Dagur - 05.08.1989, Síða 4
5 - fiUOAO - €861' Í'íupe .c lUOebifipuí-.J
4 - DAGUR - Laugardagur 5. ágúst 1989
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 1000 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 90 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 660 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON
UMSJÓNARMAÐUR HELGARBLAÐS: STEFÁN SÆMUNDSSON
BLAÐAMENN:
ANDRÉS PÉTURSSON (Iþróttir),
BJÖRN JÓHANN BJÓRNSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavik vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RlKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASIMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Mesta ferða-
helgi ársins
Verslunarmannahelgin er runnin upp. Að
venju má búast við að ferðalög innanlands
verði mikil og mun meiri en gerist um aðrar
helgar ársins. Fjölmargir nota sér hina
löngu helgi til útivistar og ferðalaga auk
þess sem nokkrar skipulagðar útiskemmt-
anir eru haldnar að venju.
Ekki er fjarri lagi að áætla að rúmlega
helmingur fólksbílaflota landsmanna þjóti
um vegina nú um helgina og má búast við
langri bílalest á öllum helstu akstursleið-
um. Það er því full ástæða til að hvetja öku-
menn til að sýna sérstaka aðgæslu í akstri
þessa helgi og taka tillit til aðstæðna. Bitur
reynsla hefur kennt okkur það að umferðin
tekur sinn toll í slysum, eignatjóni, meiðsl-
um og mannslífum. Hættan á slíkum slys-
um er meiri um verslunarmannahelgina en
aðrar helgar ársins, einfaldlega vegna hins
gífurlega umferðarþunga.
Ekki bætir úr skák að ferðalögum, úti-
skemmtunum og dansleikjahaldi um þessa
helgi fylgir jafnan mikil og almenn áfeng-
ísneysla. Margir freistast til þess að aka bíl
eftir að hafa neytt áfengis, þótt slíkt sé óðs
manns æði. Aksturshæfileikar skerðast
stórlega og slysahættan margfaldast. Það
verður aldrei of oft brýnt fyrir ökumönnum
að akstur og áfengi eiga enga samleið. Þau
varnaðarorð ættu menn að hafa hugföst nú
sem fyrr.
Það er annasöm helgi framundan hjá
lögreglu og starfsmönnum Umferðarráðs,
sem munu kappkosta að halda uppi sem
mestu og bestu eftirliti með umferðinni og
koma á framfæri gagnlegum upplýsingum
til vegfarenda. Við það munu þeir njóta
dyggrar aðstoðar útvarps- og sjónvarps-
stöðvanna, sem leggja sérstaka áherslu á
upplýsingaþjónustu við ferðalanga alla
helgina. Allir þessir aðilar eiga þakkir
skildar fyrir framlag sitt til þess að gera
þessa mestu ferðahelgi ársins sem áfalla-
minnsta.
Um leið og Dagur biður ferðafólki farar-
heilla í umferðinni, hvetur blaðið alla til að
ganga vel um landið og sýna því þá virð-
ingu sem það á skilið. BB.
úr hugskotinu
í-
„Flugstuð Leifs Eiríkssonar, hinn glæsti minnisvarði um íslenskt framtak á hausnum“.
Kvótalaus fyrirheit
Hún situr á leðurklæddum
bekknum með kornabarnið á
handleggnum, íslenska
madonnan, og virðir fyrir sér
innvolsið í Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar, hins glæsta minnisvarða
um íslenskt framtak á hausnum.
Hún er ef til vill frá Patreks-
firði, og lætur hugann reika heini
þar sem sýslumaðurinn með
svörtu töskuna er mættur,
ásamt lögfræðingunum að sunn-
an til að bjóða upp frystihúsið,
meðan hún bíður þess að kallað
verði upp flug Flugleiða númer
eitthvað og eitthvað til Oslóar
og Stokkhólms. Hún er á leið til
fyrirheita, sem hvað sem öðru
líður, hafa einn kost sem mikils-
verður hlýtur að teljast. Þau eru
kvótalaus.
Steinar úr glerhúsi
Á því leikur varla vafi, að
íslenski meðaljóninn, sá sem á
hús, tvo nýja bíla og fer í sólar-
ferð eða „út á land“ með fjöl-
skylduna, vitanlega allt í skuld,
er samkvæmt öllum SKÁÍS eða
Gallupmælingum yfir sig
hneykslaður á madonnunni
okkar, að hún sem hafði svo
góða vinnu í fiskinum fyrir
vestan, og enn betri vinnu á
skrifstofunni í Borginni skuli
virkilega ætla að fara að flýja
land, og hún sem ekki kann
einu sinni málið. Vitaskuld er
þetta viðhorf hins skoðana-
kannaða íslendings ekkert ann-
að en stcinkast úr glcrhúsi.
Hann er auðvitað alveg grænn
af öfund, og væri sjálfsagt far-
inn líka til Svíaríkis ef . . .
Spyrja má svo þess hvað reki
einstæðu madonnuna okkar í
Leifsstöð, og nokkur hundruð
annarra einstaklinga eða fjöl-
skyldna, til Svíþjóðar af öllum
löndum, þvf það er kunnara en
frá þurfi að segja, að mönnum
virðist varla vera jafnilla við
nokkra þjóð og Svía til að
mynda þegar okkur gengur illa í
handbolta. Pá er vanalega
kennt um vondum sænskum
dómurum, vondum og yfirdrifið
grófum sænskum leikmönnum,
eða þegar hvorugu er til að
dreifa alveg hræðilega vondri og
íslendingafjandsamlegri sænskri
handknattleiksforystu. Pá segj-
um við gjarnan um Svía að þeir
séu allra manna duglegastir við
að búa til allskyns vandamál, og
í framhaldi af því allskyns sér-
fræðinga til að leysa þau. En sú
spurning hlýtur nú að vakna
hvort við sjálf höfum ekki
dálitla tilhneigingu til þess
sama. Hvort þarna séum við
ekki enn að kasta steini úr gler-
húsi, gjarnan smíðuðu að
sænskri fyrirmynd.
Verðmætt vinnuafl
En hvað svo sem líður öllum
vandamálum sænskra raunveru-
legum eða ímynduðum, þá
verða menn að viðurkenna eitt,
og það er, að þarlendir atvinnu-
rekendur eru ólíkt skynsamari
en starfsbræður þeirra á íslandi.
Þeir hafa nefnilega komist að
raun um það hversu óhemju
hæft og þar með verðmætt
íslenskt vinnuafl er. Þannig eru
íslendingar tilbúnir að vinna
yfirvinnu gerist þess þörf, nokk-
uð sem aðrir fúlsa við, enda
hægt að framfleyta sér af eðli-
legum dagvinnulaunum. Og
íslendingarnir eru yfirleitt það
gott og vel menntað vinnuafl,
að það margborgar sig að greiða
þeim há laun. Þau einfaldlega
skila sér aftur í bættum afköst-
um og meiri arði. Það er hins
vegar orðið að einhversskonar
trúarsetningu meðal íslenskra
atvinnurekenda, að laun séu
hér alltof há, ef til vill skammast
þeir sín þó örlítið fyrir þetta, og
taia um hugtök sem enginn
venjulegur maður skilur í þessu
sambandi, eins og til að mynda
of hátt raungengi. Til upplýs-
ingar fyrir fólk skal þess hér get-
ið að þegar talað er uni of hátt
raungengi, er á mannamáli sagt,
að það fáist alltof mikið fyrir
hverja krónu. Að það fáist til að
mynda alltof mörg kíló af fjalla-
lambi fyrir hvern þúsund-
kall . . . í hnotskurn að launin
séu alltof verðmikil.
Ótryggt ástand
Sjálfsagt hafa einhverjir þeirra
sem á hinum síðustu mánuöunt
hafa leitað til Svíaríkis í
atvinnuleit, séð í gegnum allt
þetta stofnanamálsblaður um
raungengi, og leitað til staðar
þar sem rétt verð er greitt fyrir
vinnu þeirra, en fleira kemur til
en bara þau laun sem lágtaxta-
fólkinu, gjarnan í undirstöðu-
greinum samfélagsins, eru
boðin, og maður þorir ekki að
nefna kinnroðalaust við útlend-
inga, heldur bætist þar ofaná
það óvissa ástand sem ríkir í
atvinnumálum, meðfram vegna
blessaðra kvótanna, sem nú
kvað meira að segja eiga að fara
að setja á blessað svínaketið
sem mun þó vera kostafæði, já,
algert æði . . . Kvótar kunna að
vera góðir og blessaðir, til
dæmis, í því skyni að forða okk-
ur frá því að eyðileggja fiski-
miðin áður en slys í rússneskum
kjarnorkukafbát verður til þess,
að úthlutun kvótanna verður að
vera réttlát, og þau byggðarlög
að sitja fyrir sem mest eru þurf-
andi. Bæjarfélög á borð við
Reykjavík og Hafnarfjörð
verða þegar í stað að afsala sér
Reynir
Antonsson
skrifar
öllum sínum kvótum, ellegar
einhverju af þeim iðnaði t.d.
rafeindaiðnaði, í þágu sjávar-
útvegs, þar sem laun eru nokk-
uð þokkaleg eftir því sem geng-
ur og gerist, og sem vel getur
þrifist í sjávarbæjum á borð við
Patreksfjörð, og létt þannig
undir þegar að kreppir í útveg-
inum. Sá harmleikur að svo
hagkvæmur útgerðarstaður sem
Patreksfjörður er, leggist í eyði
má aldrei verða. Þetta er ekki
nein spurning um rétt eða rangt
gengi, afkomu eða skuldir.
Þetta er spurning um fólk.
Sömuleiðis verður að koma í
veg fyrir að kvótar komist í eigu
fínu fjölskyldnanna í Reykjavík
eins og er að gerast þessa dag-
ana í gegnum Skeljung, Eim-
skip, eða óskabarn samgöngu-
ráðherrans okkar Flugleiðir, við
kaup Ögurvíkurhlutabréfanna.
En fleira kemur til, og veldur
landflótta, lág laun verða enn
lægri vegna verðlags sem við
erum að verða að viðundri fyrir
í augum ferðamanna sem okkur
sækja heim. Og sennilega
myndi undrun þeirra breytast í
hlátur ef þeir sæju auglýsingar
sem nýlega birtust í færeyskum
blöðum um Ólafsvökutilboð á
íslensku lambakjöti, og gott ef
ekki íslenskum kjúklingum
líka, sem var þetta 26 krónur
færeyskar á kíló (margfaldið
með 8 til að fá verðið í plat-
krónunum íslensku). Hvort hún
hefur nú vitað þetta madonnan
okkar, þar sem.hún nú situr um
borð í einni Dísinni glæsilegu
sem þjóðin keypti útá krít
handa Flugleiðum, er ekki
vitað. Hana má það raunar einu
gilda þar sem hún er nú á leið til
kvótalausra fyrirheita.
Og meðan Hornafjörðurinn
hverfur í hvítlitað skýjatrafið,
gengur lífið sinn vanagang fyrir
neðan. Denni segir að gengis-
felling sé alls ekki t' sjónmáli en
heimilar Seðlabanka gengissig
innan tveggja sólarhringa, stað-
irnir sem best liggja við fiski-
miðunum fara í eyði, og menn
byggja þjóðarbókhlöður á
landssvæðum þar sem það er
örugglega tryggt, að eyða verði
þrjátíu og fimm milljónum í
viðgerðir áður en byggingunni
er lokið, og viðhald áður en
nokkur bók er þangað borin.