Dagur - 05.08.1989, Qupperneq 11
V
!
dagskrá fjölmiðla
16.03 Ferðalög og fleiri lög.
Svavar Gests fylgir ferðalögum heim.
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Áfram ísland.
Dægurlög með íslenskum flytjendum.
20.30 Útvarp unga fólksins.
Við hljóðnemann éni Hlynur Hallsson og
norðlenskir unglingar.
22.07 Heim í hlað.
með Skúla Helgasyni.
00.10 Rokk og nýbylgja.
Skúli Helgason kynnir.
01.00 Næturútvarp á báðum rásum til
morguns.
Fréttir kl. 7, 7.30, 8, 8.30, 9, 10, 11, 12,
12.20, 14, 15, 16, 17, 18, 19, 22 og 24.
Næturútvarpid
1.00 „Blítt og létt...“
2.00 Fréttir.
2.05 Lögun.
3.00 Rómantíski róbótinn.
4.00 Fréttir.
4.05 Næturnótur.
4.30 Veðurfregnir.
5.00 Fréttir af veðri og flugsamgöngum.
5.01 Áfram ísland.
6.00 Fréttir af veðri og flugsamgöngum.
6.01 Blítt og létt...“
Ríkisútvarpid Akureyri
Mánudagur 7. ágúst
8.10-8.30 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands.
Rás 2
Þriðjudagur 8. ágúst
7.03 Morgunútvarpið.
9.03 Morgunsyrpa
Eva Ásrún Albertsdóttir.
- Neytendahorn kl. 10.05.
- Afmæliskveðjur kl. 10.30.
- Þarfaþing með Jóhönnu Harðardóttur
kl. 11.03.
- Gluggað í heimsblöðin kl. 11.55.
12.00 Fréttayfirlit • Auglýsingar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Umhverfis landið á áttatíu
með Gesti Einari Jónassyni.
14.03 Milli mála.
- Árni Magnússon á útkíkki og leikur nýju
lögin.
Hagyrðingur dagsins rétt fyrir þrjú og
Veiðihornið rétt fyrir fjögur
16.03 Dagskrá.
Dægurmálaút varp.
Guðrún Gunnarsdóttir, Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson, Lísa Pálsdóttir, og Sigurður G.
Tómasson.
- Kaffispjall og innlit upp úr kl. 16.00.
- Auður Haralds talar frá Róm.
- Stórmál dagsins á sjötta tímanum.
18.03 Þjóðarsálin, þjóðfundur í beinni
útsendingu, sími 91-38500.
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Áfram ísland.
Dægurlög með íslenskum flytjendum.
20.30 Útvarp unga fólksins.
Við hljóðnemann eru Vernhaður Linnet
og Atli Rafn Sigurðsson.
22.07 Bláar nótur.
Pétur Grétarsson kynnir djass og blús.
01.00 Næturútvarp á báðum rásum til
morguns.
Fréttir eru sagðar kl. 7, 7.30, 8, 8.30, 9,
10, 11, 12, 12.20, 14, 15, 16, 17, 18, 19, 22
og 24.
Næturútvarpið
91.00 „Blítt og létt..."
02.00 Fréttir.
02.05 Ljúflingslög.
03.00 Rómantiski róbótinn.
04.00 Fréttir.
04.05 Glefsur.
04.30 Veðurfregnir.
04.40 Á vettvangi.
05.00 Fréttir af veðri og flugsamgöngum.
05.01 Áfram ísland.
06.00 Fréttir af veðri og flugsamgöngum.
06.01 „Blítt og létt..."
Ríkisútvarpið á Akureyri
Þriðjudagur 8. ágúst
8.10-8.30 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands.
Bylgjan
Laugardagur 5. ágúst
09.00 Pétur Steinn Guðmundsson
segir hlustendum hvernig best sé að
grilla pylsur í útilegu og fleirra.
13.00 Opin dagskrá.
Allt dagskrárgerðarfólk Bylgjunnar kem-
ur við sögu, verður í beinu sambandi við
þá staði þar sem eru útihátíðir og fleirra.
18.00 Áframhaldandi upplýsingaflæði
til hlustenda og tónlist fyrir rómantískt
fólk sem er um það bil að koma sér fyrir í
hlýjum svefnpokum.
24.00 Hafþór Freyr
er núna rétt að vakna og fylgir þeim hörð-
ustu í gegnum nóttina með trukki og
dýfu.
Sunnudagur 6. ágúst
09.00 Haraldur Gíslason
kemur til aðstoðar, veitir góð ráð við
timburmönnum og hefur tónlistina í ljúf-
ari kantinum.
13.00 Eru ekki allir í stuði...
Dagskrárfólk Bylgjunnar kannar hvernig
helgin hefur gengið hingað til og er með
stöðugt upplýsingastreymi til hlustenda.
20.00 Pia Hanson
mætir með plötusafnið sitt sem hún not-
aði í gamla daga og finnur nokkur sígild
verslunarmannahelgarlög til að spila.
24.00 Samtengd næturvakt fram undir
morgun.
Mánudagur 7. ágúst
07.00 Páll Þorsteinsson
fylgist með umferðinni i bæinn og spilar
tónlist sem allir í fjölskyldunni ættu að
þekkja.
10.00 Valdís Gunnarsdóttir.
Ljúf lög eftir erilsama og skemmtilega
helgi heyrirðu hjá Valdísi.
14.00 Haldið heim á leið ... Bjarni Ólafur
á þjóðhátíð í Eyjum og Bylgjufólk út um
allt land fylgist meo umferð.
18.10 Arnþrúður Karlsdóttir. Reykjavík -
Akureyri síðdegis.
Nú fer umferðin heldur betur að þyngjast
þá fylgist Bylgjan að sjálfsögðu með.
Segðu þína ferðasögu 611111.
19.00 Þorsteinn Ásgeirsson
er með á nótunum og veit vel hvað
þreyttir ferðalangar vilja heyra.
24.00 Næturdagskrá Bylgjunnar.
Þriðjudagur 8. ágúst
07.00 Páll Þorsteinsson.
Morgunþáttur athafnafólks sem vill hafa
fréttirnar á hrienu áður en það fer í vinn-
una.
10.00 Valdís Gunnarsdóttir.
Gömlu góðu lögin sem þú varst búin að
gleyma, heyrirðu hjá Valdísi.
14.00 Bjarni Ólafur Guðmundsson.
Hér er allt á sínum stað, óskalögin og
afmæliskveðjur allan daginn.
18.00 Arnþrúður Karlsdóttir - Reykjavík
síðdegis.
í þessum þætti nær þjóðmálaumræðan
hámarki með hjálp hlustenda. Síminn í
Reykjavík síðdegis er 611111.
19.00 Snjólfur Teitsson.
Þægileg ókynnt tónlist í klukkustund.
20.00 Þorsteinn Ásgeirsson.
Strákurinn er kominn í stuttbuxur og er í
stöðugu sambandi við íþróttadeildina
þegar við á.
24.00 Næturvakt Bylgjunnar.
Fréttir kl. 8, 9, 10, 11, 12, 13, 14, 15, 16,
17 og 18.
Hljóðbylgjan
Mánudagur 7. ágúst
17.00-19.00 M.a. er vísbendingargetraun.
Stjómandi útsendingar er Pálmi Guð-
mundsson.
Fréttir kl. 18.00.
Þriðjudagur 1. ágúst
17.00-19.00 M.a. er létt umræða um lífiö og
tilveruna.
Stjórnandi er Pálmi Guðmundsson.
Fréttir kl. 18.00.
*
*
Ijósvakarýni
Nýskotnir
og nýhengdir
Ég geri mjög lítið af því að hlusta á útvarp á dag-
inn og kvöldin. Á morgnana hlusta ég á Rás 2 frá
hálf átta og fram yfir áttafréttir og stundum á
útsendingu Svæðisútvarpsins líka. Hádegis- og
kvöldfréttum fylgist ég með og stundum hlusta
ég síðdegis á brot af Dagskrá á Rás 2. Ef ég hef
þrek til hlusta ég á fréttir í Svæðisútvarpinu, t.d.
um að mikil harka og samkeppni ríki nú í versl-
unarmálum á Húsavík og allt sé gjörsamlega að
tryllast út af áfengisútsölumálunum. Það þarf
nefnilega þrek til að hlusta á fréttir úr sinni
heimabyggð sem manni finnast í rauninni ótta-
legt rugl og lítill fótur vera fyrir. Þó Iftið sé um að
vera á svæðinu er heiðarlegra að að greina frá
rólegheitunum í góða veðrinu, en að búa til æsi-
fréttir og skáldsögur um Húsvíkinga.
Annars er þetta nú kannski óþarfa amasemi
og að best sé að brosa út í annað og hlusta á
fréttir Svæðissútvarpsins með fyrirvara um að
þær eigi að vera einhverskonar skemmtiþáttur,
þar sem sagt sé frá fleiru en staðreyndum.
1 sjónvarpsfróttunum finnst mér aftur á móti
færast í vöxt að sýndar séu myndir frá atburðum
sem ekki er nokkur leið að brosa að. Þó ég hafi
óvenju lítið horft á fréttir að undanförnu hef ég þó
á örfáum dögum upplifað það að sjá tvo
nýskotna menn, og það í einum og sama
bílnum, og svo nýhengdan mann dinglandi í
snörunni, en að vísu var bara einn dauður í það
skiptið. Hjá sjónvarpsstöðvunum vinnur slatti af
af fólki sem tekur sig ágætlega út á skjánum og
er sæmilega skýrmælt. Því þyrftu stöövarnar
ekkert að skammast sín fyrir að bregða upp
mynd einhvers starfsmannsins til að lesa aðvar-
anir í fréttatímunum, sem gætu hljóðað eitthvað
á þessa leið, ef áfram heldur sem horfir: „Ég vil
benda börnum, gamalmennum, viðkvæmu fólki
og þeim sem eiga erfitt með að horfast í augu við
staðreyndir lífsins og dauðans, á að eftir fimm
mínútur sýnum við mynd af konunni sem var
lamin til bana á Seltjarnarnesinu í gærkvöldi.
Líkið er svolítið blátt og blóðugt og ykkur langar
kannski ekkert að sjá myndina af því. Svo eftir
sjö mínútur verður sýnd mynd af líki sem fannst
sjórekið við Grundartanga í nótt, og þó þið getið
ekki fundið lyktina langar ykkur kannski ekkert
að sjá þá mynd heldur.“
Ingibjörg Magnúsdóttir.
1
spurning vikunnar
Hvað á að gera um
verslunarmannahelgina?
Kolbrun Sigurðardóttir:
Ég ætla í Vaglaskóg með syst-
ur minni og frænku, það veröur
örugglega fjör þar.
Sigurjón Baldvinsson:
Ég ætla auðvitað að skemmta
mér. Stefnan er sett á Skóginn
því vegna atvinnuleysis er
eitthvað minna um Húnaver.
Það er betra að vera bara í
rólegheitunum - ef það verður
þá rólegt.
Gísli Aðalsteinsson:
Ég verð nú að vinna um helgina
en ef ég fæ smá frí þá skelli ég
mér í Húnaver. Það bendir allt
til að þar verði fjölmenni.
Björg Finnbogadóttir:
Ég geri mikið af því að ferðast
og um helgina ætla ég í 4 daga
ferð með Ferðafélaginu í
Herðubreiðálindir, Öskju og
Nýjadal.
Björgvin Gunnarsson:
Það verður tekið frí frá skemmt
unum þessa helgi því ég ætla í
veiði í SkjálfandafIjóti.
i