hagn- að á sama tíma, fyrir fjármagns^ gjöld. Þegar þau eru tekin með inn í dæmið er reksturinn í járnurn. Að undanförnu hafa staðið yfir viðræður milli Dagsprents h.f. og Prentverks Odds Björnssonar h.f. á Akureyri um hugsanlega sameiningu fyrirtækjanna. Sam- eining kemur sterklega til greina en hið nýja fyrirtæki þyrfti nauð- synlega á því að halda að selja eignir til að tryggja reksturinn. Reyndar er það meginforsenda fyrir sameiningu. „Ef af samein- ingu verður, höfum við eitt stórt prentiðnaðarfyrirtæki með of miklar fjárfestingar. Til að tryggja rekstur þess þarf að selja þessa offjárfestingu. Við höfum í því sambandi leitað til þeirra aðila sent við teljum hugsanlega kaupendur. Þeir eru ekki mjög ntargir, því hér er um það stórar eignir að ræða," segir Hörður Blöndal, framkvæmdastjóri Dags og Dagsprents h.f. Stjórn Byggða- stofnunar hefur m.a. verið sent bréf þar sent hcnni eru boðnar eignir Dags og Dagsprents h.f. við Strandgötu til kaups. „Rökin fyrir því að Byggða- stofnun kaupi þessar eignir eru mjög sterk. I fyrsta lagi hefur Byggðastofnun í hyggju að kaupa eða byggja hús yfir starfsemi úti- bús stofnunarinnar á Akureyri. Æskileg staðsctning fyrir slíkt hús er í nágrenni miðbæjarins. Hús Dagsprents er í u.þ.b. 200 metra fjarlægð frá þeim stað við Strandgötuna, sem Byggðastofn- un hefur augastað á. Áuk þess er stór hluti af húsinu innréttaður sem skrifstofuhúsnæði og því til- búinn til þeirrar notkunar sem starfsemi Byggðastofnunar krefst. Með kaupunum myndi Byggðastofnun jafnframt stuðla að því að áfram yrði rekin stór og öflug prentsmiðja á Norðurlandi. sem hlýtur að teljast nauðsynlegt fyrir byggðarlagið. Kaupin myndu þannig tvímælalaust styrkja til muna rekstur þriggja gróinna fyrirtækja á Akureyri, þ.e. Dagsprents, Dags og P.O.B. Við erum því ekki að leita til Byggðastofnunar eftir einhverri ölumsu, heldur ráða hrein við- skiptasjónarmið ferðinni. Við teljum það tvímælalaust beggja 'nag að af kaupunum geti orðið," segir Hörður Blöndal. Einnig er inni í myndinni sala á fasteignum P.O.B. við Tryggvabraut. Það húsnæði gæti hentað mjög vel undir væntanlega starfsemi sjáv- arútvegsbrautar við Háskólann á Akureyri. „Ég tel það engan veginn í anda byggðastefnu ef Byggðastofnun eða aðrar stofn- anir hins opinbera hyggjast byggja stórhýsi á Akureyri á santa tíma og nægt framboð er af hentugum fasteignum á staðnum. Með því myndi ríkisvaldiö cin- ungis stuðla að lækkun fasteigna- verðs og því að fyrirtæki og ein- staklingar sætu uppi með illselj- anlegar eignir," segir Höröur ennfremur. Stjórn Byggðastofn- unar tók erindið fyrir á fundi á miðvikudag en afgreiðslu þess var frestað. Sigurður Jóhannesson segir að enginn bilbugur sé á þeim sem að útgáfu blaðsins standa með að rekstur blaðsins verði áfallalaus. „Það hefur þegar verið sýnt frant á að blaðið er rekstrarhæft miðað við eðlilega fjármögnun. Hins vegar stendur enginn rekstur undir mikilli offjárfestingu, hvorki dagblaðsrekstur né annar. Rekstur Dags hefur skilað hagn- aði undanfarna mánuði en sá hagnaður hefur allur farið í að greiða fjármagnskostnað. Við þurfum nauðsynlega á því að halda að selja eignir og koma þar með rekstrinum í eðlilegt horf að nýju. Ég hef cnga trú á öðru en að okkur takist að leysa þau vandamál sem við blasa á næstu mánuðum og tryggja áframhald- andi rekstur þessara fyrirtækja.“ sagði Sigurður Jóhannesson að lokum. BB.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.