Dagur - 05.08.1989, Blaðsíða 14

Dagur - 05.08.1989, Blaðsíða 14
14 ^O^yFL-eMwaugaFdagur Bananar: Þeir ávextir Banana-Matthiessen flutti þá til Norðurlanda Það var fyrst í byrjun þessarrar aldar, sem farið var að flytja inn banana til Norðurlanda. Þar var fremstur í flokki norðmaðurinn Carl Matthiessen, eða Banana- Matthiessen, eins og hann var kallaður. Innflutningur til Svíþjóðar var seinna á ferðinni. í lok þriðja áratugarins, þegar móðir þess, sem þetta ritar, var tíu ára fékk hún í fyrsta skipti banana í hendur. Þegar hún var búin að bíta í hann einu sinni, fleygði hún honum frá sér og tók fyrir munninn. Það hafði enginn frætt hana á því, að hún ætti að afhýða .hann áður en hún borðaði, og bananahýði er beiskt á bragðið sem alkunna er. Áður fyrr notuðu þó grasa- guddur þeirra tíma hýðið sem vörtumeðal. Áhrifin þóttu því betri sem hýðið var meyrara og klístraðra. Þurrkað hýði var líka hægt að nota í kaðla (manillahamp) og sem þakklæðn- ingu. hluta Það er hægt að nota þá í kaðla eða þakklæðningu auk ótalmargs annars. Og svo auðvitað til matar, og þá ekki aðeins sem ljúffengan bita á milli mála, held- ur og sem forrétt, aðalrétt, eftir- rétt eða álegg. Og þeir hafa að geyma fjölda vitamína og stein- efna. Auk þess eru þeir til, sem halda því fram að skilningstréð fornfræga hafi ekki verið eplatré heldur bananaviður. En eitt skulum við strax fá á hreint: Hvernig bera menn sig að við að rífa hýði af banana? Byrja ntenn við stilkinn eða á hinum endanum? Könnun á þessu leiddi í Ijós, að meirihlutinn, og þá einkum karlntenn, brjóta stilkinn og rífa hýðið af frá þeim enda. En minnihlutinn, og þar voru konur í meirihluta, heldur aftur á móti urn stilkinn og notar negl- urnar til að losa um hýðið við hinn endann og síðan er það rifið af í þremur til fjórum samsíða lengjum. Sé bananinn ofþroskað- ur orðinn, er það hentugasta aðferðin. Ef sú aðferð er notuð að brjóta stilkinn, má allt eins gera ráð fyrir því, að til verði bananakássa, Yidkvæmur ávöxtur Banani er viðkvæmur ávöxtur, sem illa þolir högg eða pressu. eru til flestra nytsamlegir Hann er líka mjög viðkvæmur fyrir hitabreytingum. Sé hann geymdur við minni hita en 10 gráður, t.d. í kæliskáp, verður hann svartur. Og fari hitinn upp í 27-28 gráður, fer hann strax að morkna. Það er því best að láta hann ekki liggja efst í nestiskörf- unni, ef farið er á sólarströnd. Vegna þessa er líka mikilvægt, að hitinn í lestum þeirra skipa, sem flytja banana sé jafn, hann má aldrei vera minni en 12 gráð- ur og aldrei meiri en 18. Sérfræðingar hafa komist að þeirri niðurstöðu, að kjörhitinn sé 13,4 gráður - þá stöðvast þroskaferillinn. Þess vegna breytast bananarnir ekki mikið á leiðinni, þó að skipin sem flytja þá séu allt að hálfum mánuði á siglingu frá Mið-Ameríku. Þegar bananarnir berast til Norður-Evrópu, eru þeir jafngrænir og þeir voru, þegar þeir voru skornir af bananaviðnum á akrinum. Þegar landað hefur verið úr skipunum, fara bananarnir í til þess gerðar þroskunargeymslur og eftir 4ra til 14 daga vist þar, hafa þeir fengið það útlit og bragð, sem kaupend- ur sækjast eftir. Og þegar banan- arnir eru loks komnir í neytenda- verslanirnar, seljast þeir fljótt. Bananar eru um það bil 10 prósent af heildarneyslu Norður- landabúa á ávöxtum, eða ca. 10- 12 kg á hvert mannsbarn á ári. Hollur og næringarríkur Næringarfræðingar líta bananana með velþóknun, því að þeir eru meðal hollustu nytjajurta, sem völ er á. í þeim er mikið af vitamínunum A, C, B^ og B6 og steinefnunum magnesíum, járni, kalcium og kaliurn, og miðað við þurrefnismagn eru þeir trefjarík- ari en hráar gulrófur. í næringarfræðilegu tilliti eru bananar og mjólk mjög ákjósan- leg blanda. Auk þess bragðast sú blanda vel - hugsið ykkur bara að hafa bananabita með korn- flögunum! Þá eru banananar auðmeltir. Banani „bráðnar" í þörmunum á einni klukkustund og þremur stundarfjórðungum, epli þarf tvo og hálfan tíma til að leysast upp, soðnar kartöflur þrjá tíma, og kjöt morknar ekki fyrr en það hefur legið a.m.k. fjóra klukku- tíma í þörmunum! Vegna þess að í bönunum er mikill ávaxtasykur, eru þeir bæði mettandi og hressandi - kolvetn- in berast fljótt út í blóðið og auka blóðsykurmagnið. Þetta er skýringin á því, hvers vegna bananar eru svo vinsælt nesti í ferðalögum. Það er erfitt að hugsa sé.r skólaferðalag eða langferð í járnbrautarlest án þess einhverjir sjáist sitja og borða banana. Talið er, að upprunalegir vaxtarstaðir banana séu í Suðaustur-Asíu, Indónesíu og Malasíu. Á tuttugustu öldinni hefur ræktun þessarar fjölæru jurtar breiðst út um allt hitabeltið og heittempruðu beltin. { grasa- fræðilegum skilningi er hægt að kalla bananaviðinn skrautjurt eða bara jurt og ávöxtinn - banana - ber. Jurt þessi hefur nú náð sérstaklega mikilli útbreiðslu í Suður- og Mið-Ameríku, en hana er einnig að finna í Vestur- Afríku. Og þeir, sem farið hafa til Kanaríeyja kannast vafalítið við dvergvaxna bananaviðinn, sem þar vex. 1 erlendum vettvangi Þeir bananar, sem yfirleitt eru á neytendamarkaði á Norður- löndum, eru undantekningalítið ávaxtabananar. En til eru fleiri tegundir, eins og til dæmis vefjar- bananar, dvergbananar, rauðir skrautbananar og mjölbananar, sem þarf að sjóða áður en þeir eru borðaðir. Einn bananaklasi er um það bil 25 kíló og hann vex út frá toppn- um á bananajurtinni, sem verður ca. 10 metrar á hæð. Á banana- leggnum myndast 6-9 brúskar og eru 14-20 bananar í hverjum. Sá hluti jurtarinnar, sem ofan- jarðar er, deyr eftir að hann hef- ur borið ávöxt. Fjölgun jurtanna gerist ekki með fræjum og frjóvgun, eins og algengast er hjá jurtum, heldur með svonefndri vaxtaræxlun: Sá hluti jurtarinnar, sem er undir yfirborði jarðar, jarðstöngullinn, sendir frá sér rótarskot, jarðstöngla. Þannig dreifist jurtin með sífellt nýjum rótarskotum og getur að lokum myndað heilan skóg af bananaviði. Var skilningstréið góðs og ills bananaviður? Saga banananna fellur nokkuð saman við sögu mannkynsins, þegar fjallað er um útbreiðslu þeirra og nytjar. Það hefur orðið til þess, að sú kenning hefur skot- ið upp kollinum, að skilningstréð í aldingarðinum Eden hafi hvorki verið eplatré né fíkjutré, heldur bananaviður. Það væri góð skýr- ing á því hvers vegna ávöxturinn nefnist Musa paradisiaca (paradísarávöxtur) eða Musa sapientun (ávöxtur vitringanna) á latínu. Og, satt best að segja, ef það var í rauninni ætlun Adams og Evu að fela sköp sín hvort fyrir öðru, þá hentar stórt og mikið bananablað miklu betur til þess en agnarlítið fíkjulauf . . . (Bengt Bengtsson í Fakta 9/88. - Þ.J.) Bananar eru ekki bara millimálabiti Algengast er, að bananar séu borðaðir eins og þeir koma fyrir. En það er auðvelt að nota þá við hverskonar matargerð til að auka á fjölbreytnina. Áuðveldast er að nota þá sem efni í eftirrétt, t.d. má skera þá að endilöngu og hella yfir þá hindberja- eða jarðarberjasósu, hrásafti eða ávaxtasafa. Séu bananar skornir í sneiðar, henta þeir vel með kremi eða ís, og þá má gjarna strá súkkulaði- spónum yfir. Pressaður banani er hin ákjós- anlegasta fylling í kökur. Þá er líka hægt að hafa banana með kjöti eða fiski - og ekki bara til skrauts. Steikið t.d. banana í smjöri eða smjörlíki á pönnu í svo sem tíu mfnútur eða þar til hann hefur fengið á sig gullinn lit Kryddið svo með karrý, engifer og svörtum pipar. Yfirleitt hentar pipar vel með bönunum til að skerpa bragðið, ekki síst ef nýtt grænmetissalat fylgir með. Byrjið á því að fjar- lægja hýðið (notið kvenlegu aðferðina), stráið pipar á aldin- kjötið og leggið síðan hýðið yfir það aftur, til þess að bananinn verði ekki dökkur á lit. Stórkost- legt og gott!

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.